Morgunblaðið - 12.09.2005, Side 2
2 MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÁRANGURSLAUS LEIT
Mikill fjöldi björgunarmanna leit-
aði í gær að 34 ára gömlum manni
sem saknað er síðan skemmtibátur
fórst á Viðeyjarsundi aðfaranótt
laugardags. Leit verður haldið
áfram á sjó í dag og hugsanlegt að
sundin verði slædd í leit að mann-
inum. Lögregla og rannsóknarnefnd
sjóslysa munu hefja rannsókn á til-
drögum slyssins í dag, rannsaka bát-
inn og taka skýrslu af karlmanni,
konu og 11 ára syni þeirra sem kom-
ust lífs af.
Gleði hjá Blikum og FH
Mikil gleði ríkti í Hafnarfirði og
Kópavogi í gær þegar tveir af
stærstu bikurunum sem keppt er
um í knattspyrnu voru veittir.
Breiðablik varð bikarmeistari í
kvennaflokki eftir öruggan sigur á
KR. Karlalið FH tók á móti Íslands-
bikarnum eftir leik sinn við Fylki, en
úrslitin í úrvalsdeildinni voru þegar
ráðin.
Áforma frístundaþorp
Byrjað er að reisa frístundaþorp
sem rísa mun á Hellnum á Snæfells-
nesi, í samvinnu Íslendinga og Norð-
manna. Þorpið mun heita Plássið
undir Jökli, eftir fiskiþorpi sem þar
stóð, og verða þar 200 íbúðir auk
verslana, lista- og handverksgall-
ería, hótels og annarrar þjónustu.
Húsin í þorpinu verða flutt inn frá
Noregi, og verða heilsárshús í
nokkrum stærðum, frá 50–150 fer-
metrar að stærð með risi.
Óvissa í Noregi
Mikil óvissa er um úrslitin í
norsku þingkosningunum í dag en
skoðanakannanir síðustu daga hafa
ýmist spáð borgaraflokkunum og
ríkisstjórn Kjell Magne Bondeviks
forsætisráðherra naumum meiri-
hluta eða vinstriflokkunum. Tvær
kannanir, sem birtar voru í gær,
urðu ekki til að greiða úr því að þær
vísuðu hvor í sína áttina. Hugsast
getur, að stjórnarmyndun geti oltið
á stuðningi smáflokka og þá einkum
Strandbyggðaflokks Steinars Baste-
sens. Almennt er talið, að hann muni
heldur halla sér til hægri verði hann
um það spurður. Helstu kosninga-
málin hafa verið einkavæðingin, sem
vinstriflokkarnir berjast gegn, og
hvernig skipta skuli olíuauðnum.
Fórnarlamba minnst
Þess var minnst í gær í Bandaríkj-
unum og víðar um heim, að þá voru
fjögur ár liðin frá hryðjuverkunum
vestra 11. september 2001. Í New
York, á grunni Tvíburaturnanna,
lásu systkini hinna látnu upp nöfn
þeirra.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Minningar 22/24
Viðskipti 11 Dagbók 26
Vesturland 12 Víkverji 26
Erlent 14 Velvakandi 27
Daglegt líf 15/16 Staður og stund 28
Listir 17 Menning 29/33
Forystugrein 26 Ljósvakamiðlar 34
Umræðan 20/21 Veður 35
Bréf 21 Staksteinar 35
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
BJÖRN Björnsson,
fyrrverandi aðstoðar-
forstjóri Íslands-
banka, lést í gær,
sunnudag, á fimmtug-
asta og sjöunda ald-
ursári.
Björn fæddist á Ak-
ureyri 24. ágúst 1949,
sonur Björns Jónsson-
ar, forseta Alþýðu-
sambands Íslands, al-
þingismanns og ráð-
herra, og Þórgunnar
K. Sveinsdóttur hús-
freyju.
Björn ólst upp á Ak-
ureyri og lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri árið
1969 og prófi í viðskiptafræði frá Há-
skóla Íslands árið 1973.
