Morgunblaðið - 28.07.2005, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 28.07.2005, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MENNING EINSTAKT tækifæri og hugsanlega hið eina gefst í kvöld í Nýlistasafninu þegar Gunn- laugur Egilsson og Tilman O’Donnell frum- flytja dansverkið SALT. „Þetta verður senni- lega eini flutningurinn á verkinu sem við sömdum með rýmið í Nýlistasafninu í huga og Tilman er á förum af landinu á sunnudag svo ekki verður um fleiri sýningar að ræða,“ segir Gunnlaugur. Gunnlaugur hefur á undanförnum árum get- ið sér gott orð í hinum alþjóðlega dansheimi og hefur verið fastráðinn við Konunglega sænska ballettinn í Stokkhólmi um þriggja ára skeið. Áður dansaði hann með Genfarballettinum í Sviss. Tilman O’Donnell hefur vakið athygli sem danshöfundur og hefur á þessu ári unnið danshöfundakeppni í Hannover í Þýskalandi og Kuopio í Finnlandi í samstarfi við Shintaro Oue. „Við kynntumst upphaflega í Kanada þar sem við vorum í námi og leiðir okkar lágu síðan saman aftur í Stokkhólmi þar sem hann dansar með Cullberg-dansflokknum. Þetta er eig- inlega ágætt dæmi um hversu lítill dansheim- urinn er,“ segir Gunnlaugur. „Ef maður hefur hitt einhvern einhvers staðar er líklegt að maður hitti hann aftur annars staðar áður en langt um líður.“ Dansverkið SALT er að sögn Gunnlaugs til- vitnun í sjómannslífið og hvernig það er að vera bundinn einhverju án þess að vita af því. „Eins og líkaminn er háður salti án þess að vita af því,“ segir hann til skýringar. Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem Gunn- laugur og Tilman vinna saman. „Við unnum saman í verki eftir mig sem sýnt var á Drama- ten í Stokkhólmi fyrir tveimur árum og hét Taskig Spådom og þetta verk núna fæddist einfaldlega af löngun okkar til að auðga dans- lífið á Íslandi meðan við erum hér í sumar.“ Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Gunnlaugur Egilsson og Tilmann O’Donnell eru í fremstu röð í alþjóðlega dansheiminum. Með salt í æðum Dans| Frumsýna nýtt dansverk í Nýlistasafninu HLÍN Gunnarsdóttir, leikmynda- og bún- ingahönnuður, býr ásamt eiginmanni sínum, Sigurgeiri Þorgeirssyni leiðsögumanni, í fal- legu timburhúsi í bakhúsagarði við Grett- isgötuna í Reykjavík. Stóran hluta ársins eru þau þó ekki ein í húsinu því þau reka Gistiheimilið Forsælu bæði á heimili sínu og í næsta húsi. Fyrir átján árum síðan keyptu þau húsið Grettisgötu 33b þar sem þau bjuggu til árs- ins 1999, og gerðu það upp í rólegheitunum. Röð tilviljana varð til þess að þau breyttu húsinu í áföngunum í þrjár íbúðir. Haustið 1999 keyptu þau næsta hús, Grettisgötu 35b, og gerðu það einnig upp hægt og rólega, með opnun gistiheimilis í huga. Þar búa þau árið um kring, eru uppi á veturna en í sumarbústaðnum, kjallaranum, á sumrin. Gamall draumur „Ég og maðurinn minn segjumst oft ekki hafa unnið ærlegt handtak um ævina,“ segir Hlín.„Hvorugt okkar hefur verið í fastri vinnu síðustu tuttugu ár heldur í hinum ýmsu verkefnum,“ lýsir Hlín. „Þetta er ann- að sumarið sem við hjónin pökkum niður okkar dóti og flytjum niður í kjallara þar sem vinnuaðstaðan mín er.“ Sigurgeir er í burtu mestallt sumarið að leiðsegja svo að hún sér ein um reksturinn. „Á sumrin kem ég eiginlega inn í húsið mitt sem gestur til að taka til morgunverð og sinna gestum. Í lok október flytjum við upp aftur.