Morgunblaðið - 03.11.2005, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 19
ERLENT
HEILBRIGÐISYFIRVÖLD í norðanverðri
Brasilíu reyna nú að bregðast við árásum
mikils fjölda af blóðsugu-leðurblökum sem
smitaðar eru hundaæði og ráðast á fólk.
Dæmi voru um slíkar árásir áður, en þær
eru sagðar óvenju skæðar sem stendur, ef
til vill vegna skorts á spendýrum því leð-
urblökur lifa á blóði úr þeim.
Leðurblökur eru einu spendýrin sem geta
flogið. Þær hafa smitað og drepið alls 23
íbúa á fenjasvæðum og víðar í Maranhao-
héraði í Brasilíu af hundaæði á síðastliðnum
tveimur mánuðum. Um 1300 manns hafa
fengið læknismeðferð við veikinni eftir árás-
ir sem eiga sér yfirleitt stað á nóttunni í hí-
býlum fólks. Víða hefur fátækt fólk á svæð-
inu reynt að fylla upp í glufur í veggjum
kofa sinna með bananablöðum til að verjast
árásunum.
Leðurblökurnar eru helstu smitberar
hundaæðis í Brasilíu. Í frétt á vef breska
ríkisútvarpsins, BBC, segir að sumir sér-
fræðingar hafi skýrt fjölgun árásanna með
eyðingu regnskóga sem eru náttúrulegar
heimalendur leðurblaknanna. Aðrir segja að
jafnvægi lífríkisins hafi verið truflað með
aukinni nautgriparækt sem hafi aukið fæðu-
framboð leðurblaknanna. Mörg dæmi eru
um það í Rómönsku-Ameríku að þegar naut-
gripirnir eru skyndilega fluttir á brott af
ákveðnu svæði byrja leðurblökurnar að ráð-
ast á fólk.
Blóðsugu-leðurblökur drepa fólk
AP
Bagdad. AFP. | Að minnsta kosti 21
maður beið bana í sprengjutilræði í
Írak í gær.
Árásin var gerð með þeim hætti að
bifreið hlaðinni sprengjuefni var ek-
ið að mosku sjíta í bænum Musayyib,
um 55 kílómetra suður af höfuðborg-
inni, Bagdad. Þar nærri er einnig
markaður og veitingastaður og
margir á ferli.
Minnst 61 særðist í tilræðinu sem
gert var kl. 5.20 að staðartíma (14.20
að íslenskum tíma).
Bænahald var að hefjast í mosk-
unni en síðar í vikunni halda músl-
imar Eid al-Fitr-hátíðina til að fagna
lyktum föstumánaðarins, Ramadan.
Voru margir á ferli til að undirbúa
hátíðina.
Rúmlega 80 manns týndu lífi í
sprengjutilræði á sama stað í bæn-
um í júlímánuði.
Líklegt þykir að hryðjuverka-
menn úr röðum súnni-múslima í Írak
hafi staðið að baki tilræðinu í þeim
tilgangi að stuðla að átökum milli
þess trúarhóps og sjíta fyrir þing-
kosningarnar, sem fram eiga að fara
í næsta mánuði. Hópur, sem nefnir
sig „Al-Qaeda í Írak“ og lýtur stjórn
súnnítans Abu Musab al-Zarqawi,
lýsti í september yfir stríði gegn sjít-
um í Írak.
21 myrtur
í Írak
Zanzibar. AFP. | Amani Abeid Karume
sór embættiseið forseta á Zanzibar-
eyju í Tansaníu í gær eftir að kjör-
stjórn eyjunnar lýsti því yfir að hann
hefði náð endurkjöri og flokkur hans,
Chama Cha Mapinduzi, hlotið meiri-
hluta atkvæða í nýafstöðnum for-
seta- og þingkosningum. Sterkar
grunsemdir voru um að beitt hefði
verið kosningasvikum og hafa of-
beldisfull mótmæli einkennt kosn-
ingarnar. Stjórnarliðar voru sakaðir
um að hafa svindlað í kosningum árið
2000 og einnig 1995.
Leiðtogi Borgaralegrar samfylk-
ingar (CUF), helsta flokks stjórnar-
andstöðunnar, Seif Sharif Hamad,
lýsti yfir sigri í forsetakjörinu. Hafði
hann eftir fulltrúum sínum að hann
hefði fengið ívið fleiri atkvæði en
Karume forseti. Nokkrum stundum
síðar sögðu stjórnvöld að Karume
hefði unnið, fengið 53,2% atkvæða en
Hamadi 46,1%.
Eyjan Zanzibar er í ríkjasambandi
við Tansaníu og hefur umtalsverða
sjálfstjórn. Ríkisútvarp landsins til-
kynnti um sigur stjórnarflokksins og
var sagt að hann hlyti 27 sæti á þingi
á móti 19 sætum stjórnarandstöð-
unnar er búið var að telja megnið af
atkvæðunum.
Lögregluþjónar tóku sér stöðu við
höfuðstöðvar stærstu stjórnar-
andstöðuflokkanna í helstu borg
Zanzibar, Stone Town, í fyrradag.
Gengu þeir í skrokk á mótmælend-
um í hverfum þar sem andstaða er
mest við ríkjandi stjórn.
Reuters
Amani Abeid Karume sver embætt-
iseið forseta Zanzibar í Tansaníu.
Ásakanir
um kosn-
ingasvindl
á Zanzibar
♦♦♦
Þorbjörg Helga er ráðgjafi menntamálaráðherra og starfar með borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins.
Rúnar Ingi Einarsson
Verkefnisstjóri og fyrrv.
forseti Nemendafélags VÍ
Stefanía K. Karlsdóttir
Viðskiptafræðingur og fyrrv.
rektor Tækniháskóla Íslands
Veitum Þorbjörgu Helgu stuðning í 4. sætið!
Sigurður Kári
Kristjánsson
Formaður menntamálanefndar
Alþingis
Jónína Lárusdóttir
Leikskólastjóri Fálkaborgar
Sigurður Magnús
Garðarsson
Dósent við Verkfræðideild HÍ
Helgi Árnason
Skólastjóri Rimaskóla
Guðný Eydal
Lektor í félagsráðgjöf við HÍ
Edda Huld
Sigurðardóttir
Skólastjóri Ísaksskóla
Ólafur Johnson
Skólameistari við
Menntaskólann Hraðbraut
Haukur Ísfeld
Fyrrv. grunnskólakennari
María Kristín
Gylfadóttir
Formaður Heimilis og skóla
Ragnhildur Helgadóttir
Fyrrv. menntamálaráðherra
Við styðjum Þorbjörgu Helgu til góðra verka í menntamálum
Borgin okkar – skólinn minn
Borgin á að bjóða framúrskarandi
skóla. Lykillinn að metnaðarfullu
og skapandi skólastarfi er mennta-
kerfi sem byggist á fjölbreytni og
valkostum bæði í grunn- og leik-
skólum. Hlutverk borgarstjórnar
er að setja gæðaviðmið en treysta
þarf fagfólki til að sjá um framkvæmd
og útfærslu skólastarfsins.