Morgunblaðið - 22.08.2005, Síða 35

Morgunblaðið - 22.08.2005, Síða 35
Bandaríska leikkonan MarciaCross, sem trúlega er þekktust fyrir að leika hina sérstöku Bree Van De Kamp í þáttunum um Að- þrengdar eiginkonur, er að fara að ganga í það heilaga. Kaupsýslumað- urinn Tom Mahoney bað hennar um síðustu helgi, að því er Heidi Lopata Slan, fjölmiðla- fulltrúi leikkonunnar, greindi frá í dag. „Hið hamingjusama par hefur ekki ákveðið hvenær brúð- kaupið fer fram,“ sagði Slan. Cross, sem er 43 ára, er tilnefnd til Emmy- verðlaunanna fyrir leik sinn í Að- þrengdum eig- inkonum, en verð- launin verða afhent í næsta mánuði.    Bandarískaleik- og söngkonan Court- ney Love var á föstudag dæmd til að fara í 28 daga langa meðferð vegna fíkniefnaneyslu, en Love viðurkenndi grátandi fyrir réttinum í Los Angeles í dag að nota eiturlyf og þar með brjóta skilorð. Love var gert að hefja meðferðina strax í dag. Howard Weitzman, lögmaður Love, segir að hún muni taka með- ferðina alvarlega. „Hún er ákveðin í því að koma lífi sínu á réttan kjöl,“ sagði Weitzman eftir að dómur hafði verið kveðinn upp. Love er söngkona hljómsveitarinnar Hole og ekkja Kurts Cobains, söngvara Nirvana. Hún er þekkt fyrir villt líf- erni. Fólk folk@mbl.is Í JANÚAR árið 1980 var kvik- myndin Land og synir eftir Ágúst Guðmundsson frumsýnd og markaði það upphaf íslenska kvikmyndavorsins svokallaða. Þessara tímamóta verður nú minnst í Kaupmannahöfn og Ár- ósum þar sem íslensk kvik- myndahátíð, Kalt ljós (Kold Lys), hefst hinn 1. september næst- komandi og stendur út mánuðinn. Á hátíðinni verða sýndar 17 ís- lenskar kvikmyndir sem gerðar voru á árunum 1980–2005. Dagskráin hefst hinn 1. sept- ember á því að Henning Camre, forstöðumaður Dönsku kvik- myndastofnunarinnar, býður gesti velkomna. Síðan opnar Þor- steinn Pálsson, sendiherra Ís- lands í Danmörku, hátíðina. Hilmar Oddsson kynnir mynd sína, Kaldaljós, og að sýningu lokinni ber Siggi Hall fram ís- lenskt góðgæti. Föstudaginn 2. september verður haldin forsýning á Nicel- and eftir Friðrik Þór Friðriksson, en myndin verður frumsýnd í Danmörku hálfum mánuði síðar. Friðrik Þór verður viðstaddur og svarar spurningum áhorfenda. Hinn 3. september fer svo fram málþing um íslenska kvik- myndagerð. Þeir Hilmar Odds- son, Dagur Kári og Friðrik Þór taka þátt í málþinginu sem fram fer í Cinemateket í Kaupmanna- höfn. Auk þess flytur Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður Ís- lensku kvikmyndastöðvarinnar, erindi og tekur þátt í umræðum. Síðar um daginn kynnir Dagur Kári svo verðlaunamynd sína Nóa albinói og stuttmynd sína Old Spice. Kvikmyndir | Íslensk kvikmyndahátíð í Danmörku Kalt ljós Úr kvikmyndinni Land og synir. Sigurður Sigurjónsson og Jón Sigurbjörnsson í hlutverkum sínum. Kvikmyndahátíðin fer fram í Cinemateket í Kaupmanna- höfn dagana 1. til 22. sept- ember og í Øst for Paradis í Árósum 23. til 29. sept- ember. 400 kr. í bíó!* * Gildir á allar sýningar merktar meðrauðu Miðasala opnar kl. 17.15Sími 551 9000 Sýnd kl. 8 og 10.30 Sýnd kl. 5.30 B.i 10 ÁRA Sýnd kl. 10.15 b.i.14Sýnd kl. 8 og 10.30 B.i. 16 Sýnd kl. 5.30 Í þrívídd kl. Sýnd kl. 6 Í þrívídd VINCE VAUGHN OWEN WILSON VINCE VAUGHN OWEN WILSON KVIKMYNDIR.IS  I I .I Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30Sýnd kl. 6, 8.30 og 10.50 B.i 10 ára  Sýnd kl. 5.30 og 8 B.i 10 ára Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15 OFURHETJURNAR ERU MÆTTAR Í EINNI STÆRSTU MYND ÁRSINS WWW. XY. IS WWW. XY. IS KVIKMYNDIR.COM  RÁS 2 Ó.H.T  S.K. DV  KVIKMYNDIR.IS  KVIKMYNDIR.COM  RÁS 2 Ó.H.T  S.K. DV  KVIKMYNDIR.IS        BESTA GRÍNMYND SUMARSINS „FGG“ FBL. BESTA GRÍNMYND SUMARSINS „FGG“ FBL. kl. Sýnd kl. 8 og 10.15 B.i 16 ára    H.J. / Mbl.. . l. FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA OG ÍSLANDI  H.J. / Mbl.. . l. FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA OG ÍSLANDI ☎553 2075 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2005 35 BÆKUR Jaspers Ffordes um bókalögreglukonuna Thursday Next