Morgunblaðið - 22.08.2005, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 22.08.2005, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÆGIR Ólafsson, fyrr- verandi forstjóri, lést á hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn 18. ágúst, 93 ára að aldri. Ægir fæddist 10. mars 1912. Foreldrar hans voru Ólafur Sig- urðsson, skipstjóri úr Flatey í Breiðafirði, og Guðrún Baldvinsdóttir. Ægir brautskráðist úr Samvinnuskólanum í Reykjavík 1930. Hann vann ýmsa verka- mannavinnu og verslun- arstörf 1930–36, í Hrís- ey og Reykjavík. Veturinn 1931 stundaði hann málakennslu í Kefla- vík. Hann fór til Kaupmannahafnar 1936 og lærði verksmiðjuframleiðslu m.a. á hönskum. Starfaði hann næstu ár við Herkúles hf. og rak hanska- gerð. Hann fór til Svíþjóðar 1939 og lærði skóiðnað, en kom heim í Pet- samoferð með Esjunni og rak síðan skóverksmiðjuna Þór til ársins 1941. Ægir fór þá til Bandaríkjanna, lærði viðskiptafræði, og dvaldist þar til ársins 1945. Hann stofnaði heildverslunina Mars Trading Company árið 1944 og var það ævi- starf Ægis eftir það. Ægir var einn af stofnendum félags eldri borgara í Reykjavík og starfaði þar á skrifstof- unni eftir að hefðbundn- um starfsferli lauk snemma á níunda áratugnum. Hann kvæntist Láru Gunnarsdótt- ur fóstru árið 1946 en þau skildu. Þau eignuðust saman tvö börn, Guðrúnu og Gunnar. Árið 1956 kvæntist Ægir Jarmilu Veru Friðriksdóttur frá Tékklandi en hún lést árið 1992. Sam- an eignuðust þau börnin Ólaf og Evu en fyrir átti Jarmila börnin Bennó og Marcelu sem Ægir ættleiddi. Andlát ÆGIR ÓLAFSSON ÞRENNT var flutt á slysadeild eft- ir að tveir bílar sem komu hvor úr sinni áttinni rákust saman við Straum á Reykjanesbraut um klukkan fjögur aðfaranótt sunnu- dags. Fólkið sem slasaðist var allt í öðrum bílnum en ökumaður hins bílsins var einn í bílnum og er hann grunaður um ölvun við akst- ur. Þrír á slysadeild eftir árekstur LÖGREGLAN á Húsavík handtók mann aðfaranótt sunnudags fyrir að hafa brotið rúðu í bakaríi og verslunarmiðstöð í bænum. Maðurinn var handtekinn nálægt bakaríinu og fékk að sofa úr sér í fangageymslum lögreglu. Honum var sleppt í gærmorgun að lokinni skýrslutöku. Braut rúðu í bakaríi HANDALÖGMÁLUM milli tveggja útlendinga fyrir utan skemmtistaðinn í Hafnargötu í Keflavík á laugardagskvöld lauk með því að annar beit hinn í nef- ið. Átökin hófust inni á staðnum en lauk fyrir utan hann. Sá sem varð fyrir áverkunum var að sögn lögreglu fluttur til aðhlynn- ingar á Heilbrigðisstofnun Suð- urnesja. Haft var uppi á gerandanum og viðurkenndi hann aðild sína að málinu. Báðir mennirnir eru á fertugsaldri og starfa á Suð- urnesjum. Þá var talsvert um hraðakstur á Suðurnesjum um helgina. Lög- reglan mældi ökumann aðfara- nótt sunnudags á 139 km hraða á Reykjanesbraut þar sem há- markshraði er 90 km en ökumað- urinn er grunaður um ölvun við akstur. Á laugardagskvöld voru fjórir ökumenn kærðir fyrir hraðakstur og sá sem fór hraðast var mæld- ur á 143 km á Reykjanesbraut. Maður bitinn í nefið SKEMMTIBÁTURINN Sigurður Þorkelsson slitnaði af legufærum í Látrum í Aðalvík og rak um 200 metra á land í gærmorgun. Talið er að legufærin hafi brotnað vegna sjógangs og