Morgunblaðið - 03.11.2005, Síða 40

Morgunblaðið - 03.11.2005, Síða 40
40 FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ENN á ný staðfesta Íslendingar í könn- unum að þeir telja sig með hamingjusömustu þjóðum heims, eins og fram kom í flestum fjölmiðlum í gær. Þetta kemur ekki á óvart, hér eru lífsgæði langflestra góð og framfarir miklar á flestum sviðum. Sam- félög manna eru hins vegar ekki sjálfvirkar þvottavélar. Þessa til- finningu fólks þarf að varðveita, þar eiga margir hlut að máli, ekki síst við unga fólk- ið. Aldraðir á Íslandi Þegar einstaklingar meta sig og sínar að- stæður gera þeir það oft með samanburði við aðra í kringum sig. Sú kynslóð sem nú er komin á efri ár lagði grunn að þeirri hag- sæld sem við öll njót- um í dag. Byggði m.a. upp atvinnulífið nánast frá grunni, skólana sem við menntuðumst í, heilbrigðiskerfið sem hefur náð betri árangri en í flestum löndum. Þetta fólk sér með eigin augum þær miklu framfarir sem hafa orðið og þá hagsæld sem við njótum. Þetta er kynslóð sem er mun nægju- samari en þeir sem yngri eru. Þrátt fyrir það er það skylda okkar að búa eins vel að henni og kostur er, þegar hún getur það ekki lengur sjálf fyrir aldurs eða sjúkleika sakir. Henni má ekki finnast hún vera afskipt í ríki- dæmi dagsins í dag. Hamingja allra – sátt kynslóða Það er stundum sagt að það sé mælikvarði á samfélög hversu vel þau búi að þeim sem elstir eru og yngstir. Við sem í dag erum að koma út úr því menntakerfi sem eldri kynslóðir byggðu upp, erum að fara inn í blómstrandi atvinnulíf sem þær lögðu grunn að, eigum að setja okk- ur það markmið að eldri borgarar fái einnig að njóta afrakstursins. Þeir, sem hafa lokið sínu ævistarfi, eiga það skilið að vel sé að þeim búið. Virkja þarf aldraða til hvers kyns samfélags- þátttöku. Fjölga þarf hjúkrunarrýmum og þjónustuíbúðum. Efla þarf heimahjúkrun. Allt þetta þarf að vinna með frjálsum félagasam- tökum, kirkjum og fjöl- skyldunum í borginni. Skylda ungs fólks við eldri borgara Eftir Bolla Thoroddsen Bolli Thoroddsen ’Við, sem erumað koma úr skól- um, sem eldri kynslóðir byggðu upp, er- um að fara inn í atvinnulíf, sem þær lögðu grunn að, eigum að tryggja að þeir sem eldri eru njóti af- rakstursins.‘ Höfundur er verkfræðinemi við HÍ, formaður Heimdallar og sækist eftir 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Prófkjör Reykjavík ÉG BÝÐ mig fram til 5.–7. sætis á lista okkar sjálfstæðismanna í kom- andi prófkjöri. Ég hef kosið að setja fram sjö stefnumál sem ég ætla að berjast fyrir nái ég kjöri. Stefnumál mín eru þessi: 1. Að foreldrar með börn á leikskóla fái þá þjónustu sem þeir greiða fyrir. Leik- skólana vantar starfs- fólk og því miður höfum við orðið vitni að því að leikskólabörn hafa ver- ið send heim á miðjum degi eða ekki tekið við þeim. Þetta er ekki þjónusta sem hægt er að bjóða nokkrum manni og fáar aðrar lausn- ir í spilunum en að lagfæra kjör þess starfsfólks sem starfar á leikskólum borgarinnar því samkeppnin um vinnuaflið er hörð. Borgaryfirvöld eru því miður að uppskera eins og þau hafa sáð til og nú vantar 70 starfsmenn í leikskólana. 2. Að tekið verði upp ávísanakerfi til að örva virka þátttöku barna og unglinga í heilbrigðu og skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi, tónlist- arnámi, o.