Morgunblaðið - 04.12.2005, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 04.12.2005, Blaðsíða 54
54 SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur hlýhug og ómetanlegan stuðning við andlát og útför eig- inmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, BJARNA Þ. GUÐMUNDSSONAR rafvirkja frá Arnarhóli. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilis- ins Eirar fyrir einstaka hjúkrun, hlýju og vinarhug. Jóna Sigríður Tómasdóttir, Guðmundur Ingi Bjarnason, Kolfinna Guðmundsdóttir, Tómas Valur Hlíðberg, Marianne Beck, Rafnar Hlíðberg, Saida Rumapea, Jórunn Dóra Hlíðberg, Agnar Sigurbjörnsson og afabörn. Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓHÖNNU I. ÞORBJÖRNSDÓTTUR, Einigrund 5, Akranesi. Sérstakar þakkir til heimilishjálpar og starfsfólks lyfjadeildar Sjúkrahúss Akraness fyrir einstaka alúð og góða umönnun. Sveinsína Guðrún Steindórsdóttir, Björn Mikaelsson, Inga Þorbjörg Steindórsdóttir, Sigurður Mikaelsson, Sigurður Heiðar Steindórsson, Sigríður Haraldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Okkar innilegasta þakklæti við fráfall og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, SIGURÐAR JÓHANNS HENDRIKSSONAR, Reyrengi 32. Guð blessi ykkur öll. Hjördís Björg Kristinsdóttir, Rebekka María Sigurðardóttir, Valdimar Karl Guðmundsson, Jóhann Ágúst Sigurðarson, Þórunn Ragnarsdóttir og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýju vegna andláts og útfarar ástkærrar móður okkar og tengdamóður, ÞORBJARGAR SVEINSDÓTTUR frá Vík í Mýrdal. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkr- unarheimilinu Sóltúni fyrir einstaka umönnun og hlýju. Sveinn Rúnar Arason, Ragnhildur Hreiðarsdóttir, Sæbjörg Snorradóttir, Halla Aradóttir Loveday, Martin Loveday, Lára Aradóttir, Sveinn Halldórsson, Guðni Arason. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna fráfalls RAGNHILDAR ÞÓRODDSDÓTTUR, (Öggu), Þorragötu 7, Reykjavík. Þórunn Böðvarsdóttir, Björk Engilbertsdóttir, Högni Böðvarsson, Magnús Eyþórsson, Örn Engilbertsson, Sveinbjörg Jónsdóttir, Una Eyþórsdóttir, Jón Sigurðsson, Sigríður Sveinsdóttir, Margrét Sveinsdóttir, Sveinn Sveinsson, Erna Jónsdóttir, Sighvatur Sveinsson, Arna Borg Snorradóttir, Ingvar Sveinsson, Kristín Lárusdóttir, börn og barnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur hlýhug og vináttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGURLAUGAR EÐVARÐSDÓTTUR frá Helgavatni í Vatnsdal, síðast til heimilis á Sæborg, Skagaströnd. Eðvarð Jóhannesson, Margrét Sigurgeirsdóttir, Helga Jóhannesdóttir, Sveinn S. Ingólfsson, Hinrik Jóhannesson, Svava Svavarsdóttir, barnabörn og langömmubörn. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns, sonar, föður, tengdaföður og afa, GUÐNA JÓNSSONAR, Kjalarlandi 29, Reykjavík. Sólrún B. Kristinsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Jón Guðnason, Elín Ragnheiður Guðnadóttir, Dominic Scott, Sigrún Guðnadóttir, Garðar Hólm Kjartansson, Kristinn Guðnason, Emma Kolbrún Garðarsdóttir, systkini og aðrir vandamenn. Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát og útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður, sonar og afa, ARNAR EINARSSONAR frá Miðgarði, Stafholtstungum. Sigríður Númadóttir, Guðrún Arnardóttir, Sigurður Kr. Sigurðsson, Þórdís Arnardóttir, Sigurþór Kristjánsson, Einar Örn Arnarson, Dagmar M. Harðardóttir, Sigríður Arnardóttir, Davíð Sigurðsson, Kristín Ottesen. Einar Sigurðsson, Sara Böðvarsdóttir, Sif Sigurþórsdóttir, Kristófer Daði Davíðsson, Örn Einarsson. ✝ Andrés Blóm-kvist Helgason fæddist í Hafnar- firði 3. nóvember 1927. Hann lést á Kumbaravogi 17. nóvember síðastlið- inn. Frá unga aldri ólst hann upp hjá föðurbróður sínum Jóni Þórðarsyni og konu hans Guð- finnu Andrésdóttur í Miðfelli 2. Árið 1950 kvænt- ist Andrés eftirlif- andi konu sinni Gerðu Doretz Hermannsdóttur, þýskrar ættar, og byggðu þau ný- býli í Miðfelli 3. Þau eignuðust tvö börn, Guðfinnu Maríu og Jón Þórð, en fyrir átti Gerða soninn Gunnar Hermann, hann ólst upp hjá þeim frá 12 ára aldri. Barnabörnin eru 12 og barnabarna- börnin 12. Andrés Blóm- kvist var jarðsung- inn frá Hruna 24. nóvember, í kyrrþey að hans ósk. Það var á björtum maídegi árið 1935 að foreldrar okkar fimm stráka komu í hlaðið á Miðfelli. Þar stóð jafnaldri minn Blómkvist Helgason og fylgdist með er fátæk- leg búslóðin var borin inn í gamla torfbæinn í Miðfelli 1. Þarna hófust okkar fyrstu kynni sem staðið hafa í rúm sjötíu ár. Eitt áhugamál kom snemma fram hjá Blomma það var að renna fyrir silung og entist sá áhugi með- an heilsan leyfði. Miðfellsgil og Götukelda voru eftirsóttir staðir að renna í færi og veiða lækjarlontur. Þær voru margar ferðirnar sem við röltum meðfram þessum lækjum og veiddum smáfiska sem varla voru upp í kött. Þegar við stálp- uðumst bárum við þessa smásil- unga í fötum í vatnið sem er uppi á Miðfellinu og virtust þeir dafna og fjölga sér. Seinna veiddust þar all- vænir silungar. Eina smáveiðisögu má ég til með að segja af Blomma. Eitt sinn var hann að veiðum við vatnið með yngri strákunum og fannst þeir klaufalegir að kasta lín- unni út. Vildi hann kenna þeim betri veiðitækni. „Sjáið strákar, svona eigið þið að kasta línunni.“ Blommi vatt upp á sig, sveiflaði stönginni. Vatnsbakkinn var blaut- ur og sleipur og skutlaðist hann fram af honum og sat í vatninu upp að öxlum en öngullinn sat eftir á bakkanum. Var ekki laust við að peyjarnir hefðu gaman af og ekki síður Blómkvist er þetta var rifjað upp síðar. Útþráin gerði fljótt vart við sig hjá Blomma. Gekk hann þá oft tím- um saman um sveitina og hafði þá einhvern af yngri strákunum með sér í þessar skoðunarferðir. Oftast hafði hann þá færi með öngli í vas- anum. Það var fermingarárið okkar Blomma er frægir íþróttamenn komu á Álfaskeið og sýndu sínar íþróttir ásamt fleirum. Þar á meðal voru Gunnar Huseby, þáverandi Evrópumeistari í kúluvarpi, og Skúli Guðmundsson, Íslandsmeist- ari í hástökki. Þetta kveikti áhuga okkar strákanna í Miðfellshverfinu á íþróttum og voru stofnuð fljót- lega tvö íþróttafélög sem fengu nöfnin Elding og Þróttur. Mót voru svo haldin í ýmsum íþróttagreinum næstu árin. Blómkvist var þar vel liðtækur, sérstaklega í lengri