Morgunblaðið - 03.11.2005, Page 36

Morgunblaðið - 03.11.2005, Page 36
36 FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FASTEIGNAGJÖLD í Reykja- vík nema 0,4% af verðmæti eigna. Til viðbótar greiðast 0,115% af verðmæti í holræsagjald. Sam- anlögð gjöld sem fylgja fast- eignaverði, réttnefnd fast- eignagjöld, eru því 0,515% af fasteignamati. Eigandi íbúðar, met- in er á 20 milljónir króna greiðir því kr. 103.000 af ráðstöf- unartekjum eftir skatta í fast- eignagjöld. Að því gefnu að tekjur íbúðareigandans séu yfir skattleys- ismörkum má því ætla að um 170.000 krónur af brúttólaunum hans gangi til greiðslu fasteigna- gjalda. Hjón í 20 milljón króna íbúð með fimm milljónir króna í árslaun greiða þannig um 3,4% heild- artekna sinna í fasteignagjöld. Þetta er svipuð upphæð og árlegur kostnaður við eldsneyti á venjulegan fólksbíl, svo dæmi sé tekið. Fasteignagjöld fylgja fasteignamati, en þróun þess fylgir að mestu breytingum á húsnæð- isverði. Síðast þegar fasteignagjöld voru lögð á hækkuðu þau þannig um tæp 17%, í samræmi við hækkun fast- eignamats (sjá línurit). Frá áramótum hefur húsnæðisverð í Reykja- vík hækkað um nær 30%. Líklegt er að næsta álagning fasteignagjalda endurspegli þetta. Íbúð sem um síðustu áramót var metin á 20 milljónir króna gæti þannig hafa hækkað í 26 milljónir. Líkleg fast- eignagjöld yrðu þá um 134.000. Hjónin í dæminu þurfa því að afla um 57.000 króna brúttótekna í við- bót til að standa straum af fast- eignagjöldum á næsta ári. Hjá þeim færi helmingur þeirrar 2,3% kaupmáttaraukningar sem spáð er á árinu beint í aukin fasteignagjöld. Sé ekki um kaupmáttaraukningu að ræða þyrfti fjölskyldan að skera niður í annarri neyslu. Á síðustu fimm árum hefur íbúðaverð hækkað um 105% á með- an laun hafa hækkað um 45%. Munurinn er um 60 prósentustig eins og sést á með- fylgjandi grafi. Sú eignaaukning sem verður til með hækkun húsnæð- isverðs er vissulega mikil. Hins vegar kemur hún fáum til góða í raun, enda fæstir í þeirri stöðu að geta innleyst hagnaðinn. Ekki dugar heldur að selja íbúðina og leigja aðra, því leiguverð end- urspeglar að sjálf- sögðu fasteignagjöldin líka. Á síðasta ári varð nokkur um- ræða um hvernig best væri að borgaryfirvöld brygðust við hækk- un fasteignamats. Vildu ýmsir draga úr áhrifum hækkunarinnar. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks lagði til dæmis síðasta vetur fram tillögu um að borgin hækkaði ekki fasteignagjöld umfram verðlagsþróun. Hún hlaut ekki náð fyrir augum meirihlutans. Ekki er ólíklegt að slíkar raddir verði enn háværari nú þegar tvö- falt meiri hækkun er fyrirsjáanleg. Kostnaður einstaklinga vegna fasteignagjalda hefur stóraukist á síðustu árum, í takt við hækkað húsnæðisverð. Þessi kostnaður er ekki í neinu samræmi við ráðstöf- unartekjur. Fasteignagjöldin verka því á vissan hátt eins og nefskattur og koma oft harðast niður á þeim tekjulægstu, til dæmis á ellilífeyr- isþegum. Nauðsynlegt er að endur- skoða þessa skattlagningu enda ljóst að ekkert samhengi er milli kostnaðar sveitarfélaga af þjónustu við fasteignir og þeirrar verðþróun- ar sem verið hefur undanfarið á fasteignamarkaði. Til dæmis mætti huga að því að festa gjöldin héðan í frá við vísitölu neysluverðs eða byggingarvísitölu, eða þá fella þau niður og hækka útsvarsprósentu á móti sé þess þörf. Fer kaupmáttaraukningin í fasteignagjöld? Þorsteinn Siglaugsson fjallar um hækkun fasteignagjalda ’Kostnaður einstak-linga vegna fasteigna- gjalda hefur stóraukist á síðustu árum, í takt við hækkað húsnæðisverð. Þessi kostnaður er ekki í neinu samræmi við ráðstöfunartekjur.