Morgunblaðið - 04.12.2005, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 04.12.2005, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 39 lentu þeir í deilum miklum á þingi, Einar og Ólafur Thors og voru báðir sannfærðir um sinn málstað, svo var fundi slitið og þeir fóru í kaffi.“ Samskipti sem þessi milli pólitískra and- stæðinga eða þess vegna keppinauta á mark- aðstorgi viðskiptanna bæta samfélagið og stuðla að jákvæðu andrúmslofti. Nú er svo komið, að jafnvel birting á sjálfsögðum frétt- um, þótt erfiðar geti verið fyrir stjórnmála- menn, eru taldar til marks um andróður og ill- indi í garð viðkomandi. Af þessum sökum ætti Svanfríður Jónas- dóttir ekki að líta á birtingu fréttar sem þeirr- ar sem hér er til umræðu sem barnaskap eða sérstaka tilraun til að sýna fram á hvað Ólafur Thors hafi verið góður maður heldur ætti hún að líta á þessar frásagnir sem fyrirmynd að því hvernig samskipti stjórnmálamanna geti verið og eigi að vera. Kannski geta Morgunblaðið og Svanfríður stuðlað að því að svo verði? Einelti Bók Sólveigar Ein- arsdóttur um Einar Olgeirsson vekur les- andann til umhugsunar um annan þátt í sam- félagsgerð okkar. Það er hægt að horfa á póli- tíska baráttu Einars Olgeirssonar út frá ýmsum sjónarhornum. Það sama á við um við- brögð andstæðinga hans. En þegar tækifæri gefst til þess að kynnast því, hvernig málin hafa horft við fjölskyldu Einars og ef því er að skipta fjölskyldum annarra stjórnmálamanna á þessum tíma, þegar svo hart var barizt, er upplifun þeirra eitthvað á þessa leið: Einar Olgeirsson liggur undir stöðugum árásum og gagnrýni andstæðinga sinna allan þann tíma, sem hann hefur afskipti af stjórn- málum og raunar lengur. Það líður varla sá dagur, að hann verði ekki fyrir áreiti úr ein- hverri átt. Og hér er ekki um að ræða nokkra daga, vikur eða mánuði, heldur nokkra ára- tugi. Hvernig líður fjölskyldum þessara manna? Hvar eru mörkin á milli eðlilegra pólitískra átaka og eineltis? Eins og allir vita fer einelti ekki bara fram í skólum á milli barna og ung- linga heldur líka úti í þjóðlífinu á milli fullorð- ins fólks. Viljum við þjóðfélag þar sem börn stjórn- málamanna – og nú á dögum kannski við- skiptajöfra – eru hundelt af jafnöldrum sínum vegna stjórnmálaskoðana eða annarra athafna foreldra þeirra? Þegar kallað er á eftir börnum: pabbi þinn er kommúnisti eða mamma þín er kommúnisti er það setning, sem brennir sig inn í barnssál- ina og hverfur aldrei. Hvernig fer fólk að því að lifa þetta af, ekki sízt í því návígi, sem hér er? Sumir gera það með því að demba sér út í hina pólitísku bar- áttu sjálfir. Aðrir gera það með því að útiloka sig gersamlega frá hinni pólitísku veröld. Enn aðrir hverfa kannski inn í heim drauma og ævintýra. Og í sumum tilvikum getur svarið verið að skrifa bók, eins og Sólveig Ein- arsdóttir hefur gert. Merkur stjórn- málamaður Einar Olgeirsson var merkur stjórnmála- maður. Hann var einn þeirra manna, sem settu hvað mestan svip á stjórnmálabar- áttu 20. aldarinnar, þótt hann væri oftast í stjórnarandstöðu. Svo aftur sé vitnað til frásagnar Jóns Böðv- arssonar í viðtali við Morgunblaðið á árinu 2000: „Einu sinni deildi Einar Olgeirsson fast á Jónas frá Hriflu í ræðu og riti. Nokkru síðar var fundur í Sósíalistafélagi Reykjavíkur, þá kom einn maður upp og sagði að Jónas væri falskur, undirförull og tækifærissinnaður. Einar varð foxillur og sagði:„Ég mótmæli því að Jónas frá Hriflu sé falskur, undirförull og tækifærissinnaður, Jónas trúir öllu, sem hann segir.“ Þetta er kjarni málsins. Jafnvel hörðustu pólitísku andstæðingar Einars Olgeirssonar gátu borið virðingu fyrir honum vegna þess, að þeim var ljóst, að hann var að berjast fyrir sannfæringu sinni. Það er mikill munur á því að berjast fyrir málefnalegri sannfæringu eða völdum eingöngu. Þar skilur á milli. Morgunblaðið hefur sennilega gengið harð- ar að Einari Olgeirssyni en nokkrum öðrum stjórnmálamanni á þeim tíma. Samt er það nú svo að á milli ritstjóra Morgunblaðsins síðustu áratugina og Einars var gott persónulegt samband. Þannig á það að vera á milli póli- tískra andstæðinga ekki síður en samherja. Bók Sólveigar Einarsdóttur um föður sinn hlýtur að vekja umræður um mikilvægi þess að vinátta geti ríkt með fólki, þótt það hafi öndverðar skoðanir. Hún hlýtur líka að vekja spurningar um það, hvort ekki sé nóg komið af því fullorðinseinelti, sem stundað er í sam- félagi okkar. En þar að auki eru í henni miklar upplýs- ingar um upphaf baráttu sósíalista á Íslandi og verkalýðshreyfingarinnar. Það er líka að finna merkilegar upplýsingar um samskipti Einars Olgeirssonar og nokkurra lykilskálda á 20. öldinni. Umfjöllun Sólveigar um samband Einars og Stefáns Péturssonar vekur fleiri spurningar en hún svarar og raunar er saga Stefáns sennilega að verulegu leyti ósögð en þess virði að kafað sé djúpt ofan í hana. Meginstyrkur Einars Olgeirssonar í stjórn- málabaráttunni kemur skýrt fram í þessari bók. Hann naut óhagganlegs stuðnings eigin- konu, dóttur og sonar, hvað sem á gekk. Morgunblaðið/RAX Skarðsheiði. Af öllum þessum ástæðum er mikill fengur að bók Sól- veigar um Einar Ol- geirsson. Hún er mikilvæg lesning fyrir alla þá, sem hafa áhuga á pólitík 20. aldarinnar og baráttu borgara- stéttarinnar og sósí- alista á þeim tíma. Það hefur hjálpað „dóttur Rússagrýl- unnar“ að hún var alla tíð og er enn sannfærð um sigur sósíalismans. Þeir sem hafa sterka sannfæringu geta tekið sigrum og ósigrum með jafn- aðargeði. Laugardagur 3. desember
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.