Morgunblaðið - 28.07.2005, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 28.07.2005, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. VIRKJANIR OG VANDRÆÐAPÉSAR Mótmælendur, sem unnið hafaskemmdarverk á eignumLandsvirkjunar og verktaka, sem starfa fyrir fyrirtækið við Kára- hnjúkavirkjun, vinna málstað umhverf- isverndar ekkert gagn. Raunar þvert á móti. Málstaður umhverfisverndar rétt- lætir ekki skemmdarverk, óspektir eða truflun á löglegri starfsemi fyrirtækja – frekar en nokkur annar málstaður. Hvað sem fólki kann að þykja um virkjun við Kárahnjúka og stóriðju á Reyðarfirði fer ekki á milli mála að um þessar fram- kvæmdir hafa verið teknar lýðræðisleg- ar ákvarðanir á Alþingi Íslendinga og undirbúningur þeirra hefur verið í sam- ræmi við lög og reglur. Rétturinn til að mótmæla aðgerðum stjórnvalda með friðsamlegum hætti er hins vegar mikilvægur og er oftlega nýttur í vestrænum samfélögum. Mót- mæli gegn stórvirkjunum og stóriðju hér á landi hafa til þessa farið friðsamlega fram, eins og vera ber. Málstaður þeirra, sem eru andvígir virkjunum á hálendinu, nýtur stuðnings stórs hóps meðal þjóð- arinnar. En almenningur styður ekki skemmdarverk eða óspektir. Friðsamir mótmælendur, sem berjast fyrir hug- sjónum sínum með orðum og rökum og leitast við að hafa þannig áhrif á skoðanir annarra, njóta virðingar. Þeir, sem krota á upplýsingaskilti, grýta tæki eða hlekkja sig við bíla, hætta hins vegar með því að vera hugsjónamenn og verða bara réttir og sléttir skemmdarvargar og vandræðapésar. Lögreglan á þess auðvitað ekki annan kost en að taka slíkt fólk úr umferð og sjá til þess að það haldi ekki uppteknum hætti. Hins vegar verður eins og endra- nær að gæta þess að beita ekki meira valdi en nauðsynlegt er til að halda uppi lögum og reglu. Undanfarin ár hefur lítill hópur óeirðaseggja sett svartan blett á alþjóð- lega mótmælahreyfingu, sem m.a. hefur andmælt afleiðingum hnattvæðingar. Þessi litli hópur hefur spillt fyrir frið- samlegum mótmælaaðgerðum í tengslum við alþjóðlega leiðtogafundi og ráðstefnur með því að efna til uppþota og sækjast beinlínis eftir átökum við lög- reglu. Þessi hópur er ekki aðallega knú- inn áfram af hugsjón, heldur fremur af ævintýramennsku og spennufíkn. Von- andi eru þær upplýsingar, sem fram hafa komið um tengsl aðgerða við Kára- hnjúka við þennan hóp, ekki vísbending um að meðlimir hans fari að gera sig heimakomna á Íslandi. Við höfum verið blessunarlega laus við friðarspilla í mót- mælaaðgerðum undanfarna áratugi. Íslenzkir náttúruverndarsinnar og samtök þeirra eiga auðvitað að fordæma aðgerðir af því tagi, sem átt hafa sér stað við Kárahnjúka, og reyna að beita sér fyrir því að slíkt athæfi endurtaki sig ekki. Málstaður þeirra þarf ekki á slíkum aðferðum að halda, heldur skaðast hann fremur af þeim. Svo geta menn haldið áfram sínu friðsamlega tjaldbúðalífi í sumarblíðunni og haldið áfram að berj- ast með orðum og rökum. ÁBYRGÐIN UM VERSLUNARMANNA- HELGINA ER MARGRA Það er langt gengið þegar fólk er fariðað tala um eins konar „fórnarkostn- að“ þegar verslunarmannahelgin nálg- ast. Þannig er það þó, enda hefur þessi mesta ferðahelgi ársins ætíð sínar dökku hliðar; slys, nauðganir, vímuefnanotkun og alla þá vanlíðan sem fylgir illa ígrund- uðum gjörðum fólks í misjöfnu ástandi. Markmið landsmanna fyrir verslunar- mannahelgina á þó ekki að vera að minnka „fórnarkostnaðinn“ heldur koma í veg fyrir að þung umferð, samkomur og skemmtun ræni fólk sjálfsvirðingunni, hamingjunni eða verði einhverjum að fjörtjóni. Til þess að það megi takast þurfa ákaf- lega margir að axla ábyrgð. Ekki bara þeir sem fara í ferðalög, heldur einnig margir sem heima sitja – til að mynda foreldrar unglinga. Það ætti auðvitað að vera ástæðulaust að klifa á því ár eftir ár að skemmtanir um