hlaupum. Eftir heimsstyrjöldina komu þýskar stúlkur til Íslands í at- vinnuleit, þar á meðal var Gerða Doretz Hermannsdóttir sem vist- aðist hér í sveit. Blómkvist og hún felldu hugi saman og giftu sig árið 1950. Þau hófu búskap á nýbýlinu Miðfelli 3 og reistu íbúðarhús og fjósbyggingu og voru með mjólk- urframleiðslu um áratugaskeið. Seinna fóru þau út í kjúklinga- eldi í byggingunum, og ráku vel tæknivætt sláturhús fyrir hænsn- fugla. Þar sem Blómkvist var mikið fyrir ferðalög taldi hann ekki eftir sér að aka víða um landið og selja afurðirnar. Veiðistöngin var þá oft með í bílnum því ekki dvínaði veiði- hugurinn með aldrinum. Þau eru ekki fá vötnin kringum landið sem Blómkvist hefur kannað og dregið úr silung og erum við mörg sem fórum í veiðiferðir með honum. Veiðivatnasvæðið hefur dregið Blómkvist og okkur hin til sín um árafjöld. Hann fékk sér sendiferða- bíl, innréttaði hann sem húsbíl, ferðaðist um landið með konunni og öðrum ferðafélögum. Fáir eru þeir staðir sem þau hafa ekki skoð- að og gist. Við Veiðivötn dvaldi Blómkvist oft dögum saman á hverju sumri. Þar var hans Paradís á þessari jörð og naut hann sín í þessu fallega umhverfi, sagði mörgum til um bestu veiðistaðina og var hjálplegur þeim er þekktu lítið til við vötnin. Ég sé hann fyrir mér sitjandi á vatnsbakkanum, kveikja sér í pípunni, stöngin í sér- útbúnum hólk sem rekin var niður í sandinn, línan með beitunni úti í djúpinu bíður eftir að silungur bíti á, gjálfur við sandinn fyllir sál hans friði og ró, fegurð öræfanna blasir við augum. Blommi var laginn í höndunum og eftir að hann hætti búrekstri tók hann að lagfæra og gera upp gömul húsgögn og smíða hluti er fólk vildi eiga. Einn var sá hæfileiki sem kom fram hjá Blómkvist snemma á ævi hans. Hann skynjaði margt það sem öðrum er hulið en vildi ekki flíka þessu og sem minnst um þetta tala. Á seinni árum höfum við hjónin og fleiri átt með honum góð- ar stundir í sambandi við þessi mál og margan kaffisopann drukkið saman. Í jarðskjálftunum árið 2000 skemmdist hús þeirra hjóna. Flutt- ust þau þá í íbúð aldraðra á Flúð- um. Árið 2003 varð Blómkvist fyrir áfalli er skerti heilsu hans mjög. Fluttist hann þá að Kumbaravogi þar sem mjög vel var um hann hugsað. Ég heimsótti þá félaga Sigurjón frá Þverspyrnu og Blóm- kvist fyrir rúmum mánuði í fallegu og björtu haustveðri. Sótti ég vel að þeim gömlu félögum mínum og rifjuðum við margt upp frá fyrri samverudögum. Er við kvöddumst glitraði Atlantshafið í síðdegissól- inni og sjávarniðurinn barst að eyrum er hægfara öldur brotnuðu við ströndina. Blómkvist lést 17. nóvember eft- ir skammvinn veikindi. Við erfis- drykkjuna var mynd af Blómkvist með stóran silung í hendinni í hans síðustu veiðiferð í Veiðivötn 1999. Við hjónin þökkum þér áratuga vináttu og vitum að vel verður tek- ið á móti þér í nýjum heimkynnum. Gerðu og fjölskyldu óskum við alls velfarnaðar og erum þakklát fyrir að vinur okkar fékk að fara sáttur við Guð og menn eins og hann ósk- aði eftir. Arndís og Skúli, Miðfelli. ANDRÉS BLÓM- KVIST HELGASON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.