Morgunblaðið - 22.08.2005, Síða 13
ÞEIR sem hafa heimsótt Akranes á und-
anförnum misserum hafa tekið eftir því að
mörg fjölbýlis-, par- og einbýlishús hafa ris-
ið í Flatahverfi í næsta nágrenni við
sveitabæinn Steinstaði sem á árum áður
stóð einn og yfirgefinn „langt uppi í sveit“.
En í dag eru Steinstaðir miðpunkturinn í
nýju íbúðahverfi sem risið hefur á undan-
förnum árum.
Lóðaframboð hefur alls ekki náð að anna
þeirri eftirspurn sem hefur verið fyrir hendi
á undanförnum mánuðum en Þorvaldur
Vestmann, sviðsstjóri tækni- og umhverf-
issviðs Akraneskaupstaðar, segir að á allra
næstu dögum verði 16 einbýlishúsalóðir og
6 parhúsalóðir auglýstar til umsóknar og að
auki verði þess ekki langt að bíða að 100 ein-
býlishúsalóðir verði til reiðu í nýju hverfi,
Skógarhverfi – en þar er gert ráð fyrir allt
að 970 íbúðum.
„Það er gríðarleg eftirspurn eftir ein-
býlis- og parhúsalóðum hér á Akranesi og
það er hringt látlaust á skrifstofuna alla
daga vegna slíkra mála. Og samkvæmt þeim
tölum sem við höfum í höndunum verður
slegið met í nýbyggingum á þessu ári. Árið
1977 voru byggðar 265 íbúðir en á þessu ári
verða byggðar fleiri en 265 íbúðir á Akra-
nesi, en ég treysti mér ekki til þess að segja
nákvæmlega hve margar íbúðirnar verða.
Til samanburðar voru byggðar 138 íbúðir
á síðasta ári og þróunin er því jákvæð fyrir
bæjarfélagið. Það er blússandi gangur í
byggingaframkvæmdum hér á svæðinu.“
Þorvaldur segir ennfremur að á hverjum
degi séu einstaklingar að spyrjast fyrir um
lausar lóðir á Akranesi. Vegna eftirspurnar
og þrýstings hafi bæjaryfirvöld brugðið á
það ráð að breyta deiliskipulagi í Flata-
hverfi, þar sem flest íbúðarhús hafa risið á
undanförnum misserum, og á allra næstu
dögum verði 16 einbýlishúsalóðir og 6 par-
húsalóðir auglýstar til umsóknar.
Stofnkostnaður lægri
en á höfuðborgarsvæðinu
„Það er verið að leggja lokahönd á deili-
skipulag í nýju hverfi sem verður norðan og
austan við Flatahverfið, en það svæði hefur
fengið nafnið Skógarhverfi. Þar er gert ráð
fyrir 970 íbúðum og í fyrsta áfanga verða
um 10% þess svæðis skipulögð. Framhaldið
verður síðan að ráðast eftir eftirspurn en ég
tel að þess verði ekki langt að bíða að um
100 lóðir verði til ráðstöfunar í Skógarhverf-
inu. Á næstu misserum verða fleiri einbýlis-
og parhúsalóðir til ráðstöfunar þar sem búið
er að byggja mikið af fjölbýlishúsum að
undanförnu og það er tilfinning manna að
ekki sé þörf á mikilli uppbyggingu á fjölbýl-
um á allra næstu árum.“
Þorvaldur segir að stofnkostnaður hús-
byggjenda á Akranesi sé mun lægri en
gengur og gerist á höfuðborgarsvæðinu.
„Lágmarksgatnagerðargjöld eru 1.700 þús-
und kr. og hámarks gatnagerðargjöld eru 3
milljónir kr., eftir því hve stórt húsið á að
vera, og við þetta bætast veitugjöld. En ég
tel að þessi kostnaður sé aðeins brot af því
sem gengur og gerist á höfuðborgarsvæð-
inu,“ segir Þorvaldur, en hann telur að
margir einstaklingar af höfuðborgarsvæð-
inu hafi sýnt því áhuga að fá lóð á Akranesi
og flytjast búferlum.
