Morgunblaðið - 22.08.2005, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2005 15
ERLENT
Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • 562 8501 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is
BIC Atlantis
penni
Verð 119 kr/stk
Ljósritunarpappír 394 kr/pakkningin
Geisladiskar þar sem gæðin skara framúr
fást í 10, 25, 50 og 100 stk einingum
Mjúkar möppur
sem passa vel í
bakpokann.
VIÐ KAUP Á EGLA BRÉFABINDUM ERTU AÐ TRYGGJA MÖRGUM EINSTAKLINGUM BETRI FRAMTÍÐ
STABILO BOSS
Margir litir.
Verð 89 kr/stk
PILOT FEED GP4
Skriflitur 4 lita
VERÐ 296 KR
Þunnu möppurnar með mjúku og hörðu
baki. Þær sem allir eru að spyrja um
Teygjumöppur
af öllum gerðum
PILOT SUPER GRIP
VERÐ 98 KR
FÁST Í ÖLLUM BETRI BÓKAVERSLUNUM
V
ACLAV Klaus kom hing-
að til lands síðla gær-
dags ásamt eiginkonu
sinni, Liviu Klausová,
og fylgdarliði. Hann
kvaðst vera óþreyttur eftir flugið frá
Prag, höfuðborg Tékklands, og sagð-
ist vera mjög ánægður með að vera
kominn til landsins.
Aðspurður segir Klaus, sem var
kosinn forseti Tékklands fyrir
tveimur árum, heimsóknina vera
hefðbundna heimsókn til erlends rík-
is. „Hvað hana varðar þá er ég afar
ánægður með að við fengum boð frá
forseta ykkar til þess að koma til
landsins,“ segir Klaus og bætir því
við að hann komi m.a. til með að
ræða við forseta Íslands, forsætis-
ráðherra, utanríkisráðherra og
borgarstjóra Reykjavíkur um mál-
efni sem snerti þjóðirnar.
Þá mun Klaus halda erindi á ráð-
stefnu Mont Pelerin-samtakanna, en
yfirskrift hennar er Liberty and
Property in the 21st Century (frelsi
og eignir á 21. öld). Ráðstefnan er
haldin á Nordica hóteli, og kveðst
Klaus vera afar spenntur fyrir henni.
Umfjöllunarefni hans verður grein
sem hagfræðingurinn og fé-
lagsvísindamaðurinn Friedrich von
Hayek, sem jafnframt er einn af
stofnmeðlimum Mont Pelerin-
samtakanna, skrifaði árið 1949 og
ber heitið „The Intellectuals and
Socialism“, sem mætti útleggja sem
„Gáfumenn og jafnaðarstefna“.
Hann segir umræðuefnið vera krefj-
andi og að hann muni reyna að
leggja sitt af mörkum til umræðu um
það í dag.
„Ég hef verið meðlimur í Mont
Pelerin-samtökunum frá 1990 en
samtökin samanstanda af fólki sem
aðhyllist sígilda frjálslyndisstefnu.
Ég nýt þeirra forréttinda að vera
fyrsti fullgildi meðlimur samtakanna
sem er frá ríki sem tilheyrði aust-
antjaldslöndunum. Þannig að ég
mæti reglulega á ráðstefnur og nú er
fundurinn hér.“
Enginn annar valkostur í boði
Hver er staða Tékklands og hver
er reynsla þjóðarinnar eftir að hafa
gengið í ESB?
„Tékkland er mjög venjulegt evr-
ópskt ríki sem er í miðri Evrópu.
Hvað okkur varðar þá kom ekkert
annað til greina en að ganga í sam-
bandið. Við erum hvorki eyja sem er
einhvers staðar í nánd við Evrópu né
stórt land sem er nálægt Evrópu.
