Morgunblaðið - 04.12.2005, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 04.12.2005, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 57 FRÉTTIR Gómsæt gjöf fyrir sælkera Helstu útsölustaðir: Blómaval Skútuvogi, Blómaval Grafarholti, Tekk Company Kópavogi, Villeroy & Boch Kringlunni, Lystadún Marco Mörkinni, Edda Útgáfa, Penninn Eymundsson Austurstræti, Penninn Eymundsson Smáralind, Hlín blómahús Mosfellsbæ. Landið: Blómaval Akureyri, Blómaval Keflavík, Blómaval Selfossi, Efnalaugin Albert Ísafirði, Heimahornið Stykkishólmi, Efnalaugin Lind Siglufirði, Húsgagnaval Höfn Hornafirði, Sveitabúðin Sóley Gaulverjabæjarhreppi, Verslun Grétars Þórarinssonar Vestmannaeyjum, Litla Búðin Akranesi. Einstakur jólailmur Pera vikunnar Ágóðanum af dósasöfnun Gróðavonarfélagsins var skipt á milli fé- lagsmanna. Fyrst fékk formaðurinn helminginn og síðan fékk varafor- maðurinn fjórðung þess sem eftir var. Þá fékk ritarinn þriðjung þess sem þá var eftir og loks var afganginum skipt jafnt á milli gjaldkerans og Jóa sem fékk 3.000 kr. Hve há var upphæðin sem stjórnin skipti á milli sín? Síðasti skiladagur fyrir réttar lausnir er kl. 12 mánudaginn 12. desem- ber. Lausnir þarf að senda á vef skólans, www.digranesskoli.kopavog- ur.is en athugið að þessi Pera verður ekki virk þar fyrr en eftir hádegi hinn 5. desember. Þessi þraut birtist á vefnum fyrir kl. 16 þann sama dag ásamt lausn síðustu þrautar og nöfnum vinningshafanna. Stærðfræðiþraut Digranesskóla og Morgunblaðsins Bridsfélag yngri spilara Stórfiskaleikur yngri spilara fór fram 30. nóvember. Mikil spenna var í lokaumferðinni og áttu 4 pör möguleika á sigri. Efstu yngri spil- ararnir fengu bridsbækur í verðlaun og stórfiskarnir kaffikort. Óttar I. Oddsson – Bjarni Einarsson 77 Grímur Kristinss. – Hermann Friðrikss. 77 Jóhann Sigurðarson – Kristinn Þórisson 76 Hrefna Jónsd. – Guðlaugur Sveinsson 72 Gert verður hlé á miðvikudags- æfingum í desember vegna prófa hjá flestum yngri spilurum. Úrslit, myndir og bronsstigastöðu má sjá á http://www.bridge.is/felog/ reykjavik/bridgefelag-yngri-spilara/ Bridsdeild FEB í Reykjavík Tvímenningskeppni var spiluð í Ásgarði, Stangarhyl, fimmtud. 1.12. Spilað var á 10 borðum. Meðal- skor 216 stig. Árangur N-S Bragi Björnsson – Albert Þorsteinss. 268 Júlíus Guðmss. – Rafn Kristjánsson 237 Alda Hansen – Jón Lárusson 229 Árangur A-V Matthías Helgason – Ólafur Ingvarsson 262 Helgi Hallgrímsson – Jón Hallgrímsson 247 Hannes Ingibergss. – Oddur Halldórss. 245 Spenna í Kópavogi Það skortir ekki neitt á spennuna í Aðalsveitakeppni félagsins og úr- slitin eru hvergi nærri ráðin þegar þrír leikir eru eftir í sveitakeppn- inni. Staða efstu sveita: Loftur Pétursson 112 Eðvarð Hallgrímsson 109 Allianz 104 Guðlaugur Sveinsson 99 Sigurvegararnir í stórfiskaleik yngri spilara. Talið frá vinstri: Grímur Kristinsson, Hermann Friðriksson, Bjarni Einarsson, Óttar Ingi Oddsson, Kristinn Þórisson og Jóhann Sigurðarson. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson EVRÓPA ætlar sér að vera leiðandi í notkun upplýsingatækni í heiminum. Þetta kom fram á ráðstefnu Evrópu- sambandsins um rafræna stjórn- sýslu. Á ráðstefnunni var samþykkt sameiginleg yfirlýsing sem ætlað er að styðja við áætlun Evrópusam- bandsins fyrir upplýsingasamfélagið árið 2010. Forsenda yfirlýsingarinnar er sú almenna skoðun að tæknileg vanda- mál séu ekki lengur hindrun varð- andi notkun upplýsingatækni í stjórnsýslu. Sett voru fram markmið sem er ætlað að gera Evrópu leið- andi í notkun upplýsingatækni í heiminum ef þau ná fram að ganga. Þau varða aðgengi allra borgara að rafrænni stjórnsýslu, hagræðingu og skilvirkni í stjórnsýslunni, bætta þjónustu sem miðast við þarfir sér- hvers einstaklings og að rafræn skil- ríki verði gjaldgeng innan alls Evr- ópska efnahagssvæðisins. Þetta var þriðja ráðherraráðstefn- an um rafræna stjórnsýslu sem Evr- ópusambandið stóð fyrir og einn helsti viðburðurinn sem Bretar standa fyrir í formennskutíð sinni innan sambandsins. Um 1000 þátt- takendur voru á ráðstefnunni, bæði fulltrúar hins opinbera og atvinnu- lífsins. Markmiðið með ráðstefnunni er að fara yfir það helsta sem hefur áunn- ist í rafrænni stjórnsýslu í Evrópu og skiptast á upplýsingum. Mark- miðið er einnig að skapa vettvang til að ræða framtíðaráætlanir um raf- ræna stjórnsýslu hins opinbera. Sér- staklega var fjallað um þau áhrif og þann ávinning sem markviss stefna um breytta og bætta þjónustu getur haft fyrir stjórnsýsluna, fyrirtækin og hinn almenna borgara. Ármann Kr. Ólafsson, aðstoðar- maður fjármálaráðherra, fór fyrir ís- lensku sendinefndinni. Evrópa vill verða leið- andi í upplýs- ingatækni Í STAÐ þess að senda jólakort styrkir Þekkingarmiðlun að þessu sinni hjálparstarf Rauða krossins á hamfarasvæðinu í Pakistan um 200.000 kr. og skorar á önnur fyrir- tæki að gera slíkt hið sama, segir í fréttatilkynningu. Á heimasíðu Rauða krossins, www.redcross.is má lesa um ástand- ið og hjálparstarfið. Styrkir hjálpar- starf í Pakistan ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.