Morgunblaðið - 05.09.2005, Síða 22

Morgunblaðið - 05.09.2005, Síða 22
22 MÁNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÉG ER fyrirfram smeykur við múslíma. Mér sýnist að mörg óáran í heiminum tengist þeim trúar- brögðum. Hryðuverka- menn samtímans eru líka flestir múslímar. Q.e.d., þessvegna er ég fyrirfram smeykur. Mér er sagt að islömsk lög séu æðri öðrum lögum hjá múslimum. Ég er því fyrirfram smeykur við að hingað komi illir múllar á veg- um múslima og hvetji þeirra ungu sálir til óhæfuverka. Ýmislegt í fari múslíma veldur því að mér finnst öruggara fyrir Íslendinga að tak- marka sem mest inn- flutning þeirra. Ég vorkenni að vísu hvers- konar strangtrúarfólki, vegna þess andlega ófrelsis sem það und- irgengst. En strang- trúarfólk er því miður oft árásargjarnt og óumburðarlynt. Hvað gerðist í krossferð- unum? Mér er sagt að ekki megi lengur kenna kristnifræði í skólum, og músl- ímakrakkar fái frí frá trúar- bragðatímum. Í mínu ungdæmi var kristnifræði uppsláttarfag, sem ég lærði utanbókar, alveg án þess að ég hafi lagt trúnað á biblíusögur, hvorki þá né síðar.. Ég held samt að það hafi ekkert skaðað mig að hífa upp aðal- einkunnina með þessu hætti. Ekki frekar en að mér var skipað að læra margföldunartöfluna án þess að vilja það sjálfur. Skólarnir núna virðist hættir að sinna þessu grundvall- aratriði reikningskennslunnar og ég þekki tólf ára börn sem geta ekki reiknað af því þau kunna ekki töfl- una. Mér heyrðist að til hafi staðið að banna að gefa börnunum svínakjöt í gamla skólunum mínum af tillitsemi við einhverja innflutta trúarhópa. Það var hellt uppí mig lýsi í þessum skóla í dentíð án þess að ég fengi rönd við reist. Er ekki þetta umburð- arlyndi okkar ekki komið útí öfgar? Verður ekki að ríkja agi í þjóðfélag- inu á undan eftirgjöfum? Ég er líka fyrirfram smeykur við blökkumenn. Í Bandaríkjunum eru þeir um 10% fólksins en fremja há- vaðann af öllum glæpum í landinu. Meðal þeirra virðast finnast fleiri frumstæðir einstaklingar en meðal annarra kynþátta. Sem valdahópar eða þjóðir fara blökkumenn gjarnan mjög illa með fólk eins og er í Afr- íkuríkjunum. Við blasir að það er mjög erfitt fyrir svarta og hvíta að samlagast. Þessvegna held ég að innflutningur á blökku- fólki til Íslands eigi að vera í lágmarki, bæði þess fólks og okkar vegna. Núna ríkir neyð víð- ast hvar í Afríku þar sem áður var gnægta- búr á nýlendutímunum. Ég las það í frönsku blaði eftir virtan stjórn- málamann, að eina leið- in til að bjarga Afríku sé að þeir leggi inn sjálf- stæðið og verði nýlendur aftur. Mér finnst þetta ekki það vitlausasta sem ég hef heyrt. Verst settu þjóðunum kæmi best, að leggja sjálfstæðið inn til SÞ til geymslu meðan stofnunin reyndi að koma böndum á ástand- ið. Þessháttar stjórn- arbót kemst hinsvegar ekki á nema með algeru stjónvaldaaf- sali og hervaldi. SÞ reyndu til dæmis til þrautar að koma á reglu á Haiti í með samvinnu og aðstoð við þarlent fólk. Þær urðu að gefast upp og hætta. Þar ríkir nú alger skálmöld. Afríkupreláti einn kom fram á dög- unum í íslenzku sjónvarpi og sagði að skuldaniðurfelling Afríkuríkja væri ágæt byrjun. Nú þyrfti hjálpin hins- vegar að fara að berast sem fyrst. Mun neyðin í Afríku ekki halda áfram hvað sem sent er þangað? Afr- íkuþjóðirnar flestar geta ekki séð fót- um sínum forráð því fólkið þar virðir hvorki lög né mannréttindi. Það virð- ist því næsta vonlaust að senda Afr- íkumönnum mat, peninga eða vopn til að breyta núverandi ástandi. Vanda- mál Afríkuþjóðanna er að agann vantar í þjóðfélögin og þjóðirnar geta ekki haldið honum uppi sjálfar vegna uppeldisleysis