Morgunblaðið - 12.09.2005, Side 32
32 MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Sýningartímar sambíóunum ÁLFABAKKI
HANN ER RÖNG HESTATEGUND... EN
MEÐ RÉTTU SAMBÖNDIN!
CHARLIE AND THE CHOCOLATE FACTOR
kl. 3.30 - 6 - 8.20 -10.10
CHARLIE AND THE CHOCOLATE FACTORY
VIP kl. 3.30 - 6 - 8.20
STRÁKARNIR OKKAR kl. 4 - 6 - 8 - VIP 10.40 b.i. 14
HERBIE FULLY LOADED kl. 4 - 6.15
THE ISLAND
SKELETON KEY
RACING STRIPES
DUKES OF HAZZARD
MADAGASCAR
RACING STRIPES
Charlie and the Chocolate .. kl. 5.40 - 8 og 10.20
Strákarnir Okkar kl. 6 - 8 og 10 b.i. 14
Racing Stripes kl. 6
Head in the Clouds kl. 8 og 10.30 b.i. 16
The Skeleton Key kl. 5.50 - 8 og 10.10 b.i. 16
Herbie Fully Loaded kl. 6
The Island kl. 8 og 10.30 b.i. 16
S.V. / Mbl.
NÝ GAMANMYND FRÁ LEIKSTJÓRA ÍSLENSKA
DRAUMSINS OG MAÐUR EINS OG ÉG
Búið ykkur undir bragðbestu skemmtun ársins.
Sat tvær vikur á toppnum í USA.
ÞRÍR listamenn opnuðu sýningar í
Nýlistasafninu á laugardaginn var;
Ásta Ólafsdóttir, Daði Guðbjörnsson
og Unnar Jónasson Auðarson.
Ásta sýnir í norðursal safnsins en
sýning hennar ber nafnið Áttarhorn/
Azimuth, sem er tilvísun í stjarn-
fræðilega vídd. Þá er áttarhornið það
horn sem er á milli þeirrar áttar sem
þú vísar til og höfuðáttar. Ásta út-
skrifaðist úr Jan Van Eyck-
akademíunni í Hollandi árið 1986 og
hefur sýnt verk sín heima og erlendis.
Daði Guðbjörnsson sýnir í suður-
hluta safnsins verk sem hann kallar
Málverk. Það átti að hans sögn upp-
haflega að vera einskonar uppgjör við
það í hans höfundarverki sem kennt
hefur verið við hina svokölluðu hug-
myndalist eða konseptlist, sem hann
er efins um að hann tilheyri á neinn
hátt. Daði útskrifaðist úr Myndlista-
og handíðaskólanum árið 1980 og
nam síðar við Rijksakademi van
Beldende Kunst í Amsterdam.
Unnar Jónasson Auðarson kallar
sína sýningu „SamanSafn, Rjóður,
Ákvarðanir“, en verkið Rjóður er
hugsað til að tengja saman sýningar
hinna listamannanna tveggja. Sýn-
ingin er innsetning sérstaklega gerð
með sýninguna á Nýlistasafninu í
huga en verkið er safn ólíkra gagna
sem tengjast öll á einn eða annan
hátt.
Sýningarnar standa til 2. október.
Nýlistasafnið er nú til húsa á Lauga-
vegi 26, fyrir ofan plötubúð Skíf-
unnar. Inngangur er frá Grettisgötu
og um undirgang frá Laugavegi.
Safnið er opið miðvikudaga til sunnu-
daga frá kl. 13–17.
Ásta, Daði og Unnar í Nýló
Morgunblaðið/Golli
Böðvar Bjarki og Daði Guðbjörnsson, en Daði kallar sýningu sína Málverk.
Haraldur Jóhannsson, Fjóla Friðriksdóttir og Soffía Þorsteinsdóttir.Fyrir þau sem enn ekki vita er Nýlistasafnið nú til húsa ofan við verslun Skífunnar á Laugavegi.
„HVERNIG borg má bjóða þér?“ spyrja
aðstandendur sýningar sem opnuð var í
Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur á
föstudagskvöldið. Sýningin er afrakstur
samstarfs Listasafns Reykjavíkur og
skipulagsyfirvalda í Reykjavík. Henni er
ætlað að varpa ljósi á fortíð og framtíð
skipulagsmála í borginni, en eins og að-
standendurnir benda á stendur nú fyrir
dyrum skipulag Vatnsmýrarinnar, eitt
stærsta skipulagsverkefni sem borg-
arbúar hafa tekist á við.
Á sýningunni getur að líta gríðarlega
stóra loftmynd af Reykjavík, módel, ljós-
myndir, skipulagsdrög og teikningar. Þar
er einnig vettvangur fyrir fagfólk og leik-
menn til að skoða skipulag borgarinnar
og koma með hugmyndir að nýjum lausn-
um. Borgarbúar og aðrir gestir sýning-
arinnar geta tekið þátt á ýmsa vegu, með-
al annars í tilraunastofunni Úrbanistan.
Á sýningartímabilinu verður efnt til op-
inna umræðuþinga og boðið upp á ýmsar
uppákomur. Sýningarstjóri er Ágústa
Kristófersdóttir.
Guðrún Vera Hjartardóttir opnaði sýningu á höggmyndum
sínum í Hafnarhúsinu á föstudagskvöldið.
Morgunblaðið/Eggert
Steinunn Valdís Óskarsdóttir borg-
arstjóri skoðar borgina sína.
Borg í boði í
Hafnarhúsinu
Dagur B. Eggertsson, Árni Geirsson og
Halldóra Hreggviðsdóttir voru hress.