Morgunblaðið - 03.11.2005, Side 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alla daga
í Lágmúla og Smáratorgi
4.SÆTIÐ
www.jorunn.is
FJÖLDI breskra nemenda kemur hingað til
lands ár hvert í náms- og skemmtiferðir. Í
fyrradag var hópur 33 nema, 16–18 ára, og
fjögurra kennara úr Frensham Hights-
skólanum, sunnan við London, á Mýrdalsjökli.
Kristófer Már Kristinsson, leiðsögumaður
hjá Allrahanda, sagði að Discover the Living
Planet (Uppgötvið lifandi plánetuna) hafi
skipulagt ferðir breskra námsmanna hingað
til lands allt frá 1985. Auk þess býður fyr-
irtækið upp á skipulagðar ferðir til Afríku,
Suður-Ameríku og víðar. Í ferðunum er bland-
að saman skemmtun og alvöru.
„Krakkar sem eru að ljúka stúdents-
prófsígildi sínu í Bretlandi taka jarðfræðihlut-
ann sinn hér. Sum sem ég er með hér nú eru í
mjög alvarlegri jarðfræði. Þau þurfa að gera
alls konar athuganir og uppgötva hitt og
þetta,“ sagði Kristófer Már. Hann sagði 30
hópa breskra nemenda á aldrinum 14–18 ára
koma hingað á hverju vori og jafnmarga hópa
að hausti. Í hverjum hópi er frá 25 og upp í 70
manns. Fjöldinn er því talinn í þúsundum ár
hvert. Hver hópur dvelur hér 3–6 daga.
Hópurinn sem var í gær á Mýrdalsjökli fór
einnig á skriðjökulinn Sólheimajökul og að
Jökulsárlóni á Breiðamerkursandi. Þá átti að
skoða Vatnajökul og jökulruðninga, fara í
Skaftafell og skoða Svartafoss. Kristófer Már
sagði jöklaferðina nýnæmi fyrir langflesta
nemendanna.
„Þessi skóli er að senda hingað hóp í fyrsta
skipti og þau hafa þegar ákveðið að koma
hingað aftur,“ sagði Kristófer Már. „Kennarar
sem eru að koma hingað í þriðja eða fjórða
skipti segja mér að sumir krakkanna sem
hingað hafa komið í svona ferðir hafi smitast
svo af hrifningu á landinu að þau hafi heimsótt
Ísland með fjölskyldu sinni í sumarfríinu.“
Morgunblaðið/RAX
Smitast af hrifningu á landinu
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
RIMAAPÓTEK í Grafarvogi reyndist oftast
með lægsta verðið í verðkönnun sem verð-
lagseftirlit ASÍ gerði sl. þriðjudag á lyfseð-
ilsskyldum lyfjum. Lyf og heilsa við Melhaga
og Skipholtsapótek í Skipholti voru oftast
með hæsta verðið.
Allt að 26% verðmunur var á verði lyfjanna
og það munaði síðan allt að 49% á frumlyfi og
samheitalyfi með sömu verkun.
Könnunin var gerð í tíu apótekum en eitt
apótek neitaði þátttöku, Laugarnesapótek
við Kirkjuteig. | 28
Morgunblaðið/Kristinn
Verðkönnun á lyfjum
Allt að 26%
verðmunur
LJÓSIÐ, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð
fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein
og aðstandendur þess, er tekin til starfa í
gamla safnaðarheimili Neskirkju. Að Ljósinu
stendur fagfólk, einstaklingar sem greinst
hafa með krabbamein og aðstandendur. Erna
Magnúsdóttir iðjuþjálfi segir tilganginn að
fjölga úrræðum fyrir krabbameinsgreinda og
aðstandendur. Erna hefur langa reynslu af
iðjuþjálfun krabbameinsgreindra.
Þá er unnið að stofnun styrktarfélags Ljóss-
ins, undir forystu Margrétar Frímannsdóttur
alþingismanns, sem mun styðja við rekstur
endurhæfingar- og stuðningsmiðstöðvarinnar.
„Það er mikil þörf fyrir svona starfsemi,“
sagði Erna. „Margir vilja fá að komast út í
þjóðfélagið og fá sína endurhæfingu þar, eftir
að hafa gengið í gegnum lyfja- og eða geisla-
meðferðir á sjúkrahúsum.“ Þjónusta af þessu
tagi sem fyrir er á sjúkrahúsum annar vart
þörfinni, að sögn Ernu. Sumir sem sækja fundi
Ljóssins eru enn í meðferð og aðrir löngu bún-
ir, en þurfa á stuðningi að halda.
„Þetta er sál-félagslegur stuðningur þar
sem hugur og hönd fara saman. Það verður
mikil breyting í lífi margra við veikindin. Sum-
ir hafa ekkert við að vera. Margir missa allt
frumkvæði og sjálfstraustið vill einnig dala. Þá
er gott að eiga athvarf þar sem fólk fær tæki-
færi til að byggja sig upp í gegnum heilsuefl-
andi verkefni, hlýtt faðmlag og kaffisopa.“
Í safnaðarheimili Neskirkju er nú opið hús á
miðvikudögum þar sem í boði er sjálfstyrking
og slökun, á föstudögum kl. 12.30–16.00 er
handverkshús þar sem aðstandendur geta
einnig komið. Á þriðjudögum og fimmtudög-
um er boðið upp á jóga. Auk Ernu starfa við
Ljósið Sigrún Erla Þorsteinsdóttir hjúkr-
unarfræðingur og Arnhildur Magnúsdóttir
jógaleiðbeinandi. Einnig leiðbeina gestakenn-
arar og fyrrverandi skjólstæðingar. Þær Erna
og Erla vinna við Ljósið í sjálfboðavinnu.
