Morgunblaðið - 22.08.2005, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 22.08.2005, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Á fyrri helmingi árs-ins voru fluttirinn fólksbílar til landsins fyrir 13,9 millj- arða. Þetta er aukning um 84,2% frá sama tíma- bili í fyrra. Þessi tala sýn- ir kannski betur en margt annað að það er mikill vöxtur í efnahagslífinu. Almenningur í landinu er að eyða peningum sem aldrei fyrr, en það er kannski ekki að ástæðu- lausu því kaupmáttur hef- ur aukist og atvinnuleysi hefur ekki verið minna í sjö ár. Þegar eftirspurn er mikil og atvinnuleysi lítið eru miklar líkur á verðbólgu og vissulega hafa menn haft áhyggjur af henni. Seðlabankinn hefur reynt að hamla á móti með hækkun vaxta og ríkissjóður hefur dregið úr op- inberum framkvæmdum, sér- staklega í vegamálum, þó að margir telji að ríkið hefði mátt ganga lengra í aðhaldi útgjalda. Verðbólgan er núna um 3,7%. Þetta er meiri verðbólga en kem- ur fram í verðbólgumarkmiðum Seðlabankans. Það sérstaka við þessa verðbólgu er að hún er nær algerlega drifin áfram af hækkun á fasteignaverði. Samkvæmt töl- um Hagstofunnar hækkaði neysluverðsvísitala án húsnæðis um 0,1% á síðustu 12 mánuðum. Ef sama mælikvarða er beitt á tímabilið ágúst 2003 til ágúst 2004 er hækkunin 2,9%. Hátt gengi krónunnar á sinn þátt í því að verðbólgan hefur ekki verið meiri en hún er, en við gengishækkun lækkar verð á inn- fluttum vörum. Þetta háa gengi hefur hins vegar verið útflutn- ingsfyrirtækjum erfitt. Nokkur fyrirtæki í fiskvinnslu hafa hætt starfsemi á síðustu misserum og sum önnur hafa fækkað starfs- fólki. Störfum í fiskvinnslu hefur því fækkað hratt að undanförnu. Verðbólgan er talvert hærri en gert var ráð fyrir í forsendum kjarasamninga sem gerðir voru í byrjun síðasta árs. ASÍ hefur lýst því yfir allar horfur séu á upp- sögn samninga í haust vegna þessa. Þó ber að hafa í huga að verðbólgan nú er miklu lægri en hún var í ársbyrjun 2002 þegar hún fór yfir 9%. Tekjur ríkissjóðs jukust um 23,9% á fyrri hluta ársins Fjármálaráðuneytið spáði því í vor að einkaneysla á þessu ári yk- ist um 7,6%. KB banki bendir á það í skýrslu um efnahagsmál frá því sumar að einkaneysla hafi komist „á verulegt flug“ sl. vetur. Hins vegar séu takmörk fyrir því hvað hún geti vaxið hratt, ein- faldlega vegna þess að það séu takmörk fyrir því hvað hver fjöl- skylda geti eignast marga bíla o.s.frv. Þess vegna sé líklegt að það dragi fyrr en seinna úr þess- ari miklu einkaneyslu. Mikil einkaneysla, aukinn kaupmáttur og lítið atvinnuleysi eru góðar fréttir fyrir ríkissjóð. Tekjur ríkissjóðs hafa aukist gífurlega á síðustu misserum. Aukningin á fyrri hluta ársins er 23,9% miðað við sama tímabil í fyrra. Neikvæða hliðin á þessari miklu þenslu í efnahagslífinu er að halli á vöruskiptajöfnuði við útlönd (þ.e. munur á verðmæti útflutnings og innflutnings) hef- ur aukist mjög mikið. Fyrstu sex mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 96,8 milljarða króna en inn fyrir 131,1 milljarð króna. Halli var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 34,3 milljörðum króna, en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 13,3 millj- arða á sama gengi. Aukningin er mest vegna innflutnings á bílum og olíu, en verð á olíuvörum hefur hækkað mjög mikið að undan- förnu. Þá hefur innflutningur á fjárfestingarvörum hækkað mjög mikið, en það skýrist m.a. af því að nú er verið að byggja hér á landi tvö álver (á Reyðarfirði og Grundartanga) og þrjár virkjanir (á Kárahnjúkum, Hellisheiði og Reykjanesi). Þessar miklu stór- iðju- og virkjanaframkvæmdir eiga að sjálfsögðu mikinn þátt í þeirri þenslu sem verið hefur hér á landi síðustu misserin. Halli á vöruskiptum var 37,8 milljarðar í fyrra, en í þjóð- hagsspá fjármálaráðuneytisins frá því í vor var spáð að hann myndi verða 79 milljarðar á þessu ári. Ný spá hefur ekki verið gefin út en vel er hugsanlegt að hallinn verði enn meiri. Hallinn var t.d. 10,2 milljarðar í júnímán- uði einum. Atvinnuleysi komið niður í 2% Þenslan í efnahagslífinu hefur einnig haft þau áhrif að dregið hefur úr atvinnuleysi. Það var 2% í síðasta mánuði, en það er minnsta atvinnuleysi frá því í september 