Morgunblaðið - 05.09.2005, Side 4
4 MÁNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Bjóðum frábært tilboð til Costa del
Sol. Þú bókar og tryggir þér síðustu
sætin og 4 dögum fyrir brottför færðu
að vita hvar þú gistir.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Stökktu til
Costa del Sol
14. eða 21. sept.
frá kr. 29.990
Síðustu sætin
Verð kr. 29.990
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, í
íbúð. Flug, gisting, skattar og íslensk fararstjórn.
Stökktu tilboð 14. eða 21. sept. í viku.
Verð kr. 39.990
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/stúdíó/íbúð.
Flug, gisting, skattar og íslensk fararstjórn.
Stökktu tilboð 14. eða 21. sept. í viku.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
SKONNORTAN Haukur sigldi
seglum þöndum til Bolungarvíkur í
gær og var henni fagnað þar með
mikilli viðhöfn. Bolungarvík var
lengi heimahöfn skipsins.
„Það er svo yndislegt veður hér að
það er varla að seglin standi,“ sagði
Hörður Sigurbjarnarson skipstjóri
um borð í Hauki á siglingu inn Djúp-
ið til Ísafjarðar frá Bolungarvík í
gær. Skonnortan getur einnig siglt
fyrir vélarafli og er því beitt þegar
byr er óhagstæður. Lagt var af stað
frá Húsavík á laugardag og gekk
siglingin vel vestur fyrir land, að
sögn Harðar. „Við fengum góðan
byr hér í Djúpinu og sigldum fullum
seglum með dautt á vél. Fínasti byr
og yndislegt, eins og þetta á að vera.
Við fengum móttökur eins og þjóð-
höfðingjar í Bolungarvík. Fjölskylda
Birnu Hjaltalín tók á móti okkur
með söng og ræðuhöldum. Það komu
bátar á móti okkur og settu út reyk-
blys síðasta spölinn.“
Fjölskylda Birnu sigldi síðan með
Hauknum inn á Ísafjörð með glað-
legum söng og spili. Haukur var á
sínum tíma í eigu fjölskyldunnar og
Vagn heitinn Hrólfsson, eiginmaður
Birnu, skipstjóri á bátnum.
Kóngur vill sigla,
en byr hlýtur að ráða
Haukur er nú notaður til ferða-
þjónustu, en var þegar farinn að
gegna því hlutverki árið 1976 fyrir
vestan þegar hann var notaður til að
ferja ferðamenn til og frá Hesteyri í
Jökulfjörðum. Skipinu var síðan
breytt og það búið seglum. Að sögn
Harðar skipstjóra er Haukur eina
gaffalreiðaskipið í eigu Íslendinga.
Frá Ísafirði liggur leiðin til
Reykjavíkur, með viðkomu á Snæ-
fellsnesi. Stefnt er að því að koma til
Reykjavíkur í síðasta lagi á miðviku-
dag. „Kóngur vill sigla, en byr hlýtur
að ráða,“ sagði Hörður og vitnaði í
gömul sannindi. Hann sagði að mið-
að væri við að koma suður í upphafi
sjávarútvegssýningarinnar. Þá væri
margt fólk í bænum sem tengdist
sjávarútvegi. Einnig væri gaman að
koma með þetta mjög svo sérstaka
skip til Reykjavíkur, því þar var það
smíðað í Bátasmiðju Jóns Ö. Jónas-
sonar 1973.
Skonnortan Haukur er tveggja
mastra eikar-seglskúta og í eigu
Norður-Siglingar á Húsavík. Í
fréttatilkynningu frá útgerð Hauks-
ins segir að tilgangur ferðarinnar sé
að þjálfa áhöfnina í siglingum ásamt
því að kynna skonnortuna fyrir
ferðaþjónustuaðilum.
Ljósmynd/Reynir Skarsgård
Systurnar Soffía, Ingibjörg og Pálína Vagnsdætur sungu sjómannalög á siglingunni til Ísafjarðar í gær.
Skonnortan siglir suður
Ljósmynd/Norður-Sigling
Skonnortan Haukur undir seglum.
