Morgunblaðið - 22.08.2005, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.08.2005, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Lloret de Mar 9., 16. eða 23. september frá kr. 39.990 Munið Mastercard ferðaávísunina Heimsferðir bjóða einstakt tilboð á einn vinsælasta áfangastað Costa Brava strandarinnar norðan Barcelona, Lloret de Mar. Gott hótel með góðri aðstöðu, fallegum garði, sundlaug og veitingastöðum. Örstutt í golf og á ströndina. Öll herbergi með baði, sjónvarpi og síma. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • Akureyri sími 461 1099 • www.heimsferdir.is 5 eða 12 nætur - fullt fæði Verð kr. 39.990- 5 dagar Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í tvíbýli með fullu fæði á Hotel IFA í 5 nætur, 16. eða 23. september. Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800 hvora leið. Verð kr. 54.990- 12 dagar Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í tvíbýli með fullu fæði á Hotel IFA í 12 nætur, 9. eða 16. september. Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800 hvora leið. MAÐUR sem grunaður er um að vera valdur að dauða tvítugs pilts í íbúð við Hverfisgötu á laugardags- morgun var úrskurðaður í tíu daga gæsluvarðhald á laugardaginn. Á vef lögreglunnar kemur fram að hinn grunaði hafi verið gestkom- andi í íbúðinni og verið handtekinn á vettvangi. Maðurinn er 23 ára. Þrír aðrir voru handteknir á laugardag, tveir menn og ein kona, og hefur þeim öllum verið sleppt úr haldi. Öll hinna handteknu voru í annarlegu ástandi þegar lögregla kom á staðinn og voru þau vistuð í fangageymslum. Lagt hefur verið hald á hníf sem talið er að notaður hafi verið. Fimmti aðilinn var hins vegar handtekinn í fyrradag, en talið er að hann geti varpað ljósi á málið. Handtöku mannsins bar þannig til að hann kom á lögreglustöðina í gær til að fá afhenta bíllykla, sem hann átti en voru á stöðinni. Við komuna á lögreglustöðina var hann blóðugur eftir önnur átök um nótt- ina og var handtekinn skömmu síð- ar, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Honum var hins vegar sleppt síðdegis í gær eftir yfir- heyrslur. Sá sem grunaður er um verkn- aðinn hefur ekki játað en yfir- heyrslur hafa staðið yfir um helgina, að sögn Ómars Smára Ár- mannssonar aðstoðaryfirlögreglu- þjóns. Hann segir að rannsókn málsins standi enn og aðspurður hvernig henni miði segir Ómar að megin- drættir málsins liggi fyrir. Enn eigi þó eftir að kanna frekar aðdrag- anda árásarinnar og ýmis fleiri at- riði. Rannsókn lögreglu á manndrápinu á Hverfisgötu stendur yfir 23 ára karlmaður úrskurð- aður í tíu daga varðhald Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is SIGURJÓN Jóhanns- son, blaðamaður og kennari, andaðist á Landspítalanum fimmtudaginn 18. ágúst. Hann fæddist 12. ágúst 1933 á Brúarlandi í Mosfellssveit. Foreldr- ar hans voru Jóhann Sigurjónsson, bókhald- ari í Reykjavík, og Guð- rún Magnúsdóttir, sím- stöðvarstjóri á Brúar- landi. Sigurjón lauk stúd- entsprófi frá Mennta- skólanum á Akureyri 1953. Hann stundaði nám í viðskiptafræði við Háskóla Ís- lands á árunum 1953–1956 en lauk cand. fil.