Morgunblaðið - 05.09.2005, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2005 31
DAGBÓK
Kennsla hefst
12. september
Upplýsingar í síma
561 5620 frá kl. 14-18
www.ballett.is
Álandinu eru stödd um þessar mundinhjónin Mary Ellen Mark og MartinBell. Bæði eru þau í fremstu röð hvortá sínu sviði: Mary Ellen er heims-
frægur ljósmyndari og Martin margverðlaunaður
kvikmyndagerðarmaður.
Þau halda í kvöld kl. 20 fyrirlestur og sýningu
á verkum sínum í Listasafni Reykjavíkur, Hafn-
arhúsi.
Einar Falur Ingólfsson er einn af aðstand-
endum viðburðarins sem haldinn er á vegum
Ljósmyndasafns Reykjavíkur. „Þetta er í fjórða
sinn sem Mary Ellen Mark kemur til landsins.
Fyrst kom hún hingað sem ferðamaður og í tvö
skipti opnaði hún sýningar á verkum sínum á
Kjarvalsstöðum: yfirlitssýningu árið 1994 og sýn-
inguna American Odissey árið 2001. Að þessu
sinni er hún hér á landi til að vinna að ljós-
myndaverkefnum sem birtast munu í Morg-
unblaðinu.“
Martin Bell, eiginmaður Mary Ellen, er kvik-
myndagerðarmaður og einkum kunnur fyrir
heimildarmyndir sínar, eins og myndina Streetw-
ise sem tilnefnd var til Óskarsverðlauna á sínum
tíma, en auk þess hefur hann hlotið ótal verðlaun
fyrir kvikmyndir sínar og auglýsingar.
„Á fyrirlestrinum í Hafnarhúsinu mun Mary
Ellen sýna myndirnar úr nýjustu bók sinni, Ex-
posure, sem kom út á vegum Phaidon í ár en í
bókinni getur að líta yfirlit yfir 40 ára ljós-
myndaferil hennar,“ segir Einar Falur. „Þá mun
Martin Bell sýna splunkunýja stuttmynd, Erin,
sem fjallar um konuna Tiny. Henni hafa þau
hjónin fylgt eftir síðustu 20 árin og myndað
reglulega en Tiny var ein aðalhetja Streetwise,
sem einnig varð að frægri bók, og segir frá hópi
götubarna í Seattle. Var Tiny ein þeirra en hún
er nú orðin 36 ára gömul níu barna móðir. Hún
hefur átt ansi viðburðaríka ævi eins og fólk mun
sjá bæði af ljósmyndum Mary Ellen og kvik-
mynd Martins.“
Einnig mun Mary Ellen sýna ljósmyndir úr
bókinni Twins sem kom út árið 2003. Eins og tit-
ill bókarinnar gefur til kynna eru í bókinni
myndir af tvíburum. Í lokin mun Martin sýna
samnefnda kvikmynd sem hann gerði þegar
Mary Ellen vann að bók sinni.
Einar Falur segir hjónin hafa hrifist mjög af
landi og þjóð en Mary Ellen hefur ljósmyndað
margbreytilegt mannlíf hér á landi, meðal annars
busavígslu og réttir, auk þess að hún tók port-
rettmyndir af nokkrum íslenskum myndlist-
armönnum og varði heilum degi við ljósmyndun í
Öskjuhlíðarskóla.
Ljósmyndun | Ljósmyndari og heimildarmyndasmiður í fremstu röð á Íslandi
Mary Ellen Mark og Martin Bell
Einar Falur Ingólfs-
son fæddist í Keflavík
1966. Hann lauk námi í
bókmenntafræði frá
Háskóla Íslands 1991 og
mastersgráðu í ljós-
myndun frá School of
Visual Arts í New York
árið 1994. Hann hóf
störf hjá Morg-
unblaðinu fyrir 25 ár-
um og hefur verið við-
loðandi blaðið síðan, síðustu 10 árin sem
myndstjóri.
Sambýliskona Einars Fals er Ingibjörg Jó-
hannsdóttir, skólastjóri Myndlistarskólans í
Reykjavík, og eiga þau tvær dætur.
Skynsamlegur siður.
Norður
♠843
♥ÁD7 N/Enginn
♦ÁG
♣DG632
Vestur Austur
♠65 ♠KD1092
♥9542 ♥863
♦86432 ♦1097
♣K7 ♣Á10
Suður
♠ÁG7
♥KG10
♦KD5
♣9854
Vestur Norður Austur Suður
– 1 lauf 1 spaði 3 grönd
Pass Pass Pass
Einn besti siður sem hægt er að
temja sér við spilaborðið er að hugsa
sig vel um áður en spilað er í fyrsta
slag. Sem er einfalt fyrir tvo spilara –
þann sem á út og sagnhafa. Þessir
tveir geta tekið sér þann tíma sem
þeir þurfa án þess að trufla framgang
spilsins. En sá í þriðju hendi er í
reynd undir meiri þrýstingi að flýta
sér.
