Morgunblaðið - 03.11.2005, Side 18

Morgunblaðið - 03.11.2005, Side 18
FILIPPSEYINGUR býr sig undir að flytja fjölskyldu á bifhjóli, sem hefur verið breytt þannig að það geti tekið allt að átta farþega í einu, í bænum Mongkayo í suður- hluta Filippseyja. Slík bifhjól njóta mikilla vinsælda á þessum slóðum og eru oft einu farartækin sem hægt er að nota vegna slæmra vega. AP Níu manna bifhjól 18 FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT H Æ Ð A S M Á R A 4 • S Í M I 5 4 4 5 9 5 9 H V E R A F O L D 1 - 3 , G R A F A R V O G I • S Í M I 5 7 7 4 9 4 9 • Í I - , I • Í I Buenos Aires. AP. | Forystumenn frumbyggja í Ameríkulöndum komu saman í Buenos Aires á dög- unum til að semja yfirlýsingu þar sem þess er krafist að þjóðir heims viðurkenni réttindi frumbyggja. Yf- irlýsingin verður afhent leiðtogum Ameríkuríkja á fundi þeirra sem hefst í argenstínsku borginni Mar del Plata á morgun. Tugir fulltrúa frumbyggja sátu fundinn í Buenos Aires og kröfðust þess að ríkin gerðu ráðstafanir til að draga úr atvinnuleysi og fátækt meðal frumbyggja. „Við erum eigendur þessa lands og viljum njóta virðingar sem mannverur,“ sagði Bernabe Mam- ani, 53 ára tónlistarmaður sem til- heyrir Kolla-ættflokknum í Jujuy- héraði í Argentínu. „Fólk metur okkur ekki að verðleikum.“ Victor Capitan, leiðtogi samtaka frumbyggja í Argentínu, sagði að fátæktin meðal þeirra hefði aukist vegna þess að þeir væru sviptir landsvæðum. Þeir neyddust því til að flytja búferlum úr strjálbýlinu í fátækrahverfi borganna í veikri von um að fá atvinnu. Hafa illan bifur á fríverslunarsvæðinu Búist er við að námsmenn, vinstrimenn og frumbyggjar efni til mótmæla í tengslum við leiðtoga- fund Ameríkuríkja. Hreyfingar frumbyggja óttast að stofnun Frí- verslunarsvæðis Ameríkuríkja (FTAA) verði til þess að þörfin á að bæta lífskjör frumbyggja víki fyrir hagsmunum fjölþjóðlegra fyrir- tækja sem þeir telja grafa undan atvinnulífi og menningu frum- byggja. Réttindi frumbyggja verði virt              !   ()*+,-../ )      "#    # $ %&'%   (   %&   ( 0 %1   1  % &2  &   %     %  2   3 21 4  %  % 5%   % 2 % & &  % %    + 2% 6 %     27                     !"### Réttindayfirlýs- ing afhent á fundi Ameríkuríkja RANNSÓKN sagnfræðings í Þjóð- aröryggisstofnun Bandaríkjanna, NSA, leiddi í ljós að starfsmenn hennar breyttu leyniþjónustugögn- um, sem talin eru hafa stuðlað að Víetnamstríðinu, til að breiða yfir mistök sín, að sögn dagblaðsins The New York Times. Blaðið segir að njósnastofnunin hafi haldið þessari niðurstöðu leyndri í tæp fimm ár. Sagnfræðingurinn segir að milli- stjórnendur Þjóðaröryggisstofnun- arinnar, sem annast meðal annars hleranir og tölvunjósnir, hafi fals- að gögn til að láta líta út fyrir að Norður-Víetnamar hafi gert árás á tvö bandarísk herskip í Tonkin- flóa 4. ágúst 1964, tveimur dögum eftir að þeir gerðu svipaða loft- árás. Lyndon B. Johnson, þá- verandi forseti, skírskotaði til meintrar annarrar árásar Norður- Víetnama þegar hann taldi Banda- ríkjaþing á að samþykkja viða- miklar hernaðaraðgerðir í Víet- nam. Flestir sagnfræðingar telja nú að umrædd árás hafi ekki verið gerð. Gert til að hylma yfir mistök Sagnfræðingur NSA, Robert J. Hanyok, fann ýmsar þýðingarvill- ur sem ekki voru leiðréttar, breyt- ingar á dagsetningum gagna um hleranir og fleiri vísbendingar um að millistjórnendur njósnastofnun- arinnar hefðu rangfært upplýsing- ar af ásettu ráði. Hanyok komst að þeirri niðurstöðu að þeir hefðu ekki gert þetta í pólitískum til- gangi, heldur til að hylma yfir fyrri