Morgunblaðið - 28.07.2005, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2005 29
Senn dregur til tíðinda ítengslum við tilraunirmanna til að fá sam-þykktar breytingar á skip-
an öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna en nú liggja fyrir drög að
samkomulagi milli G4-ríkjanna svo-
nefndu – Þýskalands, Brasilíu, Jap-
ans og Indlands – og Afríku-
sambandsins um eina tillögu. En
hugmyndir þessara aðila mæta
harðri andstöðu innan veggja SÞ,
eins og ráða mátti af ummælum
ítalska fastafulltrúans á þriðju-
dagskvöld á allsherjarþinginu, en
hann sakaði þá G4-ríkin um að beita
óþverrabrögðum í því taugastríði
sem nú stendur yfir.
Líkt og Morgunblaðið hefur
fjallað nokkuð ítarlega um á síðustu
vikum er þrýst á um það á þessu
sextugasta afmælisári SÞ að sam-
þykktar verði breytingar á skipan
öryggisráðsins, með það að mark-
miði að endurspegla veröldina eins
og hún er í dag. En hver höndin
hefur hins vegar verið upp á móti
annarri í þessum efnum á síðustu
vikum og á tímabili leit ekki út fyrir
að G4 og Afríkusambandið myndu
ná saman.
Í gær greindu fjölmiðlar í Ind-
landi og víðar frá því í gær að sam-
komulag milli G4 og Afríku-
sambandsins lægi fyrir, en fulltrúar
þessara aðila sátu á fundum í Lond-
on um síðustu helgi.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins mun það hins vegar
nokkuð ofmælt að samkomulag sé
komið á. Fulltrúar Afríku-
sambandsins munu semsé ekki hafa
talið sig hafa umboð til að handsala
samkomulag í London og verður
því boðað til leiðtogafundar Afríku-
sambandsins um málið, væntanlega
í næstu viku.
Skiptir hér máli að klofningur er
kominn upp í Afríkusambandinu og
mun hann hafa opinberast á fund-
inum í London.
Ísland styður G4-tillöguna
Upphafleg tillaga G4 gerði ráð fyrir
því að fastafulltrúum í örygg-
isráðinu yrði fjölgað úr fimm í ell-
efu, G4-ríkin fengju þar öll fast sæti
auk tveggja Afríkuríkja. Enn-
fremur yrði kjörnum fulltrúum
fjölgað um fjóra.
En án liðsinnis Afríkusambands-
ins – sem hefur innanborðs 53 ríki
sem öll hafa atkvæðisrétt á alls-
herjarþingi SÞ – var ekki líklegt að
G4 myndu ná settu marki, sem eru
128 atkvæði í allsherjarþinginu, þ.e.
tveir þriðju allra atkvæða en aðild-
arríki SÞ eru 191. Tillaga Afríku-
sambandsins var ekki ólík G4-
tillögunni og mun samkomulag milli
þessara aðila fara bil beggja, ef það
fæst samþykkt.
Samkomulagsdrögin sem gerð
voru í London fela semsé í sér að
Afríkusambandið samþykkir að
gera það ekki að kröfu sinni að nýir
fastafulltrúar í öryggisráðinu fái
neitunarvald líkt og núverandi
fastafulltrúar njóta, þ.e. Kína,
Bandaríkin, Rússland, Frakkland
og Bretland. Hafði þetta áður verið
ófrávíkjanleg krafa þess.
G4-ríkjunum þótti líklegra að
þau næðu settu marki ef þau og
Afríkuríkin gæfu þetta atriði eftir;
þykir í raun alveg ljóst að einhver
núverandi fastafulltrúa myndi beita
neitunarvaldi sínu gegn breyt-
ingum á öryggisráðinu í þessa veru.
Þá mun sameiginleg tillaga G4 og
Afríkusambandsins gera ráð fyrir
að kjörnum fulltrúum verði fjölgað
um fimm, en ekki fjóra. Myndi
aukafulltrúinn koma til skiptis frá
Afríku, Asíu eða rómönsku Am-
eríku og Karíbahafsríkjunum.
Íslensk stjórnvöld hafa stutt G4-
ríkin í baráttu þeirra og var Ísland
meðal „ábekinga“ tillögu G4 þegar
hún var lögð fram fyrr í júlí, þ.e. eitt
29 meðflutningsríkja.
Kaffiklúbburinn hvikar hvergi
Ýmis öfl standa enn í vegi þess að
G4-ríkin og Afríkusambandið nái
sínu fram og hafa ber í huga að
klofningur innan Afríkusambands-
ins gæti sett strik í reikninginn.
