Morgunblaðið - 31.10.2005, Page 28
AFMÆLI
28 MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Efnahagur og búseta
eldri borgara
Landssamband eldri borgara og Félag eldri
borgara, Selfossi, í samstarfi við sveitarfélagið
Árborg og Heilbrigðisstofnun Suðurlands,
standa að ráðstefnunni 5. nóvember kl. 13:30
í Grænumörk 5, Selfossi.
Efnisatriði og framsögumenn:
Setning: Kl. 13:30 Hjörtur Þórarinsson.
Ávarp: Einar Njálsson, bæjarstjóri.
Lífskjör og búseta eldri borgara: Ólafur
Ólafsson, formaður LEB, og Einar Árnason,
hagfræðingur.
Staða heilbrigðismála og stefna: Magnús
Skúlason, forstjóri.
Könnun og þörf á þjónustu aldraðra í Ár-
borg: Guðlaug Jóna Hilmarsdóttir, verkefnis-
stjóri félagslegra úrræða.
Viðhorf og væntingar eldri borgara: Hjörtur
Þórarinsson.
Kaffi og léttar veitingar kl. 15:00.
Fyrirspurnir og kynning ályktana frá ráðstefn-
unni kl. 15:20-16:30.
Ráðstefnustjóri: Arndís Erlingsdóttir.
Tilkynningar
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 411 3000 • MYNDSENDIR 411 3090
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Auglýsing um breytingu á
Aðalskipulagi Reykjavíkur
og breytingu á
deiliskipulagi í Reykjavík
Í samræmi við 18. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breyt-
ingum, er hér með auglýst til kynningar
tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykja-
víkur 2001 - 2024.
Miðsvæði M2, Hlemmur –Grensás, þétt-
ingarsvæði 16.
Tillaga að breytingu: bætt verður við þéttingar-
svæði nr. 16 við Suðurlandsbraut-Múla, þar
sem gert er ráð fyrir allt að 300 íbúðum, sjá
tillögu að breytingu á 5. mynd í staðfestri
greinargerð (sjá 1. mynd í netútgáfu). Enn-
fremur er gerð breyting á skilgreiningu
miðsvæðis M2. Hlemmur/ Grensás, samanber
tillögu.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari
breytingum, er hér með auglýst tillaga að
breyttu deiliskipulagi í Reykjavík.
Suðurlandsbraut - Múlar
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi eftirfarandi
svæða: Ármúli/Vegmúli/Hallarmúli, vegna
Suðurlandsbraut 4-16, Ármúla 5-13a, Vegmúli
2-4 og Hallarmúli, Suðurlandsbraut/Ármúli,
vegna Suðurlandsbraut 18-28 og Ármúla 15-
27 og Suðurlandsbraut/Ármúli vegna Suður-
landsbraut 30-34 og Ármúla 29-31.
Tillagan gerir ráð fyrir því m.a. að heimilt verði
að gera íbúðir á efri hæðum framhúsa við
Suðurlandsbraut, krafa um bílastæði er eitt
bílastæði pr. íbúð þar sem svæðið er miðsvæði
og gert er ráð fyrir samnýtingu bílastæða.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála
skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur-
borgar í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl.
8:20 – 16:15, frá 31. október til og með 12.
desember 2005. Einnig má sjá tillögurnar á
heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru
þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta
hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum
og athugasemdum við tillögurnar skal skila
skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til
skipulags- og byggingarsviðs (merkt skipu-
lagsfulltrúa) eigi síðar en 12. desember 2005.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan
tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 31. október 2005
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
Félagslíf
MÍMIR 6005103119 II
HEKLA 6005103119 IV/V
GIMLI 6005103119 III
I.O.O.F. 19 18610317 0*
I.O.O.F. 10 18610318 0.*
Raðauglýsingar
sími 569 1100
Það má ekki minna vera en örfá
orð séu blaðfest þegar vinur minn
og félagi Hjörleifur Guttormsson
fyllir nú sjöunda tuginn. Margs er
að minnast af langri og ánægjulegri
samleið þar sem ég fékk að kynnast
einkar heilsteyptum og heiðarlegum
hæfileikamanni og góðum og gjöf-
ulum félaga um leið.
Til margra þátta skal horft þegar
til ævihlaupsins er litið en sannfær-
ing mín sú að því meir sem fram líða
stundir, því betur kunni menn að
meta verk hans og viðhorf, því um
HJÖRLEIFUR
GUTTORMSSON
margt er Hjörleifur á undan sinni
samtíð og nægir að minna á frum-
kvöðulsstarf hans í umhverfismálum
því til sönnunar. Þar ber tímamóta-
verk hans, Vistkreppa eða náttúru-
vernd, svo og barátta öll síðar raun-
sæjum hugsjónamanni verðugt
vitni. Sem iðnaðarráðherra vann
Hjörleifur það afrek í raun við erf-
iðar aðstæður um margt að knýja
erlendan auðhring til skikkanlegri
og siðlegri viðskiptahátta, ómetan-
legt framtak sem hefir orðið for-
dæmisgefandi, þó undanlátssemi
stjórnvalda gagn-
vart hinu erlenda
auðvaldi sé hreint
makalaus og því
miður sífellt að
sannast.