mistök. Hvorki yfirstjórnend- ur Þjóðaröryggisstofnunarinnar né embættismenn í varnarmálaráðu- neytinu hefðu vitað af blekking- unum eða heimilað þær. „Frekar en að viðurkenna mistök sín stuðl- uðu þeir að því að Bandaríkja- menn fóru í mannskætt stríð sem stóð í tíu ár,“ sagði Matthew M. Aid, sagnfræðingur sem hefur rætt rannsókn Hanyoks við emb- ættismenn NSA og leyniþjónust- unnar, CIA. Skýrslan verður birt Hanyok skýrði frá þessum nið- urstöðum í leynilegu tímariti, sem dreift er innan NSA, fyrir tæpum fimm árum. Talsmaður stofnunar- innar sagði að skýrsla Hanyoks yrði gerð opinber innan mánaðar. The New York Times hafði eftir heimildarmanni sínum að yfirmenn NSA hefðu í fyrstu ætlað að heim- ila að greinin yrði gerð opinber en fallið frá því af ótta við að málinu yrði líkt við gölluð leyniþjónustu- gögn sem notuð voru til að rétt- læta innrásina í Írak. Margir sagnfræðingar telja að Johnson hefði hert hernaðinn gegn Norður-Víetnömum þótt hann hefði vitað að meint árás þeirra 4. ágúst 1964 hefði ekki verið gerð. Þeir segja að svo virðist sem John- son hafi sjálfur haft efasemdir um árásina. Robert S. McNamara, sem var varnarmálaráðherra Bandaríkj- anna á þessum tíma, sagði þó í vik- unni sem leið að leyniþjónustu- gögnin hefðu átt stóran þátt í því að Bandaríkjamenn ákváðu að herða hernaðinn í Víetnam. „Ég tel að það sé rangt að Johnson hafi viljað stríð,“ sagði McNamara og kvaðst aldrei hafa heyrt að gögn- um hefði verið breytt til að láta líta út fyrir að Norður-Víetnamar hefðu gert árás þennan umrædda dag. Breyttu gögnum sem stuðluðu að Víetnamstríðinu Bandarísk njósnastofnun leyndi skýrslu um blekkingarnar DAVID Blunkett, ráðherra atvinnu- og eftirlaunamála í Bretlandi, sagði af sér í gær. Þetta er í annað skiptið sem Blunkett neyðist til að segja af sér embætti í ríkisstjórn Tonys Blairs forsætisráðherra. Ákvörðun Blunketts kemur í kjölfar þess að upplýst var að hann hefði brotið siðareglur ráðherra varðandi greiðslur sem hann þáði er hann var utan ríkisstjórnar. Blunkett sagði af sér embætti innanríkisráðherra í desember í fyrra vegna ásakana um að hann hefði flýtt fyrir því að erlendri barnfóstru þáverandi ástkonu sinn- ar yrði fengið landvistarleyfi í Bretlandi. Hann var á ný skipaður ráðherra í vor. Nú hefur komið í ljós, að á tíma- bilinu milli ráðherraembættanna tók Blunkett að sér launuð ráðgjafarstörf hjá tveimur fyrirtækjum án þess að bera það undir sérstaka siðanefnd eins og honum var skylt að gera í tvö ár eftir að hann hætti sem ráðherra. Var hann þrívegis minntur á að þetta bæri honum að gera en þær athugasemdir hundsaði hann. Blunkett skýrði hins vegar frá því að hann hefði selt bréf í öðru fyrirtækjanna, DNA Biosciences, fyrir 15.000 sterlingspund (rúmlega 1,6 milljónir króna) og hefðu þeir fjármunir verið settir í sérstakan sjóð sem ætlaður væri sonum hans. Sagði hann fráleitt að um hags- munaárekstur væri að ræða þar sem ráðuneyti hans hefði engin samskipti við DNA Biosciences. Sir Alistar Graham, formaður siðanefndar þingsins, sagði engan vafa leika á því að Blunkett hefði brotið reglur varðandi framgöngu ráðherra í Bretlandi. Hann tók hins vegar fram að reglurnar væru þess eðlis að það væri forsætis- ráðherrans að ákveða hvernig bregðast bæri við. Eftir fund með Blair í gærmorgun ákvað Blunkett síð- an að segja af sér. Kvaðst hann harma mjög að hafa komið Blair í þennan vanda. Blunkett hættir öðru sinni Reuters David Blunkett eftir að hann sagði af sér í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.