1998, samkvæmt upp- lýsingum frá Vinnumálastofnun. Fyrirtæki hafa við þessar að- stæður átt erfitt með að fá nægi- lega margt starfsfólk í vinnu og því hefur erlendu starfsfólki fjölgað mikið. Um 80% starfs- fólks, sem starfar við byggingu álvers á Reyðarfirði og Kára- hnjúkavirkjunar, koma erlendis frá. Fréttaskýring | Íslenskt efnahagslíf ein- kennist af mikilli þenslu á öllum sviðum 85% aukning í bílainnflutningi Halli á vöruskiptum nam 34,3 milljörð- um á fyrri hluta ársins og eykst enn Atvinnuleysi hefur ekki verið minna í sjö ár. Kaupmáttur launatekna hefur aukist um 2,6%  Á síðustu 12 mánuðum hefur launavísitala hækkað um 6,3%. Á sama tímabili hefur verðlag hækkað um 3,7%, en það þýðir að kaupmáttur hefur aukist um 2,6%. Verðbólga síðustu mánuði hefur verið 3-4%. Rekja má nær alla hækkun á neysluverðsvísi- tölu til hækkunar á fasteigna- verði. Fasteignaverð á höfuð- borgarsvæðinu hefur hækkað um 40% á síðustu 12 mánuðum, en hækkun yfir landið allt er mun minni. Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is HAFIÐ hefur löngum verið yrkisefni íslenskra skálda sem ýmist blóta sjónum eða tilbiðja hann. Ófáir söngv- arnir fjalla um sjómennsku og þann toll sem hafið gat tekið af lítilli þjóð sem hafði lífsviðurværi sitt af fisk- veiðum. Eflaust fyllast flestir lotningu og um leið óhug í fjör- unni austan við Dyrhólaey en þar er brimið oft ægilegt. Stúlkan á myndinni virtist þó ekki láta ölduganginn á sig fá þegar hún fékk sér gönguferð eftir fjörunni. Öld- urnar minntu hana samt reglulega á hver ræður þegar þær skullu á klöppunum með tilheyrandi gusum í allar áttir. Morgunblaðið/Árni Torfason Öldurnar í ham við Dyrhólaey LAUNAÞRÓUN ríkisstarfsmanna í yfirstandandi samningalotu virðist vera að þróast með svipuðum hætti og á almennum markaði. Þetta er mat fjármálaráðuneytisins en samn- inganefnd ríkisins hefur nú lokið 34 kjarasamningum af 43 við alls 108 stéttarfélög. Á síðasta samningstímabili, frá árinu 2000 til 2004, gerði ríkið 77 kjarasamninga við alls 136 stéttar- félög. Enn er ólokið níu samningum við jafn mörg stéttarfélög, en þar af eru tvö félög með bundna samninga til loka þessa árs. Það eru Lækna- félag Íslands og Landssamband slökkviliðsmanna og sjúkraflutninga- manna. Viðræður við flugumferðar- stjóra hefjast í lok ágúst Fram kemur í vefriti fjármálaráðu- neytisins að þau sjö stéttarfélög sem eru með lausa samninga og ósamið er við eru Félag íslenskra flugumferð- arstjóra, Félag skipstjórnarmanna, Vélastjórafélag Íslands, Félag mat- reiðslumanna og félög leikstjóra, leikmynda- og búningahönnuða og félag hljómlistarmanna vegna Þjóð- leikhússins. Samið var við Félag flug- umferðarstjóra 15. júlí sl. en sá samn- ingur var felldur í atkvæðagreiðslu. Ætla samningsaðilar að hittast á ný um næstu mánaðamót.                  ! "# $%%! & &  '  ()  '  ) + + $ , - , +- % % $ $ - . Ósamið við níu stéttarfélög TEKIST hefur að manna allar vakt- ir hjá Strætó bs. þannig að full þjón- usta verður veitt í nýju leiðakerfi frá og með deginum í dag. Að sögn Ás- geirs Eiríkssonar, forstjóra Strætós, tókst þetta m.a. með því að virkja starfsmenn á skrifstofu til að keyra. Þannig munu Ásgeir og launa- fulltrúinn setjast undir stýri í dag, auk fleiri starfsmanna. „Mér skilst að ég verði á S3 í fyrramálið,“ sagði Ásgeir galvaskur við Morgunblaðið í gær, enda hefur hann sem gamall vagnstjóri nokkr- um sinnum gripið í stýri þegar þörf hefur verið á. Vagnstjórar koma úr sumarfríi á föstudag og þá segir Ásgeir að vakt- irnar verði orðnar fullmannaðar. Fram að því verði nokkrir starfs- menn í redding- um eins og hann. Áhersla hafi verið lögð á að hafa fulla þjónustu þegar grunnskól- arnir taka til starfa í dag. Nú verði akstur á stofnleiðum á allt að 10 mínútna fresti á álagstímum alla virka daga. Nýtt leiðakerfi Strætós var tekið í notkun 23. júlí sl. en vegna mann- eklu hefur ekki tekist að manna að fullu akstur á stofnleiðum á álags- tímum. Morgunblaðið/Sverrir Forstjóri Strætó og launafulltrúinn setjast undir stýri hjá Strætó í dag. Strætó hefur tekist að manna vaktir Full þjónusta hjá Strætó bs. í dag Ásgeir Eiríksson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.