‘ Höfundur er hagfræðingur. Þorsteinn Siglaugsson Uppsöfnuð hækkun fasteignaverðs á höfuðborg- arsvæðinu umfram laun frá árslokum 1999. OFFITA er vaxandi vandamál meðal barna á Íslandi, fyrir því eru aðallega tvær ástæður, mataræðið og minni hreyfing. Við fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Menntaráði lögðum fram svohljóð- andi tillögu í ráðinu 17. febrúar sl. „Fulltrúar Sjálfstæðismanna leggja til að gerð verði úttekt á næringargildi matar sem nemendum í skól- um og leikskólum borgarinnar er boðið upp á. Úttektin verði gerð í samráði við fag- aðila. Starfsmenn Fræðslumiðstöðvar og Leikskóla Reykjavíkur komi með tillögur um tilhögun og fram- kvæmd verksins.“ Tillögunni var frest- að en loksins afgreidd og samþykkt á fundi Menntaráðs 1. september sl. – meira en hálfu ári síðar. Rík ástæða er til að skoða það sem börnin okkar fá að borða í skólanum. Er MSG í matnum? Hvert er syk- urmagnið? Hvernig hefur maturinn verið unninn og hvert er næring- arinnihaldið? Hvaða aukaefni eru notuð? Hvert er magn fitu? Og svo mætti lengi telja. Það er nauðsynlegt að velta því fyrir sér af hverju við þurfum að setja sætuefni og/eða aukaefni s.s. aspartam í matvöru. Er ekki nær að nota náttúrulegar afurðir s.s. ávexti eða einfaldlega hrásykur til að bragðbæta þær matvörur sem við bjóðum börnunum okkar uppá? Hrá- sykur er þó náttúruleg afurð og lík- aminn vinnur úr honum. Næringarinnihaldið Í matvöruverslununum má oft sjá fólk með fullar körfur af unnum mat- vörum til að stinga beint í ofninn, sykurlausu gosi með aspartam og öðrum aukaefnum, snakki með MSG, mjólkuraf- urðum með aspartam og svona mætti lengi telja. Meira og minna tilbúnar afurðir með af- ar lítið næringargildi. Það eru allt of margir sem átta sig ekki á því hve lítil næring er í ýmsum þeim vörum sem við kaupum. Vand- inn er sá að því minni næring sem er í því sem við borðum því meira þurfum við að innbyrða til að mæta nær- ingar þörfinni. Þessi orkulausi mat- ur stuðlar að hreyfingarleysi því án orkunnar er erfitt að hreyfa sig. Út- koman er offita. Það er ekki furða þó að börn séu þreytt, áhugalaus og pirruð ef næringin sem þau fá upp- fyllir ekki þarfir þeirra. Fræðsla Mikilvægt er að fræða börn og foreldra í auknum mæli um næring- arinnihald hinna ýmsu fæðuflokka. „Við erum það sem við borðum.“ Börn eru móttækileg fyrir hvers kyns fræðslu, foreldra með sitt fyrsta barn þyrstir í fræðslu. Við þurfum að leggja áherslu á að fræða foreldra og börn um mikilvægi góðr- ar næringar og hjálpa foreldrum við að velja það sem best hentar börnum þeirra. Sýnum gott fordæmi í leik- og grunnskólum borgarinnar. Við erum á góðri leið og mötuneytin sem kom- in eru þegar í marga af skólum borg- arinnar lofa svo sannarlega góðu. En það er ekki nóg að hafa búninginn, innihaldið skiptir höfuðmáli. Höfum metnað til að gera enn betur í þess- um efnum í Reykjavík. Að mörgu er að hyggja, með aukinni fræðslu, fyrsta flokks hráefni og góðu for- dæmi getum við uppskorið ánægðari og einbeittari börn. Mataræði barna skiptir máli Eftir Jórunni Frímannsdóttur ’Að mörgu er aðhyggja, með aukinni fræðslu, fyrsta flokks hráefni og góðu for- dæmi getum við upp- skorið ánægðari og ein- beittari börn.‘ Jórunn Frímannsdóttir Höfundur er hjúkrunarfræðingur og varaborgarfulltrúi og gefur kost á sér í 4. sætið í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins. Prófkjör Reykjavík Á UNDANFÖRNUM árum og áratugum hefur margt verið ritað um byggðamál og byggðastefnu og ýmsir hópar settir í það verk að finna lausnina á þeim vanda sem skapast í fámenni við að fólk flyst burt, en án mikils sýnilegs árangurs. Stærstur hluti byggðaröskunar er fylgifiskur eðlilegra þjóðfélagsbreytinga sem erfitt er að ráðast gegn og ef til vill ástæðulaust að ráðast gegn. Fólk flyst úr fá- menninu í þéttbýlið, þar eru fjölbreyttari atvinnutækifæri og þjónustan betri. En fólksfækkun er slæm fyrir þá sem eftir verða. Það verður dýr- ara að halda uppi eðli- legri þjónustu og ef til vill ómögulegt að bjóða upp á allt sem íbúarnir vilja eiga kost á. Auðvitað má meta gildi búsetu á lands- byggðinni með öðrum hætti en út frá hag- kvæmninni einni sam- an, en sama hvert matið er, þá eru það íbúar landsbyggðarinnar sem líða