Morgunblaðið - 03.11.2005, Síða 50
50 FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Nokkuð bil er á milli þess sem hrút-
urinn vill vera og hvernig aðrir sjá
hann. Það gildir reyndar um alla, svo
ekki hafa áhyggjur af því. Hvað myndi
gerast ef þú afhjúpaðir þig? Spáðu í
það.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nautið flokkar kosti sína og galla og
stillir þeim upp andspænis hverjum
öðrum, eins og einhver sem hygðist
ráða það í vinnu eða bjóða því á
stefnumót myndi kannski gera. Stattu
með sjálfu þér. Þú hefur allt sem þarf.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Málflutningur fyrir framan hóp af hóp
af fólki virðist á döfinni. Kannski
þarftu að leiðbeina á námskeiði. Þú
virðist sallarólegur, eins og þú sért
með allt á hreinu. Enginn áttar sig á
því hversu skelkaður þú ert innst inni.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Líkamlegt atgervi krabbans er í há-
marki. Farðu í langa göngu, eða jask-
aðu þér út í líkamsræktinni. Gerðu
eitthvað sem þreytir þig og ekki óttast
reiðina sem kraumar innra með þér,
nýttu þér hana.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Velgengni þín í samningaviðræðum
ræðst af þörfinni sem býr undir niðri.
Þegar þörfin er mikil, nærðu góðum
samningum. Farðu yfir eignastöðuna,
ef þú finnur fyrir ríkidæmi innra með
þér, gengur allt að óskum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Krafturinn liggur í loftinu, taktu af
skarið og náðu forskoti. Yndisleg
manneskja gæti komið í heimsókn í
eftirmiðdaginn. Daðrið er einlægt á
meðan það varir, en þegar augnablikið
er liðið, hverfur einlægnin.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vogin er gæðaeftirlit, ritskoðari og
friðargæsluliði allt í senn. Auðvitað er
það ekki sérstaklega gaman, en ein-
hver verður að taka það að sér, til þess
að efla liðsandann.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn er í þeirri aðstöðu að fá
að stjórna og elskar hverja mínútu.
Skyldum fjölgar auðvitað að sama
skapi, en hann samþykkir allan pakk-
ann.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaðurinn er nánast að drukkna í
alls kyns verkefnum, en tekst að klára
þau með því að taka fyrir eitt í einu.
Trúðu því að þú eigir að eiga meira en
sem dugir fyrir útgjöldunum. Þér er
ætlað að ná langt.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Steingeitin er vön að frysta óvini sína.
Nú ætti hún að reyna að ganga frá
þeim með gæsku. Yljaðu náunganum
með kurteisi þinni og siðfágun.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Ótímabundnar áætlanir duga ekki til
þess að halda ástvinum við efnið.
Vertu nákvæmari. Kvöldið í kvöld er
upplagt til þess að skoða sinn innri
mann. Gáðu hvað þarfnast lagfær-
ingar.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Göfuglyndi er stundum haft að háði og
spotti. Áttaðu þig á hvenær þú hefur
rétt fyrir þér og haltu þínu striki. Ef
allt um þrýtur, getur þú vísað fólki
veginn með því að láta það halda að
það sé við stjórnvölinn.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Sól og Satúrnus togast
enn á og harka Satúrn-
usar, kennarans mikla í
lífinu, eykst. Segja má að kosmískur
agi einkenni ást og vináttu. Líttu á
það sem tækifæri til þess að sýna vilja-
styrk og kærleika. Ef þig langar bara
nógu mikið að láta eitthvað gerast,
gerist það. Það er alltaf hægt að finna
úrtölur, ef maður gáir. Slepptu því
bara að gá.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 dregur á tálar, 8
árstíð, 9 kinnungur, 10
eldiviður, 11 hnýta skó-
þveng, 13 sár, 15 málms,
18 klöpp, 21 verkfæri, 22
glöddu, 23 ilmar, 24 þol-
góð.
