Morgunblaðið - 03.11.2005, Side 1
STOFNAÐ 1913 298. TBL. 93. ÁRG. FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Væru til í
Evróvisjón
Skítamóralsmenn standa keikir
eftir 16 ára samvinnu | 54
Viðskipti | Athafnakona með hugsjónir Sælkeri í fyrirheitna
landinu Íþróttir | Þórður á Skagann Valur á toppinn Málið |
Ari Alexander í borg englanna Mín eigin ómennska og leti
OPI‹
TIL KL.
21
Í KVÖLD
Í SMÁRALIND
Hulduhag-
kerfið
blómstrar
EINN angi af stríði Bandaríkjanna
gegn hryðjuverkum beinist að fjár-
mögnunarleiðum hryðjuverkasam-
taka. Eftir ellefta september beind-
ist athygli yfirvalda að neti lítilla
peningafærslufyrirtækja, sem kall-
ast Hawala, en grunur lék á að al
Qaeda hefði nýtt sér þjónustu þeirra
til að millifæra og þvo 30 milljón doll-
ara árið 2001.
Eftir gríðarlega umfangsmikla
lögreglurannsókn á starfsemi fyrir-
tækjanna, stórkarlalegar yfirlýsing-
ar stjórnmálamanna, stærra reglu-
verk og þyngri viðurlög, er árangur
baráttunnar lítill. Ef eitthvað er
kann hún að hafa haft þveröfug áhrif
við þau sem til stóð að hún hefði.
Stríð Bandaríkjanna | B8
Viðskipti, Íþróttir og Málið
BANDARÍSKA leyniþjónustan,
CIA, og talsmaður Bandaríkja-
stjórnar neituðu í gær að tjá sig um
þá frétt bandaríska dagblaðsins The
Washington Post, að meintum
hryðjuverkamönnum væri haldið í
leynilegum fangelsum í austurhluta
Evrópu og víðar. Sagði blaðið, að að-
eins nokkrir embættismenn vissu
hvar þessir fangar væru geymdir.
Blaðið hefur eftir bandarískum
embættismönnum og embættis-
mönnum frá öðrum löndum, að CIA
hafi notað umrædd fangelsi, sem
nefnd eru „svartir staðir“, á und-
anförnum fjórum árum í átta lönd-
um, þar á meðal Taílandi, Afganist-
an og nokkrum löndum í
austurhluta Evrópu. Um sé að ræða
lykilatriði í baráttu CIA gegn
hryðjuverkum sem byggist á sam-
vinnu við erlendar leyniþjónustu-
stofnanir og því að halda áætluninni
leyndri fyrir embættismönnum og
þingmönnum.
Blaðið segist ekki birta nöfn Aust-
ur-Evrópuríkjanna að kröfu hátt-
settra bandarískra embættismanna.
„Við neitum að svara,“ sagði tals-
maður CIA í gær er hann var spurð-
ur um fréttina í The Washington
Post og Scott McClellan, talsmaður
Bandaríkjastjórnar, kvaðst ekki
mundu svara spurningum um at-
hafnir leyniþjónustunnar.
Jimmy Carter, fyrrverandi
Bandaríkjaforseti, sakaði í gær
stjórn George W. Bush forseta um
að fótum troða þau siðferðislegu
gildi, sem bandarísk utanríkisstefna
hefði byggst á um áratugaskeið.
Haft var eftir Frantisek Bublan,
innanríkisráðherra Tékklands, í gær
á fréttavefnum Aktualne.cz, að
Bandaríkjamenn hefðu „reynt að
koma einhverju af þessu taginu upp
hér“ en á það hefði ekki verið hlust-
að. Átti hann þá við leynilegar
fangabúðir en á vefnum var haft eft-
ir „áreiðanlegum heimildamanni“,
að Bandaríkjastjórn hefði orðið bet-
ur ágengt annars staðar í Austur-
Evrópu. Andras Toth, yfirmaður
ungversku leyniþjónustunnar, sagði
hins vegar, að við ungversku stjórn-
ina hefði ekki verið rætt um þetta
mál.
Vilja ekkert segja um
leynilegar fangabúðir
The Washington Post segir „svörtu staðina“ aðeins á fárra vitorði
N379P fór fimm sinnum
um lofthelgina árið 2003
VITNI voru að því að flugvél með kallnúmerið N379P var notuð til að flytja
menn, sem bandaríska leyniþjónustan grunaði um aðild að hryðjuverkum,
frá Svíþjóð til Egyptalands og frá Pakistan til Jemen. Flugvél sömu gerðar
og með sama kallnúmer, væntanlega sama vélin, fór fimm sinnum um ís-
lenska lofthelgi árið 2003, skv. upplýsingum frá Flugmálastjórn Íslands.
Flugvélin er einkaþota af gerðinni Gulfstream en bandarískir fjölmiðlar
hafa upplýst að flugvélar af þeirri gerð hafi á síðustu árum mikið verið not-
aðar af CIA til að flytja fanga til landa þar sem pyntingar viðgangast. Erf-
itt er að sanna að slíkir flutningar hafi átt sér stað en vísbendingarnar eru
sterkar, ekki síst varðandi fyrrnefnda flugvél, N379P.
Denver. AP. | Fínt hús í góðu úthverfi
í Denver í Bandaríkjunum er falt
fyrir 36 millj. kr. Þarf kaupandinn
að vera karlmaður á aldrinum 40 til
60 ára vegna þess, að það fylgir
kona með í kaupunum.
Deborah Hale, tæplega fimmtug,
auglýsti þetta hvort tveggja á
eBay-uppboðsvefnum og þar segist
hún vera að leita sér að sálufélaga.
Gefur hún ýmsar gagnlegar upplýs-
ingar um sjálfa sig en áskilur sér
auðvitað allan rétt til að hafna öll-
um tilboðum. Nú þegar hafa um 60
manns sýnt kaupunum áhuga.
Ekki spillir fyrir, að Hale á og
rekur skartgripaverslun, sem hún
segir að gangi mjög vel.
„Ég verð að segja, að tölvupóst-
arnir, sem ég hef fengið, eru mjög
innilegir,“ segir Hale en uppboðs-
fresturinn rennur út á Valentínus-
ardegi á næsta ári.
Eiginkona
í kaupbæti
Í GRÍÐARSTÓRRI hvelfingu, rúma fjögur
hundruð metra undir yfirborði jarðar starfa
saman menn frá fjölda verktakafyrirtækja víða að
við að steypa stöðvarhús Kárahnjúkavirkjunar.
Júlíus Ingvarsson hjá Á. G. Verk, vinnur m.a. við
járnabindingar vegna steypuvinnu undir túrbínur
virkjunarinnar. „Það hefur gengið vel,“ segir
Júlíus, sem kveður erfitt að lýsa tilfinningunni að
vinna í iðrum jarðar. „Maður útilokar allt annað
og er að taka þátt í þessu verki. Það er alltaf dálít-
il mengun, en maður er annað hvort í þessu eða
finnur sér eitthvað annað að gera.“
Risabor tvö er farinn aftur að bora eftir nokk-
urra mánaða misgengi og standa vonir til að hann
komist á eðlilegan vinnuhraða á næstu vikum.
Morgunblaðið/RAX
Dvalið í djúpsölum fjalla
♦♦♦
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
Fangaflutningar | 16 og 30