Morgunblaðið - 28.07.2005, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2005 43
AFMÆLI
Ökukennsla
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla akstursmat.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat, '05
892 4449/557 2940.
Vagn Gunnarsson
Mersedes Benz,
894 5200/565 2877.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '02,
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza,
696 0042/566 6442.
Gylfi K. Sigurðsson
Suzuki Grand Vitara,
892 0002/568 9898.
Snorri Bjarnason
BMW 116i, nýr, bifhjólak.
892 1451/557 4975.
Fellihýsi
Esterel fellihýsi Esterel Americ-
ana fellihýsi til sölu. Fortjald, ís-
skápur, hitaofn, salerni, rafgeym-
ir. Gott eintak. Verð 700 þús.
Upplýsingar í síma 896 4480
Tjaldvagnar
Montana Comanche 2001 tjald-
vagn til sölu. Mjög lítið notaður.
Verð 390 þús. með fortjaldi. Upp-
lýsingar í síma 899 5335
Gamall tjaldvagn
Alpen Kreuzer árg. 1991. Tjald
lúið en fortjald fylgir, gott og heil-
legt sem tvöfaldar rými. Gæti
verið gott afdrep við byggingu
sumarbústaðar. Selst hæstbjóð-
anda. Uppl. í síma 896 6181.
Combi Camp til sölu á góðu
verði. Góður Combi Camp af eldri
gerðinni til sölu, svefnpláss fyrir
4. Fortjald fylgir með, tjaldið á
vagninn og fortjaldið er síðan
1995. Uppl. í síma 860 1206.
Mótorhjól
Yamaha XT-660 árg. 2005. Til
sölu mjög lítið notað XT-660 árg.
2005. Frábært ferðahjól. Verð 730
þús. Uppl. í s. 894 0909.
Varahlutir
Jeppapartasala Þórðar,
Tangarhöfða 2, sími 587 5058
Nýlega rifnir Patrol '95. Legacy
'90-'99, Grand Vitara '00, Kia
Sportage '02, Pajero V6 92', Terr-
ano II '99, Cherokee '93, Nissan
P/up '93, Vitara '89-'97, Impreza
'97, Isuzu pickup '91 o.fl.
TOYOTA MR2 SPYDER
Árg. 2002, ek. 32 þús. Blæja,
harður toppur, vetrardekk, 6
diska CD. Verð 2.090 þús. Stað-
greitt 1690 þús. Áhv. 950 þús. Afb.
25 þús. á mánuði. Sími 697 3379.
Til sölu Grand Cherokee
Laredo árgerð 2001, ekinn 55
þús. km, 4 l, sjálfskiptur, topp-
lúga, litað gler, rafm. í rúðum og
sætum, CD, magasín, o.fl. o.fl.
Fallegur og vel með farinn bíll.
Verð 2.390.000. eða 1.950.000.
stgr. Ath. skipti á ódýrari. Uppl.
í síma 690 5001 eða 660 6316.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Til sölu Skoda Felicia árg. 1996
keyrður 95.000 km. Verð 85.000.-
Upplýsingar í síma 695 0522.
Húsbílar
Ford Transit 2,5 l disel Turbo
AFTURDRIF, Challenger yfirbygg-
ing. Árg. 2003, ekinn 61 þús. km.
Afturhjóladrifinn á tvöföldu að aft-
an. Listaverð 4,5 m. tilboð 3.8 m.
Netsalan ehf.,
sími 517 0220.
TJALDVAGN TIL SÖLU
Ársgamall
Ægistjaldvagn með
fortjaldi og auka dýnum
Upplýsingar í símum
896 3109 og 562 1771
Fleetwood Sedona árg. 2004
Sem nýtt. Grjótgrind fylgir. Flott
hús á flottu verði, kr. 930.000.
Netsalan ehf.,
sími 517 0220.
Veiði
Fluguveiði á fjöllum
Kaldakvísl - Tungnaá,
Þórisvatn - Fellsendavatn,
Kvíslárveitur - gisting Versalir.
Veiðileyfi: Hálendismiðstöðin
Hrauneyjar.
Smáauglýsingar • augl@mbl.is
Fáðu úrslitin
send í símann þinn
Níræður er í dag
Torfi Jónsson, fyrrver-
andi bóndi og oddviti á
Torfalæk í Torfalækj-
arhreppi í Austur-
Húnavatnssýslu, en
þar fæddist hann 28.
júlí 1915. Foreldrar
hans voru Ingibjörg
Björnsdóttir frá Marð-
arnúpi í Vatnsdal og
Jón Guðmundsson frá
Torfalæk og hefur
sama ættin í beinan
karllegg búið þar í tæp
150 ár. Torfi er nú einn
eftirlifandi af sex bræðrum, en marg-
ir þeirra hafa orðið þjóðkunnir menn.