brims en báturinn var mannlaus þegar hann rak af stað. Í kjölfarið var björgunarskipið Gunnar Friðriksson kallað út og lagði það af stað frá Ísafirði klukkan hálfníu um morguninn og kom til Aðalvíkur um tíuleyt- ið. Báturinn var nokkuð skemmd- ur þegar björgunarmenn komu að og þurfti að rífa talsvert af tækjum úr honum og gera við leka. Áhöfn Gunnars Friðrikssonar ákvað að bíða eftir flóði til að koma bátnum á flot aftur. Sex manns eru í áhöfninni og búist var við því að skipið kæmi aftur til Ísafjarðar um miðnætti. Skemmtibát rak á land í Aðalvík „ÞAÐ er sókn í öllum greinum land- búnaðarins, afurðir seljast vel og nýir samningar um sölu landbúnaðaraf- urða verða að þessu sinni ekki gerðir í skugga birgða frá síðasta framleiðslu- ári,“ sagði Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, í setningarræðu sinni á landbúnaðar- sýningunni í reiðhöllinni Svaðastöð- um síðastliðinn laugardag. Haraldur sagði það ánægjulegt að verða vitni að svo stórri og yfirgripsmikilli sýn- ingu sem þeirri sem hér væri sett upp þar sem bæði væri um fagsýningu að ræða og svo einnig sýningu á flestum öðrum þáttum sem tengdust land- búnaði. Bjartara framundan í útflutn- ingi landbúnaðarafurða Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra ávarpaði samkomugesti og flutti kveðjur frá landbúnaðarráð- herra og ríkisstjórn Íslands. Sagði hann ánægjulegt að sjá eflingu allra greina landbúnaðarins, sem kæmi fram á þessari sýningu. Besti vottur- inn um vaxandi starfsemi í sveitum landsins kæmi ef til vill fram í því að báðir háskólarnir sem tengjast land- búnaði, á Hvanneyri og á Hólum, nytu vaxandi vinsælda og mikil ásókn væri í skólavist. Taldi ráðherra að mikil sóknarfæri væru innan land- búnaðarins, og nefndi í því sambandi glæsilegt heimsmeistaramót íslenska hestsins í Svíþjóð, kynningu á mjólk- urafurðum í Danmörku og mjög vax- andi eftirspurn eftir lambakjöti í Bandaríkjunum. Að loknum ávörpum voru veittar umhverfisviðurkenningar Sveitarfé- lagsins Skagafjarðar. Að þessu sinni tóku við viðurkenningum bændurnir Kristín Ólafsdóttir og Leifur Þórar- insson vegna Keldudalsbúsins, Ólafur Jónsson vegna fyrirtækisins Lónkots á Höfðaströnd, Hallfríður Sverrisdóttir og Sigurlaugur Elías- son eigendur garðsins að Suðurgötu 20 á Sauðárkróki, og Sigríður Sigurð- ardóttir safnvörður vegna Byggða- safnsins í Glaumbæ. Fallegasta gatan í þéttbýli þótti vera Brekkutún á Sauðárkróki og tók Margrét Grétars- dóttir við þeirri viðurkenningu, en að lokum var Sveini Guðmundssyni veitt viðurkenning fyrir einstakt framtak í umhverfismálum. Að þessu loknu var gestum boðið að ganga út í Víðishólma, en það er grösugur, manngerður hólmi rétt við heimreiðina að Svaðastöðum. Þar hefur Sveinn Guðmundsson gert fal- legan reit með gróðursetningu, en einnig með uppsetningu minnisvarða, fyrst stórs steins með glæsilegri hestsmynd, en nú var afhjúpaður annar steinn með listaverki eftir Ein- ar Gíslason, myndlistarmann á Akur- eyri. Afhjúpaði Sturla Böðvarsson minnisvarðann. Á steininum er mynd af fjárrekstri og kom fram í ávarpi listamannsins að með þessu væri verið að minnast horfinna búskaparhátta þegar bænd- ur í Hegranesi ráku fé sitt í og úr