Morgunblaðið - 28.07.2005, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2005 49
MENNING
Wikipedia er alfræðiorða-bók á netinu. Hún er öll-um opin að kostn-
aðarlausu og upplýsingarnar eru
innlegg frá notendum, samansafn
af fróðleik úr öllum áttum. Wiki-
pedia er haldið gjaldfrjálst úti á
vegum Wikimedia Foundation og
er ein vinsælasta heimasíðan á
netinu, með að meðaltali 60 millj-
ónir heimsókna dag hvern.
Wikipedia er til á um 200
tungumálum en einungis um 90
þeirra innihalda virk skrif. Alls er
að finna um 1,6 milljónir leit-
arorða með upplýsingum á síð-
unni og þar af eru 600 þúsund á
ensku, 250 þúsund á þýsku og 100
þúsund á japönsku og frönsku.
Óháðar og vandaðar útskýr-
ingar eiga að vera einkenni al-
fræðiorðabókarinnar en vegna
þess hve opin hún er almenningi
hafa í gegnum tíðina komið upp
ýmis mál þar sem óprúttnir
náungar setja einhverja vitleysu
inn á vefinn.
Notendur geta þó leiðrétt hver
hjá öðrum staðreynda- og inn-
sláttarvillur svo að öflug rit-
skoðun ætti stöðugt að vera í
gangi á vefnum.
Wikipedia varð til í kjölfarverkefnisins Nupedia, sem
var orðabók á netinu þar sem hin-
ir ýmsu fræðimenn voru fengnir
til að skrifa um sérgreinar sínar.
Hinn 15. janúar 2001 var vefur
Wikipedia svo opnaður en for-
sprakkarnir voru þeir Jimmy Wa-
les og Larry Sanger.
Nafnið kemur frá hawaiiska
orðinu wiki wiki sem þýðir snögg-
ur.
Wikipedia hefur á undanförnum
fjórum árum vaxið fiskur um
hrygg, svo ekki sé meira sagt.
Hún byrjaði einungis á ensku með
þær greinar sem áður höfðu prýtt
Nupedia. Fjórum árum síðar er
þetta stærsta og virkasta al-
fræðiorðabók sinnar tegundar í
heiminum.
Wikipedia er ekki sú einasinnar tegundar á vefnum
en er langstærst þeirra allra,
bæði hvað varðar efni og not-
endafjölda. Stóran hluta vinsælda
hennar má trúlega rekja til þeirr-
ar staðreyndar að enginn höf-
undaréttur hvílir á færslum á síð-
unni og upplýsingarnar sem hún
hefur að geyma standa öllum til
afnota að kostnaðarlausu. Heim-
ildagildi Wikipedia hefur styrkst
síðustu ár og er nú víða vísað til
hennar sem heimildar fyrir ýmsan
fróðleik, jafnvel í vísinda- og
fræðimennsku. Ekki eru þó allir
jafnsáttir við fyrirbærið og fjöldi
fræðimanna hefur gagnrýnt harð-
lega þá stefnu að leyfa „hverjum
sem er“ að rita fróðleik inn á síð-
una, það telja þeir ýta undir rang-
færslur og óvönduð vinnubrögð.
Á móti segja svo þeir sem ánægð-
ir eru með Wikipedia að hin öfl-
uga ritskoðun sé einmitt til þess
fallin að koma í veg fyrir slíkt.
Kosturinn við Wikipedia um-
fram aðrar alfræðiorðabækur er
svo að sjálfsögðu hve í takt við
tímann hún er. Sífellt bætast við
nýjar upplýsingar í kjölfar at-
burða líðandi stundar og ekki
þarf að bíða eftir endurútgáfu
eins og er með alfræðiorðabækur
á prentuðu máli.
Það er gaman að skoða Wiki-pedia og fletta upp ýmsu um
menn og málefni. Ótrúlegur fróð-
leikur hefur verið þar tekinn sam-
an um ótrúlegustu málefni. Þegar
skoðaðar eru íslenskar hljóm-
sveitir til að mynda á hinni ensku
Wikipedia er þar að finna ítarleg-
ar upplýsingar og fáir trúlega
hissa á því að upplýsingar um
Björk og Sigur Rós fylla þar
margar blaðsíður. Við eft-
irgrennslan kemur hins vegar í
ljós að ítarlegastan fróðleik um
íslenska tónlistarmenn er hvorki
að finna um Björk né Sigur Rós.
