Morgunblaðið - 03.11.2005, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt fyrrum stjórnarfor-
mann, fyrrum stjórnarmann og fyrr-
um framkvæmdastjóra vátrygginga-
félagsins Ísvár hf. í þriggja mánaða
skilorðsbundið fangelsi og til að
greiða samtals 4,2 milljónir í sekt til
ríkissjóðs.
Skattrannsóknarstjóri skaut mál-
inu til ríkislögreglustjóra í ársbyrj-
un 2004 og að lokinni rannsókn
ákærði ríkislögreglustjóri þá fyrir að
standa ekki skil á 3,8 milljónum
króna af frádreginni staðgreiðslu
sumarið 2002, þar af 1,6 milljónum
sem var frádregin staðgreiðsla af
launum framkvæmdastjórans í þrjá
mánuði.
Aðeins stjórnarformaðurinn játaði
að hafa komið nálægt daglegum
rekstri fyrirtækisins. Enginn þeirra
sagðist hafa haft prókúru fyrir félag-
ið og enginn taldi það í sínum verka-
hring að annast skil á afdreginni
staðgreiðslu. Fram kom að stjórn-
arformaðurinn tók við embættinu í
júní 2002 og gegndi því þar til félagið
var tekið til gjaldþrotaskipta í októ-
ber sama ár, stjórnarmaðurinn
kvaðst hafa tekið sæti í apríl 2002 og
framkvæmdastjórinn kvaðst hafa
verið „faglegur framkvæmdastjóri“ í
júní og júlí 2002 en aldrei séð um
bókhald og uppgjör félagsins.
Í niðurstöðu dómsins segir að sem
stjórnarmönnum hafi þeim borið að
fylgjast með rekstrinum og búa svo
um hnútana að starfsemi félagsins
væri í réttu og góðu horfi. Þá hafi
framkvæmdastjóri átt að sjá til þess
að bókhald félagsins væri fært í sam-
ræmi við lög og venjur. „Ákærðu
geta ekki firrt sig þeirri skyldu sinni,
með því að benda á ábyrgð hvers
annars,“ segir í dómnum.
Haldi mennirnir skilorð í tvö ár
fellur fangelsisrefsing þeirra niður.
Greiði þeir sektirnar, að upphæð
1,2–1,5 milljónir á mann, ekki innan
fjögurra vikna þurfa þeir að sæta
þriggja mánaða fangelsi.
Ingveldur Einarsdóttir kvað upp
dóminn. Björn Þorvaldsson sótti
málið f.h. ríkislögreglustjóra. Verj-
endur voru Helgi Jóhannesson hrl.,
Óskar Sigurðsson hrl. og Guðjón
Ólafur Jónsson hrl.
Eftir gjaldþrot félagsins óskaði
hópur hluthafa sem átti um 35% af
hlutafé eftir lögreglurannsókn á fé-
laginu og starfsemi þess. Samkvæmt
upplýsingum frá ríkislögreglustjóra
var það mál látið niður falla.
Dæmdir vegna skatta-
lagabrota í rekstri Ísvár
HELENA Þ. Karls-
dóttir, 38 ára, forstöðu-
maður Svæðisvinnu-
miðlunar Norðurlands
eystra, býður sig fram í
2. sæti í prófkjöri Sam-
fylkingarinnar á Akur-
eyri vegna sveitar-
stjórnarkosninganna í
vor.
Helena, sem er lög-
fræðingur að mennt,
hefur tekið virkan þátt í
félagsstarfi Alþýðu-
flokksins og síðar Sam-
fylkingarinnar frá unga
aldri. Hún var á lista
Alþýðuflokksins í
Reykjaneskjördæmi í alþingiskosn-
ingum 1991 og í Garðabæ í bæjar-
stjórnarkosningum 1994, í hafnar-
stjórn Garðabæjar 1994–1996, í
stýrihópi um markaðssetningu Ak-
ureyrarbæjar 2000, í kjörstjórn
Samfylkingarinnar vegna prófkjörs
til alþingiskosninga 2002, í fram-
kvæmdastjórn Sam-
fylkingarinnar frá
2003, varaformaður
Samfylkingarfélagsins
á Akureyri frá 2004,
varamaður í Íþrótta-
og tómstundaráði Ak-
ureyrar frá 2004, skip-
uð af þingflokki Sam-
fylkingarinnar í nefnd
um setningu lyfjalaga
og lyfjastefnu frá 2004,
í undirbúningshópi
vegna stofnunar
kvennahreyfingar
Samfylkingarinnar
2004, í laganefnd Sam-
fylkingarinnar 2004–
2005 og ritari Samfylkingarinnar frá
2005.
Helena vill stuðla að glæstum sigri
Samfylkingarinnar í bæjarstjórnar-
kosningunum vorið 2006 og innleiða
þau gildi, sem Samfylkingin stendur
fyrir, í öllum málaflokkum sveitarfé-
lagsins.
