Morgunblaðið - 03.11.2005, Side 35

Morgunblaðið - 03.11.2005, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 35 UMRÆÐAN ÍSLENDINGAR eru með eitt lægsta hlutfall aldraðra innan landa OECD. Aldraðir (þ.e. eldri en 65 ára) eru taldir 11,8% þjóðarinnar og end- urspegla þannig lága fæðingartíðni frá kreppuárunum upp úr 1930. Þeim mun hins vegar fjölga verulega á næstu árum en um miðja síðustu öld var fæðingartíðni mun hærri. Þannig verður hlutfall aldraðra 2015 13,6% og 2020 15,3%. Reynslan er sú að hver einstaklingur notar um 80% af þeirri þjónustu, sem hann þarf frá heil- brigðiskerfinu, síðustu 2–3 ár ævi sinnar. Íslendingar eru ein ríkasta þjóð í heimi. Kostnaður við rekstur heilbrigðisþjónustunnar er með þeim hæsta innan landa OECD ef tekið er tillit til aldurssamsetning- arinnar. Heilbrigðisráðherra hefur við- urkennt að verulegur skortur sé á hjúkrunarplássum. Hann gaf upp töl- una 300 en hún er töluvert hærri ef aðstaða núverandi vistmanna er tekin með í dæmið. Í öðrum vestrænum þjóðfélögum er ekki skortur á hjúkr- unarplássum, því að þar telja menn sem hafa greint kostnað við einstaka þætti heilbrigðiskerfisins, að það borgi sig ekki að búa við skort á þessu sviði. Sviðsstjóri skurðlækninga hefur greint frá því að hjúkrunarsjúklingar sem ekki er hægt að fá pláss fyrir á hjúkrunardeildum liggi í bráðarúm- unum og komi í veg fyr- ir að hægt sé að sinna sjúklingum sem þurfa á skurðaðgerðum að halda. Þetta þýðir auð- vitað að fjöldi starfs- manna spítalans sem eru á fullum launum geta ekki sinnt eðlileg- um verkefnum. Að hafa hjúkrunarsjúklinga á bráðadeildum kostar undir þessum kring- umstæðum margfalt á við það sem kostnaður er á hjúkrunarheim- ilum. Þetta þýðir auðvitað að þessi skortur sé mjög dýr fyrir Landspít- ala og hækki kostnað við rekstur spít- alans ef hann er reiknaður eftir DRG kerfinu. Þetta ástand staðfestir því auðvit- að þá staðreynd að frá rekstrarlegu sjónarmiði er ekki glóra í þessu ástandi. Aldraðir borgarar þessa lands hafa greitt skatta sína og skyldur alla sína ævi en svo kemur að síðustu æviár- unum og þá telja þeir sig eiga inni þá miklu þjónustu sem þeir þurfa síð- ustu æviár sín. Skortur á hjúkrunarplássum er því frá mannlegu sjónarmiði hrein mann- vonska. Sá stjórnmálaflokkur sem farið hefur mest með ráðuneyti heilbrigð- ismála síðustu árin er auðvitað Fram- sóknarflokkurinn með fullum stuðn- ingi Sjálfstæðisflokks. Núverandi ríkisstjórn ætlar að eyða tugum millj- arða króna í byggingu nýs bráðaspít- ala og neitaði algerlega að hlusta á ráðleggingar reyndra erlendra ráð- gjafa um að skoða mun ódýrari lausn- ir. Engar áætlanir hafa verið gerðar um lausnir við þjónustu við aldraða og allir sem átta sig á eðli mála skilja að það er vonlaust að reka nýjan bráðaspítala án þess að tryggja nægi- legan fjölda hjúkrunarplássa áður. Aldraðir íbúar landsins átta sig því á að þeir geta ekki búist við viðunandi lausn á þörfum þeirra síðustu ár æv- innar frá núverandi ríkisstjórnar- flokkum. Stjórnarandstaðan hefur heldur ekki látið þessi mál til sín taka og ekki haldið uppi viðunandi gagn- rýni á störf ríkisstjórna undanfarinna kjörtímabila. Skortur á hjúkr- unarplássum Ólafur Örn Arnarson fjallar um vandamál aldraðra ’Aldraðir íbúar landsinsátta sig því á að þeir geta ekki búist við við- unandi lausn á þörfum þeirra síðustu ár ævinn- ar frá núverandi ríkis- stjórnarflokkum.