af- rétti um Sandana. Fjöldi gesta og margt að skoða Í sýningarhúsi var margt að sjá og skoða. Innandyra var vísir að hús- dýragarði, úti glæsileg vinnuvélasýn- ing, á skeiðvelli Léttfeta gæðinga- keppni en hinum megin húss sýndu frábærir fjárhundar hvernig þeir spara eigendum sínum sporin við smölun og rekstur búfjár og kunnu gestir vel að meta það sem fyrir augu og eyru bar. Birna Sigurðardóttir frá Mark markaðsmálum, sem skipulagði sýn- inguna, var mjög ánægð með hvernig til hefði tekist, sagði húsið og staðinn allan bjóða upp á sýningu sem þessa. Hún sagðist ekki minnast svona sýn- ingar hérlendis áður. Menn hefðu rennt svolítið blint í sjóinn með það hvernig til tækist, en þetta hefði allt gengið upp og allir sýnendur sem nú væru með sýningarbása væru búnir að tilkynna um þátttöku að ári. Hús- rými væri fyrir miklu fleiri sýning- arbása innandyra og athafnarými og öll aðstaða til að vera með góðar sýn- ingar utandyra. Mikil sala á hnökkum og fatnaði Bjarni Th. Sigurðsson hjá fyrir- tækinu Hestar og menn sagðist mjög ánægður með sýninguna. „Hér hefur verið stanslaus ös og við erum búin að selja mikið af hnökkum og allskonar hestavörum. Við erum líka með fatn- að og ýmsar rekstrarvörur fyrir bændur og þetta er búin að vera góð helgi.“ „Við erum hér með vélar fyrir um það bil sextíu milljónir króna,“ sagði Eyjólfur Pétur Pálmason hjá Vél- fangi. „Hér hefur verið fullt út úr dyrum og við erum að sýna það nýjasta og besta sem er á boðstólum. Við fengum viðskiptavinina í lið með okkur og all- ar vélarnar eru seldar sem hér eru. Nú þegar til dæmis heyskapurinn snýst um afköst og tíma verða bænd- ur að hafa góðar og stórvirkar vélar,“ sagði Eyjólfur og benti á geysistóra dráttarvél með sláttuáhöldum sem skila níu metra vinnsluskára. „Þessi vél er í eigu Jóns Elvars og Grettis á Hrafnagilsbúinu og þeir voru svo lipr- ir að lána mér hana til að sýna hér. Við erum þrír sem erum að kynna vörurnar, ég einn er sölumaður en með mér eru verktaki og bóndi og þeir geta miðlað af reynslu sinni af vélunum í vinnu. Við höfum ekki haft undan við að leyfa mönnum að taka í vélarnar og reyna þær,“ sagði Eyjólf- ur. Ingimar Ingimarsson, fram- kvæmdastjóri Svaðastaða, sagði við lok sýningar að þessi helgi hefði verið góð. „Veðrið lék við okkur, um það bil tvö þúsund gestir komu á sýninguna og allir fóru ánægðir, gestir og sýn- endur,“ sagði hann. Fjölmenni á landbúnaðarsýningu í reiðhöllinni á Sauðárkróki um helgina Sókn í öllum greinum íslensks landbúnaðar Morgunblaðið/Björn Björnsson Sturla Böðvarsson samgönguráðherra ávarpaði gesti í Víðishólma. Skagfirsku bændurnir Bjarni Maronsson og Birgir Haraldsson ræða málin. Eftir Björn Björnsson bjorn@gsh.is VERKAMAÐUR sem vinnur við byggingu stöðvarhúss við Kára- hnjúkavirkjun meiddist illa í baki um helgina þegar steypurör fór í sundur og slóst í bakið á honum. Maðurinn var fluttur á heilsu- gæsluna á Egilsstöðum og kom þar í ljós að hann hafði hrygg- brotnað, að sögn lögreglunnar á Seyðisfirði. Hryggbrotið er þó ekki talið mjög alvarlegt og er búist við því að það grói sjálft. Verkamaður hryggbrotnaði er rör fór í sundur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.