Prófkjör Samfylkingarinnar
Helena gefur kost
á sér í 2. sæti
Helena Karlsdóttir
MÁLÞING til minningar um dr. Guðmund heitinn
Pálmason var haldið í Orkugarði í gær. Jarðhita-
félag Íslands, Orkustofnun og Íslenskar orkurann-
sóknir stóðu að málþinginu.
Nánir samstarfsmenn og vinir Guðmundar fjöll-
uðu um nokkur sérsvið þar sem Guðmundur mark-
aði mikilvæg spor. Guðmundur var forstöðumaður
Jarðhitadeildar Orkustofnunar og undir forystu
hans urðu miklar framfarir í rannsóknum og nýt-
ingu jarðhita. Hann tók mjög virkan þátt í alþjóða-
samstarfi á því sviði og var auk þess góður skák-
maður.
Sveinbjörn Björnsson fjallaði um alþjóðasamskipti
dr. Guðmundar Pálmasonar. Guðmundur var m.a.
einn af frumkvöðlum stofnunar Alþjóðajarðhita-
sambandsins 1989.
Morgunblaðið/Sverrir
Frumkvöðuls minnst
Enn ósamið
vegna blað-
bera Frétta-
blaðsins
ENN er ósamið milli Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur og Póst-
hússins, dreifingaraðila Fréttablaðs-
ins og DV, um kjör blaðburðafólks.
Viðræður hafa staðið yfir í þónokk-
urn tíma.
Að sögn Hafsteins Hannessonar
hjá VR lágu viðræður niðri í sumar
en fóru af stað aftur í haust. Segir
Hafsteinn að á síðasta fundi hafi
komið upp hugmyndir sem báðir að-
ilar vilji skoða betur. Því séu þreif-
ingar í gangi og verið sé að reyna að
finna einhverja lausn.
Hildur Þórisdóttir, starfsmanna-
stjóri Pósthússins, tók í sama streng
og sagði að kominn væri skriður á
málið en ekki nein niðurstaða enn
sem komið væri.
Nærri 1200 blaðberar starfa hjá
Pósthúsinu.
Árvakur hf., útgáfufélag Morgun-
blaðsins, gerði kjarasamning við VR
árið 2003, vegna sinna blaðbera.
Keflavíkurflugvöllur | Flugvallarstjór-
inn á Keflavíkurflugvelli segir al-
rangt að flugöryggi sé ógnað á vell-
inum með fækkun starfa í
snjóruðningsdeild og slökkviliði.
Hann segir að fylgt sé stöðlum Al-
þjóðaflugmálastofnunarinnar. Hins
vegar geti verið að þjónustustigið sé
ekki eins hátt og verið hafi. Þessu
megi ekki rugla saman.
Varnarliðið rekur slökkvilið Kefla-
víkurflugvallar og snjóruðningsdeild
og hefur störfum verið fækkað þar
verulega á síðustu mánuðum og ár-
um. Fundur í deild Landssambands
slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
manna á Keflavíkurflugvelli hefur
sent frá sér ályktun þar sem sagt er
að öryggismál tengd flugumferð séu
í miklum ólestri, meðal annars vegna
samdráttar og uppsagna á mjög hæf-
um starfsmönnum.
Fram kemur að nú þegar hafi ver-
ið fækkað um 32 menn í snjóruðn-
ingsdeild yfir vetrarmánuðina og
hafi hún haft veruleg áhrif á verklag
við hreinsun á snjó og við hálku-
varnir á flugbrautum vallarins.
Lengri tíma taki að ryðja brautir og
lítið megi út af bregða til að full-
hlaðnar farþegaþotur lendi út af
brautum, sérstaklega ef lent er í
hliðarvindi. Jafnframt er sagt að að-
eins 15 slökkviliðsmenn séu á vakt að
jafnaði. Þeir myndu eiga fullt í fangi
með að ráða við öll þau verkefni sem
leysa þurfi á skömmum tíma ef flug-
slys verði.
Flugöryggi ekki ógnað
Jón Böðvarsson flugvallarstjóri
segir það algerlega rangt, ef því sé
haldið fram að flugöryggi sé ógnað
með fækkun starfsfólks slökkviliðs
og snjóruðningsdeildar, enda sé það
ekki rökstutt í ályktun þeirra. Segir
hann að varnarliðið hafi haldið uppi
háu þjónustustigi á vellinum, sam-
kvæmt stöðlum Bandaríkjahers.
Þeir telji ekki þörf á svo mikilli þjón-
ustu, miðað við starfsemi sína nú, og
séu að laga starfsemina að stöðlum
Alþjóðaflugmálastjórnarinnar fyrir
borgaralegt flug. Segist hann hafa
verið fullvissaður um að ekki verði
slakað á þeim kröfum. Þetta hafi
hins vegar óhjákvæmilega í för með
sér að þjónustan minnki. Varðandi
áhyggjur slökkviliðsmanna af snjó-
ruðningi segir Jón að það geti tekið
lengri tíma að ryðja brautir í fulla
breidd. Flugstjórar fái upplýsingar
um stöðu mála áður en þeir lenda og
geti ákveðið að bíða með lendingu á
meðan verið sé að ljúka verkinu, ef
þeir meti aðstæður þannig.
