Morgunblaðið - 28.07.2005, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 28.07.2005, Blaðsíða 51
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 16 H.L. MBL T O M C R U I S E Sýnd kl. 8 og 10.15 B.i 14 MYND EFTIR Steven spielberg INNRÁSIN ER HAFIN -KVIKMYNDIR.IS  -Ó.H.T, RÁS 2   -Blaðið -KVIKMYNDIR.IS  BLÓÐUG, BRÚTAL OG BRILLIANT! Þorir þú í bíó? Frá framleiðanda Texas Chainsaw Massacre Kemur magnaðasta hrollvekja ársins! Fór beint á toppinn í USA Byggt á sannri sögu  -Blaðið T.V. kvikmyndir.is Sýnd kl 8 og 10 B.I. 16  Þ.Þ. FBL BLÓÐUG, BRÚTAL OG BRILLIANT! -S.V. Mbl.  -Steinunn /Blaðið  Sýnd kl. 3, 8 og 10:15 Miðasala opnar kl. 17.15 Sýnd kl 6, 8.30 og 11 SKEMMTILEGASTA STÓRMYND SUMARSINS. FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM! SKEMMTILEGASTA STÓRMYND SUMARSINS. FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM! Nú eru það fangarnir gegn vörðunum! Nú eru það fangarnir gegn vörðunum! YFI R 30. 000 GE STI R ÞÆR ERU OF UPPÁÞRENGJANDI. 3. ÁGÚST Hverju myndir þú fórna fyrir fjölskylduna? Magnaður spennutryllir af bestu gerð með Bruce Willis í toppformi Sýnd kl. 6, 8.30 og 11 B.I. 16 SÍÐUS TU SÝ NING AR Sýnd kl. 5.30 B.i 10 ÁRA Sýnd kl. 3, 5 og 6 íslenskt tal 400 kr. í bíó!* * Gildir á allar sýningar merktarmeð rauðu Sími 551 9000 Sýnd Kl. 3, 5, 7, 9 og 10:45 Gamanleikarinn Will Ferrel skorar feitt og hressilega í myndinni. Ekki missa af fjölskyldugrínmynd sumarsins. Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna! ☎ - BARA LÚXUS 553 2075 AÐEINS EINN MAÐUR GAT LEITT ÞETTA LIÐ TIL SIGURS... SÁ MAÐUR VAR UPPTEKINN. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2005 51 TÓNLIST Fríkirkjan Emilíana Torrini  Tónleikar Emilíönu Torrini og hljómsveitar hennar í Frí- kirkjunni þriðjudaginn 26. júlí. Þórir hitaði upp. EFTIRVÆNTINGIN var mikil og einlæg í troðfullri Fríkirkjunni áður en Emilíana Torrini og liðsmenn hennar gengu upp að altari og hófu leik sinn. Enda ekki nema von. Langt er síðan hún hefur haldið tónleika hér á landi, plata hennar Fisherman’s Woman hefur selst í yfir fimm þúsund eintökum og er enda ein sú besta sem út hefur komið á árinu og svo er líka Frí- kirkjan sérdeilis heillandi tónleikastaður; býr yf- ir einhverjum ólýsanlegum virðuleika sem gerir eiginlega alla þá tónlist sem þar er leikin fallega. En áður en kirkjudyrnar voru opnaðar fyrir Emilíönu lék hið unga og stórefnilega söngva- skáld Þórir nokkur lög á gítar sinn; flest hver ný og af væntanlegri annarri plötu hans sem koma á út í haust. Þórir hefur einstakan stíl, hefur viðkvæma og brothætta rödd sem hann beitir á sjarmerandi hátt, semur ágeng og ljúf- sár lög með textum sem vekja mann til íhug- unar. Bíð spenntur eftir plötunni, mjög spennt- ur. Skilyrði fyrir tónleika með Emilíönu voru kjörin, næsta fullkomin. Hið virðulega guðshús við Fríkirkjuveginn er sem fyrr segir einkar heillandi tónleikastaður. Gjörsamlega ógleyman- legir eru t.a.m. tónleikar sem Sigur Rós hélt þar í október árið 2000. Og vonaði maður því að Em- ilíana og söngur hennar fengi sín álíka vel notið þar í þessu friðsæla húsi. Sem og kom á daginn. Það var hrein unun að hlýða á flutning hennar og kærkomið fyrir okkur sem kunnum svo vel að meta hina mjög svo lágstemmdu og gefandi plötu hennar að fá loksins að heyra lögin af henni leikin svo vel á tónleikum. Flutningurinn var svo