Morgunblaðið - 22.08.2005, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 22.08.2005, Blaðsíða 36
framkalla áleitnar myndir í huga hlustandans. Það lag er nota bene líklega eitt besta lag sem hefur verið samið á íslenskri grundu síðan Þeysararnir sömdu „Rúdolf“. Þar fyrir utan hefur Alex eina frambærilegustu rödd sem undirritaður hefur heyrt hjá íslensku bandi. Að vísu er hér ekki um al- íslenskan söngvara að ræða – en hvað um það. Raddir eru einnig hljóðblandaðar mjög framarlega en það er annað merki um einurð og öryggi sveitarinnar í sköpun sinni. Eins og áður sagði er platan ellefu laga en sjötta lagið „Hlé“ skiptir plötunni í tvo hluta. Fyrri hlutinn er óneitanlega auðmeltari og fjörugri en seinni hlutinn er seigari í gegn. Hug- myndin á bak við þessa skiptingu er líklega einhver en hún er ekki gegnsæ fyrir hinn almenna hlust- anda og því þarf nokkra festu til að keyra seinni helminginn í gegn. Í heild er Arctic Death Ship afbragðs- plata sem afrekar það sem margir reyna en fáum tekst – að gera rokk- tónlist að marktæku listaverki. HANN er þröngur slóðinn sem margir tónlistarmenn reyna að fóta sig á til að falla ekki ofan í hyldýpi meðalmennskunnar sem gapir á aðra hliðina og listræns rembings sem gapir á hina. Í seinni tíð hefur hljómsveitum eins og Mars Volta tekist þetta með afbrigðum og hér áður fyrr tókst Bítlunum að halda jafnvægi með Hvíta albúminu svo- kallaða. Arctic Death Ship með Kim- ono skipar sér í hóp þessara platna og fleiri náttúrlega. Það fer ekki framhjá neinum sem hlustar á þessa ellefu laga plötu að hún er gífurlega metnaðarfullt og djarft verk. Tón- smíðarnar eru úthugsaðar og út- setningarnar frum- legar án þess að verða á nokkurn hátt yfirdrifnar. Gítarleikurinn er í alla staði frábær og bassa- og trommu- leikur skapa lögunum traustan grunn. Textar Alex McNeil eru að sama skapi vandaðir og þó að sumir þeirra séu greinilega byggðir á per- sónulegri reynslu sem hlustandinn á erfitt með að ná utan um eru aðrir á borð við „Aftermath“ sem ná að Tónlist Íslenskar plötur Kimono eru Kjartan (trommur), Dóri (bassi), Alex (söngur, gítar) og Gylfi (gít- ar). Viðbótarásláttur var í höndum Arons Arnarssonar og Eggerts Pálssonar, Hrafnkell Flóki spilar á trompet í „Son- ar“, Leifur Jónsson spilar á básunu og Þráinn leikur á rhodes-píanó í „Onoma- topoeia“. Tekið upp og hljóðblandað í Tíma, Thule og Sýrlandi. Tónjafnað af Mike Marsh í Exchange í London. Öll lög eftir Kimono. Textar eftir Alex. Smekk- leysa gefur út. Arctic Death Ship – Kimono  Höskuldur Ólafsson Í góðum hópi 36 MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ „The Island, virkilega vel heppnuð pennumynd, skelfileg en trúleg framtíðarsýn!!“  S.U.S XFM „The Island er fyrirtaks afþreying. Ekta popp og kók sumarsmellur. “ -Þ.Þ. Fréttablaðið. l i i . ll . - . . r tt l i . Frábær Bjölluskemmtun fyrir alla. Skelton Key kl. 5.45 - 8 - 10.10 b.i. 16 Herbie Fully Loaded kl. 6 - 8 - 10 The Island kl. 5.30 - 8 og 10.30 b.i. 16 Dark Water kl. 10 b.i. 16 Madagascar - enskt tal kl. 6 - 8 Batman Begins kl. 6 - 8.30 b.i. 12     HVAÐ MYNDIR ÞÚ GERA EF ÞÚ KÆMIST AÐ ÞVÍAÐ ÞÚ VÆRIR AFRIT AF EINHVERJUM ÖÐRUM? fólks sem upplifði hörmungarnar í landinu fyrir rúmum áratug síðan og leitaði skjóls á hótelinu á sínum tíma. Cheadle var til- nefndur til Ósk- arsverðlauna fyrir hlutverk sitt sem Ru- sesabagina og myndin Hótel Rúanda hefur hlotið viðurkenningar víða um heim og þótti meðal annars besta myndin á Iceland Int- ernational Film Festi- val hér á landi fyrr á árinu.    