“ Hlín segist hafa átt drauminn um gisti- húsrekstur lengi og fjórum árum áður en þau keyptu seinna húsið hafði hún fengið teikningar af því hjá Byggingarfulltrúa og látið sig dreyma um þær framkvæmdir sem eru orðnar að veruleika í dag. Listamaður með rekstur „Þetta líf hentar mér mjög vel, það að skapa og finna mín eigin tækifæri. Leik- húsið er búið að vera mitt lifibrauð og ánægja lengi en ég hannaði síðast leikmynd og búninga fyrir Allir á svið í Þjóðleikhús- inu fyrir um tveimur árum,“ segir Hlín. Hugmyndin var að skapa fjárhagslegt bakland til að geta síðan sinnt spennandi verkefnum í listinni, óháð arðsemi. „Starf listamannsins er oft heilagt og það að vinna sem listamaður og vera með rekstur til hlið- ar hefur gengið vel,“ segir Hlín. Síðustu tvo mánuði hefur hún þó sinnt allt öðru en gistiheimilinu. Fyrir rúmu ári hafði Inga Lísa Middleton samband við Hlín og bað hana að vinna með sér að gerð sjónvarpsþátta eftir Galdrabókinni sem Margrét Örnólfsdóttir og Inga Lísa eru í sameiningu höfundar að. Hlín hannaði bæði leikmyndina og útlit á brúðum fyrir þættina og er þetta í fyrsta skipti sem hún tekur þátt í verkefni sem þessu. Þróunarvinnan fór fljótlega af stað og hefur vinnuferlið verið spennandi. Hún vann náið með brúðugerðarmanninum og stjórnandanum Bernd Ogrodnik en hann er einn sá færasti í sínu fagi. Þættirnir, sem eru 24 talsins, verða sýnd- ir á Stöð 2 í desember sem jóladagatals- þættir stöðvarinnar. Skemmtilegt en erfitt ferðalag „Eftir að hafa tekið þátt í svona verkefni finnst mér leikhúsið vera eins og verndaður vinnustaður,“ lýsir Hlín. „Þar fær maður handrit, hefur ákveðinn tíma og allt er í föstu formi.“ Síðustu tvær vikur hafa verið ansi stífar og var yfirleitt unnið fram undir morgun alla daga. Hlín var með góða aðstoðarmenn sér við hlið, Móeiði Helgadóttur og Þórarin Blöndal, við leikmyndagerð og Þórunni Maríu Jónsdóttur, Helgu Rún Pálsdóttur og Katrínu Þorvaldsdóttur við búningagerð. „Verkefnið er búið að vera skemmtilegt en stundum erfitt,“ segir Hlín og líkir því við ferðalag. „Þó að maður þurfi að vaða jökulár og næstum ókleif fjöll á leiðinni þá er takmarkið það eina sem maður sér.“ Hún væri alveg til í að byrja á svipuðu verkefni strax á morgun og segist hafa lært heilmikið í ferlinu. Vinnuaðferðirnar voru frábrugðnar þeim í leikhúsinu og margt sem þurfti að huga að. Tíminn er dýrmætur Á meðan á verkefninu stóð fékk Hlín ís- lenska vinkonu sína sem er búsett í Svíþjóð til að sjá um gistiheimilið en nú, þegar törn- inni er lokið, hefur hún tekið sjálf við stjórninni og hugsar um ferðamenn á heim- ili sínu. „Ég vona auðvitað að einhver skemmtileg verkefni komi til mín í haust en ef ekki þá bý ég þau til sjálf. Tíminn er dýrmætur, ég veit ekki hvort ég hugsa þannig af því að ég er verða miðaldra,“ segir hún og hlær. Hlín segist bæði vera skapandi og praktísk, sem nýtist vel. Fleiri hugmyndir varðandi reksturinn í paradísinni við Grettisgötuna eru í kollinum á Hlín og hana langar í framtíðinni til að skipuleggja ferðir út fyrir borgina fyrir gestina sína. Það er greinilegt að hún hefur einkar gaman af að opna heimili sitt gestum og segir heimagistingu góða leið fyrir ferða- menn til að komast nær hjarta og þjóðarsál Íslendinga. Aðalatriðið er að láta draumana rætast, segir Hlín. Hana vantar hvorki hugmynda- flugið í listinni né rekstrinum og það gefur henni greinilega mikið að gefa af sér á báð- um sviðum. Listir og viðskipti | Hlín Gunnarsdóttir rekur gistiheimili meðfram listinni „Bæði skapandi og praktísk, sem nýtist vel“ Paradís í miðborginni. Hlín rekur gistiheimili allan ársins hring. Hlín Gunnarsdóttir á vinnustofunni. Þar fór persónusköpunin fyrir Jóladagatal Stöðvar 2 fram. Eftir Völu Ósk Bergsveinsdóttur valaosk@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.