Morgunblaðið - 28.07.2005, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2005 23
A
lgengur upphafspunktur
ferðamanna í Reykjavík
er án efa BSÍ í Vatns-
mýrinni. Þar hittu
blaðamaður og ljós-
myndari nokkra ferðamenn sem voru
að bíða eftir rútunni til Keflavíkur.
Einn á bekk sat ungur maður með
ferðatöskurnar sínar og ákváðum við
að taka hann tali. Hann kynnti sig
sem Sang Youb Lee frá Suður-Kóreu
og hafði verið hér á landi í sjö daga en
var á heimleið. „Ég var í fjóra daga í
Reykjavík og fór nokkra dagtúra
þaðan. Ég sá Hallgrímskirkju, Kola-
portið og tjörnina, en eftirminnileg-
ast var þegar ég fór niður að sjó eitt
kvöldið og sá sólsetrið. Það er erfitt
að koma hingað frá Kóreu, allt mjög
ólíkt en ég kann vel við mig hér.“
Rútan hans Sang var að fara svo að
við kvöddum hann og röltum niður í
miðbæ, eins og hann mælti með, og
litum inn á Upplýsingamiðstöð ferða-
manna í Aðalstræti. Þar gaf Soffía
Santacroce upplýsingastúlka okkur
mikið af bæklingum og upplýsingum.
„Ferðamenn vilja fara á minja- og
listasöfn. Ég mæli líka með því við þá
að labba Nauthólsvíkina eða Lauga-
veginn, skreppa í hvalaskoðun og
fara í hestaferðir. Fólk kemur mikið
hingað og oft er upplýsingamiðstöðin
fyrsti viðkomustaður ferðamanna í
Reykjavík. Margir sem koma beint
úr skipunum í höfninni hafa stuttan
tíma og spyrja bara „Hvað á ég að
gera?“ “
Einmanalegt á Austurvelli
Að ráði Soffíu röltum við út á Aust-
urvöll til að sjá mannlíf höfuð-
borgarinnar. En eitthvað fór lítið fyr-
ir fólkinu þennan daginn enda ekki
komið hádegi. Eftir að hafa snúist í
nokkra einmanalega hringi og reynt
að sjá Alþingishúsið með ferða-
mannaaugum gengum við í flasið á
miðaldra hjónum sem voru greini-
lega ekki íslensk. Þau voru almenni-
leg og brosmild og leyfðu okkur að
spjalla aðeins við sig. Judith og Jim
Peterson, eins og þau kynna sig, eru
frá Minnesota í Bandaríkjunum. Þau
höfðu lent á Keflavíkurflugvelli
tveimur klukkustundum fyrr og voru
því alveg splunkuný á landinu, en
ætluðu að dvelja hér í tvær vikur.
Það sem þau voru hrifnust af eftir
þessa tveggja tíma dvöl var svalt
veðrið og ferskt loftið. Annars voru
þau bara á röltinu til að kynna sér
borgina en ætluðu að skoða hesta,
landslag, Bláa lónið og söfn á dvöl
sinni hérna.
Áfram héldum við ferðinni upp
Laugaveginn og ákváðum að koma
við í Þjóðmenningarhúsinu því að
enginn er almennilegur ferðamaður
nema hann skoði söfn og sýningar.
Þar var margt að sjá og innan um
fornar bækur rákumst við á dönsk
hjón að nafni Birgitte Moltke og Jur-
gen Langharig. Jurgen sagði að þau
hefðu ákveðið að koma hingað til
lands eftir að hafa hrifist af Íslandi á
Heimssýningunni í Hannover. Þau
voru búin að vera hér í einn dag en
ætluðu að vera í Reykjavík í tvo daga
og fara svo um landið. Það sem af var
degi höfðu þau verið á borgarrölti,
skoðað fólkið og leitað að Íslenskri
lopapeysu á Birgitte. Seinna um dag-
inn ætluðu þau í hvalaskoðun. „Við
erum mjög undrandi á að sjá ung-
lingavinnuna. Okkur finnst sniðugt
að láta unga fólkið vinna svona og er
það eitthvað sem Danir mættu taka
sér til fyrirmyndar. Einnig erum við
hrifin af öllum þessum íslensku ungu
hönnuðum og listamönnum,“ sögðu
þessi spræku hjón sem fannst
Reykjavík lítil og sæt borg.