og offjölgunar. Ég er smeykur við afleiðingar þess fyrir íslenzka þjóð, að flytja inn hópa af framandi fólki, sem er aðeins að flýja fátæktina heima fyrir. Því fá- tækt og offjölgun er það eina sem nóg er af í heiminum. Er ekki blekking að kalla slíkt fólk flóttafólk til að vekja samúð almennings? Hvað er fólk að flýja sem flýr eigin þjóð? Kólumbía er ekki tiltakanlega vanþróað lýð- ræðisríki. Vissulega hefur Asíufólkið auðgað þjóðlífið okkar á margan hátt, en hvort það samlagast okkur efa ég. Af hverju erum við skipulega að búa innflytjendavandamál til hér þegar við þurfum þess ekki? Nú eru StórDanir víst fyrirsjánlega að deyja út í landi sínu og aðrir kynstofnar munu byggja Danmörku framtíð- arinnar, þökk sé innflytjendavíðsýn- inni. Og Bretland stefnir í að verða múslímaríki aðfluttra. Viljum við að einhverjir lesi fornsögur okkar í framtíðinni? Hvað þolir tungan mik- inn innflutning fólks? Ég er smeykur við að núlifandi Ís- lendingar, bæði á mínum aldri og yngri, hugsi ekki fram í tímann og séu uppteknir af stundarhag sínum og sjálfsaðdáun. Ég er smeykur við þann hugsunarhátt, að ein kynslóð Íslendinga telji sig geta sölsað undir sig verðmæti þjóðarinnar, sem marg- ar kynslóðir á undan hafa byggt upp. Sóað því síðan í sjálfa sig með skatta- lækkunum án tillits til afkomend- anna. Ég er smeykur við að einstakir valdamenn okkar telji sig æ bærari að ráðstafa verðmætum lands og þjóðar í sína og sinna þágu, án þess að nokkur minnist Einars Þveræ- ings. Já, – stundum er ég smeykur. Stundum er ég smeykur Halldór Jónsson fjallar um ólíka kynþætti Halldór Jónsson ’Af hverju erum við skipu- lega að búa innflytjenda- vandamál til hér þegar við þurf- um þess ekki?‘ Höfundur er verkfræðingur. SÍÐDEGIS í gær, í þættinum Víðsjá á Rás 1, fjallaði Bjarni nokkur Bjarnason um ráðstefnu samkynhneigðra í Færeyjum sem haldin var þar í síðustu viku. Fór hann hörðum orð- um um mennta- málaráðherra eyjanna og aðra tvo kristna stjórnmálamenn þar í landi sem telja sam- kynhneigðan lífstíl og kynlíf samkyn- hneigðra óeðlilegt. Nefndi hann a.m.k. þrjá þeirra með nafni og kallaði þá „tríó færeyskra Bakkabræðra“ sem gerðu sig seka um „heimsku“, „falska tóna“ og „yfirgengilega sértrúarþröngsýni“. Sagði hann orð menntamálaráðherrans væri sennilega „Norðurlandamet í heimsku“. Sagði hann skoðanir þeirra „andlátshryglur úrkynjaðra viðhorfa“ og að hér væru á ferð- inni „ómannúðleg viðhorf kristinna öfgamanna“ og bætti við að „taka þyrfti höndum saman til að koma þeim frá“. Talaði hann auk þess háðuglega um annað kristið fólk í Færeyjum. Ummæli pistlahöfund- arins voru með ólík- indum. Ég var sjálfur í Færeyjum sl. viku og hitti suma þessara færeysku stjórnmála- manna við kirkju- vígslu í Þórshöfn. Þeir eru þjóð sinni til sóma. Fyrir stuttu var fréttamaður útvarps- ins á Selfossi leystur frá því starfi og hon- um fengið annað inn- an stofnunarinnar vegna þess að hann fór niðrandi orðum um þekkta menn í okkar þjóðfélagi. Mér er spurn, má fara niðrandi orðum um forystumenn einnar okkar bestu nágrannaþjóðar? Í gær var Davíð Oddsson utanrík- isráðherra í Færeyjum þar sem hann hitta suma þessara manna og undirritaði viðskiptasamning við þá fyrir hönd Íslands. Við vilj- um hafa góð tengsl við þessa frænd- og vinaþjóð og forðast að fara niðrandi orðum um þá, þótt svo við séum þeim e.t.v. ekki sam- mála um alla hluti. Kristin siðferð- isviðhorf eru hátt metin í Fær- eyjum enda þjóðin mun betur kristin en við Íslendingar. Þeir vilja halda í þau viðhorf og efla gott siðferði með þjóð sinni og það mega þeir. Mér finnst það okkur Íslend- ingum