fyrir þá röskun sem verður og á því þarf að taka. Þjóðfélagsbreytingar ráða einnig miklu um stöðu Akureyrar eins og annarra byggðarlaga. Vöxtur og uppbygging er því ekki eingöngu háð því sem við gerum eða gerum ekki heldur ráða þar að miklu leyti þættir sem við höfum lítil sem engin áhrif á. Bestu dæmin eru harðnandi alþjóðleg samkeppni í okkar helstu útflutningsgreinum bæði á sviði iðn- aðar og sjávarútvegs. Án þess að fara nánar út í það hér sýnir svokölluð SVÓT greining á stöðu Akureyrar að möguleikar svæðisins eru miklir, en til að nýta þau tækifæri sem framtíðin býður uppá þarf samstillt átak lands- stjórnar, bæjarstjórnar og atvinnu- lífs. Við þurfum að leggja áherslu á að auka útflutning frá okkar svæði til útlanda eða annarra landshluta til að styrkja undirstöðu samfélags- ins, um það hljóta allir að vera sam- mála. Spurningin er því á hvaða sviðum sé vænlegast að auka út- flutning? Lítum aðeins á stöðuna í dag:  Sjávarútvegur – aukin hagræð- ing og tæknivæðing þýðir fækk- un starfa bæði á landi og sjó.  Landbúnaður – auk- in hagræðing mun fækka störfum.  Bankar og fjár- málastofnanir – störfum mun fækka í hefðbundinni bankastarfsemi en fjölga á nýjum svið- um, sumum tengd- um útrás bankanna, náum við í þau störf?  Iðnaður – þjónusta við atvinnulífið og uppbygging mun fjölga störfum. Möguleikar á stór- iðju á Norðurlandi skipta hér miklu máli.  Ferðaþjónusta – talsverðir mögu- leikar á fjölgun starfa með bættum samgöngum og auk- inni afþreyingu.  Verslun og af- þreying fer vaxandi með auknum íbúafjölda, fleiri námsmönnum og kröfunni um betri þjónustu.  Starfsemi hins opinbera fer án efa áfram vaxandi á landsvísu, náum við í þau störf?  Framhaldsskólar og háskólinn – aukið vægi endurmenntunar og rannsókna mun fjölga störfum.  Heilbrigðisþjónusta – miklir möguleikar á fjölgun starfa.  Ný svið og ný starfsemi tengd aukinni menntun mun geta skap- að hér fleiri störf, en það er lang- tíma verkefni. Þessi upptalning sýnir að mögu- leikarnir eru helstir í þjón- ustustörfum hverskonar bæði á veg- um opinberra og einkaaðila og í iðnaði og þá sérstaklega tengdum stórum verkefnum á því sviði. Orðunum um eflingu Akureyrar og Eyjafjarðarsvæðisins þurfa að fylgja athafnir, sem í sumum til- fellum kosta tilfærslu verkefna og fólks. Opinber þjónusta fer vaxandi og Akureyri er eini staður landsins sem hefur raunverulega möguleika á að taka við slíkum störfum. Hér er ég ekki að tala um að setja niður tvo, fjóra starfsmenn, sem eingöngu sinna staðbundnum verkefnum frá höfuðstöðvunum í Reykjavík, heldur heilu stofnanirnar eða sér- fræðideildir sem ætlað er það hlut- verk að sinna landinu öllu. Stórar sérfræðideildir krefjast ákveðins umhverfis og góðrar þjón- ustu sem hér er til staðar og því er Akureyri í raun eini raunhæfi val- kosturinn þegar rætt er um að byggja upp slíka þjónustu á lands- byggðinni. Það er engin byggðastefna fólgin í því þegar stjórnmálamenn rétta upp hönd og samþykkja að efla beri ákveðin svæði, en eru síðan ekki til- búnir til að fylgja þeim sam- þykktum eftir með nauðsynlegum fjármunum og aðgerðum. Orðum þurfa að fylgja athafnir. Það er já- kvæð byggðastefna fyrir landið allt að leggja áherslu á að efla Akureyri sem góðan búsetukost í landinu, ekki sem mótvægi við höfuðborg- arsvæðið heldur sem öðruvísi val- kost sem laðar að fólk og fyrirtæki. Efling Akureyrar – jákvæð byggðastefna Eftir Ásgeir Magnússon Ásgeir Magnússon ’… möguleik-arnir eru helstir í þjónustustörf- um hverskonar bæði á vegum opinberra og einkaaðila og í iðnaði …‘ Höfundur er forstöðumaður skrif- stofu atvinnulífsins á Norðurlandi og gefur kost á sér í prófkjöri Samfylk- ingarinnar í prófkjörinu á Akureyri. Prófkjör Akureyri                  Föt fyrir allar konur á öllum aldri Nýbýlavegi 12, Kópavogi, sími 554 4433 Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-16

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.