Hljómsveitin GreenDay neyddist til að fresta tvennum tón- leikum í tónleikaferð sinni um Bandaríkin vegna skipana frá lækni söngvarans, Bil- lie Joe Armstrong. Armstrong hefur átt við hæsi og raddleysi að stríða að und- anförnu og taldi lækn- irinn hans ekki ráðlegt að hann héldi tón- leikana tvenna vegna álags á röddina. Leikarinn DanCheadle heimsótti á dögunum í fyrsta sinn hótelið sem fjallað var um í kvikmyndinni Hótel Rúanda. Þar fór Cheadle með hlutverk Paul Rusesabagina, hótelstjóra Hotel des Milles Collines í Rú- anda. Sagan byggir á sönnum atburðum í landinu árið 1994 þeg- ar Hútúar tóku að út- rýma fólki af Tútsa- ættbálknum í Rúanda í skjóli afskiptaleysis heimsins. Myndin var tekin upp í Suður- Afríku og því hafði Cheadle ekki komið til Rúanda fyrr en nú. Hann sagði það þó lengi hafa verið á stefnuskránni hjá sér og að ferðin hefði ver- ið einstök í alla staði en auk þess að heim- sækja hótelið hitti hann að máli fjölda Fólk folk@mbl.is ÞESSA dagana stendur hljóm- sveitin Sign í ströngu við upp- tökur á nýrri breiðskífu sveit- arinnar. Hljómsveitinni barst sterkur liðsauki að vestan í þeim Mark Plati upptökustjóra og Earl Slick gítarleikara en þeir voru þeim Sign-mönnum innan handar í síðustu viku við upp- tökur á þremur lögum. Mark Plati hefur áður getið sér gott orð sem upptökumaður, -stjóri og hljóðblandari fyrir ekki ómerkari listamenn en Dav- id Bowie, Philip Glass, Cure, Na- talie Imbruglia, Wet Wet Wet, Ninu Hagen, Pizzicato 5 og fleiri. Saga Earls Slicks er ekki verri. Slick hóf feril sinn sem gítarleikari Davids Bowies og seinna lék hann inn á Double Fantasy-plötu Johns Lennons, en sú plata var sú seinasta sem Lennon gerði áður en hann féll fyrir hendi morðingja. Að sögn Marks og Earls gengu upptökurnar á lögunum vel. Mikil orka sé í hljómsveit- inni og hæfileikarnir ekki af skornum skammti. „Þeir minna mig svolítið á mig sjálfan þegar ég var á þeirra aldri. Einlægir í tónlistarsköpun sinni og metnaðargjarnir,“ segir Mark Plati. „Þetta er svakalegur skotgrafahernaður þegar maður er að byrja og það er nauðsyn- legt að vita að þetta er það sem maður vill gera og gera það svo af heilum hug.“ Þeir félagar vilja þó ekkert gefa upp um mikilvægi þeirra framlags til upptakanna. „Verk- efni upptökustjóra er oftar en ekki að beina hljómsveitum í þá átt sem þær vilja fara en vita kannski ekki hvernig. Það er í raun það sem við Earl höfum verið að gera með Sign og okk- ur sýnist þeir vera á réttri braut.“ Tónlist | Mark Plati og Earl Slick aðstoða Sign Á réttri braut Mark Plati er þekktur upptökustjóri ytra. Earl Slick lék á síðustu plötu Lennons. Ragnar Sólberg, söngvari og gítarleikari Sign. KVIKMYNDIN The 40-Year-Old Virgin (Fertugur hreinn sveinn) fór beint í efsta sætið á lista yfir þær kvikmyndir sem fengu mesta aðsókn í norður-amerískum kvikmynda- húsum um helgina. Kvikmyndin fékk góða dóma gagnrýnenda og þykir bæði afar fyndin og vel gerð. Myndin fjallar um Andy, fertugan karlmann leikinn af Steve Carell, sem hefur gengið bærilega í lífinu að öðru leyti en því að hann hefur aldrei verið með konu. Vinir hans reyna að koma slíku í kring en ekkert gengur fyrr en hann hittir Trish, fertuga þriggja barna móður, leikna af Cat- herine Keener. Vinir Andys telja að nú sé björninn loks unninn þar til þeir frétta af því að Andy og Trish hafa sammælst um það að sofa ekki saman. Önnur ný mynd fór beint í 2. sætið á listanum. Þetta er spennumyndin Red Eye (Rautt auga), sem fjallar um konu, leikna af Rachel McA- dams, sem lendir í sérkennilegri að- stöðu um borð í flugvél. Kvikmyndin Fjórir bræður, sem var í efsta sæti um síðustu helgi, fór niður í þriðja sætið. Í sjöunda sætinu er einnig ný mynd, Valiant, en það er tölvuteikni- mynd um bréfdúfu sem vill komast í hina konunglegu bréfdúfusveit. Ew- an McGregor ljær bréfdúfunni Vali- ant rödd sína. Aðrar vinsælustu myndir í kvik- myndahúsum þar vestra voru Boð- flennurnar (Wedding Crashers), The Skeleton Key, March of the Penguins, The Dukes of Hazzard, Kalli og sælgætisgerðin (Charlie and the Chocolate Factory) og Sky High. Kvikmyndir | Vinsælustu kvikmynd- irnar í bíóhúsum í Bandaríkjunum Ný gaman- mynd beint á toppinn Reuters Catherine Keener mætir til frum- sýningar myndarinnar 40 ára hreinn sveinn (The 40 Year-Old Virgin) sem er vinsælasta myndin í kvikmyndahúsum í Bandaríkjunum um þessar mundir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.