Morgunblaðið - 12.09.2005, Page 14

Morgunblaðið - 12.09.2005, Page 14
14 MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Tókýó. AP, AFP. | Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans, og flokk- ur hans, Frjálslyndi lýðræðisflokk- urinn, unnu stórsigur í kosningun- um í gær samkvæmt öllum útgönguspám. Hefur Koizumi því fengið skýrt umboð frá kjósendum til að hrinda í framkvæmda helsta kosningamálinu, einkavæðingu póstþjónustunnar. Útgönguspár sýndu, að flokkur Koizumis fengi hreinan meirihluta í neðri deild þingsins í fyrsta sinn í 15 ár en hann boðaði til kosning- anna eftir að ýmsir þingmenn í hans eigin flokki komu í veg fyrir þá fyrirætlan hans að einkavæða póstþjónustuna. Er þar um að ræða risavaxið fyrirtæki með um 400.000 manns í vinnu en hún er jafnframt stærsti banki eða fjármálastofnun í heimi. Gangi útgönguspár eftir fær Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn, sem hefur verið við stjórnvölinn í Japan lengst af frá stríðslokum, 307 þingsæti af 480 í neðri deildinni og bætir við sig 58. Helsti stjórnarand- stöðuflokkurinn, Lýðræðisflokkur- inn, virtist mundu frá 105 þingsæti en hafði 177 fyrir. Leiðtogi hans, Katsuya Okada, viðurkenndi í gær ósigurinn og sagði jafnframt af sér sem leiðtogi flokksins. Fyrir Koiz- umi er sigurinn afar sætur. Það var ekki aðeins, að margir í hans eigin flokki væru andsnúnir einkavæð- ingu póstþjónustunnar, heldur hafði því verið spáð er hann boðaði til kosninga, að með því væri hann að fremja pólitískt sjálfsmorð. Koizumi, sem vill skipta upp póstþjónustunni og einkavæða fyrir árið 2017, hefur nú fengið umboð til þess og sigurinn auðveldar honum einnig að ráðast í umbætur á lífeyr- iskerfinu, sem er í alvarlegum kröggum. Þá vill hann líka útrýma þeim sið í sínum flokki og annarra að vera stöðugt að þóknast kjós- endum og þar með þingmönnum í kjördæmum hingað og þangað með fjárframlögum til verkefna, sem stundum eru jafnvel út í hött. Hefur póstþjónustan lengi verið sjóður, sem þingmenn Frjálslynda lýðræðisflokksins hafa sótt í til að styrkja sína stöðu í kjördæmunum, og yfirmenn hennar hafa verið ötul- ir stuðningsmenn flokksins. Skýr málefni „Málefnin í þessum kosningum voru skýr. Við spurðum kjósendur hvort við ættum að hrinda í fram- kvæmd óhjákvæmilegum breyting- um að okkar mati og svarið var já,“ sagði Shinzo Abe, frammámaður í flokki Koizumis, en margir veðja á, að hann muni síðar leysa Koizumi af hólmi. Sagði Abe, að þótt flokk- urinn fengi hreinan meirihluta, myndi hann áfram starfa með Nýja Komei-flokknum, sem er flokkur búddista. Kjörtímabili Koizumis sem leið- toga Frjálslynda lýðræðisflokksins lýkur á næsta ári og hann hefur lýst yfir því, að þá muni hann draga sig í hlé. Nú er hins vegar búist við, að hart verði lagt að honum að sitja lengur. Stórsigur Koizumis í þing- kosningunum í Japan Hefur fengið umboð til að einkavæða póstþjónustuna og til annarra umbóta AP Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans, setur rauða rós við nafn eins frambjóðanda flokks síns, Frjálslynda lýðræðisflokksins, til marks um sig- ur hans. Voru rauðu rósirnar orðnar meira en 300 áður en lauk. NOKKRIR þekktir