Morgunblaðið - 28.07.2005, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2005 33
UMRÆÐAN
Í ÞJÓÐMENNINGARHÚSINU
stendur yfir norræn bókbandssýn-
ing, hin tólfta í röðinni.
Ástæða er til að vekja athygli á
þessum viðburði.
Margir minnast með ánægju bók-
bandssýningarinnar í Norræna hús-
inu árið 1991 og var ýmsum opinber-
un um listbókband. Sama virðist nú,
þótt sýninguna sæki einkum útlend-
ingar. Þeir sem ég hitti þar voru
furðu lostnir að sjá svo marga fallega
og merkilega sýningargripi. Höfðu
ekki fyrr tengt saman list og bók-
band.
Að sýningin skuli nú vera haldin í
gamla Landsbókasafninu er vel við
hæfi og ánægjulegt að Þjóðmenning-
arhúsið skuli hafa tekið listbókband
upp á sína arma samhliða hinni
ágætu handritasýningu sem þar
stendur yfir, en þar er veitt innsýn í
forna bókagerð, sem enn hvílir á
sama grunni þótt þess sjáist hér ekki
mörg merki. Umgjörð sýningarinnar
í aðalsal safnsins er við hæfi þar sem
sýningarskápar meðfram öllum
veggjum eru fullir af bókum, flestum
fagurlega innbundnum, því miður
gömlum. Nútímabókband er að
mestu leyti vélunnið og límt þannig
að mikil vinna er fólgin í því að hand-
binda þannig unnar bækur og gera
fallegar.
Sýningin er ekki síst merkileg fyr-
ir þær sakir að íslenskir listbókbind-
arar höfðu frumkvæði að því að þráð-
urinn var tekinn upp á ný í
norrænum listbókbandssýningum
eftir langt hlé.
Uppsetning sýningarinnar hefur
tekist vel og fá allir gripirnir notið
sín. Sýningargögn eru til sóma, fróð-
leg og skemmtileg aflestrar með
mynd af öllum sýningargripum. Er í
stuttu máli gerð grein fyrir vanda og
viðfangsefnum listbókbands.
Sýningargripir og þátttakendur
eru 81, þar af 14 Íslendingar. Af þátt-
takendum hafa 24 fengið heiðursvið-
urkenningu og eru þeirra á meðal:
Stefán Jón Sigurðsson fyrir mjög
fagurt „millimetraband“ bókarinnar
Undarlegir fiskar eftir Jóhann
Hjálmarsson,
Páll Halldórsson fyrir glæsilegt
alskinnband Njálssögu.
Ekki er gott að sjá mun á bókbandi
þjóðanna milli. Þó mætti segja að ís-
lenski hópurinn sé eilítið íhalds-
samur, sem reyndar skýrist af því að
fimm listbókbindarar hafa tekið sig
saman um mismunandi útfærslu ein-
stakra binda þjóðsagna Jóns Árna-
sonar.
Ánægjulegt var hvernig bókbands-
listamennirnir hafa valið sér bækur
eftir höfundum og innihaldi og spegl-
ast ást á höfundunum og verkum
þeirra í alúð þeirra og útfærslu á
bandi bókanna. Þá speglast efni bók-
anna og afstaða listamannanna til
þeirra einatt í vali á efni, áferð, lit,
ýmsum framandi aðföngum (plex-
ígler, hóffjaðrir, nærbuxur, grammó-
fónplötur).
Árangur sýningarinnar verður
vonandi mikill og leiðir til eflingar
listbókbands á Norðurlöndum. Ekki
veitir af að stuðla að grasrótarstarfi í
bókbandi, sem er fólgið í því að stuðla
að kennslu í listbókbandi og áhuga-
starfi á því sviði, ekki aðeins tóm-
stundastarfi fyrir aldraða, heldur
einnig almennan áhuga og þátttöku
handlaginna áhugamanna.
Framar öllu má gera sér vonir um
framfarir í bókbandi, tækni og rann-
sóknum í bókagerð. Væntanlega
stuðlar slíkt að framrás íslenskra
bókmennta í veröldinni ef útgáfan
verður búin í listrænan íslenskan
búning.
