Morgunblaðið - 03.11.2005, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 51
MENNING
Félagsstarf
Árskógar 4 | Bað kl. 8–16. Handavinna
kl. 9–16.30. Smíði/útskurður kl. 9–
16.30. Boccia kl. 9.30. Helgistund kl.
10.30. Leikfimi kl. 11. Myndlist kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, leikfimi,
myndlist, bókband, fótaaðgerð.
Dalbraut 18 – 20 | Söngur kl. 14, Lýð-
ur Benediktsson mætir með harmón-
ikkuna. Tungubrjótar koma í heimsókn
kl. 15. Skráning á Halldór í Hollywood.
Fastir liðir. Sími: 588 9533.
FEBÁ, Álftanesi | Útskurðar- og út-
sögnarnámskeið í smíðastofu grunn-
skólans á fimmtudögum kl. 15.30–
18.30. Áhöld og viður til að skera út á
staðnum. Kennari Friðgeir H. Guð-
mundsson. Sperrileggirnir ganga sam-
an, með eða án stafa, þriðjudags- og
fimmtudagsmorgna frá kl. 10–11. Mæt-
ing fyrir framan Bessann og molasopi
þar eftir göngu. Allir 60 ára og eldri
velkomnir í hópinn. Nánari upplýsingar
hjá Guðrúnu, sími 565 1831.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferða-
nefnd | Aðventuferð eldri borgara til
Kaupmannahafnar. Síðustu forvöð eru
nú að skrá sig í ferð 4.–7. desember á
vegum Emils Guðmundssonar og Fé-
laga eldri borgara í Kópavogi og Sel-
fossi. Skráning og nánari upplýsingar
eru hjá félagsmiðstöðvunum. Einnig
hjá Kolbeini Inga s: 482 2002/
697 8855 eða Þráni s: 554 0999.
Greiða þarf ferðina fyrir 4. nóvember.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids
í dag kl. 13. Árshátíð félagsins á morg-
un, föstudaginn 4. nóv., miðar seldir á
skrifstofu félagsins.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Gull-
smárabrids. Bridsdeild FEBK í Gull-
smára spilar alla mánu– og fimmtu-
daga. Skráning kl. 12.45 á hádegi. Spil
hefst kl. 13. Kaffi og meðlæti fáanlegt í
spilahléi.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Gler-
skurður kl. 9, ullarþæfing og perlur kl.
13.30 í Kirkjuhvoli. Vatnsleikfimi kl.
9.45, karlaleikfimi kl. 13.15 í Mýri.
Handavinnuhorn kl. 13 í Garðabergi.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Fé-
lagsvist í Garðabergi kl. 20.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 10.30
helgistund, umsjón sr. Guðmundur
Karl Ágústsson. Kl. 12.30 vinnustofur
opnar m.a. myndlist og fjölbreytt
föndurgerð. Kl. 13.30 leggur
Gerðubergskór af stað í heimsókn í
„opið hús“ í Laugarneskirkju. Allar
uppl. á staðnum og í síma 575 7720.
Félagsstarfið Langahlíð 3 | Hand-
mennt almenn, kaffiveitingar og bingó
kl. 15.
Hraunbær 105 | Kl. 9 perlusaumur,
postulínsmálun, hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kaffi, spjall, dagblöðin. Kl. 9
hárgreiðsla. Kl. 10 boccia. Kl. 11 leikfimi.
Kl. 12 hádegismatur. Kl. 14 félagsvist.
Kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9,
leikfimi kl. 11.20, glerbræðsla kl. 13.30
og bingó kl. 13.30.
Hvassaleiti 56–58 | Hannyrðir hjá
Halldóru kl. 9–16. Boccia kl. 10–11. Fé-
lagsvist kl. 13.30, góðir vinningar, kaffi
og nýbakað. Böðun fyrir hádegi. Fóta-
aðgerðir 588 2320. Hársnyrting
517 3005.
Hæðargarður 31 | Sönghópur kl.