Skoðum dæmið að ofan. Suður spil-
ar lúseðlileg þrjú grönd og vestur
kemur út með spaðasexuna. Sagnhafi
getur leyft sér að spila hratt úr borði
og hugsa svo þegar austur er búinn að
láta í slaginn. Reyndir spilarar kunna
þá list að stela tíma af mótherjunum
án þess að sjá endilega fyrir til hvers
það leiðir. Í þessu tilfelli gæti austur
fipast og sett upp spaðadrottningu,
eins og oftast er rétt. En þá er það
suður sem tekur sér stund til íhugunar
og kemst að þeirri niðurstöðu að best
sé að dúkka. Suður fær næsta slag á
spaðagosa og spilar laufi. En nú á
vestur engan spaða til, svo hann getur
ekki nýtt innkomu sína á laufkóng til
að hjálpa til með spaðauppbrotið.
Við sjáum hver rétta vörnin er:
Austur verður að láta spaðaníu í fyrsta
slaginn og gefa suðri strax slag á gos-
ann.
Ef austur fær nægan tíma ætti hann
að finna þessa vörn (hann veit að út-
spilið er frá tvílit og eina vonin er að
makker eigi innkomu á lauf).
En af hverju tekur austur sér ekki
allan þann tíma sem hann þarf? Það er
góð spurning – ekkert í bridslögunum
bannar það, en vel upp dregnum spil-
urum er einhvern veginn tamt að láta
ekki bíða eftir sér í „augljósum stöð-
um“. Eina örugga leiðin til að standast
„þrýstinginn í þriðju hendi“ er að gefa
sér ALLTAF tíma og láta andstöðuna
vita af því fyrirfram.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rc3 Rf6 4. Rf3 e6
5. e3 Rbd7 6. Bd3 Be7 7. 0–0 b6 8.
b3 Bb7 9. Bb2 0–0 10. Dc2 Dc7 11.
Had1 Had8 12. Re5 Hfe8 13. f4 Rf8
14. cxd5 Rxd5 15. Rxd5 exd5 16. Hc1
Bd6 17. e4 dxe4 18. Bxe4 c5 19. b4
Bxe4 20. Dxe4 De7 21. dxc5 bxc5 22.
b5 Bxe5 23. Dxe5 Dxe5 24. Bxe5 f6
25. Bc7 Hd2 26. Hf2 Hxf2 27. Kxf2
Re6 28. Bd6 Hd8 29. f5 Rg5 30.
Bxc5 Hd2+ 31. Ke3 Hxa2 32. h4
Rf7.
Staðan kom upp á Norð-
urlandamótinu í skák sem lauk í gær
í Vammala í Finnlandi. Nicolai V.
Pedersen (2.488) hafði hvítt gegn
Hans Simonsen (2.305). 33. Bxa7!
Rd6 33. … Hxa7 hefði ekki gengið
upp vegna 34. Hc8+ og hvítur
myndi vinna manninn til baka og fá
unnið hróksendatafl. 34. b6 Hb2 35.
Hc5 Kf8 36. g4 Ke8 37. h5 Kd8 38.
Hc7 Re8 39. Hf7 Kc8 40. Kd4 Rd6
41. Hxg7 og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
„Mikið er um dýrðir hér“
ÖLL deilum við þeirri von að ekki
séu þeir margir Íslendingar sem
rata svo sína ævibraut að þeir fái
aldrei augum litið gamla Þingvöll og
þau hrífandi verk frumkrafta jarðar
sem eru umgjörð hans. Þingvalla-
sveitin og hið eldi gerða landmót ár-
þúsunda orkuðu þann veg á næm-
asta og skyggnasta ljóðasmið
þjóðarinnar að hann orti um þessa
svipsterku veröld eitt myndauð-
ugasta kvæði tungunnar. Menn
reika um Þingvöll í hugarástandi
sem er dálítið upphafið og að sumra
dómi helgað.
Margir leggja leið sína í Valhöll
en hin gömlu hús hafa nú gengið í
endurnýjun lífdaga, bæði gistihús
og veitingasalir hafa tekið stakka-
skiptum en öll endurgerð og ný-
smíði með þeirri varfærni gerð, að
gamalt og nýtt fellur í faðma, og
hinn sérstæði dvalarþokki í þessum
húsum umvefur mann eins og ætíð
hefur verið á þeim bæ.
Valhöll er nú í höndum Krist-
bjargar Kristinsdóttur og er hún
höfundur að hinu nýja yfirbragði
staðarins. Hún hefur við fram-
kvæmdir notið ráða og reynslu föð-
ur síns, Kristins Kristinssonar, sem
er kunnur athafnamaður en einnig
vel kynntur sem veitingastjóri á
Hótel Borg þar til fyrir skömmu;
einnig hefur Dagný, móðir Krist-
bjargar, verið ráðholl.