Hann kvæntist 1944 Ástríði Jó-
hannesdóttur, mætri konu ættaðri
sunnan úr Garði, og eignuðust þau
synina Jóhannes bónda á Torfalæk
fæddan 1945 og Jón íslenskufræðing
fæddan 1949. Ástríður lést 13. mars
1988.Búskaparsaga þeirra hjóna
spannaði nær hálfa öld, og einkennd-
ist af mikilli reisn og höfðingsskap.
Torfi rak gott og afurðasamt bú á
Torfalæk, og staðarlegt var þangað
heim að líta og er enn, en jörðin er í
þjóðbraut.
Með fáum orðum langar mig að
geta nokkurra samskipta okkar,
þessa mæta vinar míns, um leið og ég
sendi honum árnaðaróskir í tilefni
dagsins.
Ég fékk þann heiður haustið 1966
að keyra þá karlana Torfa og Guð-
mund í Ási fram að Eyvindarstöðum í
Blöndudal, til Steingríms bónda sem
þá var að bregða búi, og var erindið að
kaupa af honum hrossin. Allt gekk
það eftir, og er mér þessi ferð minn-
isstæð fyrir skemmtilegheit ferða-
félaganna, sem á léttu nótunum ýmist
körpuðu um pólitík, eða hvor ætti að
fá þessa eða hina merina í sinn hlut,
og sá ég þarna strax að Torfi var lag-
inn að hafa sitt fram, en tengdapabbi
kunni nú líka ýmislegt fyrir sér, en
báðir skildu þeir sáttir, enda mátu
þeir hvor annan mikils.
Þarna var Torfi 51 árs, en fyrir mér
ungum manninum sem karl,
en tíminn líður hratt, í dag er ég
víst orðinn karl, en Torfi virðulegur
öldungur.
Næstu samskipti okkar urðu 10 ár-
um síðar í oddvitanefnd
Húnavallaskóla, en hann var odd-
viti sinnar sveitar í 28 ár. Á þessum
vettvangi kynntist ég manninum
Torfa best, því okkar samstarf stóð í
mörg ár, og þróaðist í vináttu þrátt
fyrir mikinn aldursmun, enda skiptir
TORFI
JÓNSSON
aldur engu máli ef hug-
ir manna á annað borð
ná saman.
Á þeim fjölmörgu
fundum sem ég hef
setið með Torfa hefur
mér virst hann bæði
sanngjarn og sáttfús,
en fastur fyrir ef því
var að skipta.
Leiðir okkar lágu
líka saman í Lions-
klúbbi Blönduóss í
tæpa tvo áratugi, og
var það skemmtilegur
tími, einnig vorum við
ferðafélagar erlendis, og alltaf hefur
Torfi verið þessi ljúfi félagi.
Á tímabili kom ég alloft við á Torfa-
læk, var orðinn hálfgerður heima-
gangur. Oft var það eftir fundi í Lion,
eða oddvitanefnd.
Naut ég þá gestrisni þeirra Torfa
og Ástu sem var meiri en í meðallagi
að rausnarskap. Komið gat það fyrir
að tappi væri tekinn úr flösku, ferðast
aftur í tímann með sögum og sögnum,
og gjarnan tekið lagið.
Ég ætla ekki að tíunda hér öll þau
störf sem Torfi hefur innt af hendi
fyrir sveit sína og sýslu í gegnum tíð-
ina, enda þekki ég þau ekki nógu vel
til þess, en vil þó geta þess mikla
starfs sem fólst í því að vera fram-
kvæmdastjóri við byggingu Húna-
vallaskóla, kirkjubygginguna á
Blönduósi og íbúðir aldraðra þar.
Að sækja á ráðuneytin um peninga
til þessara framkvæmda hefði
ekki öllum verið lagið, en í þessu er
Torfi klókastur manna, og laginn að
hafa sitt fram, eins og að framan er
sagt. Nú síðustu árin hefur Torfi ver-
ið í sambúð með Sigurlaugu A. Stef-
ánsdóttur, mikilli ágætiskonu, og hafa
þau heimili á Flúðabakka 1 á Blöndu-
ósi, og hefur sú sambúð verið þeim
báðum til gæfu.