13.30. Siffi mætir.
Korpúlfar, Grafarvogi | Sundleikfimi í
Grafarvogslaug á morgun kl. 9.30.
Kvenfélagið Hrönn | Jólapakkafundur
fimmtudaginn 3. nóv. kl. 20 í Borg-
artúni 22, 3. hæð. Sjáumst sem flest-
ar. Stjórnin.
Laugardalshópurinn í Laugardalshöll
| Leikfimi í dag kl. 12.10.
Norðurbrún 1, | Kl. 9–12 leir, kl. 9–
16.30 opin vinnustofa, kl. 11.30 bæn-
arstund, kl. 13–16.30 leir, kl. 9 smíði.
Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höf-
uðborgarsvæðinu | Félagsheimilið,
Hátúni 12. Skák í kvöld kl. 19.
Vesturgata 7 | Kl 9 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir. Kl 9 Boccia. Kl 9:15 að-
stoð v/böðun. Kl 9:15 handavinna. Kl
10:15 Spænska. Kl 11:45 hádegisverður.
Kl 13 Leikfimi. Kl 13 kóræfing, gler-
bræðsla. Kl 14:30 Kaffiveitingar.
Vesturgata 7 | Helgistund verður kl.
10.30, í umsjón séra Karls Matthías-
sonar. Kór félagsstarfs aldraðra í
Reykjavík syngur við undirleik Kristína
K. Szklenar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
9.30–12.30. Bókband og pennasaum-
ur kl. 9–13, morgunstund kl. 9.30,
boccia kl. 10, hárgreiðsla og fótaað-
gerðarstofur opnar, handmennt alm.
kl. 13–16.30, glerskurður kl. 13, frjáls
spilamennska kl. 13.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kyrrðar- og fyr-
irbænastund kl. 12. Opið hús fyrir eldri
borgara kl. 15. Sr. Birgir Snæbjörnsson
les úr nýrri bók sinni. Stúlknakór Ak-
ureyrarkirkju syngur. Kaffiveitingar og
tónlist. Fullorðinsfræðsla kl. 20. Lof-
gjörð kl. 21.
Árbæjarkirkja | Starf með tíu til tólf
ára börnum í Ártúnsskóla kl. 16. Söng-
ur, sögur, helgistund og leikir.
Áskirkja | Opið hús kl. 14–17. Sam-
söngur undir stjórn organista, kaffi og
meðlæti. Klúbbur 8 til 9 ára barna.
Spilafundur kl. 17–18 í dag. Allir mega
koma með spil. Foreldrum er boðið til
samveru með börn sín í safnaðarheim-
ili II, kl. 10–12.
Breiðholtskirkja | Biblíulestur kl. 20 í
umsjá dr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar.
Lesið er úr Galatabréfinu og efni þess
útskýrt.
Digraneskirkja | Foreldramorgnar kl.
10 á neðri hæð, kl. 11.15 leikfimi I.A.K.
Bænastund kl. 12.10, barnastarf 6 9
ára kl. 17–18, á neðri hæð. Unglinga-
starf kl. 19.3021.30, á neðri hæð.
Dómkirkjan | Opið hús í Safn-
aðarheimilinu kl. 14–16. Kaffi og með-
læti.
Fella- og Hólakirkja | Samverustund í
Gerðubergi í umsjá presta og djákna
Fella– og Hólakirkju kl. 10.30.
Fríkirkjan í Reykjavík | Kyrrðar- og
bænastund í hádeginu á fimmtudög-
um kl. 12.15. Tónlistin er vel fallin til að
leiða mann í íhugun og bæn.
Garðasókn | Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund er hvert fimmtudagskvöld í
Vídalínskirkju kl. 22. Gott er að ljúka
deginum og undirbúa nóttina í kyrrð
kirkjunnar og bera þar fram áhyggjur
sínar og gleði. Tekið er við bæn-
arefnum af prestum og djákna. Boðið
upp á kaffi í lok stundarinnar.
