Morgunblaðið - 03.11.2005, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 03.11.2005, Qupperneq 38
38 FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN SJÖTTA október sl. var haldinn stofnfundur samtakanna Flugkef. Samtökin Flugkef eru þverpólitísk samtök í Reykjanesbæ sem ætla að beita sér fyrir því að verði miðstöð innanlandsflugs flutt úr Vatnsmýr- inni verði það til Keflavíkur. Mark- mið félagsins er að sýna fram á að flutningur miðstöðvar innanlands- flugsins til Keflavíkur, samhliða samgöngubótum milli Keflavík- urflugvallar og miðborgar Reykja- víkur, sé hagkvæmur kostur fyrir alla landsmenn og vel sé hægt að ná þjóðarsátt um málið. Sparast allt að 1.700 milljónir á hverju ári? Á stofnfundi samtakanna kom fram að verði ákveðið að byggja nýjan flugvöll í næsta nágrenni Reykjavíkur fyrir 8–12 milljarða gæti það kostað ríkissjóð allt að 1.700 milljónir á hverju ári að reka slíkan flugvöll fyrir utan nauðsynleg samgöngumannvirki. Þessir út- reikningar eru ekki byggðir á ná- kvæmri kostnaðaráætlun heldur er þetta nálgun og ber að höndla það sem slíkt. Það má hins vegar vera ljóst að það er skylda samgöngu- yfirvalda að taka tillit til þessa þegar verið er að meta valkosti við staðsetningu miðstöðvar innan- landsflugs. Tækifæri til uppbyggingar á landsbyggðinni Tækifæri landsbyggðarinnar við flutning miðstöðvar innanlandsflugs til Keflavíkur eru fjölmörg. Ef við gefum okkur það að það reynist rétt að hægt sé að spara 1.700 milljónir á ári með flutningi innanlandsflugs til Keflavíkur. Er þá ekki rétt að spyrja hvernig beri að ráðstafa þessu fé. Að mínu mati kæmi vel til greina að fjárfesta í samgöngu- bótum eða aukinni fjarskiptaþjón- ustu á landsbyggðinni. Auk þess fel- ast fjölmörg önnur tækifæri í flutningnum. Allt árið 2005 er gert ráð fyrir að opinber gjöld sem flug- farþegar um Keflavíkurflugvöll greiði muni nema rúmum 2 millj- örðum króna. Þessi gjöld eru hluti af verði flugfarmiðans sem allir ferðamenn greiða ætli þeir sér að ferðast um Keflavíkurflugvöll. Stór hluti þessarar fjárhæðar rennur til Flugmálastjórnar Íslands eða tæpar 800 milljónir sem eru einkum not- aðar til reksturs flugvalla fyrir inn- anlandsflug og viðhalds alþjóðlegra varaflugvalla á Íslandi. Ætla má að flytjist innanlandsflug til Keflavíkur muni skapast tækifæri til að lækka þessi gjöld og þ.m. lækka flugfar- miða. Þetta hlýtur að vera eitt af því sem taka verður með í reikninginn þegar málið er skoðað í heild sinni af samgönguyfirvöldum. Með lækk- uðu verði skapast tækifæri til að fjölga ferðamönnum til landsins og bjóða þeim þá beint flug út á land án viðkomu í Reykjavík. Þannig má gera ráð fyrir að rekstur innan- landsflugs verði traustari auk þess sem ferðaþjónusta á landsbyggðinni nyti góðs af. Þá er ljóst að þeir sem búa á landsbyggðinni og ætla sér að ferðast til útlanda munu einnig njóta góðs af flutningnum, bæði hvað varðar ferðatíma og kostnað. Innanlandsflug til Keflavíkur – ný tækifæri fyrir landsbyggðina Eysteinn Eyjólfsson, Eysteinn Jónsson, Viktor B. Kjartansson og Páll Ketilsson fjalla um flugvallarmál ’Með lækkuðu verðiskapast tækifæri til að fjölga ferðamönnum til landsins og bjóða þeim þá beint flug út á land án viðkomu í Reykjavík.‘ Frá vinstri: Eysteinn Eyjólfsson, Eysteinn Jónsson, Viktor B. Kjartansson og Páll Ketilsson. Eysteinn Eyjólfsson er formaður Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ, Eysteinn Jónsson er formaður Full- trúaráðs Framsóknarfélaganna í Reykjanesbæ .Viktor er formaður Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ. Páll er formaður sam- takanna Flugke. Þeir sitja allir í stjórn samtakanna Flugkef . Í TÍMARITI Morgunblaðsins hinn 18. september sl. skrifar Stein- unn Ólína ágætan pistil frá Banda- ríkjunum þar sem hún segir m.a. frá skóla dóttur sinnar og þeim margbreytileika í mannlífi sem þar