vísindamenn í Bandaríkjunum hafa sakað þing- menn úr röðum repúblikana um „nornaveiðar“ gegn sérfræðingum á sviði rannsókna á loftslagsbreyt- ingum í heiminum. Tilefni ásökunarinnar er að repú- blikaninn Joe Barton hóf umfangs- mikla rannsókn á starfsferli þriggja þekktustu sérfræðinganna á þessu sviði. Barton hefur verið formaður orkumála- og viðskiptanefndar full- trúadeildar Bandaríkjaþings í ellefu ár og á þeim tíma lagst gegn öllum frumvörpum um aðgerðir til að stemma stigu við hlýnun andrúms- loftsins, að því er fram kom í frétt breska blaðsins The Guardian. Vísindamennirnir þrír eru Michael Mann, forstöðumaður rann- sóknastofnunarinnar Earth System Science Center við ríkisháskóla Pennsylvaníu, Raymond Bradley, forstöðumaður Climate System Research Center við Massachusetts, og Malcolm Hughes, fyrrverandi for- stöðumaður Laboratory of Tree- Ring Research við Arizona-háskóla. Rannsóknir þessara manna voru á meðal mikilvægra gagna sem lögð voru fram til að staðfesta að hlýnun andrúmsloftsins stafaði að minnsta kosti að hluta til af loftmengun af mannavöldum. Milliríkjanefnd um loftslagsbreytingar notaði gögnin ár- ið 2001 í skýrslu sem sannfærði leið- toga flestra ríkja heims – þó ekki George W. Bush Bandaríkjaforseta – um að brýnt væri að gera ráðstaf- anir til að draga úr loftmenguninni. Nefnd Bartons hóf rannsóknina eftir að The Wall Street Journal birti grein þar sem haft var eftir hagfræð- ingi og tölfræðingi að aðferðafræði- legir gallar og staðreyndavillur væru í útreikningum vísindamannanna þriggja. Þeir sökuðu þá um að neita að leggja fram upprunalegu gögnin til að hægt yrði að sannreyna þau. Barton óskaði þá eftir upplýs- ingum um allt sem birst hefur eftir vísindamennina og öll grundvall- argögn þeirra. Hann sagði að upp- lýsingarnar væru nauðsynlegar vegna þess að þingið þyrfti að taka mikilvægar ákvarðanir sem byggð- ust meðal annars á rannsóknum þeirra. Nefnd hans þyrfti því að kanna gildi þeirra. Barton óskaði síðan eftir upplýs- ingum um allt vísindastarf sérfræð- inganna frá því að þeir hófu störf, um fjármögnun rannsóknanna og reglur um birtingu gagna sem þeir studdust við. „Pólitísk þvingun“ Barton hóf rannsóknina í sam- starfi við Ed Whitman, formann und- irnefndar sem rannsakar hugsan- legar yfirsjónir. Að sögn The Guardian hefur rannsóknin valdið titringi meðal bandarískra vísinda- manna sem hafa kvartað yfir því að þeir séu undir þrýstingi frá Banda- ríkjastjórn sem tengi fjárframlög til vísindarannsókna við stefnu hennar í mikilvægum málum. Nokkrir vísindamannanna hafa jafnvel líkt rannsókninni við „norna- veiðar“ Joe McCarthys gegn komm- únistum á sjötta áratug aldarinnar sem leið. Átján af áhrifamestu vísinda- mönnum landsins frá Princeton og Harvard hafa skrifað Barton og Whitfield bréf þar sem þeir láta í ljósi „miklar áhyggjur“ af málinu. Þeir segja að margar af þeim upplýs- ingum, sem óskað er eftir við rann- sóknina, tengist á engan hátt lofts- lagsvísindum. Vísindamennirnir segja að þegar þingnefndir óski eftir öllum vinnu- gögnum, sem tengjast hundruðum útgefinna rita og spanni áratugi, megi líta á það sem pólitíska „þving- un“, hvort sem hún er viljandi eða