Morgunblaðið - 22.08.2005, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2005 31
DAGBÓK
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Leyndardómar metsölubókarinnar DaVinci lykilsins eftir Dan Brown hafaorðið mörgum lesendum hennar hug-leiknir. Á síðasta ári sóttu alls um
500 manns þrjú námskeið séra Þórhalls Heim-
issonar um bókina og kenningar hennar en til
stendur að endurtaka námskeiðið nú í sept-
ember.
„Áhuginn á námskeiðinu er mikill enda eru
margir búnir að lesa þessa bók og vangaveltur
um hana virðast vera ennþá ofarlega í huga hjá
fólki. Svo hafa menn verið að lesa aðrar bækur
eftir Dan Brown og það ýtir enn frekar undir
áhugann,“ segir Þórhallur. Þó veki aðrar bæk-
ur höfundarins ekki upp eins áleitnar spurn-
ingar og Da Vinci lykillinn enda séu ákaflega
umdeildar kenningar settar fram í þeirri bók.
Á námskeiðinu verður rætt um hugmyndir
bókarinnar um Jesú, hvernig Nýja testamentið
varð til, hvort María Magdalena hafi verið eig-
inkona og barnsmóðir Jesú og hvort sagan eins
og við þekkjum hana sé blekking. „Þetta eru
ekki bara trúarlegar vangaveltur heldur er líka
farið í spurningar eins og um frímúrara, must-
erisriddara, krossferðirnar og alls kyns leyni-
reglur og leynihreyfingar,“ segir Þórhallur.
„Núna ætla ég líka að kynna nýjar kenningar
um gralið til sögunnar sem ég hef ekki séð í
umræðunni hér heima og voru ekki á nám-
skeiðinu í fyrra. Þar hafa gamlar sögur, æv-
intýri og ljóð, m.a. 3000 ára gömul saga, verið
tengd saman með nýjum rannsóknum og þar er
gert ráð fyrir að gralið hafi hvorki verið bikar
né barn Maríu Magdalenu heldur skelfilegasta
vopn allra tíma. Meira vil ég ekki segja um
þetta því fólk verður sjálft að fá tækifæri til að
uppgötva þessar kenningar og meta þær.“
Uppbygging námskeiðsins er óhefðbundin að
sögn Þórhalls. „Ég hef sagt að þetta sé byggt
upp eins og leynilögreglurannsókn því ekkert
er gefið upp um niðurstöðuna fyrirfram. Við
förum einfaldlega í allar þessar gömlu heim-
ildir og aðrar sem eru alveg nýjar og reynum
svo sjálf að komast að niðurstöðu um hvað geti
verið rétt og hvað geti verið rangt. Ég hef
sjálfur ferðast um allar þessar slóðir og er með
mikið af myndum af málverkum, húsum og
stöðum sem ættu að geta gagnast okkur í
þeirri leit.“
Námskeiðið, hefst 12. september og fer fram
í Kennaraháskóla Íslands en skráning fer fram
hjá Þórhalli í síma 8917562 eða á netfanginu
theimis@simnet.is. „Það hefur verið stöðug
skráning og margir eru að forvitnast um það
hvernig námskeiðið er byggt upp. Margir eru
varkárir – halda að ég ætli að fara að segja
þeim eitthvað til syndanna,“ segir hann glett-
inn og bætir við að enginn þurfi að óttast slíkt.
„Þannig að það er ágætt að fólk hringi og fái
upplýsingar.“
Námskeið | Sr. Þórhallur Heimisson fjallar aftur um Da Vinci lykilinn
Nýju ljósi brugðið á gralið
Séra Þórhallur Heim-
isson er fæddur 30. júlí
árið 1961. Hann er stúd-
ent frá Mennta-
skólanum á Laug-
arvatni og
guðfræðingur frá Há-
skóla Íslands og stund-
aði framhaldnám í
trúarbragðafræði í
Danmörku og Svíþjóð.
