Morgunblaðið - 12.09.2005, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. SEPTEMBER 2005 33
KRINGLAN AKUREYRI KEFLAVÍK
NÝ GAMANMYND FRÁ
LEIKSTJÓRA
ÍSLENSKA DRAUMSINS
OG MAÐUR EINS OG
Búið ykkur undir bragðbestu skemmtun ársins.
Sat tvær vikur á toppnum í USA.
kl. 8.20 B.i. 16
kl. 10.40 B.i. 16
m/ísl.tali. kl. 3.50 - 6
kl. 8.15 - 10.30
m/ísl.tali. kl. 4
m/ensku kl. 6 - 8.15 - 10.30
CHARLIE AND THE CHOCOLATE FACTORY
kl. 5.45 - 8 - 10.15
STRÁKARNIR OKKAR kl. 8 - 10 b.i. 14
DUKES OF HAZZARD kl. 8.15 10.30
RACING STRIPES m/ísl.tali. kl. 5.50
HERBIE FULLY LOADED kl. 4
BATMAN BEGINS kl. 5.50 B.i. 12 ára.
CHARLIE AND THE CHOCOLATE FACTORY
kl. 6 - 8 - 10
RACING STRIPES kl. 5.50
STRÁKARNIR OKKAR kl. 8 - 10 b.i. 14
CHARLIE AND THE CHOCOLATE
kl. 8 - 10.15
DECK DOGZ kl. 8
DUKES OF HAZZARD kl. 10.15
S.V. / Mbl.
NÝ GAMANMYND FRÁ LEIKSTJÓRA ÍSLENSKA
DRAUMSINS OG MAÐUR EINS OG ÉG
Með hinum eina sanna Johnny Depp (“Pirates of the
Caribbean”) og frá snillingnum Tim Burton kemur
súkkulaðiskemmtun ársins.
HIN myndræna ævintýragleði leik-
stjórans Tim Burtons og hin sígilda
saga Roalds Dahl, Kalli og sælgæt-
isgerðin renna saman í ómót-
stæðilega heild í nýjustu kvikmynd
Burtons, Kalli og súkkulaðiverk-
smiðjan. Hér hefur Burton fengið til
liðs við sig vin sinn og samstarfs-
mann úr fyrri myndum, þ.e. leik-
arann Johnny Depp í hlutverk verk-
smiðjueigandans Willy Wonka og
frábæran hóp fullorðinna og barn-
ungra leikara, sem fara með önnur
hlutverk.
Tim Burton hefur alla tíð verið
uppteknari af lendum ímyndunarafls-
ins en hinum eiginlega efnisheimi, og
finnur hann sér einkar kræsilegan
efnivið í umræddri sögu sem hann
vinnur með af trúfestu að grunninum
til, en hikar þó ekki við að fara á flug
með í myndrænum útfærslum og
gæða sínum eigin höfundareinkenn-
um. Í upprunalegu sögunni er nóg
fyrir Burton að moða úr en í þessari
dæmisögu af fimm útvöldum börnum
sem hreppa skoðunarferð í dularfulla
súkkulaðiverksmiðju sælgætis-
mógúlsins Willy Wonka, er fólgin
bæði ævintýraleg upphafning á rök-
leysu barnæskunnar og allt að því
kvikindislegur kennisetningartónn,
þar sem illt uppeldi barna kemur
þeim óþyrmilega í koll. Þá felur sag-
an í sér félagslegar skírskotanir þar
sem dreginn er fram munurinn á hin-
um fátæka og góðhjartaða Kalla og
fjölskyldu hans, og ofdrekruðu og
hömlulausu börnunum sem fara með
í skoðunarferðina. Sjálfur er Willy
Wonka öfgafull en kómísk birting-
armynd hins firrta iðnjöfurs, sem ein-
angrast hefur í eigin gróðahyggju, og
hefur skipt vinnuafli úr heimabænum
út fyrir innflutta verkamenn úr fjar-
lægri heimsálfu og af dularfullum
Úmpa Lúmpa-ættbálki, en þeir eru
bæði lúsiðnir og tilbúnir að vinna fyr-
ir lítið. Willy og vinnumenn hans lifa
og hrærast innan veggja verksmiðj-
unnar, sem almenningur hefur engan
aðgang að, allt þar til að Willy
ákveður að efna til skoðunarferðar
fyrir fimm heppna kaupendur súkku-
laðistykkja úr verksmiðju hans.
Tim Burton gerir sér skemmtilega
mat úr öllum þessum þáttum í mynd-
inni. Strax í upphafi myndarinnar er
áhorfandinn hrifinn inn í heim sem
útfærður er á sterkan myndrænan
hátt, þar sem ævintýri, húmor og hið
annarlega renna saman. Iðnbærinn
og kofinn sem Kalli og fjölskylda
hans búa í við þröngan en samlyndan
kost, hefur Dickens-legt yfirbragð,
en þegar dyrnar lokast á eftir gestum
súkkulaðiverksmiðjunnar fær fantas-
ían að leika lausum hala. Þar lifna t.d.
kvæðin úr sögu Dahls við í flippuðum
dans- og söngvaatriðum þar sem
Burton tvinnar inní vísanir í heim
poppkúltúrs og fantasíukvikmynda.
Þessi atriði verða þó ögn endurtekn-
ingakennd og dvínar áhrifamáttur
þeirra eftir því sem þau verða fleiri.
Burton nýtur hins vegar góðs af
því að hafa sterka leikara til þess að
ljá hugmyndafluginu fókus og veit
Johnny Depp vel hvað hann syngur í
túlkun sinni á furðufuglinum Willy
Wonka, en firring hans og þrá eftir
horfinni barnæsku verður að nokkurs
konar uppsprettu furðuveraldarinnar
sem börnin ganga inn í. Burton og
Depp þróa persónuna í skemmtilegar
áttir og gera hann í senn furðulegri
og sympatískari en í upprunalegu
sögunni. Depp ekki hræddur við að
impróvísera frekar en fyrri daginn og
er ekki laust við að hann sæki sér ör-
lítinn innblástur í poppgoðið Michael
Jackson í útfærslu persónunnar.
Samleikur Depps og barnanna, ekki
síst Freddies Highmore sem leikur
Kalla, er frábær og allt leggst þetta á
eitt um að gera Kalla og súkku-
laðiverksmiðjuna að bæði bráð-
skemmilegri og snjallri ævin-
týramynd.
Furðuveröld Burtons
KVIKMYNDIR
Háskólabíó/Sambíóin
Leikstjórn: Tim Burton. Handrit: John
August. Byggt á bók Roald Dahl. Aðal-
hlutverk: Johnny Depp, Freddie High-
more, David Kelly, Helena Bonham Cart-
er og Noah Taylor. Bandaríkin, 115 mín.
Kalli og súkkulaðiverksmiðjan (Charlie
and the Chocolate Factory) Heiða Jóhannsdóttir
Reuters
Er hægt að fá of mikið af súkkulaði? Að minnsta kosti væri gott að taka með sér smábirgðir í bíóið.