Morgunblaðið - 03.11.2005, Qupperneq 56
56 FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Spenntu beltin og undirbúðu þig undir
háspennumynd ársins með
Óskarsverðlaunahafanum Jodie Foster.
M.M.J. / Kvikmyndir.com
Kvikmyndir.is
Roger Ebert
S.V. / MBL
"Fyrirtaks
skemmtun
sem hægt er
að mæla með"
MMJ - kvikmyndir.com
KynLíf.
MoRð.
DulúÐ.
Velkomin í partýið.
Frá hÖfundi LEthal weApon.
Robert Downey Jr. Val Kilmer
S.V. / MBL
H.J. Mbl.
GlettiLega gÓð og frumLEg
spEnnuGrínmynd með töFf leiKUrum.
Ó.Ö.H / DV
FORSÝND Í KVÖLD!
OKTÓBERBÍÓFEST 26. október - 14. nóvember Nánari upplýsingar um myndir og dagskrá á www.icelandfi lmfestival.is
DOOM kl. 5.45 og 8 b.i. 16 ára
Cinderella Man kl. 5.30 og 8.30 b.i. 14 ára
Flightplan kl. 10.10 b.i. 12 ára
Frozen Land • Sýnd kl. 5.30 Enskur texti
Rize • Sýnd kl. 6 Enskt tal
The Assas. Of R. Nixon • Sýnd kl.8 ísl. texti
L´enfant • Sýnd kl. 8 og 10 ísl. texti
Hip, Hip Hora! • Sýnd kl. 10 ísl. texti
FRUMSÝNING
SIGURVEGARI GULLPÁLMANS
Á CANNES 2005
L.I.B. / topp5.is
H.J. / Mbl.
Listahátíðin Unglist hefurverið haldin ár hvert frá1992 í samstarfi við Hitt
húsið, menningar- og upplýsinga-
miðstöð unga fólksins.
Hátíðin er nú haldin í þrettánda
sinn og stendur hún yfir í viku. Á
dagskrá vikunnar kennir ýmissa
grasa. Myndlist, tónlist, hönnun og
leiklist er meðal þess sem þáttak-
endur og áhorfendur geta upplifað
á hátíðinni.
Hátíðin hefst á morgun, föstudag, með myndlistar-
maraþoni í upplýsingamiðstöð Hins
hússins, Pósthússtræti 3–5, milli
klukkan 13 og 17. Þátttakendur fá
afhent gögn og reglur um þátttöku.
Maraþonið er opið öllum á aldr-
inum 16 til 25 ára og geta áhuga-
samir skráð sig til þátttöku á staðn-
um.
Þátttakendur hafa sólarhring til
að vinna verk sín og skila þeim af
sér. Afraksturinn verður svo
hengdur upp í Gallerý Tukt og
dómnefnd veitir verðlaun fyrir þrjú
bestu verkin. Vegleg verðlaun
verða í boði fyrir sigurvegara frá
Myndlistaskólanum í Reykjavík og
Lucas myndlistavörum.
Annað kvöld er svo komið aðleikhúsgjörningi eftir hina
ítölsku Firenza Guidi en það er opn-
unaratriði Unglistar. Guidi er list-
rænn stjórnandi Elan Wales, og
hefur starfað áður hér á Íslandi í
verkefninu Vera, við munum berj-
ast með ástina að vopni en það var
samstarfsverkefni Lab Loka og
Elan Wales með þátttöku LHÍ,
Menntaskólans í Hamrahlíð og Ólöf
Danskompaní.
Gjörningurinn ber heitið The
Chinaman og þátttakendur eru frá
Íslandi, Þýskalandi, Frakklandi,
Ítalíu og Wales. Með Firenzu koma
fjórir meðlimir Elan sem einnig
taka þátt í sýningunni. Ungmennin
íslensku, sem þátt taka, eru úr
Menntaskólanum við Hamrahlíð og
einnig mun stúlknakór úr skólanum
Vox Feminae taka þátt í sýning-
unni.
The Chinaman er partur af fimm
sýningaröðum sem eiga að virkja
ungt fólk í listinni og er sýningin á
Íslandi önnur í röðinni. Í mars síð-
astliðnum voru tveir ungir íslenskir
listamenn sendir til Ítalíu og tóku
þar þátt í sýningunni Artemisia og
munu fulltrúar Íslands einnig taka
þátt í þremur komandi verkefnum
Elan.
Það fara fram tvær sýningar á
The Chinaman annað kvöld, klukk-
an 19 og klukkan 21, í Sundhöllinni
í Reykjavík. Aðgangur er ókeypis
líkt og á alla viðburði hátíðarinnar.
Dagskrá Unglistar er afar fjöl-breytt alla vikuna. Þegar
rennt er yfir dagskrárliði er þar
ýmislegt sem fangar athygli manns
og margt sem maður gæti hugsað
sér að taka þátt í … ef maður væri
ekki kominn á aldur! Ungir sem
aldnir geta þó notið afraksturs
Unglistar víða um borg. Ber þar
fyrst að nefna Lifandi bókasafn
sem starfrækt verður í upplýsinga-
miðstöð Hins hússins dagana 9. til
11. nóvember, milli klukkan 14 og
18. Gestir og gangandi geta fengið
að láni í 45 mínútur í senn lifandi
„bækur“, sem í þessu tilfelli eru
manneskjur. Tilgangurinn með út-
láninu er að gefa almenningi kost á
að kynnast ólíku fólki sem gæti
flokkast undir minnihlutahópa í
samfélaginu eða hópa sem oftar en
ekki mæta fordómum frá sam-
ferðamönnum, svo sem lesbíur, lög-
reglumenn, fatlaðir, innflytjendur,
fyrrum fíkniefnaneytendur, ellilíf-
eyrisþegar og fyrrum fangar.
