Morgunblaðið - 28.07.2005, Page 18
Ólafsvík | Vinirnir Elís Orri og Jóhann Ás, 7 ára,
voru við steinasöfnun við Bæjargilið í Ólafsvík í
blíðunni. Sögðust þeir að vera að leita að steinum,
til að lakka þá og gera fína og kannski svo gefa
ömmunum þá ef þeim tekst vel upp. Þeir segjast
hafa mikinn áhuga á fallegum steinum og eiga orð-
ið mikið safn. Einnig notuðu þeir félagar tímann til
að busla í læknum og skemmta sér í veðurblíðunni.
Morgunblaðið/Alfons
Steinum safnað handa ömmu
Náttúran
Höfuðborgin | Akureyri | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Messað í Ábæ | Hin árlega messa verður
haldin í Ábæjarkirkju í Austurdal í Skaga-
firði sunnudaginn 31. júlí kl. 14.30, en sókn-
arpresturinn, sr. Ólafur Hallgrímsson á
Mælifelli, þjónar fyrir altari og predikar.
Þá leikur Kristín Halla Bergsdóttir á fiðlu
en organisti og forsöngvari er Anna María
Guðmundsdóttir.
Messan, sem haldin er einu sinni á ári og
alltaf um verslunarmannahelgina, byggir á
nokkuð gamalli hefð, en hún hefur viðgeng-
ist í tæp sjötíu ár. Ábæjarkirkja er ekki
lengur sóknarkirkja, enda fór sveitin end-
anlega í eyði þegar Helgi Jónsson frá
Merkigili lést árið 1997. Í messunni er þó
alltaf mikið fjölmenni og í fyrra komu um
280 manns og tóku þátt og nutu friðsældar
og náttúrufegurðar Austurdalsins. Sr. Ólaf-
ur segir fólk mikið til taka þátt í messunni
til að eiga öðruvísi samfélag við guð og
menn en venjulega gerist í guðsþjónustum í
kirkjum landsins. Fólk gangi til samfundar
við skaparann í Austurdalnum.
Vegurinn að Ábæjarkirkju er seinfarinn,
en fær jeppum og öðrum vel búnum bílum.
Reikna þarf með um tveggja tíma ferð
frá Varmahlíð.
Hátíð í Sólheimum | Í Sólheimum í
Grímsnesi verður fjölbreytt dagskrá um
Verslunarmannahelgina. Meðal annars
koma fram hljómsveitin Fönn, Sólheima-
leikhúsið og leikhópurinn „Félag flóna“. Þá
verða handverksýningin Hugur og hönd og
Trjásafnið opin alla daga frá kl 11 til 18,
verslunin Vala og kaffihúsið Græna kannan
verða einnig opin.
Annað kvöld verður lifandi tónlist í
Grænu Könnunni, en þá leikur hljómsveitin
Fönn frá kl. 20-23.
Á laugardag, sunnudag og mánudag
verða Græna Kannan og Vala opnar frá 11-
18 og verður sögukynning og staðarskoðun
kl. 14 í Sesseljuhúsi laugardag og sunnu-
dag.
Þá verður kabarett í Grænu Könnunni kl.
15.30 á laugardag en útilegustemmning
með hljómsveitinni Fönn á sunnudag kl. 16.
Á mánudaginn verður svo leiksýningin
Jarðarber og Dauði í Íþróttaleikhúsinu kl.
14 og kabarett aftur í Grænu könnunni kl.
15.30.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
ástvini sína, en vinna við
hann er í fullum gangi.
Íbúum Flateyrar barst
góður liðsauki í sumar
þegar tveir vinnuflokkar,
annar á vegum Lands-
virkjunar og hinn á veg-
um samtakanna Verald-
arvina, komu og unnu að
Brátt eru liðin tutt-ugu ár síðan snjó-flóð lagði í rúst
stóran hluta Flateyrar og
tók með sér tuttugu sálir.
Undir hinum nýju snjó-
flóðagörðum hafa Önfirð-
ingar hafið byggingu fal-
legs minningargarðs um
fegrun garðsins. M.a.
lögðu þeir stíga og bættu
umhverfið á ýmsan hátt.