„Ég hef tekið eftir því sjálfur er ég svara
fyrirspurnum að margir þeirra sem eru að
leita að lóð eru að hringja af höfuðborg-
arsvæðinu. Sumir þeirra eru gamlir Skaga-
menn sem vilja búa á Akranesi og halda
áfram að starfa í Reykjavík en aðrir eru ein-
faldlega að velta þeim kosti fyrir sér að
flytja á Akranes vegna nálægðar bæjarins
við Reykjavík. Ég er sannfærður um að
lækkun á gangnagjaldinu í Hvalfjarðargöng
hefur gert sitt og Akranes sé nú vænlegri
kostur en áður til búsetu fyrir þá sem starfa
í höfuðborginni.“
Það stefnir í metár í byggingarframkvæmdum á Akranesi
„Gríðarleg eftir-
spurn eftir lóðum“
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Elvar
Gamalt og nýtt Byggðin í Flatahverfi er í næsta nágrenni við Safnasvæðið á Görðum og mun svæðið verða miðpunktur í nýja hverfinu.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2005 13
MINNSTAÐUR
STURTUR & BLÖNDUNARTÆKI
Fosshálsi 1 • 110 Reykjavík
Sími 525 0800 • www.badheimar.is
VESTURLAND
JENS Magnússon, húsasmíðameistari hjá Sveinbirni
Sigurðssyni ehf., er byggingarstjóri í nýbyggingu
sem verið er að reisa á Hvítanesreitnum svokallaða
í miðbæ Akraness. Þar
verður 800 m² versl-
unarhúsnæði á jarð-
hæð en á tveimur
hæðum þar fyrir ofan
verða íbúðir. Bygg-
ingin er samtals um
4.000 m².
Jens segir að vel
hafi gengið að selja
þær íbúðir sem fyr-
irtækið hafi reist á
Akranesi á und-
anförnum árum og
ekki sé loku fyrir það
skotið að fyrirtækið
muni halda áfram að
byggja á Akranesi í
nánustu framtíð.
„Verðið á þeim
íbúðum sem við erum
að byggja hér við Kirkjubraut 12 er í hærri kant-
inum miðað við það sem gerist og gengur á Akra-
nesi en samt sem áður hefur gengið vel að selja
þessar eignir. Fólk setur upp aðrar kröfur en áð-
ur og þetta hús verður að mestu viðhaldsfrítt og
það er einn af þeim hlutum sem fasteignakaup-
endur eru farnir að velta meira fyrir sér. Ég vil
sjálfur lítið koma nálægt viðhaldi á mínu heimili,
þar vil ég fá frið frá vinnunni og ég tel að þeir
sem eru með sumarhús kjósi fjölbýli í ríkari mæli
enda er frítíminn verðmætari en áður í huga al-
mennings,“ segir Jens en hann hefur ferðast á
milli Reykjavíkur og Akraness undanfarin þrjú ár
vegna vinnu sinnar.
„Ég tel að Akranes sé að verða betri kostur til
búsetu en áður og það eina sem ég sé neikvætt
við þetta svæði er sú gjaldtaka sem á sér stað í
Hvalfjarðargöngunum. Gjaldið hefur vissulega
lækkað frá því sem áður var en það ætti að sjálf-
sögðu að fella það niður og ég trúi því að svo
verði í nánustu framtíð. En það er í raun ekkert
mál að ferðast þessa vegalengd í vinnu og þetta
er sú þróun sem hefur átt sér stað víðsvegar í ná-
grenni við höfuðborgina. Það eru margir sem
hafa flutt austur á Selfoss eða í Hveragerði og
sömu sögu er að segja af Suðurnesjasvæðinu.