Slökkviliðsmenn á Keflavíkurflug-
velli telja að við þetta ástand verði
ekki unað. Skora þeir á stjórnvöld að
leysa þann hnút sem kominn er á við-
ræður við bandarísk stjórnvöld og
eyða óvissu um öryggi þeirra sem
um flugvöllinn fara og einnig þeirra
sem starfa við öryggismál á Kefla-
víkurflugvelli.
Slökkviliðsmenn hafa áhyggjur af öryggi
Fylgja stöðlum um
borgaralegt flug
SÆDÍS Sævars-
dóttir læknir varði
doktorsritgerð sína,
við læknadeild Há-
skóla Íslands, 7.
október sl.:
„Mannan binding
lectin (MBL) in in-
flammatory diseas-
es“ (mannan bindilektín í bólgu-
sjúkdómum). Andmælendur voru dr.
Steffen Thiel, frá Háskólanum í Ár-
ósum og dr. Björn Guðbjörnsson,
dósent við læknadeild HÍ.
Ritgerðin fjallar um próteinið
MBL í bólgusjúkdómum. Nið-
urstöður hennar benda til að ein-
staklingar sem hafa mikið af MBL í
blóði geti síður átt á hættu að fá
kransæðastíflu, rauða úlfa og sjálfs-
ofnæmi í skjaldkirtli.
Þeir sem eru með lágt MBL
reyndust hafa aukna áhættu á að fá
kransæðastíflu, en þessi áhætta virt-
ist fyrst og fremst vera til staðar í
einstaklingum með sykursýki,
hækkað kólesteról eða þrálátar bólg-
ur. Auk þess var sýnt var fram á að
MBL getur bundið „vonda kólester-
ólið“ (LDL), sem stuðlar að krans-
æðastíflu. Innan ætta með tilhneig-
ingu til rauðra úlfa tengdist lágt
MBL birtingu sjúkdómsins. Jafn-
framt tengdist lágt MBL sjálfs-
ofnæmi í skjaldkirtli, en einungis í
einstaklingum sem einnig hafa gigt-
sjúkdóma eða ættarsögu um gigt.
Lágt MBL tengdist hins vegar ekki
áhættu á iktsýki eða liðagigt, en virt-
ist tengjast verri horfum.
Verkefnið var unnið á ónæmis-
fræðideild Landspítala háskóla-
sjúkrahúss og nýttur efniviður úr
hóprannsókn Hjartaverndar, fjöl-
skylduefniviður með ættlæga gigt-
sjúkdóma á vegum Rannsóknastofu í
gigtsjúkdómum og auk þess efnivið-
ur úr framvirkri og þversniðsrann-
sókn á byrjandi iktsýki. Sjúklinga
með sjálfsofnæmi í skjaldkirtli og
sykursýki var aflað á göngudeildum
LSH. Leiðbeinandi verkefnisins var
próf. Helgi Valdimarsson. Auk hans
sátu í doktorsnefnd próf. Kristján
Steinsson, dr. Vilmundur Guðnason
dósent, dr. Bergljót Magnadóttir og
Þóra Víkingsdóttir.
Sædís Sævarsdóttir fæddist árið
1975. Eftir stúdentspróf frá MR
1995 nam hún læknisfræði við HÍ.
Sædís hefur eftir kandídatspróf 2001
stundað doktorsnám í ónæmisfræði,
auk klínískra starfa á ónæmisfræði-
og lyflæknisdeildum LSH. Sædís er
gift Magnúsi Konráðssyni lækni og
þau eiga eina dóttur.
Doktor í
ónæmis-
fræðum
Hagnaður
búanna jókst
um 3–4%
HEILDARTEKJUR á sérhæfðum
kúabúum á árinu 2004 námu að með-
altali 15,2 milljónum króna sem er
8,3% aukning frá fyrra ári. Hagnað-
ur búanna til að greiða eigendum
sínum nam að meðaltali 1.929 þús-
und krónum sem er 3,3% aukning
milli ára. Þetta kemur fram í árlegri
skýrslu Hagþjónustu landbúnaðar-
ins um uppgjör búreikninga.
Innlegg mjólkur í afurðastöð hjá
þeim 135 sérhæfðu kúabúum sem út-
tektin náði til nam 150.334 lítrum
sem er 5,4% aukning frá fyrra ári.
Meðalbúið var með 33,8 mjólkurkýr
að meðaltali sem er nánast óbreyttur
bústofn samanborið við fyrra ár, er
fjöldi mjólkurkúa var 33,7.
Samkvæmt tölum Hagþjónust-
unnar voru heildartekjur á sérhæfð-
um sauðfjárbúum að meðaltali tæp-
lega 4,2 milljónir krónur 2004 sem er
5,6% aukning frá fyrra ári.
Hagnaður fyrir laun eigenda nam
að meðaltali 996 þúsund krónum sem
er 3,8% aukning milli ára. Innlegg
kindakjöts í afurðastöð nam 6.461
kílóum sem er 12,3% aukning frá
fyrra ári.
♦♦♦