Grafarvogskirkja | Foreldramorgnar
kl. 10–12. Fræðandi og skemmtilegar
samverustundir, ýmis konar fyr-
irlestrar. Alltaf heitt á könnunni, djús
og brauð fyrir börnin. TTT fyrir börn
10–12 ára á fimmtudögum í Húsaskóla
kl. 17.30–18.30.
Grensáskirkja | Hversdagsmessa kl.
19. Hversdagsmessur eru sérstaklega
ætlaðar fólki í önnum dagsins. Áhersla
er lögð á létta og aðgengilega tónlist. Í
hverri guðsþjónustu er altarisganga.
Þorvaldur Halldórsson leiðir tónlistina.
Hallgrímskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.
Orgelleikur, íhugun. Léttur málsverður
í safnaðarsal eftir stundina.
Háteigskirkja | Vinafundir í Setrinu kl.
14. Umsjón sr. Tómas og Þórdís þjón-
ustufulltrúi. Á vinafundum hjálpast
fólk við að vekja upp gamlar og góðar
minningar. Kaffi á eftir.
Hjallakirkja | Kirkjuprakkarar, 6–9 ára
börn, hittast í Hjallakirkju kl. 16.30–
17.30.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Sam-
vera eldri borgara er kl. 15. Við syngj-
um saman, biðjum og svo er hugleið-
ing. Á eftir er kaffi og með því.
Keflavíkurkirkja | Upplýsinga og
kynningarfundur með foreldrum ferm-
ingarbarna í Kirkjulundi kl. 20.30.
KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUM
fim. 3. nóv. kl. 20 á Holtavegi. „Mis-
munandi trúarbrögð“. Gunnar J.
Gunnarsson lektor sér um efnið. Sr.
Kristinn Ág. Friðfinnsson hefur hug-
leiðingu. Allir karlmenn eru velkomnir.
Langholtskirkja | Opið hús fyrir for-
eldra ungra barna kl. 10 – 12. Ingibjörg
Baldursdóttir, hjúkrunarfræðingur,
fjallar um líðan mæðra eftir fæðingu.
Kaffisopi, spjall og söngstund fyrir
börnin.
Laugarneskirkja | Kl. 12 Kyrrðarstund
í hádegi. Að samveru lokinni bíður
málsverður í safnaðarheimilinu á
kostnaðarverði. Kl. 14 Samvera eldri
borgara. Gerðubergskórinn skemmtir
og syngur. Kaffiveitingar í umsjá þjón-
ustuhópsins og kirkjuvarðar. Sr. Bjarni
stýrir samverunni.
Neskirkja | Samtal um sorg kl. 12.05.
Opinn vettvangur þeirra sem glíma við
sorg og missi og vilja vinna úr áföllum
sínum. Þar kemur fólk saman til að tjá
sig eða hlusta á aðra. Prestar kirkj-
unnar leiða fundina til skiptis.
Óháði söfnuðurinn | 12 sporin – and-
legt ferðalag kl. 19–21.
Selfosskirkja | Fundur í Æskulýðs-
félagi Selfosskirkju í Safnaðarheim-
ilinu kl. 19.30 í kvöld.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
ÞAÐ liggur í hlutarins eðli, að eftir
því sem viðfangsefnið er kunnara,
því meir beinist aðalathygli hlust-
enda að flytjandanum. Sérstaklega
á það við hefðbundna klassíska
einsöngstónleika þar sem kunn-
ustu verkefnin verða smám saman
að viðteknum mælistikum.
Svo var einnig á aðeins miðlungi
vel sóttum tónleikum Ólafs Kjart-
ans Sigurðarsonar og Vovku
Ashkenazy í Íslenzku óperunni á
mánudagskvöld. Því þó að dag-
skráin væri í sjálfu sér fjölbreytt,
voru atriðin á hinn bóginn flest vel
þekkt og að auki góðkunnug úr
fyrri dagskrám söngvarans.