til skammar að ríkisrekinn fjölmiðill skuli leyfa sér að níða niður færeyska stjórnmálamenn vegna þess að þeir eru kristnir og andsnúnir samkynhneigðum lífs- stíl. Má fara um menn niðrandi orðum í opinberum fjölmiðli fyrir það eitt að þeir eru á móti sam- kynhneigðum lífsstíl og staðfestri samvist samkynhneigðra? Ef gagnkynhneigðir hafa talað ógæti- lega og farið dæmandi orðum um samkynhneigða þá hafa þeir ald- eilis fengið að heyra það frá þeim síðarnefndu og þeim hótað máls- sókn, en virkar þetta bara í aðra áttina? Hvers konar þjóðfélag er- um við að verða? Hvað um um- burðarlyndi fyrir skoðunum ann- arra? Mér finnst að umræddur Bjarni Bjarnason eigi að biðjast afsök- unar opinberlega á ummælum sín- um um hina færeysku stjórn- málamenn ella verði honum sagt upp starfi sem pistlahöfundur hjá RÚV. Ekki á að leyfst að menn noti opinberan fjölmiðil til að ata aðra auri. Færeyingar skammaðir í Víðsjá Friðrik Schram fjallar um ummæli Bjarna Bjarna- sonar í Víðsjá ’Mér finnst að um-ræddur Bjarni Bjarna- son eigi að biðjast afsök- unar opinberlega á ummælum sínum um hina færeysku stjórn- málamenn.‘ Friðrik Schram Höfundur er prestur. SÍÐAN Ísland gerðist aðili að Evrópska efnahagssvæðinu hafa við- skipti neytenda yfir landamæri auk- ist. Ýmsar pólitískar, landfræðilegar og tæknilegar hindranir sem áður stóðu því í vegi að neytendur keyptu vöru og þjón- ustu í öðru ríki hafa verið á undanhaldi. Samfara þessari þróun hefur framkvæmda- stjórn Evrópu- bandalagsins (EB) reynt að efla traust neytenda á milliríkja- viðskiptum sem veitir innlendum seljendum aukna samkeppni. Aukið valfrelsi neyt- enda í viðskiptum er talið leiða til lægra verðs og meiri gæða á ýmiss konar vöru og þjónustu. Á vettvangi fram- kvæmdastjórnarinnar hefur verið unnið að því að samræma reglur aðildarríkjanna á ýms- um sviðum viðskipta, meðal annars þær sem snerta neyt- endur. Forsenda fyrir trausti neyt- enda er að reglur sem gilda eiga um viðskipti þeirra séu skýrar og að- gengilegar. Engin lög eru góð nema þeim verði framfylgt með viðhlítandi hætti. Öryggisleysið sem fylgir því að versla við fjarlægan seljanda kall- ar á að neytandi geti aflað sér upp- lýsinga um löggjöf í landi seljanda sem ætlað er að gilda um viðskiptin. Einnig þarf neytandi að eiga þess kost að fá leyst úr vandamálum sem risið geta vegna kaupanna. Með framangreint í huga settu að- ildarríki Evrópubandalagsins í sam- starfi við framkvæmdastjórnina á laggirnar tvö þjónustunet, European Consumer Centre og EEJ-Net, sem hafa það hlutverk að aðstoða neyt- endur í tengslum við kaup á vöru og þjónustu af seljanda í öðru aðild- arríki. European Consumer Centre hefur haft að meginstefnu til það hlutverk að annast samskipti neyt- enda við seljendur á fyrstu stigum ágreinings en ef ekki næst að leysa úr hefur EEJ-Net veitt leiðsögn um viðeigandi úrskurðaraðila til að skera úr ágreiningi. Frá árinu 2004 hefur verið stefnt að samruna þess- ara þjónustuneta í eitt, það á að heita European Consumer Centre Net (Evrópska neytendaaðstoðin). Að minnsta kosti ein miðstöð á að starfa í hverju aðildarríki. Ísland og Noregur hafa tekið þátt í ofangreindu samstarfi vegna að- ildar sinnar að hinu Evrópska efnahags- svæði. Evrópska neytendaaðstoðin á Ís- landi tók til starfa á stofndegi þessa sam- starfs hinn 16. okt. 2001. Iðnaðar- og við- skiptaráðuneytið hafði frumkvæði að því að tryggja þátttöku Ís- lands og hafði umsjón með starfinu í upphafi en í byrjun árs 2003 tóku Neytenda- samtökin við starf- rækslu útibúsins. Kostnaður af rekstr- inum skiptist jafnt á milli íslenska ríkisins og