-prófi frá HÍ 1955. Að loknu námi hóf Sigurjón störf sem blaðamaður. Hann starfaði í upphafi á Þjóðviljanum eða frá árinu 1957–1962 og aftur síðar 1971–1975. Hann var ritstjórnarfulltrúi Alþýðu- blaðsins 1968–1971. Einnig var hann ritstjórnarfulltrúi Ásgarðs, málgagns BSRB, 1966–1978 og Læknablaðsins 1976–1978. Hann starfaði auk þess hjá Tímanum, Vikunni og við auglýsingastörf. Hin síðari ár var hann einnig ritstjóri SÍBS-blaðsins og Vel- ferðar, málgagns hjartasjúklinga. Sigur- jón var lektor við blaða- mannaháskólann í Ósló í Noregi frá 1979–1982. Þar var hann jafnframt formaður Íslendinga- félagsins á sama tíma. Á árunum 1982–1987 starfaði Sigurjón m.a. hjá Arnarflugi hf., Al- þýðusambandi Íslands og Sambandi ísl. mynd- listarmanna. Frá 1987 starfaði Sigur- jón sem kennari við fjölmiðlabrautina í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti eða til ársins 2003 þegar hann lét af störf- um fyrir aldurs sakir. Sigurjón kvæntist Ernu Þorleifs- dóttur 4. júní 1960 en hún lést 7. mars 1994. Saman eignuðust þau fjögur börn. Þau eru Jóhann, Þórgunnur, Katrín og Anna Guðrún. Sambýliskona Sigurjóns var Ingi- björg Þórarinsdóttir. Andlát SIGURJÓN JÓHANNSSON Sigurjón Jóhannsson LYFIN zelebra, bextra, dynastat og arcoxia eru í sama lyfjaflokki og Vioxx sem var tekið af markaði í fyrra eftir að prófanir á lyfinu í Bandaríkjunum leiddu í ljós að notkun þess eykur hættu á hjarta- og æðasjúkdómum. Lyfin flokkast sem cox2-hemlar og eru verkjalyf sem einkum eru notuð við giktar- sjúkdómum. Rannveig Gunnars- dóttir, forstjóri Lyfjastofnunar, segir að vonir hafi verið bundnar við að þessi lyf hefðu ekki eins slæm áhrif á meltinguna og önnur verkjalyf sem gigtarsjúklingar hafa notað, t.d. íbúfen og aspirín. Eins og greint var frá í Morg- unblaðinu í gær ætla hjartalæknar og landlæknisembættið af stað með rannsókn á því hvort fylgni sé milli notkunar á Vioxx og sambæri- legum lyfjum og aukinnar tíðni hjartasjúkdóma. Rannveg segir að lyfin geri sannarlegt gagn fyrir giktarsjúk- linga en séu þeir með undirliggj- andi hjarta- og æðasjúkdóma geti þau verið varasöm. „Öll lyf eru skaðleg en það er alltaf spurning um hversu mikla áhættu er verið að taka og hvort ábatinn af því að nota lyf sé meiri en hitt,“ segir Rannveig og bætir við að það sé hlutverk lækna að vega það og meta í hverju einstöku tilfelli. Rannveig bendir á að aukaverkan- ir við nýju lyfi komi yfirleitt ekki í ljós fyrr en það er tekið í almenna notkun. Þess vegna þurfi að fylgj- ast sérstaklega vel með lyfjum fyrstu árin og gæta þess að skrá niður allar aukaverkanir sem greinast. „Sjaldgæfar aukaverkan- ir koma ekki fram nema í einu af hverjum hundrað þúsund eða jafn- vel milljón tilvikum,“ bendir Rann- veig á, en inni á heimasíðu Lyfja- stofnunar er hægt að nálgast gagnagrunn með upplýsingum um öll lyf sem eru á markaði hér á landi. Nokkur lyf á markaði eru sambærileg Vioxx HANNES Hlífar Stefánsson varð Ís- landsmeistari í skák fimmta árið í röð og í sjöunda sinn á átta árum, er ellefta og síðasta umferðin á Skák- þingi Íslands var tefld í gær. Hannes tryggði sigurinn með jafntefli við Jón Viktor Gunnarsson eftir stutta skák. Skákþinginu og Heimsmeist- aramóti tölvuforrita var slitið með verðlaunaafhendingu í gærkvöldi í húsakynnum Háskólans í Reykjavík. Hannes Hlífar sagði við Morg- unblaðið að sigurinn nú hefði verið erfiðari en oft áður þar sem keppnin var jafnari og margir komið vel und- irbúnir til leiks. Í því ljósi væri sig- urinn sætur og sömuleiðis ánægju- legt að hafa jafnað met með alls