Að loknu námi hóf Björn störf hjá
kjararannsóknanefnd en gerðist síðar
hagfræðingur Alþýðusambands Ís-
lands og gegndi því starfi frá 1981–87
er hann gerðist aðstoðarmaður fjár-
málaráðherra. Hann var bankastjóri
Alþýðubankans 1988–89, bankastjóri
hjá Íslandsbanka 1990–93 og eftir það
framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka,
þar til hann varð aðstoðarforstjóri í
ársbyrjun 2003. Hann lét af störfum í
bankanum fyrr á þessu
ári.
Björn gegndi fjölmörg-
um trúnaðarstörfum.
Hann var í stjórn Félags
viðskipta- og hagfræð-
inga 1979–81 og varafor-
maður þar 1980–81.
Hann sat í kauplagsnefnd
1984–87 og í bankaráði
Seðlabanka Íslands
1986–88. Þá var hann í
milliþinganefnd um stað-
greiðslu opinberra gjalda
árið 1987, í stjórn Sam-
bands íslenskra við-
skiptabanka 1988–90 og í
endurskoðunarnefnd Norræna fjár-
festingarbankans 1989–94. Hann sat
einnig um tíma í stjórn Atvinnutrygg-
ingasjóðs útflutningsgreina, Reikni-
stofu bankanna og Glitnis og í stjórn
Fiskveiðisjóðs frá 1990–92 og frá
árinu 1994. Hann var í framkvæmda-
stjórn Iðnþróunarsjóðs 1992–95, sat í
stjórn Greiðslumiðlunar frá árinu
1992 og var formaður stjórnar Verð-
bréfamarkaðar Íslandsbanka frá
sama tíma.
Björn kvæntist Guðnýju Irene Að-
alsteinsdóttur 1974 og eignuðust þau
tvær dætur, Bryndísi og Ásdísi.
Andlát
BJÖRN BJÖRNSSON
ENGAN sakaði þegar eldur kom upp
í svefnskála við Kárahnjúkavirkjun
aðfaranótt sunnudags. Alls voru sext-
án manns í skálanum, tólf starfsmenn
og fjórir gestir, þegar eldurinn kom
upp og tókst þeim öllum að komast út
af sjálfsdáðum.
Að sögn Leós Sigurðssonar, yfir-
manns öryggismála hjá Impregilo,
fór brunaviðvörunarkerfi skálans
þegar í gang og brugðust starfsmenn
í skálanum strax rétt við með því að
tilkynna atvikið til Neyðarlínunnar og
reyna að slökkva eldinn með slöngu-
kefli sem í skálanum er áður en þeir
forðuðu sér út. „En snör viðbrögð
starfsmanns sem reyndi að slökkva
eldinn í fyrstu gerðu mikið gagn því
þau komu í veg fyrir að eldurinn
breiddist út,“ segir Leó. Viðkomandi
starfsmaður fékk snert af reykeitrun
og var fluttur til Egilsstaða, en út-
skrifaður í gærmorgun.
Að sögn Leós barst honum tilkynn-
ing um eldinn frá Neyðarlínunni kl.
00.23. „Ég fór strax á staðinn ásamt
slökkviliðs- og björgunarmönnum á
svæðinu. Þegar við komum að húsinu
lagði mikinn reyk frá því og voru tveir
reykkafarar strax sendir inn í húsið.
Þeir skoðuðu aðstæður og gengu úr
skugga um að enginn væri í svefn-
skálanum. Þegar hér var komið bloss-
aði eldurinn hins vegar aftur upp, því
hann hafði leynst í þakinu í fölsku lofti
og blossaði aftur upp um leið og opnað
var út og súrefni barst inn í skálann.
