Morgunblaðið - 04.12.2005, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 329. TBL. 93. ÁRG. SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Samhent
systkini
Sólveig Samúelsdóttir vinnur sóló-
plötuna með bróður sínum Menning
Tímarit og Atvinna
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350
„Í ÞESSARI heimsókn í Öskjuhlíðarskóla upplifði
ég sterkt að börnin fá að vera þau sjálf og það
dylst engum að fólkið sem vinnur þarna elskar
börnin,“ sagði Mary Ellen Mark, einn þekktasti
ljósmyndari samtímans, sem fylgdist með degi í
lífi barna í Öskjuhlíðarskóla fyrir Morgunblaðið.
Skólinn er fyrir þroskaheft og fjölfötluð börn.
Steinunn Sigurðardóttir og Páll Hjaltason eiga tíu
ára son í skólanum og segja að þar eigi sonur
þeirra sér griðastað. „Það er falleg hugsun að all-
ir geti verið í einu skólaumhverfi en raunveruleik-
inn er ekki þannig,“ segir Páll./10
Morgunblaðið/Mary Ellen Mark
Hreyfiþjálfun er mikilvæg í Öskjuhlíðarskóla og fara nemendur oft í sund. Einar Hólm Ólafsson skólastjóri segir að í skólanum eigi að sinna breiðum hópi.
Börnin fá að vera þau sjálf
RAGNAR Jónsson í Smára, Sigurð-
ur Nordal, Jón Helgason og Peter
Hallberg undirrituðu skeyti til Lær-
dómslistafélagsins í Svíþjóð árið
1955 vegna Nóbelsverðlaunanna í
bókmenntum þar sem sagði að það
væri til vansa ef Gunnar Gunnarsson
fengi Nóbelsverðlaunin. Þetta kem-
ur fram í nýrri bók Hannesar Hólm-
steins Gissurarsonar prófessors um
Halldór Laxness.
Um þetta segir svo orðrétt í bók-
inni: „Þriggja manna Nóbelsnefndin
innan lærdómslistafélagsins lagði til,
að verðlaununum yrði skipt milli ís-
lensku rithöfundanna Laxness og
Gunnars Gunnarssonar. Österling
skrifaði Hammarskjöld í október-
byrjun: „Það er alls óvíst, að tillaga
nefndarinnar verði samþykkt. En
sjálfur er ég efins um, að Laxness sé
einn sér verðugur. Það er sagt, að Ís-
lendingar muni hneykslast, ef verð-
laununum er skipt, en ég mun reyna
að kanna, hvort það sé rétt.“ Nokkur
undirmál urðu þetta haust og all-
söguleg, þótt hljótt færu. Haft var
samband við Gunnar Gunnarsson frá
lærdómslistafélaginu og hann beð-
inn um upplýsingar um æviatriði sín
og ljósmyndir. Hann hafði þess
vegna fulla ástæðu til að ætla, að
hann kæmi sterklega til greina við
úthlutun verðlaunanna. Daginn, sem
hringt hafði verið í Gunnar að utan,
kom Ragnar Jónsson í Smára í kaffi,
sem alltaf var borið fram klukkan
þrjú heima hjá Gunnari á Dyngju-
vegi. Ragnar átti erindi við húsráð-
anda vegna útgáfumála. Þegar
Gunnar sagði frá símtalinu frá Sví-
þjóð umhverfðist Ragnar. Hann
sagði, að þetta væri stórkostlegt, en
æddi fram og aftur um gólf. Hann
hafði ætlað að snæða kvöldverð með
Gunnari og fjölskyldunni klukkan
sjö, en afsakaði sig og sagðist hafa
gleymt mikilvægum fundi, sem hann
yrði að sækja. Nokkrum dögum síð-
ar kom Andrés Þormar, aðalgjald-
keri Landsímans, heim til Gunnars.
Hann var frændi og vinur Gunnars.
Hann sýndi Gunnari símskeyti til
lærdómslistafélagsins, sem undirrit-
að var af þeim Ragnari Jónssyni í
Smára, Sigurði Nordal, Jóni Helga-
syni og Peter Hallberg. Þar sagði, að
það væri til vansa, ef Gunnar fengi
Nóbelsverðlaunin. Gunnari sárnaði
þetta mjög. Honum fannst sem þess-
ir fornu vinir væru að reka rýtinginn
í bak sér. En hann gat engum sagt
þetta nema nánustu fjölskyldu, því
að Andrés hafði brotið embættis-
skyldu sína með því að sýna honum
skeytið. Hafði einn starfsmaður
Landsímans komið með skeytið til
Andrésar. Hafa þeir Ragnar og fé-
lagar hans eflaust haldið ranglega,
að veita ætti Gunnari einum verð-
launin og ganga þannig fram hjá
Laxness, sem þeir töldu merkari rit-
höfund.“
Sendu skeyti vegna Nóbelsverðlaunanna í bókmenntum
Töldu Gunnar Gunn-
arsson ekki verðugan
Laxness | 24
Washington. AP. | Bandaríkjamanni á
áttræðisaldri varð það á að fara yf-
ir götu utan gangbrautar og skipti
þá engum togum, að hann varð fyr-
ir bíl. Þegar lögreglan kom á vett-
vang var það hennar fyrsta verk að
sekta manninn og var sektarmið-
anum troðið upp á hann þar sem
hann lá mikið slasaður í götunni.
Charles Atherton var að vísu með
meðvitund en átti mjög erfitt með
andardrátt og virtist ekki vera al-
veg með á nótunum þegar hann
fékk sektarmiðann en hann hafði
kastast upp á bílinn, á framrúðuna,
og var alblóðugur í framan.
„Hann var sektaður vegna þess,
að hann var ekki í rétti. Það get ég
sagt þér,“ sagði einn lögreglu-
mannanna. „Sá, sem ekki notar
gangbrautina, er ekki í rétti.“
Engin miskunn
hjá Magnúsi
Caracas. AP. | Hugo Chavez, forseti
Venesúela, skipaði í gær öryggis-
sveitum landsins að vera við öllu
búnar og sagði, að stuðningsmenn
stjórnarandstöðunnar ætluðu að
grípa til ofbeldisverka til að trufla
þingkosningarnar í dag.
Chavez sagði, að lögreglan hefði
gert upptækt sprengiefni, bensín-
sprengjur og „annan búnað til of-
beldisverka“ en gaf engar nánari
upplýsingar um það. Helstu stjórn-
arandstöðuflokkarnir ætla ekki að
taka þátt í kosningunum í dag og
segja talsmenn þeirra, að þær verði
ekki leynilegar. Sakar Chavez
Bandaríkjamenn um að standa á bak
við þá ákvörðun en stjórnarandstað-
an segir, að hann noti deilurnar við
Bandaríkjastjórn sem allsherjar-
skálkaskjól og til að draga athyglina
frá ófremdarástandi í landinu.
Viðbúnaður auk-
inn í Venesúela
Tímarit | Bræður og rithöfundar Heljarstökk Labba í Mánum
Ævintýri Johns De Loreans Að auka skilning á mannlífinu
Einlæg sköpun Sigurðar Ármanns Atvinna | Tilboð og útboð