Við erum dæmigert, fremur lítið,
mið-evrópsk ríki þannig að það var
engin spurning um annan valkost
fyrir okkur.“
Klaus segir að innganga Tékk-
lands í samband Evrópuþjóða hafi í
raun frestast árið 1948 þegar komm-
únistar tóku öll völd í landinu. Vísar
hann til þess að Tékkland, þá Tékkó-
slóvakía, hefði getað orðið ein af
stofnþjóðum ESB. Hann segir Tékk-
land vera áhugasamt um að taka þátt
í starfi ESB. „En við horfum til ESB
með vissum efasemdum. Við styðj-
um að sjálfsögðu jákvæð samskipti
milli ríkja Evrópu en við erum ekki
jafnhlynnt yfirþjóðlegu valdi sem
ESB er að nálgast. Á hinn bóginn er
fólk eins og ég afar ánægt með nið-
urstöðu þjóðaratkvæðagreiðslnanna
í Hollandi og Frakklandi vegna þess
að ég tel að samevrópsk stjórn-
arskrá væri afar hættulegt plagg
sem myndi færa Evrópu inn í hið yf-
irþjóðlega vald, en ég er á móti því.“
Klaus telur framtíð Evrópu vera
bjarta. Hann kveðst vonast til þess
að hin útópíska hugmynd um eitt
evrópskt sambandsríki verði ekki of-
an á, heldur fái hvert og eitt land að
halda sínu sjálfstæði og einkennum.
„Þannig að ESB verði samband full-
valdra þjóða sem starfi saman, og að
einkennum þjóðanna verði ekki eytt.
Það er minn draumur og ég vona að
draumurinn rætist.“
Innganga Tékklands í ESB
1. maí 2004 „ekki-atburður“
Hann bendir á að innganga Tékk-
lands í ESB hafi ekki falið í sér neina
umbyltingu fyrir Tékka. Undirbún-
ingurinn hafi staðið í um 15 ár.
Stofnanir hafi breyst á þeim tíma og
þjóðin hafi smátt og smátt verið að
færast í áttina að auknu frjálsræði.
„Innganga okkar 1. maí 2004 var í
raun „ekki-atburður“. Þetta var bara
venjulegur dagur og það urðu ekki
neinar dramatískar breytingar á
neinu. Þannig að ég á von á því, ef þú
spyrðir hvern sem er í Tékklandi
hvort líf hans hafi breyst eitthvað við
inngönguna, að svarið yrði nei,“ seg-
ir Klaus og bendir á að það séu mis-
tök sem blaðamenn, rithöfundar og
fleiri geri sig jafnseka um, þ.e. að
telja að inngangan sjálf í ESB hafi
breytt miklu. „Við innleiddum reglu-
verk ESB smátt og smátt sl. áratug
svo hvað inngönguna varðar þá gerð-
ist ekki neitt nýtt 1. maí 2004.“
Tengslin að verða sterkari
Um hvað mun Klaus ræða við ís-
lenska ráðamenn?
„Við erum áhugasamir um að auka
samskipti þjóðanna. Á sviði stjórn-
mála eru báðar þjóðirnar meðlimir
NATO [Atlantshafsbandalagsins].
Hvað varðar efnahagslega þætti þá
eru viðskipti milli þjóðanna enn
fremur lítil. Við erum ánægð með að
sjá að það eru nokkrar tékkneskar
Skoda-bifreiðar hér á ferðinni,“ seg-
ir Klaus og bætir því við að í framtíð-
inni verði t.a.m. á götum Reykjavík-
urborgar strætisvagnar sem eru
framleiddir í Tékklandi. „Þetta er
byrjunin og ég vonast til þess að
fleiri ferðamenn komi til með að
ferðast á milli landanna okkar. Hvað
þetta varðar þá heimsækja mjög
margir Íslendingar Prag og fleiri
Tékkar eru farnir að sækja Ísland
heim,“ segir Klaus og bætir því við
að tengslin milli landanna séu í sí-
fellu að styrkjast.
Klaus mun nýta tækifærið til að
kynnast landi og þjóð á meðan á dvöl
hans á Íslandi stendur. „Ég hlakka
mjög til þessarar ferðar og við vilj-
um gjarnan sjá meira af landinu,“
segir hann.
Munu forsetahjónin m.a. heim-
sækja Gullfoss og Geysi, Bláa lónið
og orkuverið á Nesjavöllum.
Aðspurður um fyrri komur sínar
til landsins segist Klaus hafa komið
hingað í fyrsta sinn í febrúar 1990,
en þá gegndi hann stöðu fjár-
málaráðherra í heimalandi sínu. Sjö
árum síðar heimsótti hann land og
þjóð sem forsætisráðherra Tékk-
lands í boði þáverandi forsætisráð-
herra Íslands, Davíðs Oddssonar.