Lóðrétt | 2 skipuleggi, 3
tilbiðja, 4 formóðir
manna, 5 afkvæmum, 6
viðbragð, 7 þver, 12
tunga, 14 reyfi, 15 sak-
laus, 16 elsku, 17 and-
varpi, 18 æki, 19 guðlegri
veru, 20 gef að borða.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 mjólk, 4 sýsla, 7 glíma, 8 ólæti, 9 met, 11 atti, 13
garn, 14 negla, 15 görn, 17 töng, 20 las, 22 flúði, 23 tálmi,
24 glata, 25 lurka.
Lóðrétt: 1 mygla, 2 ólíkt, 3 kram, 4 snót, 5 snæða, 6 asinn,
10 eigra, 12 inn, 13 gat, 15 göfug, 16 rjúfa, 18 örlar, 19
geiga, 20 lina, 21 stal.
Tónlist
Grand rokk | Vaka heldur tónleika
fimmtudaginn 3. nóv. Fram koma Dr.
Spock, Benny Crespo’s Gang og Hoff-
man. Tónleikarnir hefjast kl. 22, frítt inn.
Sjá: www.vaka.hi.is og www.grandrokk.is.
Hafnarborg | Í dag kl. 12 mun harm-
oníkuleikarinn Tatu A. Kantomaa leika
létta tónlist á hádegistónleikum í Hafn-
arborg. Á efnisskránni eru m.a. ung-
versk og rússnesk verk. Antonía Hevesi
er undirleikari og listrænn stjórnandi
tónleikanna, en hádegistónleikarnir eru í
boði Hafnarborgar.
Myndlist
Artótek Grófarhúsi | Bryndís Brynj-
arsdóttir til 6. nóv. Sjá http://
www.artotek.is.
BANANANANAS | Sýning Þorsteins
Otta og hins danska ITSO. „ISOLATED“.
Café Karólína | Margrét M. Norðdahl
„The tuktuk (a journey)“ til 4. nóv.
Café Karólína | Aðalheiður S. Ey-
steinsdóttir opnar sýningu fimmtu-
daginn 3. nóv. kl. 18 (Athugið breytt-
an opnunartíma á þessari sýningu). Á
sýningunni gefur að líta splunkuný
verk, lágmyndir úr tré, eftir Að-
alheiði. Til 2. des.
Gallerí 100° | Einar Marínó Magnússon.
Bryndís Jónsdóttir. Opið mán.–fös. 8.30
til 16.
Gallerí 101 | Haraldur Jónsson sýnir til
26. nóv. Opið fim.–lau. 14 til 17.
Gallerí + Akureyri | Finnur Arnar Arn-
arsson til 6. nóv. Opið um helgar kl. 14-
17 og eftir samkomulagi.
Gallerí I8 | Þór Vigfússon sýnir til 23.
des.
Gallerí Sævars Karls | Guðrún Nielsen
sýnir skúlptúra „Tehús og teikningar“.
Til 3. nóv.
Gallery Turpentine | Arngunnur Ýr og
Amanda Hughen.
Grafíksafn Íslands | Sýning Svanhvítar
Sigurlinnadóttur, Hreyfing og gleði til 13
nóv. Opið fim.–sun. kl. 14 til 18.
GUK+ | Hartmut Stockter til 16. janúar.
Hrafnista Hafnarfirði | Guðfinna
Eugenía Magnúsdóttir sýnir málverk í
Menningarsalnum, 1. hæð, til 6. des.
Jónas Viðar Gallerí | Sigríður Ágústs-
dóttir til 13. nóv.
Karólína Restaurant | Óli G. með sýn-
inguna „Týnda fiðrildið“ til loka apríl
2006. sjá: www.oligjohannsson.com.
Ketilhúsið Listagili | Hrafnhildur Inga
Sigurðardóttir sýnir olíumálverk. Til 6.
nóv.
Listasafn ASÍ | Þorbjörg Þorvaldsdóttir
og Karen Ósk Sigurðardóttir. Til. 6. nóv.
Listasafnið á Akureyri | Helgi Þorgils
Friðjónsson til 23. des.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Tími
Romanov–ættarinnar. Til 4. des.
Listasafn Reykjanesbæjar | Húbert Nói,
til 4. des.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið, yfirlitssýning. Til
2006.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Bernd Koberling til 22. janúar.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús |
Guðrún Vera Hjartardóttir til 30. des.
Erró til 23. apríl.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Jóhannes Sveinsson Kjarval. 120 ár frá
fæðingu málarans. Til 19. mars.
