Morgunblaðið - 03.11.2005, Qupperneq 28
28 FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF | NEYTENDUR
Allt að 26% verðmunur vará verði nokkurra lyfseð-ilsskyldra lyfja í verð-könnun sem verðlagseft-
irlit ASÍ gerði í apótekum sl.
þriðjudag. Rimaapótek í Grafarvogi
var oftast með lægsta verðið í könn-
uninni en Lyf og heilsa við Melhaga
og Skipholtsapótek í Skipholti voru
oftast með hæsta verðið.
Verðmunur á frumlyfi og sam-
heitalyfi með sömu verkun er allt að
49%.
Sett voru upp dæmi af tveimur
einstaklingum. Fyrst var um að
ræða 48 ára karlmann á tveimur
lyfjum, mígrenilyfi (Imigran) og
bólgueyðandi verkjalyfi (Voltaren
Rapid).
Hitt dæmið snerist um 7 ára barn
á tveimur lyfjum, ofnæmislyfi
(Claritin) og asmalyfi (Ventolin).
Heildarþátttaka TR í lyfjum
karlsins var kr. 2.446 og hluti sjúk-
lings í lyfjaverðinu gat hæst orðið
kr. 6.581 ef enginn afsláttur var
veittur hjá apótekinu.
Í tveimur apótekum, Apótekinu
og Árbæjarapóteki var við-
skiptavinunum boðið ódýrara sam-
heitalyfið Vostar S í stað Voltaren
Rapid sem var á lyfseðlinum, áður
en lyfið var skrifað út og í þeim til-
vikum var það tekið með í nið-
urstöðunum.
Heildarverðið á lyfjum karlsins
var lægst í Rimaapóteki, 4.998
krónur, og hæst í Garðsapóteki,
5.985 krónur. Munurinn á hæsta og
lægsta heildarverði var 987 krónur
eða 20%. Minni munur er á hæsta
og lægsta verði nú en var í könnun
á sömu lyfjum í apríl sl. en þá
reyndist 26% munur á heildarverð-
inu sem í þessari könnun reyndist
20%.
Heildarþátttaka TR í lyfjum
barnsins var 526 krónur og hluti
sjúklings í lyfjaverðinu gat hæst
orðið 5.081 króna ef enginn af-
sláttur var veittur hjá apótekinu.
Í sex apótekum af þeim tíu sem
könnunin var gerð í var boðið ódýr-
ara samheitalyfið Loritin í stað of-
næmislyfsins Claritin sem var á lyf-
seðlinum. Þessi apótek voru:
Apótekarinn, Apótekið, Árbæj-
arapótek, Garðsapótek, Lyfjaval og
Rimaapótek.
Heildarverðið á lyfjum barnsins
var einnig lægst í Rimaapóteki, kr.
3.481, en hæst í Lyfjum og heilsu
við Melhaga og Skipholtsapóteki,
kr. 5.081. Munurinn á hæsta og
lægsta verði var kr. 1.600 eða 46%.
Eitt apótek neitaði þátttöku
Könnunin var gerð í eftirfarandi
10 apótekum: Apótekaranum
Þönglabakka 1, Apótekinu Hvera-
fold 1-3, Árbæjarapóteki Hraunbæ
102b, Garðsapóteki Sogavegi 108,
Lyfjum og heilsu Melhaga 20, Lyfju
á Egilsstöðum, Lyfjavali Þöngla-
bakka 6, Lyfjaveri Suðurlandsbraut
22, Rimaapóteki Langarima 21 og
Skipholtsapóteki Skipholti 50b. Eitt
apótek neitaði þátttöku í könn-
uninni, Laugarnesapótek við
Kirkjuteig.
Að sögn Hennýar Hinz verkefn-
isstjóra hjá verðlagseftirliti ASÍ
gerir verðlagseftirlitið verðkannanir
á lyfseðilsskyldum lyfjum í samráði
við Landlæknisembættið og eru
þær framkvæmdar þannig að lagðir
eru fram raunverulegir lyfseðlar í
apótekum án þess að gefið sé upp
að um verðkönnun sé að ræða.
Þetta er gert með það fyrir aug-
um að tryggja að verð í könnuninni
endurspegli raunverulegt verð til
viðskiptavina. Hún segir að í verð-
könnuninni sé einungis mögulegt að
kanna verð á fáum lyfjategundum
sem endurspegli ekki verð á öllum
lyfjum í viðkomandi apóteki. „Neyt-
endur eru þó hvattir til að nýta sér
niðurstöðurnar sem áminningu um
að gera verðsamanburð milli apó-
teka, auk þess sem það getur marg-
borgað sig að spyrjast fyrir í apó-
tekinu hvort til sé ódýrara sam-
heitalyf í stað þess sem læknirinn
hefur ávísað.“
Um beinan verðsamanburð er að
ræða en ekki er lagt mat á gæði eða
þjónustu söluaðila.