Það er saga hljómsveitarinnar
Quarashi sem fyllir nær átta blað-
síður af upplýsingum um sveitina,
allt frá stofnun hennar til dagsins
í dag. Færslurnar eru nafnlausar
og ekki er hægt að finna út hver
skrifar hvað á síðunni.
Wikipedia er einnig til á ís-lensku og inniheldur fjöl-
breyttan fróðleik eins og búast
má við. Með ofangreindar upplýs-
ingar í farteskinu vekur athygli
að á íslenska vefnum er ekki að
finna neinar upplýsingar um
hljómsveitina Quarashi svo það er
líklega erlendur aðdáandi sveit-
arinnar sem ausið hefur úr visku-
brunni sínum um sveitina á hinni
ensku síðu.
Alfræðiorðabók allra
’Fjórum árum síðar erWikipedia stærsta og
virkasta alfræðiorðabók
sinnar tegundar í heim-
inum.‘
AF LISTUM
Birta Björnsdóttir
Mikinn fróðleik er að finna um hljómsveitina Quarashi á wikipedia.org.
TENGLAR
.....................................................
wikipedia.org
SÍÐASTA sumartónleikahelgin við
Mývatn í sumar er að renna upp.
Tvennir tónleikar haldnir um
helgina, auk þess sem helgistund
verður haldin á sunnudag kl. 14.
Viðburðirnir fara fram í þremur
ólíkum kirkjum í sveitinni. Þeir
fyrstu, á laugardagskvöld kl. 21,
verða haldnir í Reykjahlíðarkirkju.
Þar syngur kór Áskirkju í Reykja-
vík, sem skipaður er 16 lærðum
söngvurum, undir stjórn Kára Þor-
mar. Á efnisskránni eru eingöngu ís-
lensk sönglög og þjóðlög, en kórinn
gaf á síðasta ári út geisladisk með
svipaðri efnisskrá sem tilnefndur
var til Íslensku tónlistarverð-
launanna.
Kirkjukaffi í grænni lautu
Á sunnudag kl. 14 verður síðan
haldin helgistund í umsjón sr. Örn-
ólfs J. Ólafssonar. Stundin verður
haldin á óvenjulegum stað – í
Dimmuborgum – og mun þetta vera
fjórða árið í röð sem helgistund er
haldin á þessum stað. Nemendur
Tónlistarskóla Mývatnssveitar flytja
tónlist ásamt Valmar Väljaots, auk
þess sem Einar Bjarki Leifsson og
Anton Birgisson leika á saxófón og
munnhörpu. Á eftir verður boðið til
kirkjukaffis í grænni lautu og eru
gestir beðnir að hafa kaffið með sér,
en kleinurnar verða á staðnum!
Lokatónleikar helgarinnar verða
síðan haldnir í Skútustaðakirkju á
sunnudagskvöld kl. 21. Þar mun
þýski orgelleikarinn, sem einnig er
fyrrverandi tónlistarkennari í Mý-
vatnssveit, Wolfgang Tretzsch, leika
fjölbreytta tónlist á orgel kirkjunnar
sem smíðað er af Björgvini Tóm-
assyni oreglsmið.
Að sögn Margrétar Bóasdóttur
hefur aðsóknin að tónleikum á Mý-
vatni í sumar verið góð, líkt og und-
anfarin sumur, en þetta er í 19. sinn
sem röð tónleika er haldin að sum-
arlagi við Mývatn. „Það er viss
kjarni heimamanna sem lætur þetta
aldrei framhjá sér fara, en annars er
áheyrendahópurinn mjög alþjóð-
legur,“ segir hún. „Okkar markmið
hefur verið að bjóða upp á vandaða
tónlist til þess að menn fái ákveðna
viðbót við landslagið í Mývatnssveit.
Ég held að það sé mörgum kærkom-
ið að setjast niður í klukkutíma eftir
daginn og hlusta á fallega tónlist.“
Sumartónleikaröðin við Mývatn
fagnar því 20 ára starfsafmæli á
næsta ári og er þegar farið að leggja
drög að hátíðahöldum. „Það verður
mikið um dýrðir þá,“ segir Margrét
Bóasdóttir að lokum.
Tónlist | Síðustu sumartónleikarnir við
Mývatn í þremur ólíkum kirkjum
Morgunblaðið/BFH
Frá fyrri helgistund í Dimmuborgum.
Helgistund í
Dimmuborgum
Útsala
Opið virka daga kl. 10-18
laugardaga kl. 10-16
Nýbýlavegi 12,
Kópavogi
sími 554 4433
birta@mbl.is