SIGURLÍN Huld Ívarsdóttir verður vígð
djákni í ensku biskupakirkjunni þann 26. sept-
ember næstkomandi. Á næsta ári verður hún
vígð til prestþjónustu í sömu kirkju. Biskup-
arnir Richard Chartres, biskup af London, og
Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, munu
vígja Sigurlín í St. John’s-kirkjunni í Notting
Hill í London, þar sem Sigurlín mun síðan
þjóna. Er þetta í fyrsta sinn sem guðfræðingur
úr íslensku þjóðkirkjunni fær vígslu í ensku
biskupakirkjunni. Þetta er mögulegt á grund-
velli svonefnds Porvoo-samkomulags sem
stuðlar að einingu kristinna kirkna og báðar
kirkjudeildirnar eiga aðild að.
Ætlaði ekki að verða prestur
Sigurlín er fædd og uppalin á Akureyri en
hefur búið í Englandi af og til á undanförnum
árum, fyrst í Jórvíkurskíri, nálægt Hull, og nú
undanfarin tvö ár í London. Sigurlín var búin
með ár í guðfræðinámi við HÍ þegar hún flutti
ásamt fjölskyldu sinni utan í fyrsta sinn. Að-
stæður leyfðu ekki að hún héldi þá náminu
áfram í Englandi, bæði var grunnnám í háskóla
dýrt ytra og ekki fyllilega sambærilegt við guð-
fræðina hér. Sigurlín sneri aftur heim og hélt
þá guðfræðináminu áfram. Fjölskyldan flutti
svo til London sumarið 2003. Sigurlín hafði þá
eignast tvö lítil börn og fæðingarorlof og flutn-
ingur milli landa settu strik í námsframvind-
una. „Ég átti þá eftir tvö próf, en var búin með
kandídatsritgerðina. Síðustu tvö prófin tók ég
hér í sendiráðinu. Þetta réðist svolítið af eyrna-
bólgum og hlaupabólum,“ sagði Sigurlín. Hún
lauk kandídatsprófi í guðfræði frá Háskóla Ís-
lands haustið 2003.
Sigurlín segist ekki hafa farið í guðfræðinám
til þess að verða prestur, en eftir að náminu
lauk ákvað hún þó að fara í starfsþjálfun á veg-
um íslensku þjóðkirkjunnar. Starfsþjálfunin
fór fram hjá séra Sigurði Arnarsyni, sendiráðs-
presti í London, og hjá séra Jóni Helga Þór-
arinssyni í Langholtskirkju. Á sama tíma vann
hún kennsluefni um trú og tólf spora kerfið
ásamt tveimur stallsystrum fyrir Leikmanna-
skóla þjóðkirkjunnar og kenndi þar.
Kraftmikill söfnuður
Undir jól 2003 fór Sigurlín í fyrsta sinn niður
í Westminster í kirkjuhús ensku biskupakirkj-
unnar, þar sem skrifstofur hennar eru til húsa.
Þar með hófst það ferli sem leiddi til djákna-
vígslu hennar og væntanlegrar prestvígslu á
næsta ári. „Það er samkirkjuleg samþykkt,
kennd við Porvoo, sem bæði íslenska þjóðkirkj-
an og biskupakirkjan eiga aðild að. Í henni eru
ákvæði um að prestar geti starfað í hvorri
kirkju sem er, án þess að skipta um kirkju-
deild. Þar eð ég hafði lokið prófi og hafði emb-
ættisgengi vildi ég kanna möguleika mína á að
starfa undir Porvoo-samkomulaginu í ensku
biskupakirkjunni. En ég var ekki vígð. Það
voru því engin ákvæði sem héldu beinlínis utan
um mig í minni stöðu, en þetta samkomulag er í
mótun og þróun svo niðurstaða fékkst í mín
mál. Ég tilheyri íslensku þjóðkirkjunni en
starfa hér í ensku biskupakirkjunni og geng
inn í enska vígsluröð. Ég verð vígð sem djákni
nú og sem prestur á næsta ári. Allir prestar
ensku biskupakirkjunnar eru djáknavígðir.“
Sigurlín segir að sem djákni geti hún sinnt
flestum embættisverkum í ensku biskupa-
kirkjunni. Hún geti skírt, gift og jarðað og
sinnt flestum prestsverkum öðrum en að
ferma. Í ensku biskupakirkjunni eru það ein-
ungis biskupar sem ferma. Við altarisgöngu
fara djáknar ekki heldur með innsetningarorð
né blessa efnin. Það er hlutverk presta og bisk-
upa. En djáknar mega leggja brauðið og vínið á
altarið og útdeila sakramentunum.