VERÐKÖNNUN | Verðlagseftirlit ASÍ kannar verð á lyfseðilsskyldum lyfjum í tíu apótekum
Rimaapótek oftast með lægsta verðið
! "#$%
% &% '
()%
$* *$ &
"
+
$% '
"" " &
$,""
-"
'
".
8%
&
9:
1% &12
7
!5%%
%
"#$% . ". ../ ,
$#&' "#$% . ". .. / ,
()# $
# 012
*+,
-# "#$% . ". .. / ,
()# .$# 012
#$ ) *$ 3. "
*+,
;<
5%
=<
5
%
!"!
!!!
#
!
! !!
# #
##
!
! %
4
"
012 4 +
"*$
!"!
!
!
#
!"!
$
#
!
"
!!$
#"
"#
"
#
!"!
!
!
!"
#
"
#"
#!$
"
$
!
"
!!!
"
"
!
%
%
!"
#
#
!
!"
#"
# #
!
$
#
!
#
$
"
%
#
! !!
##
!
"$
!!$
$!
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Verðmunur á frumlyfi og samheitalyfi með sömu verkun er allt að 49%.
Bónus
Gildir 01. nóv - 06. nóv verð nú verð áður mælie. verð
Frosið hrefnukjöt .................................. 199 499 199 kr. kg
Bónus lambalæri kryddað ..................... 899 998 899 kr. kg
KS frosið lambalæri ............................. 799 998 799 kr. kg
Ýsa nætursöltuð ................................... 599 899 599 kr. kg
Saltfiskur útvatnaður ............................ 595 699 595 kr. kg
Rækja 1 flokkur ................................... 599 799 599 kr. kg
Bónus þorskalýsi, 500 ml..................... 359 399 718 kr. ltr
Bónus safi epla ................................... 59 85 59 kr. ltr
Bónus trönuberjasafi ............................ 259 0 259 kr. ltr
Ali beikon ............................................ 879 1438 879 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 03. nóv - 05. nóv verð nú verð áður mælie. verð
Bestu kaupin, 1/2 skrokkur .................. 598 798 598 kr. kg
London lamb....................................... 985 1539 985 kr. kg
Úrb. hangiframpartur............................ 1298 1573 1298 kr. kg
Léttreyktur lambahryggur ...................... 1298 1703 1298 kr. kg
Ali party skinka .................................... 1274 1698 1274 kr. kg
Nautahakk I flokkur.............................. 798 1038 798 kr. kg
Nauta piparsteik úr kjötborði................. 1798 2298 1798 kr. kg
Lamba ribeye úr kjötborði ..................... 1898 2698 1898 kr. kg
Nauta roastbeef úr kjötborði ................. 1598 1998 1598 kr. kg
Ali reyktur svínahnakki .......................... 1124 1498 1124 kr. kg
Hagkaup
Gildir 03. nóv - 09. nóv verð nú verð áður mælie. verð
Kalkúnn heill frosinn ............................ 599 889 599 kr. kg
Bayonne skinka ................................... 818 1363 818 kr. kg
Findus lasagne, 500 g ......................... 399 448 399 kr. pk.
Hatting hvítlauks snittubrauð ................ 199 289 199 kr. stk.
Freschetta bricoven osta, 450 g ............ 499 598 499 kr. stk.
Ernos Pizzas margherita, 300 g ............. 149 179 149 kr. stk.
Borganes helgarlamb m/sólþ.tómötum . 1.136 1.748 1.136 kr. kg
Borganes helgarlamb m/ísl.kryddjurtu... 1.136 1.748 1.136 kr. kg
Krónan
Gildir 02. nóv - 08. nóv verð nú verð áður mælie. verð
Bautabúrs grísabógur........................... 359 599 359 kr. kg
Gourmet innralæri kryddað ................... 2271 3494 2271 kr. kg
Goða medisterpylsa reykt ..................... 401 668 401 kr. kg
Gourmet ungnautahakk........................ 819 1365 819 kr. kg
SS Grand Orange helgarsteik ................ 998 1668 998 kr. kg
Eðalfiskur túnfisksalat .......................... 143 238 715 kr. kg
Jarðarber ............................................ 129 175 645 kr. kg
Blómkál .............................................. 99 165 99 kr. kg
Myllu danskt rúgbrauð.......................... 95 106 95 kr. stk.
