Morgunblaðið - 03.11.2005, Page 20
ARI ALEXANDER Í BORG ENGLANNA
GARGANDI SNILLD TIL HOLLYWOOD
022
Fimmtudagurinn
3. nóvember
22. tölublað
1. árgangur
Forsíðumynd
Silja Magg
Vesturport
frumsýnir
Woyzeck í Borgarleik-
húsinu
4
Götutískan í
London
Módel Götunnar
6
Jakobínarína
Á síðum Rolling Stone
8
Íslensk hönnun
í Nýló
Hönnuðir með læti
10
Ari Alexander
í borg engl-
anna
Gargandi Snilld til
Hollywood
12
Hugleiðingar
Barnaníðings
Sjokkerandi skáldsaga
14
Darraðadans á
Unglist
Æfingin skapar meist-
arann
16
Plata vikunnar
Aphex Twin: AFX Han-
gable Auto Bulb
17
Gaman, gam-
an, gaman
Októberbíófest í Há-
skólabíó og Regnbog-
anum
18
B5
Hlýlegur glæsileiki
Hvar býrðu?
20
Mín eigin
ómennska og
leti
Egill Ólafsson
22
FRÍTT
12
MÁLIÐ ER
Í MIÐJUN
NI Á MOG
GANUM Í
DAG
Dalvík | Þeir voru nokkuð
ánægðir með aflabrögðin,
skipverjarnir á línubátnum
Örvari SH frá Hellissandi,
Hermann Úlfarsson stýrimað-
ur og Guðni Sigurðsson vél-
stjóri. Þeir voru að landa um
40 tonnum af fiski á Dalvík í
gær, ásamt skipsfélögum sín-
um og var uppistaðan þorskur.
Einnig fengu þeir 500–600 kg
af óvenju stórum og fallegum
karfa, eins og sést á myndinni.
„Þetta var kallaður aldamóta-
karfi á togurunum á árum áð-
ur,“ sagði Guðni. Örvar SH
hefur verið á línuveiðum fyrir
norðan land sl. einn og hálfan
mánuð og gert það gott, að
sögn þeirra félaga. Örvar SH
hefur lagt upp á Dalvík og í
síðasta mánuði landaði bát-
urinn þar um 300 tonnum af
fiski.
Morgunblaðið/Kristján
Ánægðir með aflabrögðin
Aldamótakarfi
Höfuðborgin | Akureyri | Austurland | Landið | Suðurnes
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Höfðingleg bókagjöf | Finnbogi Jó-
hannsson hefur fært Bókasafni Hruna-
manna á Flúðum mikla bókagjöf. Fram
kemur í Pésanum, fréttabréfi Hruna-
mannahrepps, að margar og merkilegar
bækur séu í gjöfinni. Áslaug Bjarnadóttir
veitti gjöfinni viðtöku og er nú að skrá bæk-
urnar og koma fyrir í bókasafninu.
Nýr leikskóli byggður | Bæjarstjórn
Borgarbyggðar hyggst opna nýjan tveggja
til þriggja deilda leikskóla í Borgarnesi á
næsta ári. Í janúar næstkomandi verður
opnuð ein deild, fyrir 2 og 3 ára börn, í
bráðabirgðahúsnæði á meðan nýtt húsnæði
er í byggingu.
Þegar hefur verið auglýst eftir leik-
skólastjóra og leikskólakennurum að þess-
um nýja leikskóla. Leikskólastjóranum er
ætlað að taka þátt í undirbúningi og hönnun
húsnæðis og innra starfs skólans, auk þess
að stjórna leikskóladeildinni sem opnuð
verður í janúar.
minningar um hana hald-
in á Löngumýri, sunnu-
daginn 6. nóvember kl.
14.
Samkoman hefst með
guðsþjónustu, en að
Í tilefni þess að 100 áreru liðin frá fæð-ingu Ingibjargar Jó-
hannsdóttur, skólastjóra
á Löngumýri í Skaga-
firði, verður samkoma til
henni lokinni verða
ávörp og kaffiveitingar.
Allir eru velkomnir og
gamlir nemendur eru
hvattir til að mæta, segir
í fréttatilkynningu.
Samkoma til minningar um
Ingibjörgu á Löngumýri
Mynd af DavíðHjálmari Har-aldssyni í Morg-
unblaðinu að moka snjó
varð til þess að það
kyngdi niður vísum. Fyrst
Hjálmar Freysteinsson:
Eins og leiftur fréttin fló
fram til dala, út með sjó,
hræddi og rændi hugarró:
Hagyrðingur mokar snjó!!
Þá Davíð Hjálmar sjálfur:
Mjöllinni ég moka, þó
mjög í förin skafi.
Austan fjarðar, út með sjó
er nú Björn á kafi.
Sigrún Haraldsdóttir:
Dúnmjúkt sáldrast sáld,
svífur hvítt og létt.
Öflugt skófluskáld
skefur göngustétt.