Akranes hefur upp á margt að bjóða og er góður
kostur til búsetu en ég er sjálfur ekki á því að
flytja úr vesturbæ Reykjavíkur þar sem ég bý,“
segir Jens.
SS-verktakar eru með 16 manns í vinnu á Akra-
nesi og fyrirsjáanlegt að þeim muni fjölga á næst-
unni. „Við munum klára verslunarhúsnæðið fyrir
jól og íbúðirnar verða klárar vorið 2006 og er bú-
ið að ráðstafa helmingi þeirra nú þegar og stjórn-
endur fyrirtækisins eru hæstánægðir með þær
framkvæmdir sem SS-verktakar hafa tekið að sér
á Akranesi. Það verður ekki slegið slöku við á
næstunni því nú þegar er hafin framkvæmd við
fjölnota íþróttahús á Jaðarsbökkum og þar verður
nóg að gera næstu mánuði enda á það hús að vera
klárt á næsta ári. Þar fyrir utan eru einhver önn-
ur verkefni í farvatninu án þess að það sé klárt
hvaða verkefni eru um að ræða. En það verður
byggt meira á Akranesi næstu árin,“ sagði Jens.
„Gengur vel að
selja nýjar íbúðir“
Jens Magnússon, bygging-
arstjóri SS-verktaka.
LANDIÐ
Eyrarbakki | Á 10 ára afmæli
sýningaraðstöðu Byggðasafns
Árnesinga í Húsinu á Eyr-
arbakka, sem haldin var fyrir
skömmu, var opnuð sýning í
Eggjaskúrnum, sem vígður var
með viðhöfn í fyrrahaust.
Eggjaskúrinn var upphaflega
reistur af Peter Nielsen, faktor
og fuglafræðingi á Eyrarbakka,
um 1892. Nielsen var mikill
safnari og safnaði bæði eggjum
og hömum fugla. Hann var
frumkvöðull í fuglavernd-
armálum og beitti sér fyrir frið-
un arnarins í samvinnu við
Bjarna Sæmundsson, sem komst
á árið 1913.
Það var síðan með fjárstuðn-
ingi nokkurra Vestur-Íslend-
inga, ættaðra frá Eyrarbakka,
svo og menntamálaráðuneyt-
isins, að ráðist var í endurbygg-
ingu Eggjaskúrsins í sem næst
upprunalegri mynd. Sumir telja
þó rangnefni að kalla þetta litla
fallega hús skúr.
Þema grunnsýningarinnar í
Eggjaskúrnum nú tengist upp-
runalegu hlutverki hans, en það
er Fuglar og fuglavernd. Þar
eru sýndir uppstoppaðir fuglar
og egg úr eigu Náttúrugripa-
deildar byggðasafnsins.
Í öðru lagi er minnst ferða
Eyrbekkinga vestur um haf og
landnáms þeirra í Kanada. Þar
er og sýning til minningar um
Peter Nielsen og störf hans að
fuglarannsóknum. M.a. er þar
skrifborð hans, svo og ýmsir
munir og nokkur egg og fuglar.
Loks er Fuglavernd með kynn-
ingu á starfsemi sinni, Friðland-
inu í Flóa, sem er í landi hins
gamla Eyrarbakkahrepps og
jafnframt eru tengsl Nielsens
við fuglavernd og friðun arn-
arins tíunduð. Eggjaskúrinn er
opinn á sama tíma og safnið, frá
kl. 11–17 út ágúst, en síðan um
helgar frá kl. 14–17 út október.
Sýning í Eggjaskúrnum á Eyrarbakka
Morgunblaðið/Jóhann Óli
Frá sýningunni í Eggjaskúrnum. Í gegnum glugga á gólfinu sést gamalt
búr eða matargeymsla sem kom í ljós þegar farið var að vinna að end-
urbyggingunni.
Eftir Jóhann Óla Hilmarsson