verslunarmannahelg- ina ættu ekki vera fyrir ungmenni nema þau séu þá í fylgd foreldra sinna, en það sýnir sig þó í þessu sambandi að aldrei er góð vísa of oft kveðin. Líkurnar á því að ungmenni lendi í aðstæðum sem þau ráða ekki við, svo sem áfengis- eða vímu- efnaneyslu, eru töluverðar – einnig þótt ásetningur þeirra í upphafi ferðar sé góður. Enginn skyldi vanmeta hópeflið og þrýsting frá jafningjum í þessu sam- hengi. Nauðganir hafa einnig verið tíður fylgifiskur útihátíða um verslunar- mannahelgina, en í umræðu um þann vanda virðist það oft gleymast að hver einasta nauðgun er óbætanlegur skaði þeim sem fyrir henni verður. Hér gengur tölfræði ekki upp, ofbeldið er of alvar- legt til að hægt sé að skilgreina það eða henda á því reiður með slíkum aðferðum. Karlmenn bera mikla ábyrgð í þessu samhengi og eins og fram kom í grein þeirra Arnars Gíslasonar og Hjálmars G. Sigmarssonar í Morgunblaðinu í gær, „er mikilvægt að gera sér grein fyrir að nauðgun er kynbundið ofbeldi – að í langflestum tilfellum er það karlmaður sem nauðgar og kona sem er nauðgað“. Þeir benda ennfremur á að það „fæðist enginn nauðgari, slíkt hugarfar þróast með árunum.“ Karlmenn eru í lykilað- stöðu „til að koma karlmönnunum í kringum [sig] í skilning um að nauðgun er aldrei réttlætanleg, einfaldlega með því að kenna þeim að bera virðingu fyrir konum“. Ökumenn bera jafnframt mikla ábyrgð þessa helgi, umferðin úti á landi gerist varla þyngri og aðstæður eru gjörólíkar því sem gerist í þéttbýli þar sem flestir aka mest. Til þess að minna líkurnar á því að slys verði í umferðinni á þessum álagstíma er umburðarlyndi og þolinmæði mikilvægt veganesti. Sá sem tekur áhættu í umferðinni er sjaldnast að taka hana fyrir sig einan, miklar líkur eru á því að þegar óvarkárni eða tillits- leysi veldur slysi, þurfi margir að líða. Áfengisneysla er vitaskuld einfaldlega glæpsamleg í umferðinni og timburmenn skerða einnig hæfni manna undir stýri. Þótt aðdraganda verslunarmanna- helgarinnar fylgi ævinlega tónn for- varna og jafnvel umvandana af ýmsu tagi má ekki gleyma því að flestir þeir sem leggja í hann finna til ábyrgðar sinnar gagnvart sjálfum sér og náunganum. Þeir eiga rétt á líku viðmóti frá sam- ferðamönnum sínum þessa helgi sem endranær og þann rétt ber að virða. Mótmælendur sem hafaverið í tjaldbúðum viðKárahnjúka undan-farnar vikur tóku niður tjöld sín í gær og fóru af svæðinu. Þetta gerðist í kjölfar þess að hóp- urinn fékk tilkynningu í fyrrakvöld frá sýslumanninum á Seyðisfirði um að yfirgefa svæðið fyrir hádegi í gær. Talsverður viðbúnaður var hjá lögreglu af þessum sökum og höfðu meðal annars verið kallaðir til sér- útbúnir lögreglumenn sem flugu til Egilsstaða í gærmorgun og höfðust við í vinnubúðum við Kárahnjúka. Ekki kom þó til þess að þeir þyrftu að koma á svæðið, þar sem brottflutningur mótmælenda gekk snurðulaust fyrir sig. Um morgun- inn höfðu þegar verið tekin niður öll minni tjöld á svæðinu og ein- hverjir farnir. Öruggast að færa sig Um hádegi voru um 40 manns í búðunum og sýndu flestir þeirra á sér fararsnið. Í hádeginu las einn mótmælendanna tilkynningu frá hópnum, þar sem fram kom að hóp- urinn ætlaði að pakka saman og færa sig. Þetta væri vegna fram- komu lögreglu, sem hefði tekið frið- samlegum mótmælum hópsins með ofbeldi og öruggast væri að færa sig. „Við erum ekki að flýja, þetta eru ekki endalokin. Við höfum tekið ákvörðun um að fara og þetta er ný byrjun,“ sagði m.a. í yfirlýsingu hópsins. Lögregla fylgdist með svæðinu úr fjarlægð fyrst um sinn en kom á staðinn upp úr klukkan tvö og ræddi þá við einn mótmælanda sem lýsti því yfir að einhverjir ætluðu að fara af svæðinu en nokkrir ætl- uðu að vera eftir og voru jafnvel hugmyndir uppi um að láta stóra tjaldið standa, þannig að lögregla yrði að hafa afskipti af