Björn Ingólfsson á Greni-
vík svaraði Davíð:
Að láta í blöðum bera á sér
býsna er Davíð laginn,
en enginn tekur mynd af mér
þótt moki ég allan daginn.
Loks Þórir Jónsson:
Einn mokar Davíð á við fjóra;
ekki eru tökin lík
mínum og aflóga ýtustjóra
austur á Grenivík.
Að moka snjó
pebl@mbl.is
Keflavík | Byko hefur keypt Ofnamiðju
Suðurnesja í Keflavík af stofnanda fyr-
irtækisins, Jóni William Magnússyni og
fjölskyldu hans. „Fyrirtækið hefur aldrei
gengið betur en nú og við lítum á sölu
þess sem gott tækifæri,“ segir Steinþór
Jónsson, framkvæmdastjóri Ofnasmiðj-
unnar og hótelstjóri á Hótel Keflavík sem
er í eigu sömu fjölskyldu.
Ofnasmiðja Suðurnesja var stofnuð
1972 af Jóni William og konu hans, Unni
Ingunni Steinþórsdóttur, og hefur alla tíð
verið rekin af fjölskyldunni. Steinþór hef-
ur verið framkvæmdastjóri í rúm tuttugu
ár.
Steinþór segir að vegna uppsveiflu í
byggingariðnaði hafi síðustu tvö árin verið
þau bestu í sögu fyrirtækisins til þessa.
Það hafi nú yfir 50% hlutdeild á ofna-
markaðnum. Steinþór segir að fyrirtækið
hafi ekki farið út í verslun með fylgihluti
en kominn hafi verið tími til að taka
ákvarðanir um framtíðina, meðal annars
um að tengjast öðrum. Hann kveðst
ánægður með söluna til Byko.
Ofnasmiðja Suðurnesja verður áfram
rekin að Víkurbraut 2 í Keflavík, með
sömu starfsmönnum.
Að sögn Steinþórs eru ýmsar hugmynd-
ir uppi um að efla Hótel Keflavík og sagði
hann að ýmis sóknartækifæri sköpuðust
við sölu Ofnasmiðjunnar.
Hefur aldrei
gengið betur
Byko kaupir Ofnasmiðju
Suðurnesja
Hærra framlag | Fjölbrautaskóli Suður-
lands hefur fengið hækkun á fjárframlagi
til rekstrar skólans.
Á fundi í Félagi íslenskra framhaldsskóla
sem haldinn var nýlega í Fjölbrautaskól-
anum í Garðabæ gerðu starfsmenn mennta-
málaráðuneytisins grein fyrir forsendum
fjárframlaga til framhaldsskóla í fjárlaga-
frumvarpinu 2006. Hvað FSu varðar kom
fram að umtalsverð hækkun verður nú á
fjárveitingum til sérkennslu, en undanfarin
ár hefur verið verulegur halli á þessum lið
hjá skólanum. Þá kom fram að tekið hefur
verið tillit til nemendafjölgunarinnar í FSu
að undanförnu og er þannig miðað við 784
ársnemendur til uppgjörs 2006 í stað 735
ársnemenda 2005.
Selfoss | Menntamálaráðuneytið, Samtök
sunnlenskra sveitarfélaga, Héraðssam-
bandið Skarphéðinn, og æskulýðsráð rík-
isins efna til málþings, á morgun, föstudag,
um mikilvægi íþrótta-, félags- og tóm-
stundastarfs fyrir ungt fólk undir yfir-
skriftinni „Þátttaka er lífsstíll – Ungt fólk á
Suðurlandi“. Þingið verður í sal Fjöl-
brautaskóla Suðurlands kl. 13.15–16.30.
Framsögur og umræður verða í þremur
umræðuhópum og ungmennasmiðju sem
munu í lok dagsins kynna niðurstöður sín-
ar. Ávarp flytur Gísli Páll Pálsson, formað-
ur Skarphéðins. Fyrirlesarar eru Einar
Bárðarson, Þorvarður Hjaltason, Sædís
Íva Elíasdóttir, Helga Sæmundsdóttir, og
Fjóla Dögg Sigurðardóttir.
Ungt fólk á
Suðurlandi
♦♦♦
Bónus á Skagann | Bónus stefnir að því
að opna verslun á Akranesi vorið 2007. Hef-
ur fyrirtækið fengið lóð við Þjóðbraut.
Á vef Skessuhorns kemur fram að samið
hafi verið við verktaka um byggingu húss-
ins. Haft er eftir Jóhannesi Jónssyni í Bón-
us að verslunin verði svipuð nýrri verslun
fyrirtækisins í Borgarnesi. Spurður um
ástæður þess að Bónus opnaði á Akranesi
sagði Jóhannes við Skessuhorn að fyrir-
tækið hefði fengið góð viðbrögð við nýju
búðinni í Borgarnesi og á því hefðu dunið
óskir um verslun á Akranesi.