Morgunblaðið - 22.08.2005, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.08.2005, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HANDTEKINN Maður sem grunaður er um að vera valdur að dauða tvítugs pilts í íbúð á Hverfisgötu á laugardags- morgun hefur verið úrskurðaður í tíu daga gæsluvarðhald. Meg- inndrættir málsins liggja fyrir, að sögn lögreglu. Hinn grunaði hefur þó ekki játað verknaðinn, en yf- irheyrslum yfir honum er ekki lokið. Lögregla hefur lagt hald á hníf sem talinn er morðvopnið. FH Íslandsmeistarar Fimleikafélag Hafnarfjarðar tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu annað árið í röð í gær- kvöldi þegar liðið lagði Valsmenn 2:0 í Kaplakrika í gærkvöldi. FH-ingar hafa unnið alla fimmtán leiki sína og eru með 45 stig á toppi deildarinnar en Valsmenn eru í öðru sæti með 31 stig. 90 þúsund á Menningarnótt Talið er að allt að 90 þúsund manns hafi verið í miðbæ Reykjavík- ur á Menningarnótt. Dagskrá hátíð- arinnar fór vel fram og slysalaust, að sögn lögreglu, en hins vegar voru mikil læti og ölvun um nóttina og talsvert um slagsmál. Að sögn Geirs Jóns Þórissonar, yfirlögregluþjóns í Reykjavík, voru mun meiri læti í ár en í fyrra um nóttina. Páfi messaði í Köln Meira en milljón manns sótti messu sem Benedikt XVI. páfi flutti í útjaðri Kölnar í Þýskalandi í gær. Um var að ræða fyrstu opinberu heimsókn páfans á erlenda grund síðan hann var kjörinn páfi eftir frá- fall Jóhannesar Páls II. páfa í vor. Benedikt, sem áður hét Joseph Ratzinger, er þó ekki með öllu ókunnur í Þýskalandi, hann er jú þaðan. Tilefni ferðar páfans til Þýskalands nú var að sækja heims- þing kaþólskra ungmenna, sem haldið er með reglubundnu millibili. Gyðingabyggðum lokað Lokun gyðingabyggða á Gaza var um það bil að ljúka í gærkvöldi. Þá á aðeins eftir að loka nokkrum byggð- um á Vesturbakkanum, hafist verð- ur handa við það í vikunni. Í gær var byrjað að jafna við jörðu hús gyð- inga á nokkrum stöðum á Gaza en það þykir til marks um að brotthvarf Ísraela frá Gaza sé varanlegt. Nema land í Systraskeri Fimmtán tegundir plantna hafa fest rætur á nýju skeri í Breiða- merkurjökli, Systraskeri, sem kom upp úr jöklinum árið 2000. Þegar bræðurnir frá Kvískerjum, Hálfdán og Helgi Björnssynir, komu fyrstir manna í Systrasker haustið 2002 var þar enginn gróður. Y f i r l i t Í dag Vesturland 13 Dagbók 30 Erlent 14/15 Víkverji 30 Daglegt líf 16/17 Velvakandi 31 Listir 18 Staður og stund 32 Umræðan 19/25 Menning 33/37 Forystugrein 20 Ljósvakamiðlar 38 Bréf 24 Veður 39 Minningar 26/28 Staksteinar 39 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is ÁTJÁN ára piltur var stunginn með hnífi í Tryggvagötu um eitt- leytið aðfaranótt sunnudags með þeim afleiðingum að hann hlaut tvö stungusár á baki auk þess sem lunga hans féll saman. Sautján ára piltur var handtek- inn skömmu síðar, grunaður um árásina og var hann úrskurðaður í fimm daga gæsluvarðhald seinni- partinn í gær. Fórnarlamb árásarinnar er úr lífshættu en hann fór í aðgerð strax um nóttina. Hann liggur á gjörgæsludeild Landspítala – há- skólasjúkrahúss og er ástand pilts- ins stöðugt, að sögn vakthafandi læknis á spítalanum. Ómar Smári Ármannsson að- stoðaryfirlögregluþjónn segir að það hafi sennilega bjargað lífi piltsins að hann komst strax undir læknishendur. Myndavélar sönnuðu gildi sitt Lögreglan hafði uppi á árásar- manninum skömmu eftir að árásin átti sér stað en lögreglumenn gátu fylgst með ferðum hans í eftirlits- myndavélum þar sem hann sást hlaupa frá árásarstaðnum. Enn fremur sást þar hvar árásarmað- urinn losaði sig við hnífinn rétt áð- ur en lögreglan kom að honum og tókst því að finna hnífinn. Ekki er vitað hver aðdragandinn að árás- inni var. Ómar Smári segir að eftirlits- myndavélarnar hafi sannað gildi sitt á laugardagskvöldið. „Þær voru settar upp á sínum tíma í þrennum tilgangi. Í fyrsta lagi til að vera fyrirbyggjandi, þannig að fólk viti af þeim og þær ættu þannig að fæla fólk frá ólög- legri háttsemi á svæðinu. Í öðru lagi til að tryggja öryggi fólks og ekki síst lögreglumanna sem eru við störf á svæðinu. Í þriðja lagi til að auka líkur á uppljóstrun brota sem framin eru. Það kom glögg- lega í ljós í þessu tilviki að þær sönnuðu gildi sitt, því það var hægt að fylgjast með hinum grunaða og beina nærliggjandi lögreglumönnum að honum. Það sást á myndavélum hvar hann reyndi að losa sig við hnífinn þannig að það var hægt að finna hann,“ segir Ómar. Átján ára piltur stunginn í miðborg Reykjavíkur á Menningarnótt Stakk piltinn tvívegis í bakið Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is Hinn grunaði var í gær úrskurðaður í fimm daga gæsluvarðhald GUÐMUNDUR Bene- diktsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í for- sætisráðuneytinu, lést í Reykjavík 20. ágúst, 81 árs að aldri. Guðmundur fæddist 13. ágúst 1924 á Húsa- vík. Foreldrar hans voru Benedikt Björns- son, skólastjóri á Húsa- vík, og Margrét Ás- mundsdóttir. Guðmundur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Ak- ureyri árið 1945. Hann lauk lögfræði- prófi frá Háskóla Íslands 1951 og varð héraðsdómslögmaður ári síðar. Guðmundur var fulltrúi á málflutn- ingsstofu Eggerts Claessen og Gúst- afs A. Sveinssonar 1951-1958. Hann var framkvæmdastjóri Meistarasam- bands byggingarmanna 1959 til 1960. Hann var fulltrúi hjá Verslunarráði Íslands 1961 og fulltrúi í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu 1962-1964. Guðmundur var deildarstjóri í for- sætisráðuneytinu 1964-1970 og ráðu- neytisstjóri 1970-1992. Meðal annarra starfa Guðmundar má nefna að hann var formaður Stúd- entafélags Háskóla Íslands 1948-1949 og formaður Stúdenta- félags Reykjavíkur 1954-1955. Hann var endurskoðandi Versl- unarsparisjóðsins frá stofnun 1956-1960 og Verslunarbanka Ís- lands 1960-1962. Guð- mundur sat í nefnd sem var skipuð af dóms- og kirkjumálaráðherra til að annast undirbúning vígslu Skálholtskirkju 1963. Þá var hann ritari stjórnarskrárnefndar frá 1978. Hann var enn- fremur varaformaður stjórnar Þró- unarfélags Reykjavíkur. Guðmundur hlaut fjölda viður- kenninga. Hann var Stórriddari af Hinni íslensku fálkaorðu og hlaut heiðurspening