þ.h. Ég legg áherslu á við förum svipaða leið og Garðabær með því að styrkja foreldra um tiltekna upphæð á ári, sem mætti verða til þess að auka virka þátttöku barna í heilbrigðu tómstundastarfi. Þátt- taka í skapandi tómstundum þar sem börn fá að láta hæfileika sína njóta sín og glæða áhuga þeirra er besta forvörnin gegn vímuefnum og annarri óáran sem glepja börnin okkar. Ég veit líka að margir for- eldrar geta ekki sökum efnahags gefið börnum sínum tækifæri til að stunda tómstundir en með þessu móti getum við komið á móts við þennan hóp. Vinstriflokkarnir hafa ekki einkaleyfi á velferðarmálum sem þessum og því þurfum við sjálf- stæðismenn að taka forystu í þess- um málum. 3. Að stuðla að vexti og valfrelsi í leik- skólum og grunn- skólum með virkara einkaframtaki. Það er nauðsynlegt að bjóða upp á og stuðla að auknu valfrelsi foreldra þegar komið er að þessum mála- flokki. Við sjálfstæð- ismenn eigum að stuðla að jákvæðri en heilbrigðri samkeppni þar sem því verður komið við í anda sjálf- stæðisstefnunnar. 4. Að byggð verði ný hjúkr- unarheimili til að mæta brýnni þörf fyrir eldri borgara. Því miður eru 250 manns samkvæmt upplýsingum borgarstjóra sem bíða eftir hjúkr- unarrýmum. Þessi fjöldi er án efa meiri og því miður hafa borgaryf- irvöld ekki byggt eitt einasta hjúkr- unarheimili á rúmlega 11 ára valda- tíð R-listans. Úr þessum vanda verður að leysa svo fljótt sem kostur er. 5. Að borgin sýni þann metnað að umhverfi sé til sóma í öllum hverfum borgarinnar. Hrein borg. Þótt um- ræða um framtíðarskipulag Reykja- víkur hafi snúist um Vatnsmýrina þá mega ekki hverfi borgarinnar gleymast. Það var mér mikið fagn- aðarefni þegar ákveðið var í borg- arstjórn að taka til umræðu öll hverfi borgarinnar. Því miður hafa sum hverfi borgarinnar drabbast niður og þetta sjáum við t.d. í Breið- holtinu, sem er fjölmennasta hverfi borgarinnar. Við viljum hreina borg og fögur torg í stað þess ástands sem nú er. 6. Að byggð verði mislæg gatna- mót á Miklubraut og Kringlumýr- arbraut. Þessi gatnamót eru sprung- in og nú í sumar var reynt að setja plástur á þau. Skipulag á nýju há- tæknisjúkrahúsi og uppbygging í Vatnsmýrinni með íbúðarbyggð og háskóla kallar á að endurskoða verð- ur umferðarmannvirki til þess að hægt verði að flytja þá tugi þúsunda bíla sem fara um þessa stofnbraut á hverjum degi og umferðin mun aukast. Það verður einnig að koma umferðinni frá þessum gatnamótum með nýjum umferðarmannvirkjum til vesturs. Ef ekkert verður að gert mun stefna í algjört óefni. 7. Að auka lóðarframboð og lækka lóðar- og fasteignagjöld. Lóðir fyrir alla. Það á að vera metnaður borg- arinnar að þeir sem vilja byggja sér húsnæði fái lóð til þess. Lóðar- skortur á ekki að vera til í orðabók okkar sjálfstæðismanna. Við verðum því að auka framboðið og með því móti lækka lóðargjöld. Fast- eignaskattar eru alltaf að hækka á okkur borgarbúa m.a. vegna þess að verð á fasteignum hefur hækkað. Borgaryfirvöld hafa því verið að seil- ast í vasa okkar skattgreiðenda meira en góðu hófi gegnir. Þessu verður að linna. Eigum við samleið? Stefnumál mín varða hag fjöl- skyldunnar og velferð hennar allt frá þeim yngstu til þeirra sem eldri eru, skattamál, skipulagsmál og um- ferðarmál. Ég heiti á stuðning þinn í 5.–7. sæti listans, þitt atkvæði skiptir máli. Sjá nánar á www.- gudnithor.is Þitt atkvæði skiptir máli Eftir Guðna Þór Jónsson ’Ég heiti á stuðningþinn í 5.