Nú er ellin heldur tekin að beygja
þennan húnvetnska bændahöfðingja,
sem hefur verið traustur málsvari alls
þess sem betur mátti fara hér í sýslu.
Hann á víða vini, sem ég veit að
senda honum hlýjar kveðjur í tilefni
þessara tímamóta, mannkostir hans
og alúð í samskiptum við annað fólk
gerir það að verkum að fólk hefur lað-
ast að honum, og trúlega mætti kalla
það persónutöfra.
Hann er spurull um annarra hagi,
ekki beint af forvitni, frekar af áhuga
og umhyggju um hagi viðkomandi,
sem lýsir honum sem mannvini, og
það tel ég hann vera.
Jón B. Bjarnason, Ási.
Rangt nafn
Rangt var farið með nafn Valdi-
mars Kolbeins Sigurjónssonar
kontrabassaleikara í umfjöllun um
þjóðlagahátíð í Siglufirði í blaðinu sl.
mánudag. Er beðist velvirðingar á
mistökunum.
Röng
höfundarkynning
Í Morgunblaðinu sunnudaginn 17.
júlí sl. birtist grein eftir Ásmund
Guðmundsson sem bar titilinn „Víst
er umferðarhraðinn mikill“. Undir
greininni stóð að höfundur væri
bóndi á Akralæk. Hið rétta er að
greinin er eftir Ásmund U. Guð-
mundsson, Suðurgötu 124, Akranesi.
Morgunblaðið biður alla hlutað-
eigandi innilega afsökunar á mistök-
unum.
LEIÐRÉTT
SPRON verðbréf bjóða landsmönn-
um að taka þátt í fjölskylduleik sem
kallaður er „Leitin að lukkunni“.
Leikurinn snýst um að finna tákn-
mynd SPRON, fjögurra blaða smár-
ann, og hafa póstkort með upplýs-
ingum um leikinn verið send út.
Þeir sem finna fjögurra blaða
smára geta komið með hann til
SPRON Verðbréfa í Ármúla 13a,
Reykjavík, eða sent hann þangað
fyrir 9. ágúst nk.
Allir sem senda inn plöntu fara í
pott, en úr honum verða dregin nöfn
100 þátttakenda sem hljóta vinning.
1.–2. vinningur er verðbréf að verð-
mæti 50.000 kr., 3.–5. vinningur er
iPod shuffle-spilari og 95 þátttak-
endur hljóta ýmsa smærri vinninga.
SPRON
verðbréf
bjóða til
lukkuleiks
FRÉTTIR
Kelduhverfi | Þeir voru hressir borg-
ardrengirnir Guðni Hrafn Pét-
ursson og Kristófer Reynir Frið-
riksson þegar ljósmyndari hitti þá í
sumarbúðunum að Ástjörn í Keldu-
hverfi á dögunum.
Þeir félagar sögðu að þótt gaman
væri að róa bátunum á Ástjörninni
þá væri skemmtilegast að stökkva
út í vatnið, synda þar og busla.
Reyndar sögðu þeir veðrið ekki
hafa verið nógu gott meðan á dvöl
þeirra stóð, þannig að þeir hafi
bara einu sinni farið í vatnið.
„Veðrið var miklu betra í fyrra-
sumar og þá fórum við oft í vatnið,“
sögðu þeir félagar sem dveljast á
Ástjörn í annað og þriðja skipti og
líkar þeim vel vistin í sveitinni
norður við Dumbshaf.
Gaman á Ástjörn
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Guðni Hrafn Pétursson og Kristófer Reynir Friðriksson róa bátnum.
ASKJA, sölu- og þjónustuaðili
Mercedes Benz, kynnir í vikunni nýj-
an M-jeppa frá Mercedes Benz. „Í
nýjum M-Class fer saman afl, gæði,
glæsileiki og sportlegt útlit. Nýr M–
Class er vel búinn s.s. með hand-
stýrða gírskiptingu í stýrishjóli, ESP-
stöðugleikastýringu og spólvörn,“
segir m.a. í fréttatilkynningu frá um-
boðinu. M-jeppinn fæst með tveimur
gerðum dísilvéla, 190 og 225 hestafla
og tveimur gerðum bensínvéla, 272 og
306 hestafla. Grunnverð á nýjum M–
Class er 5.990.000 krónur.
Askja kynnir M-línuna Fréttasíminn904 1100