Þátttöku af Íslendinga hálfu
stjórnar svokallaður JAM-hópur list-
bókbindara. Nafnið er í virðing-
arskyni upphafsstafir þeirra dönsku
bókbandsmeistara sem kvaddir voru
til námskeiðshalds hér á landi fyrir
16 árum. Hefur hópurinn haldið
starfinu áfram með margvíslegum
námskeiðum og fengið miklu áorkað
undir forystu Svans Jóhannssonar,
sem reyndar á ágætt framlag til sýn-
ingarinnar:
Svanur Jóhannsson, pappírsband:
Klettabelti fjallkonunnar eftir Jónas
E. Svafár.
Við áhugamenn um listbókband
styðjum atvinnumennina í þeirra
starfi, enda erum við þeim háðir, leit-
um til þeirra um hvatningu og þekk-
ingu, þakklátir fyrir stuðning þeirra í
okkar viðleitni.
EGGERT ÁSGEIRSSON,
Bergstaðastræti 69, Reykjavík.
Næring
fyrir
sálina
Frá Eggerti Ásgeirssyni:
Frá Norrænu bókbandssýningunni í Þjóðmenningarhúsinu.
EIGA listamenn ekki líkt og aðrir
erindi við sálfræðinga bjáti eitthvað
á hjá þeim í lífinu og listinni? Eða
eru þeir fílefldir á grænni grein?
Þiggja þeir e.t.v. önnur ráð hjá
markaðsfræðingum en þeir annars
fengju? Vitanlega hlíta þeir þver-
faglegum sjónarmiðum í list sinni
eins og fara vill. Kyssa þeir ekki
gullkálfinn beint á hvað þá til þess
að þóknast sínum skuggabaldri,
Elektru eða Ödipusi, Narsissusi,
einhverri kögurvofunni, sem með
þeim blundar og vekur þeim með-
vitund?
Hvaða erindi eiga útlærðir lista-
menn við allt venjulegt fólk, sem
auðvitað veldur kossi, fyrst þeir
upp til hópa telja sér hentugast að
apa upp tómt vingl og bellibrögð
hálf örvita nýhilista á sölutorgum
markaðarins?
JÓN BERGSTEINSSON,
Snorrabraut 30, Reykjavík.
Hug-
myndalist
og fé-
lagsfræði
Frá Jóni Bergsteinssyni:
Í KASTLJÓSI ríkissjónvarpsins
miðvikudag 19.7. var fjallað um
hryðjuverkaógnina með tilliti til ný-
legra árása í London. Áttust þar
við Stefán Pálsson sagnfræðingur
og Hannes Hólmsteinn titlaður
stjórnmálafræðingur. Maður getur
velt vöngum yfir mannvalinu í
þættinum, hvers vegna þessir tveir
ólíku menn eru kallaðir til og þá
hvaða tilgangi svona þáttur á að
þjóna. Ef um er að ræða að fá
fram örugglega tvö ólík sjónarmið
hefur það kannski heppnast nokkuð
vel, nema hvað Hannes Hólmsteinn
fékk að halda uppi einræðum allt of
lengi. Maður getur jafnvel velt
vöngum yfir hvers vegna ég ætti að
setjast niður og kommentera eða
gagnrýna þennan þátt, og eyða
tíma í þann fáránleika sem þar fór
fram.
Spurning er hvort maður geti
samvisku sinnar vegna látið hjá
líða að tjá sig, eða hvort fáránleik-
inn hafi verið svo algjör að Íslend-
ingar, jafn skynsamir og þeir eru,
sjái gegnum þetta. Ekki er hægt
að ganga út frá því síðara sem vísu
eftir reynslu undanfarinna ára, þar
sem sjónarmið Hannesar Hólm-
steins hafa fengið að vaða uppi í
þjóðfélaginu og jafnvel sett mark
sitt sterklega á það.
Ég þykist vita af greinaskrifum
hans að Stefán hefur velt aðstöðu
annarra heimshluta alvarlega fyrir
sér, en ég get ekki alveg gert mér
grein fyrir hvaða sérþekkingu
Hannes Hólmsteinn hefur á araba-
heiminum eða þeirri hryðjuverka-
ógn sem stafar frá múslímum á síð-
ustu tímum. Hvað réttlætir að kalla
hann í þáttinn, eða hvort hann hef-
ur nokkuð til að bera til að tjá sig
um þessi alvarlegu málefni. Maður
getur þannig velt fyrir sér hvað
vakir fyrir stjórnendum Kastljóss-
ins.