–7. sæti listans, þitt atkvæði skiptir máli.‘ Guðni Þór Jónsson Höfundur sækist eftir 5.–7. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík. Prófkjör Reykjavík Á NÝAFSTÖÐNUM landsfundi Sjálfstæðisflokksins var mikil áhersla lögð á uppbyggingu velferð- arkerfisins. Á það var ennfremur lögð áhersla að mennt- un og heilbrigðisþjón- usta skyldu ekki vera fyrir fáa útvalda. Vel- ferðarmál hafa verið Sjálfstæðisflokknum hugleikinn og nú er á stefnuskránni upp- bygging á fullkomnu hátæknisjúkrahúsi. Fatlaðir hafa um margt verið afskiptur hópur í samfélaginu. Aldursdreifing fatl- aðra er mikil og þarfir þeirra því mjög mis- munandi. Fatlaðir eiga að hafa valfrelsi til að ákveða hvort þeir vilji starfa á hinum almenna vinnumarkaði fremur en á vernd- uðum vinnustöðum. Mjög mikilvægt er að reynt sé að horfa á hlutina frá sjónarhorni fatlaðra og að þeir fái sem mest valfrelsi. Það er brýnt að gera umbætur á menntakerfi sem og vinnumarkaði fatlaðra. Í atvinnu- lífi samtímans er það í raun sí- menntun sem skiptir mestu máli. Með eflingu símenntunar á að vera unnt að veita fötluðum aðstoð við að treysta stöðu sína á vinnumark- aðinum og um leið draga úr atvinnu- leysi á meðal þeirra. Stuðla þarf enn betur að því að veita þeim tækifæri til að komast inn á almenna vinnu- markaðinn. Fyrir marga eru vernd- aðir vinnustaðir að ýmsu leyti úr sér gengnir þó svo þeirra kunni að vera þörf fyrir aðra. Það eflir sjálfstæði fatlaðra að ekki verði eingöngu litið til þróunar í atvinnumálefnum þeirra út frá verndarsjónarmiðum. Það þarf að breyta hugarfari á vinnumarkaðinum og gera átak til að veita fötluðum jafna möguleika til þátttöku í atvinnulífinu. Víða í Evrópu hefur slík hug- myndafræði náð að ryðja sér til rúms og má ætla að hún hafi alla burði til að vaxa og dafna í okkar sam- félagi. Fatlaðir hafa mikinn áhuga á því að vera virkir þátttakendur á hinum almenna vinnu- markaði. Aukin al- menn atvinnuþátttaka þeirra myndi í senn bæta lífsgæði og lífshamingju fatl- aðra svo ekki sé minnst á fjárhag þeirra. Samhliða myndi slík at- vinnuþátttaka auka víðsýni annarra. Sumir þurfa á því að halda sem nefnt er atvinna með stuðningi. Fötlun er mjög breytileg og brýnt er að fötluðum séu veitt tækifæri til að starfa á jafnréttisgrundvelli, hverjar svo sem aðstæður þeirra eru. Lífskjör fatlaðra eru oft bág, a.m.k. í samanburði við aðra þjóð- félagsþegna. Umræður um málefni fatlaðra snúast því miður alltof oft um kostnað af málefnum þeirra en um leið gleymist að það er þjóð- hagslega hagkvæmt að gefa þeim fötluðu einstaklingum, sem hafa áhuga og getu, kost á að fara út á hinn almenna vinnumarkað. Það er allra hagur að búa vel að fötluðum og alkunna að þeir hafa víða reynst traustir starfsmenn. Ætli má að stærsta hindrunin sé hjá vinnuveit- endum sem oft skortir kjark til að ráða fatlaða einstaklinga til starfa. Í starfsmannastefnu fyrirtækja ættu að vera skýr markmið sem miði að aukinni þátttöku fatlaðra á vinnu- markaðinum. Það eru sem betur fer mörg fyr- irtæki sem standa sig vel og átta sig á að fjölbreytni kemur þeim til góða. Í grunnskólanum sem ég gekk í var fatlaður drengur að nafni Benedikt. Það að hafa Benna með okkur í bekk jók víðsýni annarra nemenda og skilning á daglegu lífi fatlaðra. Ég tel að auka þurfi sam- starf við fyrirtæki í borginni og tryggja aðkomu fatlaðra að störfum í þeirra þágu. Hugarfarsbreytinga er þörf og auka þarf skilning fyr- irtækja á mikilvægi þátttöku fatl- aðra í atvinnulífinu. Aukinn skiln- ingur á fötlun og þörfum fatlaðra á að tryggja þeim jafnrétti á við aðra og um leið tækifæri til að lifa eðli- legu lífi. Viðhorf til atvinnumála fatlaðra þarf að breytast Eftir Davíð Ólaf Ingimarsson ’Mjög mikilvægt er aðreynt sé að horfa á hlut- ina frá sjónarhorni fatl- aðra og að þeir fái sem mest valfrelsi.