Sigurlín mun þjóna í St. John’s-kirkjunni í
Notting Hill-hverfinu þar sem hún býr í Lond-
on. Hún segir að í söfnuðinum sé mikið af ungu
fólki og margt barnafólk. Þetta sé kraftmikill
og skemmtilegur söfnuður.
Maður Sigurlínar er Helgi Bergs, fram-
kvæmdastjóri Kaupþings UK í London. Þau
eiga þrjá syni, 18 ára, 7 ára og 5 ára.
Íslensk þjóðkirkjukona verður vígð djákni í ensku biskupakirkjunni og brýtur með því í blað
KARL Sigurbjörnsson biskup Íslands
segir að vígsla Sigurlínar Huldar Ívars-
dóttur sem djákna í ensku biskupa-
kirkjunni sé kirkju-
sögulegur atburður.
„Þetta er sögu-
legur atburður af því
að hann byggist á
samkomulagi lúth-
ersku kirkjunnar og
ensku biskupakirkj-
unnar, sem kennt er
við borgina Porvoo
eða Borgå í Finn-
landi. Þetta er í
fyrsta sinn sem sam-
komulagið er virkjað með þessum hætti.
Það er gagnkvæm viðurkenning á emb-
ættum kirknanna,“ sagði Karl.
Biskupinn af London, dr. Richard
Chartres, bauð Karli að predika við
vígsluathöfnina 26. september næst-
komandi og mun hann gera það og taka
þátt í vígslu Sigurlínar.
Kirkjusögulegur
viðburður
Karl Sigurbjörnsson
biskup
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
Djákni fyrst og prestur
svo eftir vígsluröð
Sigurlín Huld Ívarsdóttir guðfræðingur.
ÞEIR fimm einstaklingar sem tóku
þátt í mannráninu við Bónus á Sel-
tjarnarnesi sl. föstudag sitja í
gæsluvarðhaldi til föstudagsins 9.
september samkvæmt úrskurði
Héraðsdóms Reykjavíkur frá því á
laugardag.
Um er að ræða einn 26 ára mann
og fjóra félaga hans innan við tví-
tugt. Þar af eru þrír sextán ára pilt-
ar. Allir eru fimmmenningarnir í
einangrunarvist í Fangelsinu Litla-
Hrauni og er gæsluvarðhaldið í
þágu rannsóknarhagsmuna.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu hafa allir nema einn mann-
anna fimm komið við sögu lögreglu
vegna brota. Vegna ungs aldurs
yngstu drengjanna er mál þeirra
unnið í samvinnu við barnavernd-
aryfirvöld. Ómar Smári Ármanns-
son aðstoðaryfirlögregluþjónn seg-
ir lögregluna hafa það að markmiði
að flýta rannsókn mála eins og
kostur er þegar sakborningar í
gæsluvarðhaldi eigi í hlut, sérstak-
lega þegar um unglinga ræði eins
og hér.
Fimm í gæsluvarðhaldi
vegna mannráns
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar var
kölluð út til að sækja mann sem slas-
aðist þegar fjórhjól hans valt í Svína-
hrauni um tíuleytið í gærmorgun.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
sendi sjúkrabíl og neyðarbíl fjalla-
björgunarsveitar sinnar á vettvang.
Hinn slasaði var mjög kvalinn og var
slysstaður mjög óaðgengilegur. Var
því talin ástæða til að kalla þyrluna
út.
Maðurinn var talinn viðbeinsbrot-
inn og hugsanlega með fleiri áverka
og fluttur á slysadeild Landspítalans.
Slasaðist er fjórhjól valt