Morgunblaðið - 03.11.2005, Síða 4

Morgunblaðið - 03.11.2005, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Bara fyrir stelpur! (fullt af leyndarmálum sem stelpur skilja) „Hmm, látum okkur sjá. Ég er að falla í einu fagi, og já, alveg rétt! Besta vinkona mín hatar mig. Ég er 14 ára og hef aldrei verið með strák, ég er ekki með nein brjóst, og alveg rétt, eitt enn, ég uppgötvaði nýlega að ég er prinsessan af Genóvíu!“ www.jpv.is MIKLAR líkur eru á því að veiran sem veldur flensu í fuglum berist hingað til lands með farfuglum á vori komanda, en þó fer það mikið eftir þróuninni í Evrópu í vetur. Sú veira smitast ekki yfir til manna nema með viðkomu í svínum að því er virðist og því er ekki hætta á flensufaraldri í mann- heimum í kjölfarið nema veiran stökkbreytist og byrji að smitast milli manna. Sérfræðingar eru hins vegar almennt á því að einungis sé tímaspurs- mál hvenær það gerist. Um þetta og ýmislegt annað í tengslum við þær varnir sem eru fyrir hendi til að verjast flensufaraldri í alifuglum verður fjallað um í erindi Jarle Reiersen, dýralæknis alifuglasjúk- dóma, í hádeginu í dag í bókasafni Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði á Keld- um. Jarle segist í erindinu munu fara yfir hvernig flensuveirur eru flokkað- ar og hvernig þær smitist. Hann muni einnig ræða stöðuna erlendis í þess- um efnum og hvernig flensan er sem dýrasjúkdómur og hvaða aðgerðir eru mögulegar til þess að verjast því að flensan komi hingað til lands. 357 bú með alifugla Jarle segir að það sé engan veginn gefið að fuglaflensan komi hingað til lands. Hins vegar sé margt sem bendi til þess að hún komi og líklegast sé að það gerist með komu farfuglanna hingað með vorinu. Það ráðist mest af því hvað gerist úti í Evrópu í vetur. Ef til dæmis ekki greinist fleiri smitaðir fuglar en nú þegar séu komnir fram sé áhættan enn í lágmarki. Lykillinn sé hvað gerist í Bretlandi, þar sem farfuglar víða að, þar á meðal héðan og frá Suðaustur-Asíu og Síberíu, hafi þar vetursetu. Jarle segir að barátta dýralækna- embættisins snúi að því að verjast flensuafbrigðum sem geti valdið sjúk- dómum í alifuglastofnum hér á landi. Smitvarnir á alifuglabúum hér séu mjög góðar. Það sem hins vegar valdi áhyggjum séu lausagönguhænur sem séu vappandi úti á túnum um land allt. Þær séu mest útsett- ar fyrir smitun komi veiran hingað til lands með farfuglum. Evrópusambandið hafi til að mynda brugðist við smit- hættunni að þessu leyti með því að banna útigang fugla tímabundið. Þetta sé ein af þeim aðgerðum sem komi til álita að grípa til aukist lík- urnar á því að flensan komi hingað til lands frá því sem nú er. Nú væru skráð hér á landi 357 bú með ali- fugla og þar af væru 30–40 svokölluð stórbú. Lausaganga tíðkaðist ekki á stórum alifuglabúum og nú væri verið að fara yfir skráninguna til þess að tryggja að hún væri tæmandi, ef til þess kæmi að grípa þyrfti til aðgerða. Lítil hætta á að fuglaflensa smitist við neyslu fuglakjöts Jarle sagði að hverfandi hætta væri á að fuglaflensan smitaðist við neyslu fuglakjöts. Veiran þoldi ekki suðu og ef kjötið væri almennilega matreitt væri hættan nánast engin í þessum efnum, auk þess sem öllu kjöti af sýktum fuglum væri fargað undan- tekningarlaust. „Til þess að veiran geti smitast úr fuglum í fólk, virðist veiran þurfa að hafa haft viðkomu í svínum og breyst erfðalega og þannig fengið eiginleik- ana til að geta smitað fólk Þetta virð- ist hafa gerst í Suðaustur-Asíu, en hættan á því að það gerist hér á landi vegna veiru sem berst hingað til lands með farfuglum er hverfandi að mínu mati og menn eru að gera sér óþarf- lega miklar áhyggjur að þessu leyti,“ sagði Jarle enn fremur. Hann sagði að hluti af ástæðunni fyrir því væri að læknar hefðu kosið að kalla þessa flensu í Suðaustur-Asíu fuglaflensu, þótt þar væri um stökk- breytta veiru að ræða. Dýralæknar vildu hins vegar halda því nafni fyrir flensur sem eingöngu smituðust á milli fugla. „Sú veira sem er að smita fólk í Suðaustur-Asíu er mjög skæð veira sem á uppruna sinn í fuglum með sama hætti og spánska veikin á sínum tíma,“ sagði Jarle enn fremur. Hann bætti því við að þar hefði ver- ið um stökkbreytta veiru að ræða sem hefði farið að smitast á milli manna, en sú stökkbreyting hefði ekki átt sér stað varðandi H5N1 veirustofninn sem væri að draga fólk til dauða í Suð- austur-Asíu. „Þegar veiran