til minningar um vígslu Skálholtskirkju 1963. Þá hlaut hann Stórkross sænsku Norðstjörn- unnar, finnsku Ljónsorðunnar og National du Mérite, British Empire- orðuna auk fleiri viðurkenninga. Þann 16. ágúst 1950 kvæntist Guð- mundur Kristínu Önnu Eggertsdótt- ur Claessen. Þau eignuðust fjögur börn, þau Ragnheiði Margréti, Soffíu Ingibjörgu, Solveigu Láru og Eggert Benedikt. Andlát GUÐMUNDUR BENEDIKTSSON HÁTT í 500 manns voru við há- tíðahöld við brúarsporð Lag- arfljóts að kveldi síðastliðins laug- ardags þar sem haldið var upp á 100 ára afmæli Lagarfljóts- brúarinnar. Brúin þótti mikil samgöngubót á sínum tíma. Við vígslu hennar 1905 flutti Klemens Jónsson land- ritari ræðu og var hún endurflutt á afmælinu. Það var Sigurjón Bjarnason sem brá sér í hlutverk Kemensar og honum til aðstoðar var Karen Erla Erlingsdóttir. Þau eru bæði félagar í Leikfélagi Fljótsdalshéraðs, en félagið flutti leikþátt á afmælishátíðinni. Hátíð- inni lauk síðan með flugeldasýn- ingu. Kemens Jónsson var landritari þegar embættið var stofnað árið 1904. Hannes Hafstein var fyrsti ráðherra Íslands og óskaði hann sérstaklega eftir því við Klemens að hann tæki við starfi landritara, en Klemens var þá bæjarfógeti á Akureyri. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Flutti ræðu Klemensar landritara EF gerður verður flug- völlur á Lönguskerjum í Skerjafirði þarf að loka Kópavogshöfn. Þetta segir Gunnar I. Birgis- son, bæjarstjóri í Kópa- vogi, en hann leggst al- farið gegn hugmyndum um innanlandsflugvöll á þessum stað. Hann segir umræðu um þessa hug- mynd fáránlega. Flugfélögin hafa rætt við samgönguyfirvöld og borgaryfirvöld í Reykja- vík um framtíð innan- landsflugsins. Flugfélög- in telja að besti kosturinn sé að flugvöllurinn verði áfram á sama stað og Sturla Böðv- arsson samgönguráðherra er sömu skoðunar. Hann sagði hins vegar í samtali við Morgunblaðið fyrir helgi að hann gæti ekki útilokað flugvöll á Lönguskerjum sem framtíðarkost. Gunnar Ingi Birgisson segir að hugmyndir um nýjan flugvöll á Lönguskerjum í Skerjafirði séu framtíðarmúsík og komi ekki til framkvæmda fyrr en eftir tugi ára, þ.e.a.s. ef þær verði yf- irleitt nokkurn tímann að veruleika. Hann minnir á að nýbúið sé að leggja flugvöll í Vatnsmýrinni fyrir tvo milljarða. Rétt sé að nota þessa fjárfest- ingu áður en byrjað sé strax að leggja nýjan flugvöll. Gunnar segir að það sé alltaf vandamál fyr- ir vinstrimenn í Reykjavík að tala um Reykjavíkurflugvöll og umræðan nú endur- spegli það. Gunnar var spurður hvaða áhrif flugvöllur á Lönguskerjum myndi hafa fyrir Kópavogsbúa. „Það myndi lokast fyrir höfnina hjá okkur og við þyrftum þá að leggja hana af. Það virðast vera nógir pen- ingar í Reykjavík. Mér finnst þetta svo fáránleg umræða. Menn geta leikið sér að því að tala um þetta fram og til baka sem dægurmál. Mér finnst að flugvöllurinn eigi að vera þar sem hann er,“ segir Gunnar. Loka yrði Kópavogshöfn Bæjarstjóri Kópavogs ekki sáttur við innanlandsflugvöll á Lönguskerjum Gunnar I. Birgisson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.