‘ Davíð Ólafur Ingimarsson Höfundur er hagfræðingur og gefur kost á sér í 7. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Prófkjör Reykjavík BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið, Kringlunni 1, 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is ERINDI þessarar greinar er að koma á framfæri skoðun minni á síð- asta þætti, þáttaraðarinnar „Allt í drasli“. Síðastliðinn vetur hóf Skjár einn sýningar á þáttunum Allt í drasli. þættirnir eru gerðir til afþreyingar fyrir sjónvarpsáhorfendur. Afþrey- ingin og skemmtun þáttanna felst í því að heimsækja fólk sem hefur trassað eða gefist upp á því að halda heimilum sínum hreinum. Eða það hefur hætt að hafa hemil á illri um- gengni sjálfs sín eða annars heim- ilisfólks. Ég hef horft á þónokkra af þess- um þáttum og haft frekar þægilega dægrastyttingu af þeim. En eftir síðasta þátt sem var fyrri hluti heimsóknar til Önnu sem býr á Hesteyri við Mjóafjörð stóð ég mjög ósáttur upp frá sjónvarpinu. Og eftir því sem frá líður hef ég orðið enn ósáttari við þáttinn. Auk þess sem fjöldi fólks sem ég hef talað við og sá þáttinn er mér sammála. Í þættinum var farið til Önnu, aldraðrar einsetukonu. Konu sem hefur búið ein í rúma tvo áratugi, eða allt frá því móðir hennar lést. Í þættinum voru sýndar myndir, teknar á heimili hennar, þar sem allt var jú í drasli. En var húsráðandinn sá rétti til að sýna frá umgengni á sínu heimili. Mitt svar er nei. Og það þvert nei. Anna kom mér fyrir sjónir sem gömul lasburða kona sem á engan hátt getur staðið í stórhreingern- ingum á sínu heimili. Það gefur mér ekkert leyfi að dæma hana en ein- setan virðist sannarlega vera búin að setja mark sitt á líf Önnu og við- horf hennar til hlutanna. Var það til að skemmta okkur áhorfendum að sýna Önnu þar sem hún var að grúska í drasl- haugnum og tína úr honum hluti sem henni voru kærir. Var það til að undirstrika sóðaskapinn að sýna hana í miðjum pappa- kassahaugnum með bókarkápu og kuðungana sína? Gera síðan sem mest úr því að Anna vildi ekki henda neinu nema pappakössunum? Þessi þáttur var ein sú mesta lág- kúra sem ég hef séð í íslensku sjón- varpi. Þar með taldir sjónvarps- þættir sem ganga út á fíflaskap og háð. Það er hægt að heimsækja fólk og sýna því virðingu. Við sem munum þætti Ómars Ragnarssonar þar sem hann meðal annars heimsótti Gísla á Uppsölum og aðra þætti í svipuðum dúr höfum séð í þeim hvernig tala á við fólk af virðingu og sýna aðstæð- urnar sem það býr við með þeim hætti að ekki sé verið að níðast á því. Ég vil því biðja Skjá einn að taka út af dagskrá seinni þáttinn um Önnu á Hesteyri við Mjóafjörð. Það er í verkahring félagsmálayfirvalda í hennar sveitarfélagi að sinna þess- um verkum sem notuð voru í óvægn- um tilgangi gagnvart þessari konu. NJÖRÐUR HELGASON, Lóurima 1, 800 Selfossi. Tiltekt á röngum forsendum Frá Nirði Helgasyni Njörður Helgason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.