byrjar að smita manna á milli kemur veiran hingað til lands með fyrsta fluginu frá þessum heimshluta. Það má alveg reikna með því,“ sagði Jarle. Hann sagði að sérfræðingar yrðu meira og meira sammála um að það væri einungis tímaspursmál hvenær það gerðist að veiran stökkbreyttist og færi að smita milli manna. Dýralæknir segir miklar líkur á að farfuglar beri veiruna til landsins næsta vor Smitvarnir á alifugla- búum hér mjög góðar Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is Jarle Reiersen BUBBI Morthens hefur stefnt 365 prentmiðlum og Garðari Erni Úlfars- syni, fyrrverandi ritstjóra tímaritsins Hér og nú, vegna umfjöllunar og myndbirtingar í blaðinu í sumar. Bubbi fer fram á að ummæli sem fram koma í fyr- irsögnum í blaðagrein- inni verði dæmd dauð og ómerk og að hann fái 20 milljónir króna í miskabætur. Í samtali við Morg- unblaðið segir Sigríður Rut Júlíusdóttir, lög- maður Bubba, að stefnt sé fyrir ærumeiðingar og brot gegn friðhelgi einkalífs. Á forsíðu Hér og nú í júní sl. var mynd af Bubba þar sem hann sat inni í bíl og reykti sígarettu. Inni í blaðinu voru fleiri myndir af svipuðum toga af Bubba með sömu fyrirsögn og á for- síðunni: „Bubbi fallinn.“ Að sögn Sig- ríðar Rutar er fyrirsögnin til þess fall- in að blekkja þá sem hana sjá. „Fólk tengir fyrirsögnina við það að Bubbi sé aftur fallinn í dópneyslu, frekar en hann sé fallinn á einhverju meintu sígarettubindindi,“ segir Sigríður Rut og bendir á að málið snúist einnig um réttinn til eigin mynda. „Þarna voru myndir teknar úr launsátri og án vit- undar og samþykkis stefnanda og birtar án hans samþykk- is og vitundar.“ Spurð um upphæð skaðabótakröfunnar svarar Sigríður Rut: „Ástæðan fyrir því að hún er svona há er að út- gefandi Hér og nú er mjög stór og sterkur að- ili á fjölmiðlamarkaði með ennþá sterkara móðurfyrirtæki á bak við sig. Til þess að svona mál hafi eitthvað að segja og hafi einhver varnaðaráhrif þá þarf að koma í veg fyrir að fjöl- miðlar græði á því að brjóta á réttindum ann- arra. Sökum þess þýðir ekkert að hafa bótakröfuna lága, því það myndi ekki breyta neinu. Það myndi aðeins þýða að fjölmiðlar sæju sér hag í því og teldu ágóða fólginn í því að brjóta lögin og brjóta gegn réttindum ann- arra og myndu þá halda því áfram.“ Að sögn Sigríðar Rutar var stefnan birt í gær, en málið verður þingfest þriðjudaginn 8. nóvember nk. Bubbi Morthens stefnir útgefanda Hér og nú Bubbi Morthens 122 hafa smitast og helmingur dáið FUGLAFLENSA hefur greinst í 122 tilvikum í Suðaustur-Asíu fram til síðustu mánaðamóta, samkvæmt upplýsingum Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunarinnar. Þar af hefur rétt rúmur helmingur, eða 62, dáið af völdum sjúkdómsins. Fjölgun tilfella hefur verið mest á þessu ári, en frá 16. des. síðastliðnum hafa greint 78 tilfelli og þar af hafa 30 lát- ist. Langflest tilvikin eru í Víetnam þar sem greinst hafa 91 tilvik og 41 hafa dáið og næstflest í Taílandi þar sem 20 hafa greinst og 13 dáið vegna sjúkdómsins. Hér er um að ræða staðfestar smitanir, en talið er að þær geti verið mun fleiri. SVEITARSTJÓRN Austurbyggðar hefur borist kauptilboð frá Eign- arhaldsfélagi Skeggjastaðahrepps í um 70% félagslegs húsnæðis sveitarfélagsins. „Aðilar frá þessu félagi voru að skoða íbúðirnar hjá okkur nýlega og það er komið tilboð,“ segir Steinþór Pétursson sveitarstjóri. „Viðræður eru í gangi og þetta ætti að geta skýrst í næstu viku. Tilboðið nær til sautján af rúm- lega tuttugu félagslegum íbúðum Austurbyggðar og hefur félaginu verið gert gagntilboð.“ Steinþór segir ekki endilega nauðsynlegt fyrir sveitarfélagið að eiga félagslegar íbúðir og um það geti verið skiptar skoðanir. Í Aust- urbyggð hafi sveitarfélagið verið með margar slíkar íbúðir og hærra hlutfall af heildar- íbúðafjölda en víðast hvar annars staðar. Sú spurning vakni hvers vegna sveitarfélagið eigi að reka leigumarkað ef aðrir séu tilbúnir til þess. Þó að sveitarfélagið þurfi að nýta félagslegar íbúðir í til- teknum aðstæðum geti menn gert það með því að fara á almennan markað. Eignarhaldsfélag Skeggja- staðahrepps er í eignaleigu og á íbúðir á Bakkafirði, Norðfirði, Eskifirði og víðar. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Hreyfing á íbúðamarkaði í Austur- byggð hefur snaraukist. Vilja kaupa 17 íbúðir á einu bretti Reuters

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.