‘ Ólafur Örn Arnarson Höfundur er læknir. ÉG SÁ aldrei Berlínarmúrinn. Það var búið að brjóta hann í smátt þegar ég kom í fyrsta sinn til Berl- ínar. Henry, sem hefur alið allan aldur sinn í þeim bæ, gaf mér rauðleitan steinsteypumola sem hann fullyrti að væri úr þessu ill- ræmda mannvirki flokks og ríkis. Ég þáði hann og átti hann um tíma en svo týndist hann og ég sakna hans ekki. Ekki fremur en ég sakna Berlínarmúrs- ins. Sumt má sann- arlega missa sig. Við vorum ekki inn- múruð í Berlín júlí- dagana þarna um árið og þeir sem fyrrum höfðu verið innvígðir í flokksvé og verið ónefndir og ósnert- anlegir gegndu hvers- dagslegum nöfnum og gengu settlega um götur og torg eða iðkuðu amstur sitt friðsamlega. Einhverjir voru raunar í steininum. Þeir verstu vonaði maður. Það var skrýtin og ögrandi fyr- irsögn á grein í vikublaðinu Spiegel um þær mundir. „Peepshow im Wikingerreich“. Gægjusýning í vík- ingaríkinu. Nei, þessi íslensku orð ná engan veginn þeirri blöndu af klámi og opinberu ofbeldi ríkisins sem felst í þýsku fyrirsögninni og skírskotar til ærið strembinna at- burða í þarlendri fortíð. Greinin var rituð um íslensk málefni vegna tilburða til að koma hér á svoköll- uðum gagnagrunni á heilbrigð- issviði og áttu innvígðir að hljóta opinbera heimild til að ganga frekjulega í skrokk allra hinna og skrá hjá sér kvilla og kveisur. Þetta var á endanum leyft með lög- um en rann út í sandinn í fram- kvæmdinni. Bættur sé skaðinn. Eins og við mátti búast ónýtti Hæstiréttur málatilbúnað Jóns H. B. Snorrasonar, saksóknara í Baugsmálinu, fyrir skemmstu. Smá slitrur úr því fóru raunar aftur til héraðsdóms og fá dómararnir það vanþakkláta verkefni að ráða í merkingu hinna myrku orða sak- sóknarans sem maður gæti stund- um haldið að hafi þá vinnureglu að leitast við af fremsta megni að varpa hulu yfir hvaðeina sem ljóst kann að vera. Hjálpi þeim sá sem vanur er. Talið um ónefndan mann, inn- múraðar og innvígðar ráðstafanir, að eitt skjal muni nægja til að senda hina tindilfættu rannsókn- arliða á vettvang, æ það minnir einhvern veginn óþægilega á múr sem maður var svo lánsamur að sjá aldrei. Mikið skelfing var það ógæfulegt upphafið á hinum há- timbraða málatilbún- aði sem hafnaði að lokum í flórnum og margt klámfengið og ógeðfellt hefur fylgt á eftir þessi þrjú ár sem liðin eru. Útkoman er eftir því. Baugsmálið hefur þegar valdið miklu tjóni. Friðsæld og ör- yggi eru þegar öllu er til skila haldið langt- um mikilvægari heldur en fjár- munir. Málatilbúnaðurinn vitlausi og langvinni hefur rýrt mjög þessi mikilvægu lífsgæði sakborninga. Miklu fé og löngum tíma mun einn- ig hafa verið varið til málsins af op- inberri hálfu og svo er að skilja sem eigendur Baugs hf. hafi orðið fyrir verulegu fjárhagstjóni vegna umstangsins sem kvað hafa haft miður heppileg áhrif á viðskipti þeirra. Lakast er þó án efa að allt málið hefur tvímælalaust veikt traust fjöldamargra íslenskra borg- ara á því að embætti ríkislög- reglustjóra sé svo óháð og faglegt sem það ætti að vera. Það er vissulega engum vafa undirorpið að þeir einstaklingar sem fást við kaupsýslu eða annars konar rekstur eða stunda fagstörf af einhverju tagi þurfa ætíð að vera undir það búnir að verja gerðir sín- ar fyrir