eru mikið skemmtiefni þeim sem á annað borð hafa áhuga á bókum. Í bókunum þeim er grúi af bókmenntalegum tilvísunum og af- káralegum útúrsnúningi, en Next fæzt einmitt við ýmislega bóka- glæpi – til að mynda var Jane Eyre rænt úr samnefndri skáld- sögu í fyrstu bókinni. Fjórða bókin í sagnabálkinum um Thursday Next, Something Rotten, var og sú síðasta, en aðdáendum Ffordes er það mikill léttir að hann hefur byrjað á nýjum bókaflokki sem gerist í sama heimi og Thursday Next-bækurnar og hefst með The Big Over Easy. The Big Over Easy segir frá lög- reglumanninum Jack Spratt sem er traustur en óspennandi, í það minnsta finnst yfirmönnum hans svo því í heimi Jaspers Ffordes hafa menn mestar mætur á þeim lögreglumönnum sem ná að selja sögur sínar í tímarit og sjónvarps- þætti. Fjandi Spratt er einmitt svo laginn við það að hann er talinn fremstur allra þótt mörg þau mál sem hann upplýsir séu vafasöm í meira lagi. Glæpirnir sem Spratt rannsakar snúast um ýmis atvik í ævintýrum, til að mynda tekur hann að sér rannsókn vígsins á úlfinum Wolff sem lenti í potti hjá grís, en Spratt færir rök að því að þrír grísir hafi bundist samtökum um að myrða saklausan úlfinn. Það verða honum því mikil vonbrigði þegar kviðdóm- ur, sem skipaður er grísum, sýknar grísina. Þau vonbrigði gleymast þó fljótt er hann tekur til við annað mál öllu snúnara – Humpty Dumpty finnst látinn í bakgarði þar sem hann var vanur að sitja á vegg löngum stundum. Við fyrstu sýn er sem hann hafi svipt sig lífi með því að kasta sér fram af veggnum, en síðan kemur í ljós að það er maðkur í mysunni. Margir eru grunaðir enda var Dumpty ekki bara ósvífinn fjárglæframaður heldur líka annálaður kvennabósi og drykkjurútur, en Jack Spratt er líklegastur til að leysa úr flækjunni þrátt fyrir tilhneigingu hans til að drepa risa (þrír fallnir í valinn þeg- ar hér er komið, en Spratt segir að aðeins einn þeirra hafi beinlínis verið risi, hinir bara hávaxnir og þetta var allt saman slys). Fforde er einkar gamansamur höfundur og vel að sér í bók- menntasögunni. Í The Big Over Easy snýr hann út úr barna- ævintýrum af mikilli íþrótt og sýn- ir á þeim óvæntar og skondnar hliðar – víst eru þau uppfull af hryllingi og glæpsamlegu athæfi þegar grannt er skoðað. Fléttan er líka skemmtilega snúin og ekki spillir aukasagan sem lýtur að því hvernig stjörnulöggan Friedland Chymes hefur haldið sér á forsíðu glæpatímarita og einnig það er Prómeþevs flytur inn til Spratt- hjónanna sem leigjandi og svo má telja – heimurinn sem Fforde hef- ur skapað í bókunum um Thursday Next er frábær skemmtun bóka- áhugamönnum en bækurnar reynd- ar ágæt lesning fyrir alla þá sem hafa gaman af glæpasögum sem vel kryddaðar eru fáránleika. Vel kryddað fáránleika The Big Over Easy, glæpasaga eftir Jasper Fforde. Hodder & Stoug- hton gefur út 2005. 400 síður innb. Árni Matthíasson Þær kvikmyndir sem sýndar verða á íslensku kvikmyndahátíðinni í Dan- mörku eru:  Land og synir (Land og sønner) frá 1980 eftir Ágúst Guðmundsson.  Hrafninn flýgur (Når ravnen fly- ver) frá 1984 eftir Hrafn Gunn- laugsson.  Börn náttúrunnar (Naturens børn) frá 1991 eftir Friðrik Þór Frið- riksson.  Cold Fever frá 1995 eftir Friðrik Þór Friðriksson.  Djöflaeyjan (Djævelens Ø) frá 1996 eftir Friðrik Þór Friðriksson.  Ungfrúin góða og húsið (Husets ære) frá 1999 eftir Guðnýju Halldórs- dóttur.  Englar alheimsins (Universets engle) frá 2000 eftir Friðrik Þór Frið- riksson.  Íslenski draumurinn (Den islandske drøm) frá 2000 eftir Róbert Douglas.  101 Reykjavík frá 2000 eftir Balt- asar Kormák.  Lalli Johns (På røven i Reykjavik) frá 2001 eftir Þorfinn Guðnason.  Hafið (Havet) frá 2002 eftir Baltas- ar Kormák.  Nói albínói frá 2003 eftir Dag Kára.  Niceland frá 2004 eftir Friðrik Þór.  Kaldaljós (Cold Light) frá 2004 eft- ir Hilmar Oddsson.  How Do You Like Iceland? frá 2005 eftir Kristínu Ólafsdóttur.  Síðasti bærinn í dalnum (The Last Farm) frá 2005 eftir Rúnar Rún- arsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.