Morgunblaðið - 22.08.2005, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 22.08.2005, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. FIMMTÁN tegundir plantna hafa fest rætur á nýju skeri í Breiðamerk- urjökli, Systraskeri, sem kom upp úr jöklinum árið 2000. Þegar bræðurnir frá Kvískerjum, Hálfdán og Helgi Björnssynir, komu fyrstir manna í Systrasker haustið 2002 var þar eng- inn gróður en í leiðangri sem farinn var í júlí sl. á vegum Náttúru- fræðistofnunar Íslands kom í ljós að 15 tegundir höfðu numið þar land síðustu þrjú árin. Einnig sáust nokkrar mosategundir. Frá þessu er greint á vef Nátt- úrufræðistofnunar. Leiðangursmenn voru Hálfdán frá Kvískerjum, Bjarni Diðrik Sigurðsson, skógfræðingur hjá Landbúnaðarháskóla Íslands, og Starri Heiðmarsson, grasafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun. Vöktun í 40 ár Breiðamerkurjökull, einn stærsti skriðjökull landsins, hefur stöðugt verið að hopa og þynnast frá alda- mótunum 1900. Eftir því sem jökull- inn hefur lækkað hafa ný jökulsker litið dagsins ljós, fyrst Kárasker fyr- ir um 60 árum, seinna Bræðrasker fyrir um 40 árum og nú Systrasker, sem sást fyrst haustið 2000 sem fyrr segir. Þá hafa Esjufjöll gnæft upp úr jöklinum miðjum og á vef Nátt- úrufræðistofnunar segir að saman myndi þessir staðir aldursröð sem fróðlegt sé að skoða út frá gróður- og dýralífi. Mun gróðurfar í Esjufjöllum vera orðið ótrúlega fjölbreytt og vaxtarlegt miðað við hæð þeirra yfir sjó, allt að 900 metra. Í fjöllunum hafa fundist yfir 100 tegundir plantna. Eyþór Einarsson grasafræðingur fylgdist með framvindu gróðurs í Káraskeri og Bræðraskeri í nærri 40 ár og fékk til þess aðstoð frá Hálf- dáni Björnssyni. Settu þeir fyrst nið- ur fasta reiti í Bræðraskeri árið 1965. Niðurstöðum rannsókna Eyþórs var lýst í grein í Kvískerjabók, sem kom út árið 1998, en þá höfðu fundist hátt í 50 tegundir háplantna og 30 mosategundir í Bræðraskeri og 62 tegundir háplantna og 42 mosateg- undir í Káraskeri. Einstakur gróður Leiðangursmenn í sumar héldu vöktuninni áfram auk þess sem þeir settu upp tíu reiti í Systraskeri sem fylgst verður með í framtíðinni. Þar hafa sem fyrr segir 15 plöntuteg- undir numið land og þá fundust þrjár nýjar tegundir í Bræðraskeri; fjalla- dúnurt, langkrækill og tófugras. Ein ný tegund fannst í Káraskeri, eða maríustakkur. Í leiðangrinum var einnig gengið umhverfis öll skerin með GPS-staðsetningartæki til að meta stærð þeirra og gera sam- anburð mögulegan í framtíðinni. Starri Heiðmarsson segir við Morgunblaðið að sérlega athygl- isvert verði að skoða hvernig gróðri reiðir af í Systraskeri, sem er gabbrósker, en hin skerin eru úr bas- alti. Hann segir Helga Björnsson jöklafræðing hafa fyrir nokkrum ár- um sagt fyrir um hvaða sker kæmi næst upp úr Breiðamerkurjökli og reyndist það síðar vera Systrasker. Starri segir það hafa verið forrétt- indi fyrir þá Bjarna Diðrik að fara í leiðangurinn í sumar með Hálfdáni frá Kvískerjum, sem nálgast nú átt- rætt en blæs varla úr nös í fjallaferð- um, hafsjór fróðleiks um íslenskt dýra- og gróðurlíf. Þá segir Starri að gróðurinn í Esjufjöllum sé einstakur, í þetta mikilli hæð, og hann langi mikið að komast þangað í leiðangur næsta sumar. Kanna jökulsker sem kom fyrst í ljós á Breiðamerkurjökli árið 2000 Ljósmynd/Bjarni Diðrik Sigurðsson Hálfdán Björnsson og Starri Heiðmarsson fyrir framan Systraskerið á Breiðamerkurjökli í leiðangri Náttúrufræðistofnunar í sumar. Fimmtán tegund- ir hafa fest rætur Ljósmynd/Starri Heiðmarsson Burnirót dafnar vel á jökulskerj- unum á Breiðamerkurjökli, enda laus við sauðfjárbeit. Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is STÓRMEISTARINN Hannes Hlífar Stef- ánsson varð Íslandsmeistari í skák um helgina, fimmta árið í röð og í sjöunda sinn á átta árum. Aðeins tveir íslenskir skák- menn hafa hampað titlinum svo oft, þeir Baldur Möller og Eggert Gilfer. Hannes sagði við Morgunblaðið að Skákþingi Íslands loknu að sigurinn í landsliðsflokki nú hefði verið erfiðari en áður. Keppnin hefði verið jafnari og margir komið vel undirbúnir til leiks. Í því ljósi væri sig- urinn sætur og einnig ánægjulegt að hafa jafnað met með alls sjö titlum. Hann sem ungur maður hefði nægan tíma til að slá sjálft metið og bæta áttunda Íslandsmeist- aratitlinum í safnið. Hannes stefnir að því að kljúfa 2.600 skákstiga múrinn um næstu áramót en hann er næststigahæstur á eftir Jóhanni Hjartarsyni stórmeistara. Tólf ára í landsliðsflokk? Keppni í áskorendaflokki var mjög jöfn á Skákþinginu. Þrír urðu efstir og jafnir og tryggðu sér þátttökurétt í landsliðs- flokki að ári en fjórir skákmenn verða að heyja aukakeppni um fjórða lausa sætið. Meðal þeirra eru Guðlaug Þorsteinsdóttir og Hjörvar Steinn Grétarsson. Takist öðru þeirra ætlunarverkið verður um sögulegan árangur að ræða. Engin íslensk skákkona hefur til þessa komist í landsliðsflokk og Hjörvar Steinn yrði sá yngsti, aðeins 12 ára gamall. Hannes meistari í sjöunda sinn  Stefnir á 2.600 | 4 Hannes Hlífar Stefánsson ÍSLENSKA kvennalandsliðið í knattspyrnu hóf þátttöku sína í undankeppni HM í knatt- spyrnu með 3:0-sigri á Hvít-Rússum á Laug- ardalsvellinum í gær. Dóra María Lárusdóttir úr Val skoraði tvö af mörkum íslenska liðsins og Margrét Lára Viðarsdóttir eitt. Sigurinn er gott veganesti fyrir leik íslenska liðsins gegn hinu feikisterka liði Svía en þjóðirnar mætast í Svíþjóð um næstu helgi. B/8. Morgunblaðið/Jim Smart Ásthildur Helgadóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, í baráttu við markvörð Hvít-Rússa á Laugardalsvelli í gær. Góð byrjun hjá kvennalandsliðinu KYNNING á íslenska skyrinu, blönduðu dönsku plómusírópi, fór vel af stað í Tívolí-skemmtigarðinum í Kaupmannahöfn um helgina. Þeir 2.500 skammtar sem höfðu verið blandaðir fyrir helgina ruku út og að sögn Skúla Böðvarssonar hjá Agrice, sem vinnur að markaðssetningu á ís- lenska skyrinu á erlendum mörkuð- um, þarf að útbúa mun fleiri þar sem matarhátíðin í Tívolí stendur út þessa viku. Skúli segir skyrið hafa fengið mjög góðar móttökur gesta á hátíð- inni og gríðarlegur straumur verið um bás Meyers Madhus, sem tók að sér kynningu á skyrinu. „Skyrið þótti bragðast mjög vel og margir höfðu á orði að vel væri hægt að venja sig á þennan góða og holla mat,“ segir Skúli. Íslenska skyrið sló í gegn í Tívolí INNFLUTNINGUR á fólksbílum á fyrri helmingi ársins nam 13,9 millj- örðum króna. Þetta er aukning um tæplega 85% frá sama tíma í fyrra á föstu gengi. Innflutningur á vöru- og sendiferðabílum hefur aukist úr 2 milljörðum í 3,4 milljarða. 85% meiri innflutningur á fólksbílum  85% aukning | 8 ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.