„Listasmiðjan gefur fólki svo mikið, eflir
sjálfstraust og gefur fólki tækifæri til að hitt-
ast og hlæja saman. Við gleymum krabbameini
á föstudögum! Þá er ekkert verið að tala um
sjúkdóminn og erfiðleikana. Það er tími til að
byggja sig upp, næra sálina og efla lífsgæðin.
Við stefnum að því að vera með starfsemi alla
daga, nema um helgar. Séra Örn Bárður Jóns-
son var svo vinsamlegur að leyfa okkur að
vera í safnaðarheimilinu endurgjaldslaust,
meðan við byggjum starfsemina upp. Annars
gætum við þetta ekki,“ sagði Erna.
„Við gleymum krabbameini á föstudögum!“
„Það er mikil þörf fyrir svona starfsemi,“
segir Erna Magnúsdóttir iðjuþjálfi um Ljósið.
VÁTRYGGINGAFÉLAG Íslands
hefur keypt 54% hlutafjár í breska
tryggingafélaginu IGI Group og
varð þar með fyrst íslenskra trygg-
ingafélaga til að eignast meirihluta
í erlendu tryggingafélagi. Félagið
hefur jafnframt tryggt sér for-
kaupsrétt að enn stærri hlut og
eignast 75% hlutafjár verði hann
virkur. Kaupverðið er trúnaðarmál
en velta IGI er áætluð um 2,5 millj-
arðar íslenskra króna og eru
starfsmenn þess á sjöunda tug. Fé-
lagið rekur skrifstofur í Notting-
ham og miðborg Lundúna.
Íslenski tryggingamarkaðurinn
er takmarkaður og nokkurn veginn
mettaður markaður enda Íslend-
ingar ekki nema tæp 300 þúsund.
Til þess að stækka þurfum við að
fara í útrás,“ segir Finnur Ingólfs-
son, forstjóri VÍS. Hann bendir á
að til þessa hafi tryggingafélögin
ekki sjálf farið í útrás. „En við vilj-
um fylgja viðskiptavinum okkar
eftir og tryggja þá áhættu sem þeir
eru með í Bretlandi. Við höfum ver-
ið að vinna fyrir íslensk fyrirtæki í
því sambandi og samtímis höfum
við verið að skoða tækifæri á því að
kaupa félög.“
Finnur segir rekstur IGI hafa
gengið þokkalega en það hafi stað-
ið félaginu fyrir þrifum að það hafi
skort fjármagn til þess að geta vax-
ið enn frekar. „Með innkomu okkar
gefst þeim tækifæri til þess og við
teljum vera talsverða möguleika í
þeim efnum.“
IGI Group Ltd. var upphaflega
stofnað í Suður-Afríku 1954 og
setti síðar á laggir útibú í Bret-
landi. Árið 1995 keyptu þeir Clive
Saron og John Levin félagið. Eftir
kaup VÍS munu þeir eiga tæplega
45% hlut í IGI.
VÍS kaupir meirihluta í breska tryggingafélaginu IGI Group
Fylgja viðskiptavinum
VÍS festir | B1
FYRIRHUGUÐ færsla Sæbrautar og hljóð-
vistaraðgerðir vegna hennar voru kynntar á
sérstökum kynningarfundi í Laugalækjarskóla
í gærkvöld. Áætlað er að framkvæmdir við
færslu Sæbrautar til norðurs hefjist á næsta
ári, en verkefnið fer í útboð nú í nóvember.
Tilgangur færslunnar er tvíþættur. Annars
vegar að rýma fyrir umferð í tvær áttir á
Kleppsvegi og gera strætósamgöngur þannig
úr garði að notendur strætisvagna þurfi ekki
að fara yfir Sæbrautina til að taka vagn á vest-
urleið. Hins vegar að bæta hljóðvist í íbúðum
við Kleppsveg 2–76, bæði með því að auka fjar-
lægð Sæbrautarinnar frá íbúðarhúsum við
Kleppsveg um 10–15 metra og með byggingu
sérstaks hljóðveggs. | 4
Hluti Sæbraut-
ar fluttur
ÞAÐ munar 63% á verði plaststrengs sem seld-
ur er í metravís, 62% á tréskrúfum og 50% á
verði fjöltengis í verðkönnun sem Morgunblað-
ið gerði í gærmorgun í Byko og Húsasmiðj-
unni. Þrátt fyrir mikinn verðmun á einstaka
vörutegundum munar sáralitlu á vörukörfunni
sem í er tuttugu og ein vörutegund þegar kom-
ið er á kassa. Vörukarfan kostaði 25.724 krónur
í Byko og 25.923 krónur í Húsasmiðjunni.
Munurinn er innan við 1% og nemur 199 krón-
um, Byko í hag.
Í öllum tilfellum nema einu var samræmi
milli hillu- og kassaverðs. | 29
Þrisvar yfir
50% verðmunur
♦♦♦
♦♦♦