framkvæmda- stjórnar EB. Íslenska ríkið hefur fram til þessa ekki ver- ið fullur þátttakandi í samstarfinu heldur hef- ur starfsemi útibúsins hér á landi að mestu einskorðast við að benda neytendum á þar til bæra úr- skurðaraðila sem geta skorið úr ágreiningi þeirra við seljendur vöru eða þjónustu (EEJ-Net starfsemi). Þessi verkefni hafa að mestu verið unnin af einum löglærðum starfs- manni samtakanna sem eyðir hluta af sínum starfstíma í þágu þessa málaflokks. Framkvæmdastjórn EB leggur áherslu á að íslenska ríkið búi vel í haginn fyrir starfsemina hér á landi sem vonandi getur sinnt neyt- endum betur í náinni framtíð. Mætti nefna sem dæmi: að veita neytendum lagalega ráð- gjöf áður en þeir kaupa vöru eða þjónustu af seljanda í öðru aðild- arríki. að miðla upplýsingum um neyt- endalöggjöf innan Evrópu- bandalagsins. að vinna úr og kynna upplýsingar sem varða neytendakaup í aðild- arríkjunum, t.d. verð- og gæðakann- anir. að aðstoða neytendur þegar álita- mál rísa vegna kaupa þeirra á vöru eða þjónustu af seljendum í öðrum aðildarríkjum, eftir atvikum með milligöngu eða með því að vísa kvört- unum til viðeigandi úrskurðaraðila. að vekja athygli á starfsemi Evr- ópsku neytendaaðstoðarinnar og möguleikum neytenda til að fá skorið úr ágreiningi frammi fyrir sjálf- stæðum úrskurðarnefndum. að eiga gott samstarf við önnur útibú Evrópsku neytendaaðstoð- arinnar, yfirvöld neytendamála, neytendasamtök, aðila viðskiptalífs- ins og önnur sérhæfð úrlausnarnet, t.d. Solvit og Fin-net. Hinn góði og gegni neytandi Álitaefni sem rísa í tengslum við kaup neytenda á vöru og þjónustu af seljanda í öðru landi koma að jafnaði ekki til kasta almennra dómstóla. Vafalaust er ein helsta ástæðan sú, að þannig málaferli kosta mikinn pening, tíma og óhagræði í sam- anburði við verð þeirrar vöru eða þjónustu sem um er deilt. Eftir sem áður geta hagsmunir sem í húfi eru skipt neytandann miklu máli sam- anborið við hans eigin efnahag. Evrópskum neytendum býðst að jafnaði mikið úrval vöru og þjónustu. Að sama skapi geta álitaefnin sem rísa í tengslum við kaupin verið margþætt og ekki alltaf fyr- irsjáanleg. Ekki er langt síðan sögur fóru af íslenskum „ofurhugum“ sem ferðuðust til landa í Austur- og Mið Evrópu í þeim tilgangi að láta gera við tennurnar í sér fyrir lítinn pen- ing. Þeir sem versla ferðir af erlend- um flugfélögum eða ferðaskrif- stofum, í stað þeirra íslensku, kunna einnig að hafa sparnaðarsjónarmiðin að leiðarljósi, einnig þeir sem kaupa bifreiðar á internetinu af erlendum söluaðilum og svo framvegis. Hinn gegni og góði neytandi hlýtur samt ávallt að leiða hugann að því hver hinn fjarlægi seljandi er, reglum sem gilda eiga um viðskiptin, gæðum hins selda og hvernig brugðist skuli við ef eitthvað fer úrskeiðis við kaupin. Að lokum Hugsunin að baki Evrópsku neyt- endaaðstoðinni er að efla traust neytenda á viðskiptum við seljendur í öðrum ríkjum. Fram að þessu hefur hlutverk starfseminnar hér á landi aðallega falist í því að aðstoða neyt- endur við úrlausn deilumála en verk- efnum kann að fjölga eftir því sem viðskipti neytenda við útlönd verða meiri. Ástæða er til að hvetja þá sem kjósa að versla á hinu Evrópska efnahagssvæði til að nýta sér þessa þjónustu og um leið yfirvöld til að styðja vel við bakið á henni. Evrópska neytenda- aðstoðin á Íslandi Eiríkur A. Eggertsson fjallar um Evrópsku neytendaaðstoðina ’Kostnaður af rekstrinum skiptist jafnt á milli íslenska ríkisins og fram- kvæmdastjórn- ar EB. ‘ Eiríkur Áki Eggertsson Höfundur er fyrrverandi starfsmaður Neytendasamtakanna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.