dómstólum, bera ábyrgð á þeim og taka afleiðingum af athöfn- um sínum. En þeir eiga jafnframt skýlausa kröfu á því að þau mál sem upp koma séu reist á rökum og meðhöndluð á faglegan hátt í samræmi við reglur réttarkerfisins. Mikill og alvarlegur misbrestur hefur orðið á því í Baugsmáli eins og alkunna er. Eftir það sem á undan er gengið væri sjálfsagt eðlilegast að láta nú staðar numið. Gangast við því að Baugsmálið er draugur vakinn upp úr fúlum pytti rógmælgi og ann- arlegra tengsla milli einstaklinga sem höfðu beðið skipbrot í við- skiptum og einkalífi og heiftúðugra stjórnmálamanna. Láta málið falla niður dautt. En nú er ekki útlit fyrir það. Lögspakir menn halda því fram að samkvæmt laganna bókstaf sé unnt að halda mála- rekstrinum áfram. Einhvern veginn er nú erfitt fyrir leikmann að koma því heim og saman við almenna skynsemi eða hugmyndir um mannréttindi en lögfræði á ekki alltaf samleið með þessu tvennu þannig að svo kann að fara að Baugsundrin haldi áfram enn um sinn. En ef svo verður þarf að hreinsa til þannig að sakborningar í Baugs- máli og öðrum málum sem rekin eru og rekin verða fyrir dómstólum geti verið þess fullvissir að fjallað verði um mál þeirra af hlutlægni og faglegri kunnáttu og án þess að annarleg sjónarmið liggi að baki. Embættismenn flokks og ríkis, Björn Bjarnason dómsmálaráð- herra og Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri, bera hvor um sig og sameiginlega ábyrgð á þeirri réttaróvissu sem orðin er í Baugs- máli og til er komin vegna þeirra stórfelldu afglapa sem framin voru við rannsókn og ákæru í málinu og lýst er með skorinorðum hætti í dómsorði Hæstaréttar. Það hefur komið í ljós að embætti ríkislög- reglustjóra veldur ekki hlutverki sínu þegar á herðir. Það er því mikilvægt og nauðsynlegt fyrir traust almennings á réttarkerfinu að þessir embættismenn axli ábyrgð sína, geri það sem skyldan býður og segi af sér hið allra fyrsta. Múrbrot Kristján Sveinsson fjallar um Baugsmálið ’Eftir það sem á undaner gengið væri sjálfsagt eðlilegast að láta nú staðar numið.‘ Kristján Sveinsson Höfundur er sagnfræðingur í Reykjavík. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn AR G US / 05 -0 73 5 STARFI NÁM SA M H L I ‹ A Sjálfstæ›ur rekstur Námið er ætlað sjálfstætt starfandi sérfræðingum með lítinn eða meðal- stóran rekstur. Námið er kjörið fyrir þá sem vilja öðlast færni við að nýta tækifæri og afla sér meiri þekkingar á sviði stjórnunar og reksturs. Markmiðið er að sjálfstætt starfandi sérfræðingar geti aflað sér hag- nýtrar þekkingar á stjórnun og rekstri lítilla fyrirtækja, sem auðveldar framkvæmd og ákvarðanatöku varðandi rekstur, fjármál, bókhald, stjórnun og starfsmannamál og markaðs- og þjónustumál. Námi› er eitt misseri og er 7,5 einingar á háskólastigi. Umsóknarfrestur fyrir vormisseri er til 15. nóv. Kennarar: • Ásta Dís Óladóttir, a›junkt vi› HÍ og doktorsnemi vi› Vi›skiptaháskólann í Kaupmannahöfn • Bjarni Frímann Karlsson, lektor vi› HÍ • Kristján Jóhannsson, lektor vi› HÍ • Magnús Pálsson, forstö›uma›ur flróunarsvi›s hjá Sparisjó›i Hafnarfjar›ar • Reynir Jónsson, vi›skiptafræ›ingur og sjálfstætt starfandi rá›gjafi • Námstími: 12. janúar 2006 til júní 2006 Nánari uppl‡singar og umsóknir á www.endurmenntun.is e›a í síma 525 4444.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.