Sjö aðildarríkja Afríku-
sambandsins eru sögð alfarið á móti
G4-tillögunni, Alsírmenn fara þar
fremstir en Egyptar eru einnig
sagðir orðnir henni andsnúnir.
Kemur það til af því að þeir munu
vera búnir að gefa upp á bátinn að
þeir verði annað Afríkuríkjanna,
sem fengju fast sæti. Virðast þeir
þar hafa tapað í valdabaráttu við
Suður-Afríkumenn og Nígeríu um
föstu sætin sem tillagan gerir ráð
fyrir til handa Afríku.
Bandaríkjastjórn hefur einnig
lýst sig ósammála því að málinu
verði þröngvað í atkvæðagreiðslu
þegar svo skiptar skoðanir eru um
allar umbætur á SÞ. Telja Banda-
ríkjamenn að leggja beri jafnmikla,
ef ekki meiri, áherslu á aðrar um-
bætur á starfsemi SÞ.
Helstu andstæðingar G4-
ríkjanna í þessu máli hafa hins veg-
ar alltaf verið ríki sem tilheyra svo-
kölluðum „Kaffiklúbbi“, samtökum
sem ganga þó formlega undir heit-
inu United for Consensus (UFC).
Þar hafa Ítalir farið fremstir í
flokki, auk Argentínumanna og
Mexíkó, Pakistan og Suður-Kóreu,
svo nokkrar þjóðir séu nefndar; auk
þess sem Kínverjar eru alfarið á
móti tillögu G4.
Kemur andstaða þessara ríkja að
einhverju leyti til af því að þau eru
mótfallin því að tiltekin ríki fái fast
sæti í öryggisráðinu; Kína getur
ekki hugsað sér að Japan fari þar
inn, Pakistanar bera sama hug til
Indverja og Argentínumenn og
Mexíkóbúar sömuleiðis gagnvart
Brasilíu.
Ónefnt G4-ríki sakað um
að beita óþverrabrögðum
Í fyrrakvöld fór fastafulltrúi Ítalíu
hjá SÞ hörðum orðum um G4-ríkin
og sakaði þau um að hafa beitt ríki
ýmsum þvingunum til að fá þau til
að styðja hugmyndir sínar, og þar
með varanlega setu umræddra
fjögurra ríkja í öryggisráðinu.
Tók Marcello Spatafora, fasta-
fulltrúi Ítalíu, svo sterkt til orða að
undrun vakti innan veggja allsherj-
arþingsins þar sem háttvísi er í há-
vegum höfð. Hann sakaði ónefnt
G4-ríki um að hafa rift samningi um
þróunaraðstoð við ónefnt þróun-
arland, samningi upp á 460 þúsund
dollara, sem hafði vogað sér að
fylkja liði með „Kaffiklúbbnum“ en
ekki G4.
„Þetta er skammarlegt… Nú er
nóg komið,“ sagði Spatafora. „Völd
og peningar geta ekki stjórnað um-
gjörð umbóta,“ sagði hann. „Okkur
ber siðferðileg skylda til að koma í
veg fyrir að umbætur á örygg-
isráðinu verði ákveðnar með svo
óheilbrigðum hætti og í svo eitruðu
andrúmslofti.“
Þjóðverjar hafa þegar neitað
þessum ásökunum en eftir því sem
Morgunblaðið kemst næst mun
Spatafora hafa verið að vísa til
samninga sem Japanar höfðu gert
við Kólumbíu.
Kaffiklúbburinn hefur sjálfur
lagt fram tillögu að breytingum á
öryggisráðinu og mælti fasta-
fulltrúi Kanada, Allan Rock, fyrir
þeim í fyrrakvöld. Þær fela í sér að
aðildarríkjum öryggisráðsins verði
fjölgað úr fimmtán í tuttugu og
fimm, þ.e. að inn komi tíu nýir
kjörnir fulltrúar en engir fasta-
fulltrúar. Tillagan gerir þó ráð fyrir
að ríki geti sótt um endurkjör að
lokinni tveggja ára kjörinni setu í
ráðinu.
Fréttaskýring | Með samkomulagi milli G4-ríkjanna og Afríkusam-
bandsins um eina tillögu um breytingar á skipan öryggisráðs SÞ
myndu aukast mjög líkur á því að þau næðu settu marki, sem er fjölg-
un fastafulltrúa í ráðinu. Davíð Logi Sigurðsson fjallar um hræringar
á vettvangi alþjóðamála.
AP
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna á fundi í höfuðstöðvum samtakanna í New York.
G4-ríkin sökuð
um óþverrabrögð
david@mbl.is
dur pökk-
n og fóru
Morgunblaðið/Árni Torfason
u ekki örugglega að ganga frá búnaði sínum og halda af svæðinu.