Listasmiðjan Þórsmörk Neskaupstað |
10 listakonur frá Neskaupstað sýna á
Egillstaðarflugvelli.
Listhús Ófeigs | Gunnar S. Magnússon
til 3. nóv.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Lars Tun-
björk til 20. nóv.
Nýlistasafnið | Grasrót sýnir í sjötta
sinn. Til 6. nóv.
Næsti Bar | Sýning um Gamla bíó. Hug-
myndir listamanna. Til miðs nóvember.
Safn | Safn sýnir verk Harðar Ágústs-
sonar (1922 –2005). Verkin á sýningunni
er öll úr eigu Safns.
Safn | Hörður Ágústsson toæ 10. nóv.
Smekkleysa Plötubúð – Humar eða
Frægð | Þorsteinn Otti Jónsson, sýnir
„Börn Palestínu“. Myndirnar á sýning-
unni voru teknar á ferðalagi hans til
herteknu svæðanna í Palestínu árið
2004.
Svartfugl og Hvítspói | Björg Eiríks-
dóttir – Inni – til 13. nóv. Opið alla daga
kl. 13–17.
Þjóðmenningarhúsið | Í veitingastofu
sýnir Hjörtur Hjartarson málverk.
Þjóðminjasafn Íslands | Tvær ljós-
myndasýningar. Konungsheimsóknin
1907 og Mannlíf á Eskifirði 1941–1961. Til
27. nóv.
Þrastalundur, Grímsnesi | Reynir Þor-
grímsson.
Bækur
Súfistinn | Ljóðskáld lesa úr nýjum bók-
um sínum kl. 20 á Súfistanum, Lauga-
vegi 18. Gyrðir Elíasson les úr Upplitað
myrkur, Þorsteinn frá Hamri úr Dyr að
draumi og Oddgeir Eysteinsson les úr
bók Þórarins Eldjárn Hættir og mörk.
Edda – útgáfa.
Söfn
Þjóðmenningarhúsið | Sýnt er íslenskt
bókband gert með gamla laginu, jafn-
framt nútímabókband og nokkur verk
frá nýafstaðinni alþjóðlegri bókbands-
keppni. Sýningin er afar glæsileg og ber
stöðu handverksins fagurt vitni. Fé-
lagsskapur bókbindara sem kallar sig
JAM-hópinn setti sýninguna upp.
Þjóðmenningarhúsið | Handritin – saga
handrita og hlutverk um aldir, Þjóð-
minjasafnið – svona var það, Fyrirheitna
landið, íslenskt bókband, vinningstillaga
að tónlistarhúsi. Hægt er að panta leið-
sögn fyrir hópa. Veitingastofan Matur og
menning býður alhliða hádegis- og kaffi-
matseðil.
Þjóðminjasafn Íslands | Í Þjóðminjasafni
Íslands eru fjölbreyttar og vandaðar
sýningar auk safnbúðar og kaffihúss.
Opið alla daga vikunnar nema mánudaga
kl. 11–17.
Skemmtanir
Keðjan, Nemendafélag Kvennaskólans í
Reykjavík | Eplavikan stendur yfir í
Kvennaskólanum, í hádegishléum verður
söngur og dans og á skemmtun á kvöld-
in.
Fundir
Kristniboðsfélag kvenna | Fundur kl. 17,
í Kristniboðssalnum Háalteitisbraut 58–
60. Gestur fundarins er Haraldur Ólafs-
son kristniboði. Allar konur velkomnar.
Fyrirlestrar
Gigtarfélag Íslands | Áhugahópur GÍ um
vefjagigt heldur fræðslufund kl. 19.30 í
húsnæði GÍ, Ármúla 5, 2. hæð. Sólveig
Hlöðvesdóttir og Hulda Jeppesen
sjúkraþjálfarar á Gigtarlækningastöð GÍ
fræða um hvernig best sé að koma sér
af stað í þjálfun og ekki gefast upp.
Útivist
Stafganga í Laugardalnum | Tímar fyrir
byrjendur og vana í stafagöngu kl. 17.30.
Uppl. og skráning á www.stafganga.is
eða gsm 6168595/6943571.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og
stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is