Þórhallur er prestur við
Hafnarfjarðarkirkju, giftur og fjögurra barna
faðir.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
80ÁRA afmæli. Í dag, 22. ágúst, eráttræður Guðmundur Ein-
arsson verkfræðingur, Gimli, nú bú-
settur á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð,
Garðabæ. Hann verður staddur á heim-
ili dóttur sinnar og tengdasonar á Mark-
arflöt 55, Garðabæ, milli kl. 17 og 19 í
dag. Vinir og vandamenn velkomnir.
Aukin umferð strætisvagna
um Háteigsveg
MIG langar til að taka undir at-
hugasemdir Rósu Sigrúnar Jóns-
dóttur, nágranna míns, í þessu blaði
fyrr í mánuðinum en þar gagnrýnir
hún aukna umferð strætisvagna um
götuna eftir að nýtt leiðakerfi Strætó
bs. tók gildi nú í júlí.
Mér brá satt að segja í brún þegar
heim úr sumarfríi var komið og ég
tók eftir því að ein strætisvagnaleið
hafði bæst við þá sem fyrir ók götuna
neðan Lönguhlíðar. Nú aka þar leiðir
11 og 13, tólf sinnum á klukkutíma á
virkum dögum. Íbúðarhús og bíla-
stæði eru beggja vegna götunnar og
því er gatan þröng og þar er erfitt að
mæta bílum, hvað þá strætisvögnum.
Ég býð því ekki í vetrarumferðina í
götunni eftir þessa breytingu fyr-
irtækisins.
Á sama tíma ekur nú enginn vagn
eftir Flókagötu. Ég vona satt að
segja að þetta sé tímabundin ráð-
stöfun hjá Strætó bs. og forsvars-
menn þar á bæ muni færa aðra leið-
ina þangað aftur, en þar eru
íbúðarhús og bílastæði aðeins öðrum
megin við götuna og hún því greið-
færari. Með von um jákvæðar und-
irtektir.
Steinunn Halldórsd.,
Háteigsvegi 12.
Vesturbærinn gleymdist
VESTURBÆRINN hefur algerlega
gleymst í umræðunni um Strætó bs.
Fyrst ber að þakka fyrir það sem
áunnist hefur. Það virðist vera að
Hlemmur sé ekki lengur lokaður á
morgnana, a.m.k. ekki mánudaginn
8. ágúst. Við með stafina og hækj-
urnar vorum farin að kvíða „norðra
gamla“ þarna vestanundir.
Á fyrsta vagninum eftir breyt-
inguna voru stansrofarnir óvirkir og
svart stans á ljósaskiltinu fast. Úr
þessu hefur verið bætt.
Á Vesturgötu 7 er stór heilsu-
gæslustöð og félagsmiðstöð. Staulast
verður þangað allt frá Lækjargötu
og síðan í bakaleiðinni allt upp á
Hverfisgötu. (Ég keypti mér regnhlíf
í Bónus.)
Til að leysa þetta eru tveir mögu-
leikar. Annars vegar að vagn nr. 14
aki Vesturgötuna og stansi við Vest-
urgötu 7. Vagn nr. 14 gæti engu að
síður stansað í Mýrargötu. Hins veg-
ar að vagn nr. 13 aki Garðastræti og
stansi við Vesturgötu 7. Og það sár-
vantar gömlu leið tvistsins um Vest-
urbæinn framhjá JL-húsinu.
Bjarni Valdimarsson.
Fátæk börn
LÍTIL stúlka bað foreldra sína um
meira nesti til að hafa með sér í skól-
ann. Þau spurðu hana hvers vegna og
hún sagði að ein skólasystir sín kæmi
oft nestislaus í skólann vegna þess að
móðir hennar væri svo fátæk og ætti
fleiri börn og oft lítið til fyrir mat.