Morgunblaðið/Árni Torfason
eim tilgangi að finna annan samastað.
ns hugðist
m Vaði í
arleytið í
að nýjar
s gekk í
ega, þótt
viðbúnaður lögreglu gefi til kynna
að búist hafi verið við öðru. Mót-
mælendurnir létu sér þetta flestir í
léttu rúmi liggja og þegar einn
þeirra frétti að víkingasveit ís-
lensku lögreglunnar væri á leiðinni
spurði hann hvort þeir væru með
horn á hjálmunum sínum. Eins og
áður sagði voru um 40 mótmælend-
ur á svæðinu í gær en af þeim voru
aðeins tveir Íslendingar. Þetta er
svo undarlegt með Íslendinga,
sagði einn þeirra, þeir byggja
virkjun þar sem Íslendingar vinna
ekki og svo þegar virkjuninni er
mótmælt mæta bara útlendingar!
Mótmælum ekki lokið
Á hópnum mátti þó skilja að
mótmælunum sem slíkum væri
ekki lokið, þótt búðirnar þyrftu að
fara. Einn þeirra, Þórarinn Einars-
son, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að stjórnvöld mættu eiga
von á að fá það óþvegið frá fólki ef
þau héldu áfram yfirgangi sínum
og lítilsvirðingu fyrir lýðræði, skoð-
unum fólks og jafnvel almennings-
álitinu. „Þau mega jafnvel von á að
fá smá harkalega árás á sig, þó það
sé ekki líkamsskaði, þá eitthvað
sem veldur þeim óþægindum og
jafnvel heldur þeim í smá ótta. Mér
finnst það orðið nokkuð réttlætan-
legt.“
um kröf-
Prests-
tilkynnt,
ýslu-
sfirði, að
ru komn-
gert
hafi. „Því
að vera
nótum
ð þetta
úr bönd-
nd um.“
hafi ver-
a sín,
Prestssetrasjóðs, Landsvirkjunar
og sýslumannsembættisins að eng-
inn gæti afturkallað leyfið nema
Prestssetrasjóður, sem veitti það.
„Það er ekki rétt að þeir hafi ekki
fengið undirrituð blöð um upp-
sögnina,“ sagði séra Lára. „Ben-
óný Ægisson, sem upphaflega ósk-
aði eftir þessu leyfi fyrir hönd
hópsins, gerði það í tölvupósti.
Hann fékk leyfið þannig og fyrstu
tilkynningu um afturköllun leyf-
isins á sama hátt. Síðan fékk hann
afturköllunina með undirskrift
formanns og framkvæmdastjóra
Prestssetrasjóðs. Það er misskiln-
ingur hjá hópnum ef því er haldið
fram að þau hafi fengið óund-
irritað plagg.“
tað
kalla leyfið
SÍÐASTLIÐINN fimmtudag
komu ellefu manns til landsins
með Norrænu í þeim tilgangi
að mótmæla virkjanafram-
kvæmdum við Kárahnjúka að
sögn Helga Jenssonar, stað-
gengils sýslumannsins á Seyð-
isfirði. Helgi segir að nokkrir
mótmælenda sem hafa verið
við Kárahnjúka hafi komið
með Norrænu en ekki hafi
þótt ástæða til þess að stöðva
för þeirra eða snúa þeim til
síns heima þar sem um sé að
ræða EES-borgara sem ekk-
ert hafi til saka unnið.
„Við höfum hins vegar leit-
að á þeim og athugað hvort
þeir hafi verið með eitthvað
sem mætti nota til þess að
fremja spjöll með,“ segir
Helgi en hann veit ekki til
þess að neinum hafi verið snú-
ið til síns heima við komuna
hingað til lands – hvorki á
Seyðisfirði né annars staðar.
„Enda væri það ekki nægi-
leg ástæða að viðkomandi ætl-
aði sér að mótmæla virkj-
anaframkvæmdum.“
Ekki
ástæða til
þess að
stöðva för
undi 4.
rasjóðs
að um
rði að
óný sent
und-
r þessi er
hópur“
um dvöl
rlýsing-
plýst
landeiganda að einstaklingar úr
hópnum hafi staðið að lögbrotum,
skemmdum og spjöllum í nágrenni
við dvalarstað sinn og jafnframt
gert verulegar athugasemdir við
landeiganda um dvöl hópsins á
jörðinni og leyfi hans til að hafa
tjaldbúðir á þessum stað í landi
Valþjófsstaðar.
Með tilliti til ofangreindra atriða
hefur stjórn sjóðsins því ákveðið að
afturkalla áður gefið leyfi.“
vistarhópur