Klaus ávarpaði þá m.a. ráðstefnu um
markaðs- og einkavæðingu sem
haldin var á vegum ríkisstjórn-
arinnar. Þá ræddu þeir Davíð um
hugsanlega stækkun Evrópusam-
bandsins í austur og sögðust þeir
hafa gagnkvæman skilning á mis-
munandi stöðu þjóðanna tveggja.
„Ég hef þónokkrum sinnum tekið
eldsneyti á Keflavíkurflugvelli,
þannig að ég þekki flugvöllinn vel og
fríverslunina þar,“ segir Klaus og
slær á létta strengi.
Í dag hefst heimsóknin op-
inberlega með hátíðlegri móttöku-
athöfn á Bessastöðum. Í kjölfarið
fylgja viðræður milli forsetanna. Þá
mun forsetinn sækja kynningarfund
um íslenskan orkuiðnað og heim-
sækja vinnustofu listamanns. Í kvöld
sitja tékknesku forsetahjónin hátíð-
arkvöldverð á Bessastöðum í boði
forseta Íslands og forsetafrúar.
„Ég tel að samevrópsk stjórnar-
skrá væri afar hættulegt plagg“
Vaclav Klaus, forseti
Tékklands, er kominn
til Íslands í tveggja
daga opinbera heim-
sókn. Jón Pétur
Jónsson ræddi við
forsetann í gær um
heimsóknina, tengsl
þjóðanna tveggja og
reynslu Tékklands
af Evrópusamband-
inu, en landið gerðist
aðili að sambandinu
á síðasta ári.
Morgunblaðið/Jim Smart
„Við erum dæmigert, fremur lítið, mið-evrópskt ríki,“ segir Vaclav Klaus.
jonpetur@mbl.is
VACLAV Klaus tók við forsetaembættinu í Tékklandi
af hinum dáða en mistæka Vaclav Havel, sem ríkti sem
forseti þar á miklu umbreytingaskeiði 1993–2003 og
hafði áður verið forseti Tékkoslóvakíu frá 1989, þ.e. frá
falli Berlínarmúrsins. Klaus var forsætisráðherra um
nokkurra ára skeið í forsetatíð Havels og elduðu þeir
þá saman grátt silfur.
Klaus fæddist í Prag 19. júní 1941. Hann stundaði
nám í hagfræði bæði heima og á Ítalíu og í Bandaríkj-
unum. Lauk hann doktorsgráðu í greininni 1968 en
þurfti tveimur árum síðar að hverfa frá rannsóknum í
fræðunum af pólitískum ástæðum og vann hann næstu
árin í tékkneska seðlabankanum. Hann hóf afskipti af
stjórnmálum eftir hrun kommúnismans í Evrópu 1989
og varð þá fjármálaráðherra. Klaus var síðan forsætis-
ráðherra 1992–1997 en á þessum tíma liðaðist Tékkó-
slóvakía í sundur, þ.e. tvö sjálfstæð ríki urðu til úr einu,
Slóvakía og Tékkland. Ýmis fjármálahneyksli ollu falli
stjórnar hans 1997.
Klaus var kjörinn forseti Tékklands 28. febrúar 2003.
Hann er kvæntur Liviu Klausovu og eiga þau tvo syni
og fimm barnabörn. Á sínum yngri árum lét hann mikið
að sér kveða í íþróttum, lék bæði körfubolta og blak.
Klaus stundar einnig skíðamennsku og tennis. Hann
hefur skrifað meira en tuttugu bækur um félagsleg,
pólitísk og hagfræðileg efni.
Embætti forseta Tékklands er að mestu valdalaust.
Vaclav Havel beitti sér þó gjarnan með ýmsum hætti og
skýrðust deilur þeirra Klaus, í forsætisráðherratíð þess
síðarnefnda, einmitt oftar en ekki af því að Klaus mis-
líkaði framganga leikritaskáldsins og forsetans dáða,
auk þess sem þeir voru á öndverðum meiði pólitískt séð.
Stormasöm samskipti við forverann