Ég fékk tár í augun við að heyra
þetta en ég átti eftir að heyra fleiri
álíka sögur þar sem börn hinna efna-
meiri gáfu fátæku börnunum í skól-
anum af nesti sínu. Þau reyndu jafn-
vel að gefa þeim föt af sér. Þetta er
fallega gert og ég vil þakka þessum
börnum fyrir að vera svona góð. En
það er dapurt að í okkar ríka sam-
félagi skuli svona lagað vera til. Ég
vil skora á þingmenn að beita sér fyr-
ir því að skólamáltíðir verði ókeypis.
Öðru eins hefur nú verið eytt og
bruðlað í samfélagi okkar því það er
algjörlega óviðunandi að börn þurfi
að vera svöng í skólanum. Ef póli-
tískur vilji væri fyrir hendi væri
löngu búið að eyða mestu fátæktinni
hér.
Sigrún Reynisdóttir.
60 ÁRA afmæli. Sigríður Karls-dóttir, fjármálastjóri Iðnskól-
ans í Hafnarfirði, verður sextug 24.
ágúst næstkomandi. Sirrý og Óli bjóða
vinum og vandamönnum að þiggja
veitingar í veislusal Skútunnar, Hóls-
hrauni 3, Hafnarfirði, á afmælisdaginn
frá kl. 20 til 22.
50 ÁRA afmæli. Í dag, 22. ágúst,er fimmtug Valgerður Hauks-
dóttir myndarlistarmaður. Hún er að
heiman á afmælisdaginn.
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
LÓÐIR ÓSKAST TIL KAUPS
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Hef sérhæft mig í sölu á lóðum og öðru tengdu
byggingarrétti. Til mín hafa leitað aðilar sem hafa
áhuga á kaupa nýbyggingarlóðir/byggingarétt
ásamt atvinnuhúsnæði. Hef einnig til sölu gistihús í
fullum rekstri á höfuðborgarsvæðinu.
Ég óska einnig eftir eignum með byggingarrétti/nið-
urrifs. Áhugasamir vinsamlega hafið samband og
ég mun fúslega veita nánari upplýsingar.
Hákon Svavarsson, lögg.
fasteignasali, sími 898 9396.
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 c5 4. d5 d6 5.
Rc3 exd5 6. cxd5 g6 7. e4 a6 8. De2 Bg4
9. e5 dxe5 10. Dxe5+ De7 11. Bf4 Bxf3
12. gxf3 Dxe5+ 13. Bxe5 Rbd7 14. f4
Bh6 15. Bh3 0-0 16. 0-0 b5 17. Had1 Ha7
18. Hfe1 Rh5 19. Bd6 Rxf4 20. Bxd7
Hxd7 21. Bxf8 Kxf8 22. b3 f5 23. d6 Bg5
24. Kf1 Kf7 25. a4 b4 26. Rd5 Hxd6 27.
Rc7 Rd3 28. Rxa6 Bf4 29. He2 Hxa6 30.
Hxd3 Bxh2 31. Hh3 Bd6 32. Hxh7+ Kf6
33. Hh4 f4 34. He4 Kf5 35. f3 Be5 36.
Hh7 g5 37. Hf7+ Kg6 38. He7 Bf6 39.
H7e6 Ha5 40. Hc6 Kf5 41. Hee6 Bd4 42.
Ha6 Hxa6 43. Hxa6 g4 44. fxg4+ Ke4
45. Hc6 Kd5 46. Hc8 Ke6 47. a5 Kd7 48.
Hb8 Kc7 49. Hb5 Kc6
Staðan kom upp á breska meist-
aramótinu sem lauk fyrir skömmu á eyj-
unni Isle of Man. Sigurvegari mótsins,
Jonathan Rowson (2.599), hvítt, lauk nú
skák sinni gegn Chris Ward (2.485)
snyrtilega til lykta. 50. a6! og svartur
gafst upp þar eð a-peð hvíts rennur upp
í borð ef svartur tekur hvíta hrókinn.