hópnum. Þá voru mótmælendur þó flestir farnir að bera farangur úr stóra tjaldinu og rúta sem hópurinn hafði pantað var komin á staðinn. Þó varð einn mótmælandi eftir og sló upp litlu tjaldi. Ekki er vitað til þess að lög- regla hafi haft afskipti af mannin- um, en hann ætlaði sér að fara um nóttina. Um svipað leyti og lögregla kom á staðinn kom Gísli Auðbergsson, lögmaður, á svæðið en hann var skipaður verjandi mótmælendanna sem handteknir voru í fyrrakvöld og ákvað að vera á svæðinu ef til átaka kynni að koma. Skömmu eftir að Gísli kom fór hann með mótmæl- endunum inn í tjaldið og réðu þau þar ráðum sínum í um hálftíma en að þeim fundi loknum var ákveðið að hópurinn færi burt af svæðinu og stóra tjaldið var fellt. Talsmenn hópsins vildu ekki gefa upp hvert förinni væri heitið en samkvæmt Mótmælend uðu saman Ekki þurfti bein afskipti lögreglu Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is Lögreglan komin í búðirnar til að kanna hvort mótmælendur séu Lögð á ráðin. Nokkrir mótmælendur skoðuðu kort – kannski í þe heimildum Morgunblaðsin hópurinn fara að bænum Skriðdal. Um kvöldmata gær var þó ekki að sjá tjaldbúðir hefðu risið. Brottflutningur hópsin stórum dráttum friðsaml PRESTSSETRASJÓÐUR fer með umráð prestssetra fyrir hönd þjóð- kirkjunnar, þótt sóknarprestar sitji síðan prestssetrin, að sögn séra Láru G. Oddsdóttur, sókn- arprests á Valþjófsstað. Sem kunn- ugt er var hópi mótmælenda Kára- hnjúkavirkjunar vísað af landi Valþjófsstaðar, þar sem þeir höfðu slegið upp tjaldbúðum. Séra Lára sagði að brottvísunin hefði verið með samráði sínu og forsvarsmanna Prestssetrasjóðs. „Landsvirkjun er fyrir alllöngu síðan búin að semja við Prests- setrasjóð um afnot af landinu til ákveðinna nota,“ sagði Lára. „Mér skilst að þeir [mótmælendur] hafi fyrst tjaldað norðan Jöklu. Lands- virkjun vísaði síðan þessum hópi á stað sem er innan þeirra marka sem Landsvirkjun hefur afnot af. Þetta er afar fallegur hvammur en fer væntanlega undir vatn þegar lónið fyllist. Landsvirkjun gerði þeim jafnframt ljóst að þeir þyrftu að biðja um leyfi. Þeir gerðu það og fengu bæði leyfi hjá mér og Prestssetrasjóði. Mér fannst ég ekki geta tekið um það ákvörðun ein míns liðs, því hún snerti þetta landsvæði sem í raun var búið að semja um við Landsvirkjun. Þeir þurftu einnig að fá leyfi heilbrigð- iseftirlitsins því þetta voru tjald- búðir. Heilbrigðiseftirlitið gerði þeim ljóst hvað þyrfti að gera eins og að koma upp kömrum o.fl. Það gerðu þeir og urðu við öllu um.“ Mótmælaaðgerðir út fyrir mörk Séra Lára segir að sér og P setrasjóði hafi síðan verið bæði af Landsvirkjun og s mannsembættinu á Seyðis mótmælaaðgerðirnar vær ar út fyrir þau mörk sem g hefði verið ráð fyrir í upph miður sáu þau ástæðu til a ekki á þeim friðsamlegu n sem þau sögðu í upphafi að yrði. Hvar þar hefur farið unum hef ég enga hugmyn Séra Lára segir að það h ið sameiginleg niðurstaða Séra Lára G. Oddsdóttir, sóknarprestur á Valþjófsst Sameiginleg niðurstaða að afturk STJÓRN Prestssetrasjóðs sendi frá sér yfirlýsingu vegna tjaldbúð- anna í landi Valþjófsstaðar, dag- setta 26. júlí. Yfirlýsingin er und- irrituð af Bjarna Kr. Grímssyni, formanni stjórnar, og Höskuldi Sveinssyni, framkvæmdastjóra. Þar segir m.a. að í lok júní s.l. hafi Benóný Ægisson, fyrir hönd alþjóðlegs hóps umhverfisvernd- arsinna, óskað eftir leyfi Prests- setrasjóðs til að slá upp tjaldbúðum í landi Valþjófsstaðar. Á fu júlí veitti stjórn Prestssetr leyfi sitt, „í þeirri góðu trú friðsamlega dvöl hópsins yr ræða á jörðinni“. Var Benó svar um það 8. júlí. „Nú hefur komið í ljós á anförnum dögum að hópur ekki sá friðsami „útivistarh sem getið er um í umsókn u hans á jörðinni,“ segir í yfir unni. „Lögreglan hefur upp Ekki friðsamur útiv
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.