Maður getur spáð í hvort ekki sé
ábyrgðarhluti af hálfu Stefáns að
koma fram gegn Hannesi Hólm-
steini, í staðinn fyrir einfaldlega að
hunsa kvaðninguna til Kastljóssins.
Það má spyrja sig hverjum það
þjónar. Ef til vill er Kastljósið svo
eftirsóknarvert að ekki má afþakka
það.
Hannes Hólmsteinn nýtur þess
að sitja yfirlætisfullur og tala af
einfeldni sinni um annarra manna
skoðanir og trúarbrögð, sitja og slá
um sig með Thatcher og slagorðum
um frelsi, þegar hún studdi sjálf
hryðjuverkastjórnir í heiminum,
meðal annars upphaflega auðvitað
Saddam Hussein, og ef til vill fyrir
sum okkur átakanlegast, valdaránið
og fasistastjórnina í Chile á sínum
tíma, sem gerir hana samábyrga
fyrir dauða fjölda manns, þar á
meðal tónlistarmannsins vinsæla
Victor Jara.
Það sem vakti þó mesta furðu
mína, er að Hannes Hólmsteinn
komst upp með að nefna og end-
urtaka mótmælalaust bullið um að
Múhammeð hefði verið herforingi
en Jesús í hvítum kirtli.
Það sem þó er ógeðfelldast er að
hann fær að komast upp með þetta,
og svo gæti farið að fólk sem er
vant að hugsa í trúarlegum
tengslum gæti einfaldlega talið
þetta kjarna málsins. En það er
fjarri lagi.
Kjarni málsins er frekar sá að
trúarbrögð, og ekki síst kristin trú,
hafa verið notuð til eins og annars í
gegnum tíðina. Og hefur Jesús
bæði staðið sem herkonungur og
sem friðarkonungur eftir hvernig
vindar hafa blásið í Evrópu. Og það
gildir líka um íslam.
Öldum saman hefur íslam verið
friðartrú, a.m.k. eftir að hún festi
sig í sessi og þar til krossferðirnar
hófust. Einnig eftir það, þangað til
vesturlönd fóru að seilast til valda
þar til á tímum Napóleons. Músl-
imar og sérílagi Palestínumenn
hafa verið mjög seinþreyttir til
vandræða.
Sannleikurinn er sá að átökin í
dag eru ekki í grundvallaratriðum
trúarbragðastríð heldur er það
vatn á myllu kölska að halda því-
líku fram, og alls ekki sæmandi
manni sem á að heita háskólamað-
ur.
HERMANN BJARNASON,
er titlaður heimspekingur,
Háaleitisbraut 109, Reykjavík.
Opið bréf til
Kastljóssins
Frá Hermanni Bjarnasyni:
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið
VATNASKÓGUR
REYKJAVÍK
AKRANES
SÆLUDAGAR Í VATNASKÓGI
UM VERSLUNARMANNAHELGINA
Allar nánari upplýsingar á www.kfum.is og á skrifstofu KFUM og KFUK í síma 588 8899
Örn Árnason
Páll Rósinkranz
á tónleikum
MIÐAVERÐ AÐEINS 2.000 KRÓNUR
ÓKEYPIS FYRIR 13 ÁRA OG YNGRI
Í FYLGD MEÐ FULLORÐNUM
ÁN ÁFENGIS
-AÐ SJÁLFSÖGÐU!
Ásta og Lóa
hrekkjusvín
KNATTSPYRNA • SKÓGARMANNAKVÖLDVÖKUR • UNGLINGADAGSKRÁ • KASSABÍLAR
BÁTAR • BARNADAGSKRÁ • FRÆÐSLUSTUND • BÆNASTUNDIR • RATLEIKUR • LEIKTÆKI
VARÐELDUR • HELGISTUNDIR • KAFFIHÚS • FLUGELDAR • KODDASLAGUR • VATNAFJÖR