Lokastaða mótsins varð þessi: 1. Jonat-
han Rowson (2.599) 8½ vinning af 11
mögulegum. 2.–3. Stuart Conquest
(2.503) og Stewart Haslinger (2.412) 8 v.
4.–5. John Emms (2.509) og Richard
Pert (2424) 7½ v.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Í SAL Hönn-
unarsafns Íslands
við Garðatorg
stendur nú yfir sýn-
ing á húsgögnum
eftir norska hönn-
unarteymið Circus,
sem staðsett er í
Bergen en hefur
selt vörur sínar víða
um lönd, m.a. til Ís-
lands þar sem Epal
hefur umboð fyrir
þær. Hönnuðirnir
að baki Circus eru
þeir Steinar Hind-
enes og Dave Vikö-
ren.
Frumkvæðið að
sýningunni átti
Listiðnaðarsafnið í
Bergen, þar sem Jorunn Haake-
stad er við stjórnvölinn. Í fram-
haldi af þessari sýningu hafa þeir
Hindenes og Vikören ákveðið að
gefa Hönnunarsafni Íslands stóla
eftir sig og Listiðnaðarsafnið jók
við gjöfina með húsgögnum eftir
eitt þekktasta fyrirtæki ungra
hönnuða í Noregi, Norway Says.
Að sögn Aðalsteins Ingólfssonar,
forstöðumanns Hönnunarsafnsins,
er þetta ákaflega rausnarleg og
kærkomin gjöf, þar sem Hönn-
unarsafnið átti engin húsgögn eftir
norska hönnuði.
Húsgögnin voru afhent Hönn-
unarsafninu í tengslum við opnun
sýningarinnar á Garðatorgi. Þar
lýkur sýningunni 4. september nk.,
en þangað til er hún opin alla daga
nema mánudaga kl. 14-18.
Aðalsteinn Ingólfsson, forstöðumaður Hönn-
unarsafns Íslands, Jorunn Haakestad, for-
stöðumaður Listiðnaðarsafnsins í Bergen, Steinar
Hindenes hönnuður og Guttorm Vik, sendiherra
Norðmanna á Íslandi.
Kærkomin gjöf
norskra hönnuða
Mánudagur 22. ágúst
9.30-12.00: Langholtskirkja
Meistaranámskeið með David
Sanger konsertorganista frá
Englandi, í samvinnu við Tón-
skóla Þjóðkirkjunnar og Félag
íslenskra organleikara.
12.00: Tónlistarandakt
Félagar úr Alþjóðlegu bar-
okksveitinni í Den Haag leika
barokktónlist. Johann Sebastian
Bach (1685-1750). Sónata í g-
moll BWV 1029 fyrir gömbu og
sembal. Vivace – Adagio –
Allegro. Guðrún Hrund Harð-
ardóttir, víóla, Cvetanka So-
zovska, semball. Séra Sigurður
Pálsson, sóknarprestur Hall-
grímskirkju.
14.00-16.00: Hallgrímskirkja
Meistaranámskeið með David
Sanger, framhald.
19.00: Matteusarpassían
Eftir Johann Sebastian Bach,
BWV 244 fyrir tvo kóra,
drengjakór, tvær hljómsveitir
og sjö einsöngvara.
Eitt af höfuðverkum vest-
rænnar menningar flutt með
einsöngvurum í fremstu röð.
Flytjendur: Markus Brutscher
tenór, guðspjallamaður. Andreas
Schmidt bassi, Jesús. Noémi
Kiss sópran, Robin Blaze
kontratenór, Gunnar Guðbjörns-
son tenór, Jochen Kupfer bassi,
Benedikt Ingólfsson bassi, Pílat-
us o.fl. Mótettukór Hallgríms-
kirkju, Drengjakór Reykjavíkur,
Hallgrímskirkju, Unglingakór
Hallgrímskirkju, The Hague
International Baroque Orc-
hestra. Stjórnandi: Hörður Ás-
kelsson
Miðaverð: 4000 kr.
Dagskrá Kirkjulistahátíðar