Veraldarvinirnir, sem
koma víða að úr heim-
inum, halda áfram að
bæta garðinn næstu vik-
una og njóta þakklætis
heimafólks.
Unnið í minningargarði á Flateyri.
Veraldarvinir reisa minningargarð
Rúnar Kristjánssonyrkir „Tíð-arandavísur“:
Lítið þroskast Adams ætt,
ekki að neinni hættu gætt.
Drottins Orð er teygt og tætt,
tíðarandans falsi klætt!
Tímans eru táknin skýr,
tilveran sitt inntak flýr.
Falla í djúpið bjargarbrýr,
burt frá jörðu Náðin snýr!
Líður senn að lúðradyn,
lamast fjöldans sálarskyn.
Margir falla í Mammons gin,
Mene Tekel Ufarsin!
Enska knattspyrnan
hefst í ágúst og fer spenn-
an vaxandi. Kunningja
umsjónarmanns barst
neðangreind vísa í SMS:
Margur lék með Liverpool
með lipran fót en enni sveitt;
þessi vísa er frekar fúl
og fjallar svo sem um ekki
neitt.
Af Liverpool
pebl@mbl.is
Egilsstaðir | Tónlistarstundir í Egilsstaða-
kirkju hafa vakið mikla lukku undanfarin
ár, en í sumar hefur þátttakan í þeim verið
afar góð að sögn Torvalds Gjerde organ-
ista. Hefur fjöldi listamanna, bæði heima-
manna og utanbæjarmanna, komið og flutt
tónlist í kirkjunni.
Í kvöld kl. 20 mun Torvald sjálfur leika á
orgel fyrir gesti kirkjunnar, en aðgangur
er að sjálfsögðu ókeypis. Á efnisskránni er
tónlist frá barokk- og rómantíska tíma-
bilinu, m.a. eftir tónskáldin Bach, Mozart
og Mendelssohn.
Þá munu tvær stúlkur úr tónlistarskóla
Austur-Héraðs, þær Sigríður Klara Sig-
fúsdóttir og Nanna Hjálmþórsdóttir, leika
með honum í nokkrum lögum á lágfiðlu og
þverflautu.
Tónlistarstundaröðin hefur nú verið á
hverju sumri í um fjögur ár og eru oftast
sex stundir á hverju tímabili. Tónlistar-
stundin í kvöld er aðeins hálftími, svo jafn-
vel þreyttustu Héraðsbúar og ferðamenn
geta þar komið og fengið góða andlega
næringu fyrir háttinn.
Í næstu viku syngur Þorbjörn Rúnars-
son tenór nokkur íslensk sönglög, m.a. eft-
ir Jón Leifs, Atla Heimi Sveinson og Karl
Rúnarsson.
Á síðustu stundinni, sem verður eftir
tvær vikur, kemur síðan Norskt tríó, sem
skipað er píanóleikara, söngvara og harð-
angursfiðluleikara, og flytur þjóðlagatón-
list frá Noregi og Íslandi í samstarfi við
kóra á Héraði.
Tónlistar-
stund í Egils-
staðakirkju
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Hafnarfjörður | VG–Hafnarfirði skorar á
bæjarstjórn Hafnarfjarðar að hafa at-
kvæðagreiðslu um hugsanlega stækkun ál-
versins í Straumsvík samhliða atkvæða-
greiðslunni sem halda á um hugsanlega
stækkun bæjarins þann 8. október, en þá
verður kosið um sameiningu Hafnarfjarð-
ar og Voga.
Atkvæði
um álver
♦♦♦
◆ Ársalir - fasteignamiðlun ◆ Ársalir - fasteignamiðlun ◆
Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali
KRÍUHÓLAR
533 4200
eða 892 0667
Til sölu 3ja herbergja íbúða á 5. hæð í lyftuhúsi með fallegu útsýni yfir
borgina. Húsið hefur verið klætt að utan og lítur vel út. 26 fm bílskúr
fylgir íbúðinni. Laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings.
Nánari upplýsingar 533 4200 eða 892 0667
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5 105 Rvk
533 4200
Landsins mesta úrval af
yfirhöfnum
Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 10-16
Mörkinni 6, sími 588 5518
Fyrir flottar konur
Bankastræti 11 • sími 551 3930