ekki. Slíkar rannsóknir geti því graf- ið undan sjálfstæði vísindamanna sem eru stjórnvöldum til ráðgjafar, sjálfstæði sem skipti sköpum fyrir vísindin og stuðli að því að stjórnvöld fái hlutlæga ráðgjöf frá vís- indamönnum. Sakaðir um að ofsækja vísindamenn Bandarísk þingnefnd rannsakar störf sérfræðinga á sviði loftslagsrannsókna ÞÚSUNDIR mótmælenda unnu mikil hervirki í Belfast á Norður- Írlandi í fyrrakvöld og fyrrinótt en þá hafði samtökum þeirra, Óraníu- reglunni, verið bannað að fara í sína árlegu göngu framhjá hverfi kaþólskra manna. Beittu þeir bens- ínsprengjum og byssum gegn lög- reglunni og brenndu og eyðilögðu nokkra tugi bifreiða. Hér eru slökkviliðsmenn að glíma við eld í stórum flutningabíl en í átökunum særðist fjöldi lögreglumanna og einnig óbreyttir borgarar. Um var að ræða mestu óeirðir af hálfu mót- mælenda frá því í júlí 1996 og þá var ástæðan sú sama, göngu Ór- aníureglunnar hafði verið bægt frá hverfum kaþólskra. Nokkuð var um, að kaþólskir menn tækju þátt í ofbeldinu og þá gegn hvorum- tveggju, lögreglu og mótmæl- endum. Óeirðir og eyðilegging í Belfast AP Dubai. AFP. | Skæruliðasamtök í Írak, tengd al-Qaeda-hryðjuverka- samtökunum, hótuðu í gær að beita efnavopnum gegn bandarískum og íröskum hermönnum ef þeir hættu ekki sókn gegn skæruliðum í borg- inni Tal Afar, sem er nærri sýr- lensku landamærunum. „Ákveðið hefur verið að ráðast á hernaðarlega mikilvæg skotmörk og stöðvar Bandaríkjamanna og villutrúarmannanna (íraskra stjórn- valda) í Bagdad með efnavopnum nema því aðeins, að hætt verði við hernaðinn í Tal Afar,“ sagði í yf- irlýsingu á netinu frá samtökum, sem kalla sig Hið sigursæla sam- félag. Sagði í henni, að „heilagir stríðsmenn“ hefðu sett vopnin sam- an og væru reiðubúnir til árása inn- an sólarhrings. Hryðjuverkahótun á myndbandi Á myndbandi, sem sent var bandarísku sjónvarpsstöðinni ABC News í Pakistan, kemur fram grímuklæddur maður, sem hótar hryðjuverkum í Los Angeles og Melbourne í Ástralíu. Talið er, að maðurinn sé Adam Yahiye Gadahn, Bandaríkjamaður frá Kaliforníu, sem snerist til íslamstrúar og fylgi- lags við al-Qaeda. Er hann eftirlýst- ur af FBI, bandarísku alríkislög- reglunni. Kallaði hann hryðjuverkin 11. september 2001 „blessunarríka atburði“. Hóta efnavopna- árásum ♦♦♦ New York. AFP. | Að minnsta kosti 7.000 manns í austanverðu Kína hafa verið neyddir til að gangast undir ófrjósemisaðgerð á þessu ári. Kemur það fram í bandaríska tímaritinu Time, sem kemur út í dag. Tímaritið hefur það eftir kín- verskum lögfræðingum, að þetta hafi verið gert í Yinan-héraði í Shangdong frá því í mars til júlí. „Þeir sögðu mér, að þetta væri mér fyrir bestu en þeir hafa eyði- lagt líf mitt,“ hefur Time eftir konu, sem var gerð ófrjó en tíma- ritið segist hafa heimildir fyrir því, að nokkrir þorpsbúar hafi verið barðir til dauða fyrir að hjálpa ættingjum sínum við að sleppa við ófrjósemisaðgerð. Þá hafi aðrir verið fangelsaðir fyrir að leita sér lögfræðiaðstoðar. Mannfjöldinn í Kína fór yfir 1,3 milljarða fyrr á árinu og yfirvöld óttast afleiðingarnar haldi fólkinu áfram að fjölga. Neydd í ófrjósemis- aðgerð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.