sjö titlum. Hannes hefur síðustu mánuði dvalið í Prag og stundað þar ská- kæfingar. Hann teflir fyrir Helli og undirbýr sig nú fyrir Evrópumót taflfélaga, sem fram fer á Ítalíu í næsta mánuði milli allra stærstu fé- laga Evrópu. Hann sagðist hafa ákveðið að sleppa Norðurlanda- mótinu í skák, sem hefst nú í vik- unni, þar sem hann hefði verið ný- kominn úr öðru sterku móti þegar Skákþing Íslands hófst. Hannes segir gott að búa í Prag og stutt sé þaðan á mót í Evrópu. Hann einbeiti sér nú að því að hækka í skákstigum, er nú í 2.579 stigum en stefnir á 2.600 stiga múr- inn fyrir næstu áramót. Þess má geta að aðeins Jóhann Hjartarson er stigahærri en Hannes, er með 2.621 skákstig sem setur hann í 88. sæti á heimsvísu. Efstur á lista FIDE er Garry Kasparov með 2.812 stig. „Þetta er orðin gríðarlega mikil vinna að halda sér við í skákinni. All- ir eru orðnir svo vel undirbúnir, með aðstoð tölvunnar, að maður þarf að hafa sig allan við,“ sagði Hannes Hlífar. Aðeins tveir skákmenn hafa orðið Íslandsmeistarar jafnoft og Hannes Hlífar, eða Baldur Möller og Eggert Gilfer. Ásmundur Ásgeirs- son, Friðrik Ólafsson og Helgi Ólafs- son hafa hampað sex slíkum titlum. Hannes Hlífar hlaut níu vinninga á mótinu nú. Stefán Kristjánsson skaust í annað sætið í gær með 8½ vinning, eftir sigur á Heimi Ásgeirs- syni, og Jón Viktor varð þriðji með átta vinninga. Sigurður Daði Sigfús- son varð fjórði, Björn Þorfinnsson fimmti og Heimir Ásgeirsson, stiga- lægsti keppandinn í landsliðsflokki, sjötti. Vakti árangur hans athygli en tólf keppendur voru í landsliðs- flokki. Baráttan var ekki síður mikil í áskorendaflokki á Skákþinginu. Tómas Björnsson, Jóhann H. Ragn- arsson og Þorvarður F. Ólafsson urðu efstir og jafnir og tryggðu sér rétt til að tefla í landsliðsflokki að ári. Fjórir skákmenn þurfa hins veg- ar að heyja aukakeppni um síðasta sætið í flokknum; þau Guðlaug Þor- steinsdóttir, Hjörvar Steinn Grét- arsson, Haraldur Baldursson og Jón Árni Halldórsson. Komist ann- aðhvort Guðlaug eða Hjörvar Steinn í landsliðsflokk verður það einsdæmi í íslensku skáksögunni. Íslensk skák- kona hefur aldrei áunnið sér rétt til að tefla í landsliðsflokki og Hjörvar, sem er aðeins 12 ára, yrði yngsti skákmaðurinn til að keppa í þeim flokki hér á landi. Þess má geta að nú eru liðin 30 ár síðan Guðlaug varð fyrst Norðurlandameistari kvenna í skák. Hannes Hlífar Íslandsmeistari fimmta árið í röð Stefnir á 2.600 stiga múrinn fyrir áramót Morgunblaðið/Ómar Hannes Hlífar Stefánsson varð Íslandsmeistari í sjöunda sinn á átta árum. Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is PÁLL Bergþórsson, veðurfræðing- ur og fyrrverandi veðurstofustjóri, segir að Esjan sé orðin snjólaus og þetta sé fimmta árið í röð sem snjór hverfur úr fjallinu. Venjulega hefur sumarhitinn ekki náð að bræða síð- ustu skaflana í fjallinu áður en snjóa fer á haustin, en með hlýrra loftslagi hefur þetta breyst. Páll segir að þegar lofthiti sé svip- aður eða meiri en á hlýindaskeiðinu 1931–1960 hverfi skaflinn í Esjunni. Þegar hitinn sé lægri nái hann hins vegar ekki að bræða skaflinn. Hann segir að eftir því sem sagnir hermi hafi skaflinn fyrst horfið árið 1929 svo vitað sé. Hann segir að þetta sé því góður mælikvarði á lofthita. Skaflinn í Esjunni horfinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.