Hugmyndina um Lifandi bóka-
safn má rekja til Danmerkur en ár-
ið 2000 var þessu fyrst hrint í fram-
kvæmd á árlegri Hróarskelduhátíð
þar í landi. Lifandi bókasafn hefur
nú verið sett á laggirnar víða um
Evrópu í tengslum við ýmiss konar
lista- og menningarhátíðir.
Sundlaugagestir í Laugardals-
lauginni geta svo á laugardaginn
kemur nært bæði líkama og sál í
heitu pottunum en þar verða
hengdar upp smásögur eftir Arn-
dísi Þórarinsdóttur gestum til af-
lestrar. Smásögur Arndísar eru af-
rakstur sumarvinnu hennar hjá
Hinu húsinu undir formerkjum
Skapandi sumarstarfs.
Nemar í Iðnskólanum í Reykjavík
sýna föt úr eigin smiðju, heitustu
danssporin í íslenskri dansmenn-
ingu verða kynnt áhugasömum og
framhaldsskólarnir bítast í svoköll-
uðu leikhússporti. Allt þetta og
miklu meira er hluti af fjölbreyttri
dagskrá Unglistar í þetta sinn.
Hitt húsið á sannarlega hrósskilið fyrir áralangt starf í
þágu íslenskra ungmenna. Unglist
og Skapandi sumarstarf er fyrir-
taks framtak af hálfu hússins, ýtir
undir frjóa hugsun, skapandi störf
og frumkvæði ungmenna á hinum
ýmsu sviðum menningar og lista.
Listahátíð unga fólksins
’Gestir og gangandigeta fengið að láni í 45
mínútur í senn lifandi
„bækur“, sem í þessu
tilfelli eru manneskjur.‘
AF LISTUM
Birta Björnsdóttir
Morgunblaðið/Kristinn
Götuleikhúsið kom fram á setningarhátíð Unglistar í Ráðhúsinu í fyrra.
birta@mbl.is
www.unglist.is
JÓLIN ERU greinilega á næsta leiti en
breska dagblaðið Daily Mail hefur tekið
saman lista yfir þau lög sem fólk vill síst
heyra þegar það tekur upp jólapakkana.
Flestir þeirra sem tóku þátt í könnun
blaðsins hugsuðu með hryllingi til lagsins
„Mistletoe and Wine“ sem sir Cliff Rich-
ard söng inn á plötu árið 1988. Jólalagið
sem næstflestir hugsa með hryllingi til er
lagið „Do They Know It’s Christmas“,
sem hópur tónlistarmanna söng inn á
plötu til stuðnings bágstöddum í Afríku.
Alls tóku 2.000 manns þátt í könn-
uninni.
Topp 10 listinn yfir verstu jólalögin:
1. „Mistletoe And Wine“ með Cliff Rich-
ard (25,1%)
2. „Do They Know It’s Christmas?“ með
Band Aid (13,5%)
3. „Angels“ með Robbie Williams (7,9%)
4. „I Wish It Could Be Christmas
Everyday“ með Wizzard (6,9%)
5. „Driving Home for Christmas“ með
Chris Rea (6,2%)
6. „Last Christmas“ með Wham! (5,7%)
7. „Merry Christmas Everybody“ með
Slade (5,5%)
8. „Mary’s Boy Child – Oh My Lord“ með
Boney M (5%)
9. „Merry Christmas Everyone“ með
Shakin’ Stevens (4,1%)
10. „When A Child Is Born“ með Johnny
Mathis (3,7%)
Versta jólalagið valið
AP
Sir Cliff Richard sýnir hér ilmvatn sem ber heiti lags hans
„Miss You Nights“. Ólíklegt er að ilmvatn verði nefnt eftir
jólalagi hans.
Á MORGUN verður blásið til helj-
arinnar teknóveislu á NASA við
Austurvöll þar sem skífuþeytarinn
Mistress Barbara, Exos, Tómas Thx
og Dj Richard Cuellar koma fram.
Mistress Barbara eða Barbara Bon-
figlio eins og hún heitir réttu nafni,
fæddist á Sikiley árið1975 en ung
fluttist hún til Montreal í Kanada
þar sem hún hefur búið síðan. Áhugi
Barböru á tónlist og sér í lagi áslátt-
artónlist, vaknaði snemma og um 12
ára aldur var hún byrjuð að spila á
trommur með fjölmörgum hljóm-
sveitum. Það gerðist svo árið 1994 að
stúlkan snerist til teknótónlistar,
varð sér úti um plötuspilara og
hljóðblandara.
Síðan þá hefur Barbara spilað út
um allan heim, þar með talið á Ís-
landi sem hún nú sækir fjórða sinn.
Tónlist | Mistress
Barbara á NASA
Teknó-frill-
an Barbara
Mistress Barbara er vinsæll skífu-
þeytari um allan heim.
Teknóveislan á NASA hefst kl. 23
föstudagskvöld og forsala að-
göngumiða fer fram í Þrumunni á
Laugavegi.
Talsmaður Brads Pitt segir sögu-sagnir af leynilegu brúðkaupi
sínu og Angelinu Jolie alrangar.
Breska götublaðið Star Magazine
segir að heimildarmaður þess hafi
sagt frá brúðkaupinu sem fór fram
að sið búddista með nánustu vini og
ættingja sem vitni: „Brad og Angel-
ina vildu bindast hvort öðru eins
fljótt og auðið var, og skipulögðu
einkaathöfn til að innsigla ást sína.“
Talsmaður Brads, Cindy
Guagenti dæmdi söguna dauða og
ómerka og sagði að hún væri alls
ekki sönn. „Það er ekki arða af sann-
leik í þessari sögu,“ sagði hún.
Fólk folk@mbl.is