Íslenska lopapeysan er fræg
Loksins komumst við upp að Hall-
grímskirkju, en með henni mæltu
flestir að við skoðuðum. Þar sat við
styttuna af Leifi Eiríkssyni hópur af
bandarískum unglingum sem voru í
skólaferðalagi hér í tvo daga. Þau
höfðu svosem ekki mikið að segja um
Reykjavík. Aðspurð út í Hallgríms-
kirkju sögðu þau að hún væri mjög
stór. Annars voru þau hrifnust af
ferska loftinu og fannst flott hvernig
Reykjavík birtist eins og út úr engu
þegar þau komu frá Keflavík. Hóp-
urinn átti eftir að fara í Bláa lónið og
á hestbak á smáhestum eins og þau
kölluðu þá.
Eins og sannir ferðamenn var ekki
annað hægt en að kíkja inn í eina
ferðamannabúð. Á Skólavörðustígn-
um löbbuðum við inn í búð Hand-
prjónasambands Íslands. Þar inni
var Kristín Dóra Árnadóttir starfs-
stúlka. Hún sagði erlenda ferðamenn
aðallega kaupa íslensku handprjón-
uðu lopapeysuna. „Lopapeysan
stendur alltaf fyrir sínu og það kaupa
allar þjóðir hana. Flestir sem koma
hingað vita hvernig hún lítur út og
þeir velja mest sauðalitina. Ungu
fólki finnst lopapeysan jafn flott og
því eldra og miðað við eftirspurn þá
finnst mér íslenska lopapeysan orðin
frekar fræg.“
Borgin skoðuð úr vagni
Reykjavík er ekki bara miðbærinn
og því ákváðum við að fá okkur far
með hinum nýju útsýnis- og skoð-
unarvögnum. Þeir hafa verið áber-
andi í borginni að undanförnu og
minna mest á breska strætisvagna.
Við hoppuðum upp í vagninn við
Arnarhól og fengum okkur sæti á efri
hæð hans. Toppurinn var ekki á
vagninum og lék því sólin við farþeg-
ana. Í vagninum er hægt að fá heyrn-
artól og hlusta á upplýsingar um
Reykjavík um leið og keyrt er um
hana. Blaðamaður lifði sig svo inn í
ferðamannahlutverkið að hann stillti
tækið ósjálfrátt á ensku í staðinn fyr-
ir íslensku sem einnig var í boði
ásamt sjö öðrum tungumálum. Úr
vagninum var margt að sjá og gaman
að fræðast um borgina á nýjan hátt.
En eitthvað áttum við erfitt með að
sjá hversdagslega staði í nýju ljósi og
undruðumst í hvert skipti þegar er-
lendir farþegar í vagninum tóku and-
köf af hrifningu yfir einhverju sem
fyrir augu bar.
Það er augljóslega margt að sjá í
Reykjavík en skemmtilegast fannst
okkur að heyra skoðanir erlendra
ferðamanna á landi og þjóð.
FERÐAMENN | Göngutúr um Reykjavík
Oft getur verið erfitt að
sjá hversdagsleikann í
nýju ljósi, eins og í
Reykjavík fyrir þá sem
þar búa. Ingveldur
Geirsdóttir og Eyþór
Árnason ljósmyndari
skruppu á röltið og
reyndu að sjá borgina
með öðrum augum, fet-
uðu í fótspor ferða-
manna og tóku nokkra
þeirra tali.
„Hoppið inn og út“ er slagorð
nýju vagnanna sem fara útsýn-
istúra um Reykjavík í sumar.
Morgunblaðið/Eyþór
„Hún er mjög stór,“ sögðu unglingarnir um Hallgrímskirkju. Krakkarnir komu frá skólanum Cambridge Isanti
High School í Bandaríkjunum og voru hér á skólaferðalagi til að kynnast landi og þjóð.
Birgitte Moltke frá Danmörku fannst jákvætt að ráða íslenska unglinga í
vinnu í skólafríinu og sagði að Danir gætu tekið þetta sér til fyrirmyndar.
Hún var hér á landi með eiginmanni sínum, Jurgen Langharig.
Soffía Santacroce á Upplýsinga-
miðstöðinni mælir t.d. með heim-
sókn í Nauthólsvík.
Kristín Dóra er á því að íslenskar
lopapeysur séu frægar.
Hjónin Judith og Jim Peterson
höfðu aðeins dvalið hér í skamman
tíma en voru hrifin af svölu veðri og
fersku lofti.
Sang Youb Lee frá Suður-Kóreu
beið á BSÍ eftir rútu til Keflavíkur.
Hann var að fara heim eftir að hafa
dvalið í sjö daga á Íslandi.
DAGLEGT LÍF
Lítil og
sæt borg
ingveldur@mbl.is