Morgunblaðið - 28.07.2005, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2005 7
FRÉTTIR
HEIMILISMENN á hjúkrunarheimilinu Sólvangi nutu veð-
urblíðunnar í gær og héldu grillveislu utandyra. „Tilefnið var
ekkert annað en góða veðrið,“ segir Sigþrúður Ingimund-
ardóttir hjúkrunarforstjóri. Starfsstúlka á heimilinu, Sóley
Guðmundsdóttir, gekk um beina í gömlum hjúkrunarnema-
búningi, og mæltist það vel fyrir, að sögn Sigþrúðar.
„Þetta er gamall búningur frá Hjúkrunarskóla Íslands, en
hann hætti starfsemi 1986, þegar námið fluttist alfarið til Há-
skólans. Heimilismönnum fannst gaman að sjá þennan bún-
ing, vegna þess að áður fyrr voru ekki bara hjúkrunarnemar
í sérstökum búningi heldur allir sem unnu inni á heilbrigð-
isstofnunum. Þetta vakti gamlar minningar hjá mörgum sem
hafa unnið við svona störf,“ segir Sigþrúður.
Hún segir að nú séu allir heilbrigðisstarfsmenn í alveg eins
búningum; hvítum buxum og jökkum. „Nú eru allir eins,“
segir hún, „og þú sérð ekkert hvað viðkomandi gerir.“
Grilluðu í
veðurblíðunni
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Sóley Guðmundsdóttir og Ída Heiða Jónsdóttir.
SMÁBÁTURINN Gugga SH 80
frá Grundarfirði strandaði í gær-
morgun við austanverðan Grund-
arfjörð er hann var að koma úr
róðri með um 900 kg af fiski um
borð. Tveir menn voru í bátnum og
hafði annar þeirra lagt sig niðri í
káetu, en sá sem var við stýrið
dottaði síðan með þeim afleiðing-
um að báturinn sigldi á fullri ferð
upp í fjöru.
Svo heppilega vildi til að þar
sem bátinn bar að landi var ekkert
fjörugrjót svo að hann stöðvaðist
óbrotinn uppi í fjöru, rétt neðan
við kirkjugarð Grundfirðinga.
Fleira varð skipverjum til láns
því þegar báturinn strandaði var
ekki alveg fallið að þannig að við
háflóð flaut hann að aftan og
reyndist því létt að draga hann á
flot aftur. Þar var að verki Run-
ólfur Guðmundsson á stálbátnum
Munda sem notaður er við þorsk-
eldið í Grundarfirði.
Félagar úr Björgunarsveitinni
Klakki í Grundarfirði aðstoðuðu
við björgunina. Báturinn var síðan
dreginn inn til Grundarfjarðar þar
sem skemmdir verða kannaðar.
Sigldi upp
í fjöru í
Grundarfirði
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
LÖGREGLUYFIRVÖLD hér á
landi fylgjast vel með því hvort
glæpasamtök frá Austur-Evrópu
reyni að teygja anga sína hingað til
lands. Fréttavefur Morgunblaðsins
sagði frá því í gær, að lögregluyfir-
völd í Noregi óttuðust að stríð gæti
brotist út á milli harðsvíraðra maf-
íugengja frá Austur-Evrópu sem
keppa sín á milli um völdin í glæpa-
heimi Óslóar.
Smári Sigurðsson, yfirmaður Al-
þjóðadeildar ríkislögreglustjóra,
segir þessar fréttir ekki koma sér á
óvart, Ósló hafi gjörbreyst á nokkr-
um árum og starfsbræður hans í
Noregi þurft að glíma við vandamál
glæpagengja í nokkurn tíma.
Aðspurður hvort hann telji að
þessi þróun muni til ná Íslands segir
hann erfitt að segja til um það en
bætir við að yfirvöld hér á landi fylg-
ist grannt með því hvort skiplögð
glæpastarfsemi teygi anga sína hing-
að. Dæmi séu um fíkniefnainnflutn-
ing hingað til lands sem virðist skip-
lagður í tengslum við aðila í
Eystrasaltslöndunum.
„Reynslan hefur sýnt að það kem-
ur yfirleitt allt hingað fyrr eða síðar
frá Evrópu en hins vegar hjálpar
smæðin okkur, hún gerir það að
verkum að það er erfiðara fyrir
svona nokkuð að hreiðra um sig hér.“
Mun ofbeldisfyllri
en mótorhjólagengin
Smári bendir á að lögregluyfirvöld
hér séu í miklu sambandi við starfs-
bræður sína í Evrópu og fái reglu-
lega upplýsingar og skýrslur um
þróunina þar, m.a. í fyrrverandi
austantjaldslöndunum eins og Alb-
aníu. Ef grunur leiki á að eftirlýstir
menn hafi leitað hingað séu þeir látn-
ir vita. Hann bendir á að í mars hafi
verið handtekinn hér Lithái sem var
grunaður um aðild að skipulagðri
glæpastarfsemi í Þýskalandi.
Ríkislögreglustjóri hafi tekið þátt
í ýmsu samstarfi hvað varðar skipu-
lagða glæpastarfsemi, sérstaklega
hvað varðar mótorhjólagengi sem
hafa reynt að koma hingað til lands.
„Eins og menn hafa heyrt standast
þau þó hvergi þessum austur-evr-
ópsku gengjum snúning, þau er svo
miklu ofbeldisfyllri. Enda koma þau
úr umhverfi þar sem mannslíf hefur
verið lítils virði.“
Fylgst með erlend-
um glæpasamtökum