Reykkafararnir slökktu þá eldinn á
mjög skömmum tíma með slökkvi-
tækjum skálans og slöngukefli sem
tengd eru við vatn.“
Eldsupptökin rakin
til sprittkertis
Spurður um eldsupptök sagði Leó
allt benda til þess að kviknað hefði í út
frá sprittkerti sem komið hafði verið
fyrir í anddyri skálans. Sagði hann
litlar eldskemmdir hafa orðið á svefn-
herbergjum starfsmanna, en tölu-
verður reykur fór um skálann. „Bæði
í ganginum og í anddyrinu er hins
vegar nokkuð um skemmdir af völd-
um elds, hita og reyks. Nú tekur við
ákveðið starf við að hreinsa upp skál-
ann og meta skemmdir, en það er
nokkuð ljóst að svefnskálinn hefur
sloppið mjög vel,“ segir Leó og tekur
fram að það muni taka nokkra daga
að hreinsa skálann, gera við skemmd-
ir og koma rafmagni og brunaviðvör-
unarkerfi aftur í lag. Fram að þeim
tíma munu starfsmenn skálans búa í
sambærilegum herbergjum í öðrum
skálum á vinnusvæðinu.
Engan sakaði í bruna í svefn-
skála við Kárahnjúkavirkjun
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
ÍSLENDINGAR ættu að taka tyrk-
neska rithöfundinn Orhan Pamuk í
guðatölu eða að minnsta kosti gera
hann að heiðursborgara vegna þess
að hann hefur sýnt að hann er jafn
sjálfstæður í hugsun og jafn
óhræddur við að láta skoðanir sínar
í ljós og Íslendingar hafa ætíð verið.
Þetta sagði kanadíska skáldkon-
an Margaret Atwood í opn-
unarræðu við setningu Bók-
menntahátíðar í Reykjavík í
Norræna húsinu í gær.
Atwood talaði um tilgang bók-
menntahátíða og sagði þær fjalla
um og fagna tungumálinu og rétt-
inum til að beita því. Hún sagði að
allt frá fyrstu árum byggðar hefðu
Íslendingar haldið málfrelsi í
heiðri. Það hafi enda alltaf ein-
kennt þjóðina að vera óhrædd við
að lýsa skoðunum sínum, jafnvel
þegar hún var undirokuð af annarri
þjóð en um það mætti til dæmis lesa
í Íslandsklukku Halldórs Laxness.
Orhan Pamuk hefur nú hins vegar
verið dreginn fyrir rétt í heima-
landi sínu fyrir að hafa talað um
dauða Armena og Kúrda í Tyrk-
landi á tímum fyrri heimsstyrjald-
arinnar. Í ljósi þess að guðir hinnar
norrænu ásatrúar komu upp-
haflega frá Tyrklandi, eins og talað
væri um í Snorra-Eddu, sagði
Atwood að Íslendingar ættu að
gera Pamuk að heiðursborgara eða
jafnvel taka hann í guðatölu.
„Hvers vegna eru kúgunarstjórn-
ir svona hræddar við þá sem segja
sannleikann?“ spurði Atwood.
„Hvers vegna handtaka þær og
bæla og pynta og drepa rithöfunda
um alla veröld? Ástæðan er yfirleitt
sú sama, vegna þess að þeir segja
það sem allir vita en enginn þorir
að færa í tal. Þvinguð þögn er eft-
irlætisvopn kúgaranna. Að segja
sögu þjóðar sinnar eins og hún var í
raun og veru er hugrekki vegna
þess að sannleikurinn er aldrei
sléttur og felldur; þeir sem leiða
hann í ljós eru heldur aldrei vinsæl-
ir meðal ríkjandi valdamanna. En
rithöfundar eins og Orhan Pamuk
og Halldór Laxness eru ekki hér til
þess að skjalla okkur og fela sann-
leikann,“ sagði Atwood.
Við setningu hátíðarinnar töluðu
einnig forstjóri Norræna hússins,
borgarstjóri, menntamálaráðherra
og Thor Vilhjálmsson rithöfundur.
Bókmenntahátíð heldur áfram í
dag með samtölum við rithöfunda í
Norræna húsinu kl. 12 og 15 og
upplestrum í Iðnó í kvöld kl. 20.
Rétturinn til að beita tungumálinu
Morgunblaðið/Golli
Thor Vilhjálmsson, Margaret Atwood og Graeme Gibson við setninguna í Norræna húsinu í gær.
Eftir Þröst Helgason
throstur@mbl.is
Margaret Atwood í setningarræðu Bókmenntahátíðar í Reykjavík