fyr- irfinnst. Steinunn segir það vera „… brott- rekstrarsök að gera grín eða hæðast að öðr- um vegna útlits, kyn- þáttar, trúarbragða eða kynhneigðar foreldra“. Vöktu þessi orð Steinunnar Ólínu at- hygli mína í ljósi þeirrar umræðu sem fram fór hér á landi sl. vetur þeg- ar félagið Siðmennt gerði athugasemdir við óeðlileg tengsl stærsta trúfélagsins í landinu og skóla. Í þeirri umræðu komu fram fjölmörg dæmi sem sýna að í mörgum skólum er það beinlínis óæskilegt að skera sig úr fjöldanum, ekki síst þegar um trúmál er að ræða. Sem kennari í grunnskóla fæ ég fjölda athugasemda frá nem- endum og foreldrum sem leita til mín og telja sig ekki njóta réttlætis í skólunum vegna trúar- eða lífsskoð- ana. Nemendum er t.d. víða gert að taka þátt í trúarlífi eins og kirkju- ferðum og bænahaldi á skólatíma og oft án þess að fyrir liggi samþykki foreldra. Í aðalnámskrá grunnskóla kemur skýrt fram að viðfangsefni nemenda í skólum landsins skuli „… höfða jafnt til drengja og stúlkna, nem- enda í dreifibýli sem þéttbýli og fatl- aðra og ófatlaðra óháð uppruna, trú og litarhætti“. (Almennur hluti bls. 16.) Síðastliðinn vetur var sýnt fram á með fjölmörgum dæmum að á þessu er víða nokkur misbrestur. Hluta af þessum dæm- um má finna á vef Sið- menntar (www.Sid- mennt.is). Sem betur fer á sér stað nokkur umræða um mikilvægi þess að virða margbreytileika mannlífsins í skól- unum og í nýjasta hefti Skólavörðunnar, blaði Kennarasambands Íslands, skrifar Hanna Ragnarsdóttir lektor við Kennaraháskóla Íslands grein um mikilvægi þess að mæta fjöl- breyttum nemendahópi þar sem m.a. fyrirfinnast mismunandi trúar- og lífsskoðanir. Reykjavíkurborg hefur einnig mótað svokallaða fjöl- menningarstefnu þar sem segir að stofnunum borgarinnar sé gert að laga sig að fjölmenningarlegu sam- félagi. Þrátt fyrir góðan vilja og fögur orð fólks úr ýmsum áttum er svo sannarlega á brattann að sækja svo að jafnrétti verði náð og eftir þá um- ræðu sem átti sér stað sl. vetur verð- ur fróðlegt að sjá hver staðan í þess- um málum verður í vetur í skólum landsins. Þegar rætt er um fjölmenningu og fordóma í skólunum er iðulega rætt um fordóma gagnvart mis- munandi kynþáttum sem vissulega er hið besta mál, en það gleymist mjög oft hvort mögulegt sé að skól- arnir séu jafnvel að ýta undir for- dóma gagnvart þeim sem ekki trúa á guð, ekki tilheyra stærsta trú- félaginu í landinu og ekki ætla að fermast eða ætla sér að fermast borgaralega. Íslenska þjóðkirkjan sækir það mjög stíft að komast með boðskap sinn inn í skóla og leikskóla enda engin furða þar sem kirkjunnar menn hafa sagt að ekki séu til störf fyrir alla þá sem útskrifast sem guðfræðingar eða djáknar og þessi störf þurfi því meðal annars að búa til innan skólanna. Þetta meinta at- vinnuleysi guðfræðinga og djákna bitnar því á okkur og börnunum okkar sem ekki tilheyrum þjóð- kirkjunni. Skilaboðin er þau að láta skuli trú- og skoðanafrelsi, umburð- arlyndi og heiðarleg samskipti lönd og leið, það verður að koma í veg fyrir atvinnuleysi guðfræðinga og djákna. Hvernig skóla ætlum við að bjóða æsku landsins? Ætlum við að láta það viðgangast að hluti nemenda sé látinn bíða afskiptalaus frammi á gangi eða inni á bókasöfnum á með- an meirihlutinn er í dagskrá hjá trúfélagi eða trúboðssinnuðum kennurum? Ætlum við að láta það viðgangast að nemendum sé sagt að það sé skylda að mæta til kirkju í desember eins og alþekkt er burt- séð frá trúarskoðunum einstakling- anna? Ætlum við að láta ofsatrúaða kennara skikka börnin okkar til þess að fara með bænir án þess að hafa til þess nokkurt leyfi forráða- manna? Verður fjölmenning- arstefna Reykjavíkurborgar enn eitt árið marklaust plagg? Þessum spurningum verða skólastjórn- endur og yfirvöld menntamála að svara. Við sem eigum börn í skól- unum eigum heimtingu á að fá skýr svör við því hvernig þessum málum verður háttað í skólum landsins og hvort enn eitt árið ætli yfirvöld menntamála að dansa með í um- burðarlausu trúboði eða umbera og virða fjölbreytt mannlíf í skólunum. Skólastarf, trú og fjölbreytt mannlíf Jóhann Björnsson fjallar um trúarbrögð og fjölmenningarstefnu ’Verður fjölmenningar-stefna Reykjavíkur- borgar enn eitt árið marklaust plagg?