gott sem óaðfinn- anlegur, eiginlega einum of því tilþrifin hefðu að ósekju mátt vera meiri. Blæbrigðin ríkulegri. Því þótt uppistaðan af tónleikaprógramminu hafi verið hin frábæra plata hefði verið fróðlegt að heyra sum laganna í ögn frábrugðnari útsetningum, eins og t.d. „Heartstopper“, sem búið var að keyra svolítið upp að manni heyrðist, og virkaði mjög vel þannig. En þá eru líka skuggahliðar tónleikanna upp- taldir. Allt annað var sólarmegin. Þótt söng- konan hafi virkað svolítið óstyrk á köflum kom það aldrei niður á frammistöðu hennar. Hún ljómaði nefnilega af öryggi og sönggleði um leið og hún hafði talið í. Á milli laga sagði hún svo krúttlegar og skondnar gamansögur af tilurð laganna og ferðum sínum um landið; var reynd- ar svolítið ruglingsleg á stundum, væntanlega þegar stressið náði of miklum tökum á henni, eins og hún sjálf viðurkenndi. Þetta virðist reyndar vera hennar helsta sjálfsvarnartækni, að gera gys að sjálfri sér og meintum göllum sínum, allt frá því hvernig hún þurfti að láta troða sér í fallega kjólinn sem hún var í – og vel að merkja bar glæsilega – til þess hvernig hor- inn lak úr nösunum og tárin streymdu eins og hjá smákrakka er hún heyrði í fyrsta sinn lög sem henni hafa áskotnast. Þessi áður óþekkta hlið á henni – opinberlega – virðist einlæg og ekta, rétt eins og tónlistin. Sögustundirnar gerðu tónleikana að enn ánægjulegri upplifun og vörpuðu einnig skýrara ljósi á sum lögin, eins og t.d. hvernig hún fékk átrúnaðargoð sitt Bill Cal- lahan úr Smog til að gefa sér lag. Kannski var það vegna hinnar einstöku veð- urblíðu þetta kvöldið. Kvöldsólin smyglaði sér inn um allar mögulegar rifur á álpapp- írsklæddum gluggum kirkjunnar og varpaði mjúkri og hlýlegri birtu á Emilíönu. Og tónlist- ina. Lögin virkuðu bjartari á mann en áður; við blasti hið jákvæða og uppbyggilega sem hin ann- ars ljúfsáru og tilfinningaþrungnu lög af Fis- herman’s Woman luma á. „Sunny Road“ hljóm- aði betur en nokkru sinni áður og hin frábæru „Unemployed in Summertime“ og „Summer- breeze“ af Love in the Time of Science hafa aldrei átt betur við. Kærkomið að fá að heyra nokkrar perlur af þeirri mjög svo vanmetnu fyrstu – erlendu – plötu hennar. Það er enn verið að tala um og dásama Frí- kirkjutónleika Sigur Rósar, fimm árum eftir að þeir voru haldnir, og verður gert um ókomna tíð. Mér segir svo hugur að það sama muni eiga við um Fríkirkjutónleika Emilíönu. Sólarmegin Heitt var í Fríkirkjunni en gestir létu það ekki á sig fá og fögnuðu Emilíönu ákaft. Emilíana Torrini er að verða okkar skærasta stjarna á tónlistarsviðinu. Skarphéðinn Guðmundsson Morgunblaðið/Árni Sæberg HLJÓMSVEITIN Juliette & The Licks hefur verið bókuð til að spila á Iceland Airwaves-hátíðinni sem fram fer í Reykjavík 19.–23. októ- ber. Sveitin mun spila á sérstöku kvöldi breska tímaritsins Kerrang!, sem kemur kannski ekki á óvart þar sem bandið er í miklu uppáhaldi hjá Kerrang!-mönnum sem hafa fengið Juliette Lewis, forsprakka sveit- arinnar og leikkonu, til að vera kynnir á Kerrang! Awards í ágúst. Þetta er í annað sinn sem þetta virta rokkrit er með kvöld á hátíðinni en í fyrra voru Mínus, Yourcodenameis- :milo (UK), Sign og Dr. Spock meðal þeirra hljómsveita sem tróðu upp á kvöldi Kerrang! Juliette Lewis á Airwaves Juliette & The Licks.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.