Morgunblaðið - 03.11.2005, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 23
MINNSTAÐUR
AUSTURLAND
Höfn | Ferðaþjónustuklasi Suðaust-
urlands var formlega stofnaður á
Jöklasýningunni á Höfn fyrir
skömmu. Meðal viðstaddra voru
Erna Hauksdóttir, framkvæmda-
stjóri Samtaka ferðaþjónustunnar,
og Elvar Knútur Valsson, verkefn-
isstjóri Impru á Akureyri, en hann
hefur unnið með Hornfirðingum að
uppbyggingu klasans.
Markmið Ferðaþjónustuklasans
er að með markvissu klasasamstarfi
fyrirtækja, stofnana og sveitarfélags
verði ferðaþjónusta svæðisins öflug
og arðbær atvinnugrein. Markmiðið
er að bæta afkomu í greininni, lengja
ferðamannatímann og viðverutíma
ferðamanna og fjölga störfum í
greininni á svæðinu. Leiðin að þess-
um markmiðum er kröftug markaðs-
setning og vöruþróun, þ.e. að þróa
vörur og nýjar lausnir til að selja ut-
an háannatíma.
Klasaaðferðafræðin gengur út á
að margir aðilar, t.d. einstaklingar,
fyrirtæki og opinberar stofnanir
taka höndum saman um samvinnu
og sérhæfingu í atvinnumálum.
Klasinn byggist á sérstöðu í atvinnu-
umhverfi þessara aðila og hefur
þann tilgang að bæta samkeppnis-
stöðu þeirra. Klasarnir samanstanda
því af ólíkum aðilum sem eru í sam-
keppni á sama tíma og þeir eru í
samvinnu eða svokallaðri „sam-
starfskeppni“.
Ferðaþjónustuklasa Suðausturlands ætlað að efla greinina
Klasaað-
ferðin gefst
vel á Höfn
Morgunblaðið/Sigurður Mar Halldórsson
Ferðaþjónustuklasi Elvar Knútur Valsson, verkefnisstjóri hjá Impru,
Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, Ari Þ.
Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Frumkvöðlaseturs Austurlands, og Gísli
Már Vilhjálmsson verkefnisstjóri.
Egilsstaðir | Ráðstefna um jarð-
göng á Miðausturlandi verður hald-
in á Hótel Héraði á morgun, 4. nóv-
ember.
Þróunarfélag Austurlands og Fé-
lag áhugafólks um jarðgöng á Mið-
austurlandi (Samgöng) standa fyrir
ráðstefnunni, sem hefst kl. 10.15
f.h. og eru fundarlok áætluð 16.20.
Formaður Sambands sveitarfé-
laga á Austurlandi (SSA), Soffía
Lárusdóttir, setur þingið. Erlendir
fyrirlesara eru Edvard Dahl, verk-
efnisstjóri hjá ELKEM Saudefald-
en, og Heine Olsen, fyrrverandi yf-
irverkfræðingur færeysku heima-
stjórnarinnar.
Meðal íslenskra fyrirlesara eru
Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri,
Hreinn Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri þróunarsviðs Vega-
gerðarinnar, og Kjartan Ólafsson
og Jón Þ. Heiðarsson hjá Rann-
sóknarstofnun Háskólans á Ak-
ureyri, en þeir eru skýrsluhöfundar
að nýútkominni skýrslu SSA um
mat á samfélagsáhrifum og arð-
semi jarðganga á Austurlandi. Ráð-
stefnan er opin öllum sem áhuga
hafa á málefninu.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Hugað að göngum Sr. Davíð Baldursson blessar Fáskrúðsfjarðargöng
sem voru opnuð í haust og hafa breytt samgöngum til hins betra.
Þingað um jarðgangakosti
á Austurlandi
Stöðvarfjörður | Í gær hóf fyrirtæk-
ið Landatangi ehf. starfsemi á Stöðv-
arfirði, en fyrirtækið er hluti af af-
rakstri atvinnuþróunarverkefnis
sem hrundið var af stað í kjölfar lok-
unar vinnslu Samherja hf. á staðn-
um.
Stofnendur fyrirtækisins eru Ant-
on Helgason og Margeir Margeirs-
son. Í fyrstu mun fyrirtækið sjá um
að framleiða s.k. Markúsarnet, sem
eru björgunarnet í báta. Landatangi
ehf. er til húsa að Fjarðarbraut 40a á
Stöðvarfirði.
Framleiða Markúsarnet
fyrir björgunarbáta
Nýtt fyrir-
tæki opnað á
Stöðvarfirði
Fjarðabyggð | Bæjarráð Fjarða-
byggðar lýsti á fundi í síðustu viku
undrun sinni á tillögum fram-
kvæmdanefndar um nýskipan lög-
reglumála á Austurlandi. Að mati
bæjarráðs hníga öll rök að því að
lykilembætti lögreglu á Austurlandi
verði á Eskifirði. Framkvæmda-
nefndin leggur til að lykilembætti á
Austurlandi verði á Seyðisfirði. Bæj-
arráð Fjarðabyggðar mun taka mál-
ið upp við þingmenn Norðaustur-
kjördæmis á næstu dögum.
Undrast staðsetn-
ingu lykilembættis
www.hannabirna.is
Hanna Birna
- 2. sætið!
STILLUM UPP
SIGURLIÐI
Á föstudag og laugardag verður
kosið í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík.
Um leið og ég hvet allt sjálfstæðisfólk í Reykjavík
til að taka þátt í prófkjörinu, minni ég á að mestu
skiptir að við sameinumst um að velja öflugan og
sigurstranglegan lista. Þannig tekst okkur að ná
góðum árangri í borgarstjórnarkosningunum í vor
og búa til heimsins bestu höfuðborg.
Ég leita eftir áframhaldandi umboði til að vinna
í þágu Reykvíkinga og óska eftir stuðningi í
2. sæti listans.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarfulltrúi
Kosningaskrifstofa stuðningsfólks Hönnu Birnu
er í gamla Landssímahúsinu við Austurvöll.
Sími 561 0900 - hannabirna@hannabirna.isTraust og óhá› fjármálafljónusta
HLUTHAFAFUNDUR
Hluthafafundur Ver›bréfastofunnar hf.
ver›ur haldinn fimmtudaginn 10. nóvember
næstkomandi kl. 17.00 í húsnæ›i félagsins a›
Su›urlandsbraut 18.
Dagskrá:
- Tillaga um breytingar á samflykktum félagsins.
- Kosning stjórnar.
- Önnur mál.
Breytingartillögur vi› samflykktir félagsins liggja
frammi í afgrei›slu Ver›bréfastofunnar hf.
Stjórn Ver›bréfastofunnar hf.