Ferskasti þátturinn að þessu
sinni var því píanóleikur Vovku
Ashkenazys, enda fremur sjald-
heyrður hérlendis, hvað þá í undir-
leikshlutverki. Og ekki þarf að tví-
nóna frekar við að nefna, að slíkan
undirleik hafði maður afar sjaldan
heyrt á þessu landi. Í fyrstu hefði
mátt ímynda sér að píanistinn væri
haldinn allt að því sjálfseyðandi
hlédrægni, því hljómstyrkurinn
var oft mörgum gráðum neðar en
maður á að venjast hjá jafnvel fín-
legustu ljóðasöngsspilurum.
En smám saman – ekki sízt fyrir
hvað maðurinn gaf sér oft ríflegan
tíma í yfirveguðum en samt lús-
fylgnum leik sínum – rann upp fyr-
ir áheyrandanum að allt hlyti að
vera með ráðum gert. Því þó að
stundum lægi við að hljómborðs-
lyklarnar bifuðust fremur undan
andardrætti en áslætti, þá heyrðist
ávallt í slaghörpunni. Sama hvað
söngvarinn gaf mikið í, og hefði þó
iðulega dugað til að stútfylla marg-
falt stærri sal.
Eins og fyrr var að ýjað, tæki
varla að tíunda einstök verk, enda
stóð þessutan fátt afgerandi upp
úr í að jafnaði ljómandi góðri túlk-
un þeirra félaga. Helzt má segja að
undirrituðum létti talsvert frá síð-
ustu reynslu af Ólafi Kjartani, því
áður hálfsárar toppnóturnar voru
nú mun óþvingaðri. Skal engum
getum að leitt hvort kverka-
slæmska hafi komið við sögu í
fyrra skiptið, eða markviss æfing í
seinna. En hitt er víst að söngv-
arinn virtist nú í áberandi betra
formi.
Og ólíkt allt of mörgum öðrum
yngri söngvurum var ekki hægt að
væna hann um daufa textatúlkun.
Hvort sem fjallað var um ást-
arkvöl, heift, alsæld eða þórð-
argleði – allt skein það út úr víð-
feðmu tjáningunni, jafnt
heyranlega sem sjáanlega. Oftast
við fyrirmyndarskýran framburð,
jafnt á íslenzku sem á ítölsku,
frönsku, þýzku eða rússnesku.
Helzt saknaði maður fleiri dæma
til tilbreytingar um hlýja brjóst-
tónasönginn sem Ólafur átti fyrr-
um svo auðvelt með, þangað til
stjörnustríðskraftur óperusviðsins
ýtti þeim kosti til hliðar fyrir hálf-
um áratug.
Sem sagt er úr vöndu að velja
hvað hrifið hafi mest. En til að
nefna eitthvað mætti meðal ís-
lenzku laganna minnast á Hamra-
borgina óbrotgjörnu, Í fjarlægð og
Ég lít í anda liðna tíð, þar sem tvö
seinni komust hvað næst brjóst-
tónahlýju fyrri ára. Non più
andrai Fígaró-greifans var eld-
hress herhvöt, drykkjusöngur
Ravels úr Don Kíkóta-söngvarenn-
unni sætkerskinn, og túlk-
unarbreiddin fór út á víðasta völl í
þrennu Jóns Þórarinssonar, „Of
Love and Death“, með hámarki í
My Friend.
Athygliverða sléttsöngsmótun
mátti heyra í Op. 6,4 Tsjækovsk-
íjs, og í tveim þekktari lögum
Rússans, Söngi Mignon og Kvöld-
lokku Don Zhuana, flæddi ljóð-
rænan sem smér af vörum við bók-
staflega bráðnaðan píanóleik
Vovku í fyrra og glettna fingrafimi
í seinna laginu. Kallaði það að von-
um á aukalag, Fuglafangarasöng
Papagenós við gáskafull pan-
flautuinnskot söngvarans. Lauk
þar með skemmtilegum tónleikum
á laufléttum alþýðunótum við af-
bragðsgóðar undirtektir.