En áhugamál
Hjörleifs eru mörg
og árbækurnar hans
Austurlandi helgað-
ar hreinasta snilld,
enda njóta sín þar
einstök og viðamikil
þekking, vandvirkni
og samvizkusemi
Hjörleifs ásamt
þeim stílbrögðum sem bezt gerast,
þar lofa verkin meistarann, þar sem
einnig sannast heit væntumþykja
Hjörleifs til lands sem lýðs. Og ekki
má gleyma hinu stór-
kostlega verki hans ný-
útkomnu um Hallorms-
stað. Safnamálin eru
kapítuli út af fyrir sig
og vökuls frumkvæðis
hans þar njóta Aust-
firðingar sannarlega og
ekki þeir einir. Ekki
skyldi jafnréttismálun-
um gleymt og ríkri
áherzlu Hjörleifs á
jafnrétti kynjanna og
nauðsyn aukinna áhrifa
kvenna í stjórnmálum
svo löngu áður en menn
fóru almennt að huga að þeim mál-
um eða sýna þeim nægan skilning.
Aðeins að örfáu vikið til upprifj-
unar, en ótalin er þó mín eigin
reynsla af öllum samskiptum við
Hjörleif, þar mátti ævinlega reiða
sig á orð hans sem gerðir, skipu-
lagshæfileikarnir einstakir og komu
sér vel fyrir þann skipulagslausa og
viðmótsbetri og fjölfróðari ferða-
félaga hygg ég ekki hafa verið unnt
að fá. Á ferðaflakki okkar fékk ég að
kynnast vel ríkri réttlætisvitund
hans og samkennd með fólki en ekki
síður glettninni sem glitraði oft og
gladdi hug á löngum ferðaleiðum.
Við Hanna sendum honum og
hans ágætu eiginkonu, Kristínu,
sem nýlega náði sama áfanga og
eiginmaðurinn, okkar hlýju heilla-
kveðjur og árnum þeim alls hins
bezta á óförnum vegi sem allra
lengstum.
Helgi Seljan
FRÉTTIR
KAPPABEL-KEPPNIN í
stærðfræði verður nú haldin
í fimmta sinn. Undanfarin
fjögur ár hefur KappAbel
gefið íslenskum 9. bekk-
ingum kost á að sýna hvers
þeir eru megnugir í stærð-
fræði. Keppnin hefur líka
gefið þeim tækifæri til að
skoða á hvetjandi og marg-
breytilegan hátt hve víða
stærðfræði kemur við á
ýmsum sviðum þjóðlífs og
áhugamála þeirra, segir í
fréttatilkynningu.
Í KappAbel keppa nem-
endur í bekknum við aðra
bekki. Þeir leysa stærð-
fræðiþrautir sem enginn
hefur kennt þeim að leysa.
Þeir vinna bekkjarverkefni
sem undanfarin ár hafa
fjallað um Stærðfræði og
íþróttir, Stærðfræði og
tækni, Stærðfræði og tón-
list, Stærðfræði og líkam-
ann. Í ár verður það Stærð-
fræði og samskipti.
KappAbel er norræn
stærðfræðikeppni og hefur
Norðurlandakeppnin verið
haldin tvisvar með þátttöku
allra landanna. 2004 var hún
haldin á heimsþingi um
stærðfræðimenntun í Kaup-
mannahöfn og í lok apríl
2005 var hún haldin á Ís-
landi. Þar sigraði 9.B í
Lundarskóla á Akureyri
mjög glæsilega.
KappAbel býður alla 9.
bekki velkomna til leiks.
Nánari upplýsingar um
skráningu eru á vefnum
Stærðfræðin hrífur.
KappAbel-stærð-
fræðikeppnin
að hefjast
TENGLAR
.....................................
http://staerdfraedin-
hrifur.khi.is
NÝLEGA var úthlutað úr
menntunarsjóði Félags
heyrnarlausra og fengu eft-
irtaldir aðilar styrki að þessu
sinni: Sindri Jóhannesson,
Döveskolan paa Kastelvej í
Danmörku kr. 75.000, Júlía
G. Hreinsdóttir, Háskóli Ís-
lands kr. 35.000, Steinunn
Lovísa Þorvaldsdóttir, Há-
skóli Íslands, kr. 35.000,
Kristján Friðgeirsson, Nám-
skeið í DreamweawerMX,
kr. 25.000, Stefán Henriksen,
Nám í Iðnskólanum í Reykja-
vík, kr. 25.000, Herdís
Skarphéðinsdóttir, Borg-
arholtsskóli, kr. 10.000 og
Elín Ýr Arnardóttir, Háskóli
Íslands, kr. 10.000. Á mynd-
inni eru nokkrir af styrkþeg-
um ásamt formanni Mennt-
unarsjóðs Félags heyrnar-
lausra.
Styrkir úr Menntunarsjóði
Félags heyrnarlausra