Hunt́s tómatsósa ................................. 149 189 110 kr. kg
Nettó
Gildir 03. nóv - 06. nóv verð nú verð áður mælie. verð
Kalkúnapottréttur................................. 539 899 539 kr. kg
Kalkúnastrimlar ................................... 599 998 599 kr. kg
Gourmet hamborg.m/brauði, 4x80 g ..... 399 599 399 kr. pk.
Léttreyktur grísahnakki ......................... 1.006 1.502 1.006 kr. kg
Villikryddað hátíðarlambalæri ............... 998 1.838 998 kr. kg
Hangiframpartur úrb.pk ........................ 1.105 1.726 1.105 kr. kg
Ben and Jerrys ís, allar teg. ................... 499 799 499 kr. stk.
Pepsi Cola 1.ltr .................................... 70 140 70 kr. stk.
Stone Oven Pizza Special ..................... 299 399 299 kr. pk.
Stone Oven Pizza Royal......................... 299 399 299 kr. pk.
Nóatún
Gildir 03. nóv - 09. nóv verð nú verð áður mælie. verð
Kindahakk........................................... 398 598 398 kr. kg
Kindagúllas ......................................... 899 1598 899 kr. kg
Kindainnanlærisvöðvi ........................... 1498 1898 1498 kr. kg
Móa kjúklingabringur magnpk. .............. 1996 2495 1996 kr. kg
Kea léttr. lambahryggur ........................ 917 1529 917 kr. kg
Móðir Náttúra brokkólíbuff, 320g .......... 399 579 1247 kr. kg
Goða svið frosin í poka ......................... 298 573 298 kr. kg
Gular melónur ..................................... 69 1219 69 kr. kg
Perur .................................................. 99 159 99 kr. kg
Persil þvottaefni, 5,4 kg........................ 799 1298 148 kr. kg
Samkaup/Úrval
Gildir 03. nóv - 06. nóv verð nú verð áður mælie. verð
Bautabúrið blandað hakk ..................... 698 997 698 kr. kg
Bautabúrs bayonneskinka .................... 974 1499 974 kr. kg
Bautabúrið bjúgu................................. 384 549 384 kr. kg
Brauðskinka Bautabúrið ....................... 767 1278 767 kr. kg
Íslandsfugl ferskur heill kjúklingur.......... 389 598 389 kr. kg
Náttúra hveiti, 2 kg. ............................. 59 75 30 kr. kg
Náttúra Jasmin hrísgrjón ....................... 99 179 99 kr. kg
Spergilkál............................................ 289 389 289 kr. kg
Jarðarber, 200g ................................... 149 249 596 kr. kg
Þín Verslun
Gildir 03. nóv - 09. nóv verð nú verð áður mælie. verð
Ísfugls steiktir kalkúnaborgarar ............. 979 0 979 kr. kg
Villikryddað lambalæri ......................... 1.470 1.838 1.470 kr. kg
Blandað nauta- og svínahakk................ 645 806 645 kr. kg
Hrossakjöt saltað og úrbeinað............... 504 630 504 kr. kg
Casa Fiesta vörur 20% afsláttur............. 0 0 0 kr. kg
Tilda Basmati hrísgrjón 1 kg.................. 298 357 298 kr. kg
Filippo Berio ólífuólía 500 ml................ 329 398 658 kr. ltr
Tilda Sósur, 6 teg. 340 g ...................... 249 299 722 kr. kg
Chigago Town örbylgjupizzur 2 stk.......... 349 422 174 kr. stk.
Milka 4úkkulaði, 100 g ........................ 99 129 990 kr. kg
Nautahakk og grænmeti
HELGARTILBOÐIN | Neytendur@mbl.is
KRÓNAN á Bílds-
höfða hefur und-
anfarna mánuði
verið að gera til-
raunir með raf-
rænar hillumerk-
ingar í ferskvör-
unni og græn-
metis- og ávaxta-
deildinni.
Að sögn Árna
Þórs Freysteins-
sonar, rekstr-
arstjóra Krónu-
búðanna, hefur
fyrirkomulagið
fjölmarga kosti
umfram hefð-
bundnu hillu-
merkingarnar og
gerir hann fastlega ráð fyrir að rafrænar hillumerkingar í Krón-
unni séu komnar til að vera þó svo að stofnkostnaðurinn sé all-
verulegur.
„Allt kerfið verður mun virkara en ella. Verðmerkingum er ein-
faldlega stýrt af skrifstofunni svo að ekki þarf lengur að prenta út
sérstaka merkimiða, sem starfsmenn þurfa svo að koma fyrir á
hillunum. Þetta fyrirkomulag er bæði til hægðarauka fyrir starfs-
menn sem og viðskiptavinina.“
Rafrænar
hillumerkingar
VERSLUN | Krónan á Bíldshöfða
Morgunblaðið/Sverrir