Af krafti og mýkt
TÓNLIST
Íslenzka óperan
Sönglög og aríur eftir íslensk og erlend
tónskáld. Ólafur Kjartan Sigurðarson
bassabarýton og Vovka Stefán Ashken-
azy píanó. Mánudaginn 31. október kl.
20.
EINSÖNGSTÓNLEIKAR
Ríkarður Ö. Pálsson
Í DRAUMI gera fæstir sér grein
fyrir að vera ekki vakandi. Draum-
urinn virðist vera veruleikinn allt
þar til svefninum lýkur. En hvað
með það sem við upplifum í vöku?
Er veruleikinn sá sem hann sýnist?
Sjö ára dóttir mín spyr mig stund-
um hvort við séum hugsanlega
sögupersónur í bók sem einhver
annar er að lesa. Þá segi ég henni
að ég hafi lesið einhverntímann að
ýmsar vísbendingar séu um að við
séum inni í risastóru tölvuforriti.
Veruleikinn sé hugsanlega bara
sýndarveruleiki og að við séum per-
sónurnar í tölvuleik. Hver spilar þá
leikinn? Guð?
Draumurinn var að mestu leyti
viðfangsefni Hönnu Dóru Sturlu-
dóttur sópran og Kurt Kopecky
píanóleikara á hádegistónleikum í
Íslensku óperunni á þriðjudaginn.
Á efnisskránni voru lögin Ein
Traum (Draumur) eftir Grieg, Var
det en dröm? (Var það draumur?)
eftir Sibelius og annað í þeim dúr.
Skemmst er frá því að segja að
frammistaða söngkonunnar var
með miklum ágætum; rödd hennar
var þétt og hljómfögur, tæknin
örugg og túlkunin sannfærandi.
Lagið eftir Grieg var tilfinn-
ingaþrungið og gætt áhrifaríkri
stígandi sem naut fullkomins stuðn-
ings píanóleikarans og er sömu
sögu að segja um annað á efnis-
skránni. Með tveimur undantekn-
ingum: Tvær aríur eftir Wagner og
Verdi hefðu þurft kraftmeiri píanó-
bassa; leikur Kopeckys var vissu-
lega fallegur og nákvæmur, en of
fíngerður fyrir hljómburðinn í
Gamla bíói, sem er of þurr til að
flygillinn njóti sín almennilega, sér-
staklega þegar hann á að vera í
hlutverki heillar hljómsveitar.
Fyrir utan þetta voru tónleikarn-
ir skemmtilegir og ég verð að segja
að hádegistónleikar Íslensku óper-
unnar eru yfirleitt alltaf kærkom-
inn flótti frá veruleikanum; það er
einstaklega ljúft að hverfa frá ann-
ríkinu stutta stund í hádeginu og
njóta skáldskapar og tónlistar í
dimmunni í Gamla bíói. Burtséð frá
því hvort veruleikinn sé draumur
eða ekki þá hafa margar rann-
sóknir sýnt fram á að draumar eru
nauðsynlegir; án þeirra myndum
við missa vitið. Ég hef líka heyrt að
listiðkun og menningarstarfsemi sé
draumar samfélagsins, að fólk þurfi
að njóta listar í einhverri mynd ef
grár hversdagsleikinn eigi ekki að
gera alla vitlausa. Hvernig væri líf-
ið án tónlistar? Varla svo eftirsókn-
arvert.
Er lífið draumur?
TÓNLIST
Íslenska óperan
Hanna Dóra Sturludóttir og Kurt Kopecky
fluttu Traum eftir Grieg, Var det en dröm?
eftir Sibelius, Träume eftir Wagner, Ein-
sam in trüben Tagen úr Lohengrin eftir
Wagner og Salce úr Otello eftir Verdi.
Þriðjudagur 1. nóvember.
Söngtónleikar
Jónas Sen
Fréttir á SMS
DAGBÓK