Ég var svo lánsamur að eiga nú í
ágústmánuði góða dagsstund á
Þingvöllum ásamt nokkrum lífs-
reyndum félögum. Við gengum í
veitingasal og báðum að okkur væri
færð veiði úr Þingvallavatni. Var
okkur borin murta og þóttust menn
ekki áður hafa gætt sér á slíku lost-
æti. Var þessi réttur svo ljúffengur
að við báðum einum rómi þess að
mega líta snillinginn sem tilreiddi
slíkan málsverð. Von bráðar birtist
við borðið Úlfar Finnbjörnsson og
varð hann þar vitni að þakklæti
okkar allra. Myndarleg stúlka, ung
og elskuleg, gekk um beina og var
nú þessi stund tekin að nálgast jarð-
neska fullkomnun. Kristbjörg,
Dagný og Kristinn fylgdu okkur úr
hlaði með hinu ljúfasta fasi. Það
voru glaðir og sælir menn sem
brunuðu í bæinn á ný – þeim var
ljóst að í Þingvallasveit er gnótt
gæða, bæði skaparans og góðra
manna.
Emil Als.
Þakkir til Fasteignamiðlunar
ÞEIR sem eru með hugann við að
selja eða kaupa húsnæði ættu að
leita til Fasteignamiðlunar í Síðu-
múla. Þar á bæ fær maður topp-
þjónustu og ég þakka þeim kærlega
fyrir mig. Allt sem tengist papp-
írsvinnu er pottþétt hjá þeim og
augljóst að þarna starfar duglegt
starfsfólk með mikla reynslu.
Ólafur.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir
Þingvallabærinn og kirkjan.
SÖNGSVEITIN Fílharmónía tekur
til starfa eftir sumarhlé 5. sept-
ember. Kórinn undirbýr dagskrá
sem flutt verður á aðventutónleikum
undir stjórn Bernharðs Wilkinsonar
sem snýr nú aftur sem gestastjórn-
andi Söngsveitarinnar en hann var
söngstjóri hennar um árabil til árs-
ins 2003. Um miðjan vetur tekur
hins vegar við Söngsveitinni nýr
söngstjóri, Magnús Ragnarsson,
organisti og kórstjóri. Magnús hefur
verið við nám og störf í Svíþjóð við
góðan orðstír. Fyrsta verkefni
Magnúsar með Fílharmóníu verða
vortónleikar sveitarinnar sem eru
meginverkefni vetrarins en þá er að
venju flutt stórt kórverk með hljóm-
sveit og einsöngvurum. Æfingar í
haust verða í umsjón Guðríðar St.
Sigurðardóttur píanóleikara og
Bjarneyjar Ingibjargar Gunnlaugs-
dóttur, tónlistarkennara og kór-
stjóra. Kórinn getur bætt við fé-
lögum í allar raddir og verða
inntökupróf haldin fyrir fyrstu æf-
ingu 5. september, en æft er í Mela-
skóla á mánudags- og miðvikudags-
kvöldum. Nánari upplýsingar eru
gefnar í síma 892 2613 eða 863 8746.
Morgunblaðið/Jim Smart
Vetrarstarf Fílharmóníu að hefjast
NÝTT starfsár er í þann mund að
hefjast í Salnum, Tónlistarhúsi
Kópavogs, og af því tilefni er efnt
til opins kynningarfundar á því sem
í vændum er. Einnig verður ungum
og efnilegum tónlistarmanni veitt
viðurkenning úr Styrktarsjóði
Önnu Karólínu Nordal. Dagskráin
fer fram í Salnum í hádeginu á
morgun, þriðjudag 6. september,
kl. 12.15 og eru allir velkomnir.
Á dagskrá er fyrst stutt kynning
á Tíbrártónleikum starfsársins og
Tónleikaröð kennara Tónlistar-
skóla Kópavogs. Þá segir bæj-
arstjóri, Gunnar I. Birgisson, frá
Rússneskri menningarhátíð sem
fram fer í Kópavogi dagana 15. –
23. október.
Að því búnu verður veitt við-
urkenning úr Styrktarsjóði Önnu
Karólínu Nordal að upphæð
500.000 kr. og verður það í fjórða
sinn sem viðurkenning úr styrkt-
arsjóðnum er afhent í Salnum á
fæðingardegi Önnu. Sjóðnum er
ætlað að styrkja efnilega tónlist-
arnema í „söng og fíólínspili“, eins
og Anna sjálf orðaði það. Þau sem
hlotið hafa viðurkenningu úr sjóðn-
um eru Guðrún Jóhanna Ólafs-
dóttir mezzósópran árið 2002, Eyj-
ólfur Eyjólfsson tenór árið 2003 og
Ari Vilhjálmsson fiðluleikari árið
2004. Í lok dagskár flytur nýbak-
aður styrkþegi 3 lög og að því búnu
verður boðið upp á veitingar í for-
rými Salarins.
Morgunblaðið/Golli
Söngur og fíólínspil
í Salnum