‘ Jóhann Björnsson Höfundur er kennari og stjórnarmaður í Siðmennt. SAMKVÆMT 19. grein laga um fæðingar- og foreldraorlof (nr. 95 frá árinu 2000) eiga „for- eldrar sem hafa verið í fullu námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns … sjálfstæðan rétt til fæðingarstyrks í allt að þrjá mánuði, hvort um sig“. Upp- hæð fæðingarstyrks til námsmanna er rúmlega 90 þúsund krónur á mánuði. Allt virðist þetta nú gott og blessað og vafalaust njóta margir námsmenn góðs af. En samt fá sumir ekki helming- inn af þessu fé þótt þeir eignist barn og hafi verið í fullu námi í meira en hálft ár þar á undan. Þessu veldur und- arlegt ákvæði í reglugerð með lög- unum (nr. 1056 frá árinu 2004) þar sem segir: „Fullt nám í skilningi laga um fæðingar- og for- eldraorlof og reglu- gerðar þessarar telst vera 75–100% sam- fellt nám í við- urkenndri mennta- stofnun…Leggja skal fram staðfest- ingu frá viðkomandi skóla um að foreldri hafi verið skráð í 75–100% nám og hafi sýnt viðunandi námsárangur.“ Tryggingastofnun ríkisins hef- ur túlkað orðalagið „viðunandi námsárangur“ svo að nemandi í framhaldsskóla þurfi að standast próf í að minnsta kosti 13 ein- ingum á önn. Algengt er að nem- endur í fullu námi í framhalds- skóla taki sex þriggja eininga áfanga á hverri önn, eða alls 18 einingar. Nemandi sem á von á barni, stundar fullt nám og fellur í tveim áföngum og stenst próf í fjórum, fær því aðeins lágmarks- fæðingarstyrk sem er rúmlega 40 þúsund krónur á mánuði. Standist hin verðandi móðir eða faðir hins vegar próf í fimm áföngum fær hún eða hann hins vegar rúmar 90 þúsund krónur á mánuði. Hvernig ætli fólki líði þegar það mætir í próf vitandi að fall kostar svona mikla peninga? Þegar ég frétti fyrst af þessu fyr- irkomulagi trúði ég því varla að þetta gæti verið svo ég hringdi í Trygg- ingastofnun ríkisins og lét fulltrúa sem þar urðu fyrir svörum segja mér þrisvar. Og þetta er víst svona. Ef mamman eða pabbinn á erfitt með nám virðist álitin minni þörf á „að tryggja barni sam- vistir bæði við föður og móður“ eins og þetta er orðað svo fal- lega í markmiðsgrein laganna frá 2000. Fólk á vinnumark- aði fær greiðslur úr fæðingarorlofssjóði hvort sem það stend- ur sig vel eða illa í vinnu en námsmaður sem innritast í ögn erfiðari áfanga en hann ræður við tapar helft framlagsins ef hann fellur. Kannski eins gott fyrir þá sem eiga von á barni og eru ekki nema svona í meðallagi klárir á bókina að passa sig að velja bara létta áfanga. Það er svo sem vitað mál að lög um fæðingar- og foreldraorlof eru ekki beinlínis í anda jafnréttis því þau tryggja ríku fólki miklu hærri greiðslur en fátæku. En er misréttið ekki meira en góðu hófi gegnir eigi smábörn að gjalda fyrir með þessum hætti ef foreldrar þeirra falla á skóla- prófum? Fæðingarstyrkur (sumra) náms- manna Atli Harðarson fjallar um fæðingarstyrk námsmanna Atli Harðarson ’Kannski einsgott fyrir þá sem eiga von á barni og eru ekki nema svona í meðal- lagi klárir á bókina að passa sig að velja bara létta áfanga.‘ Höfundur er aðstoðarskólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands. Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík Silfur servíettuhringur Holtasóley Gull- og Silfursmiðjan Erna Skipholti 3 • sími 552 0775 • www.erna.is Servíettuhringur verður, ef guð lofar, smíðaður eftir nýrri teikningu fyrir hver jól. Hann leysir af hólmi jólasveinaskeiðina, en allar 13 skeiðarnar verða fáanlegar áfram. Kr. 4.900

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.