Morgunblaðið - 04.12.2005, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 04.12.2005, Blaðsíða 25
til þess að maður meti þær. En ég held, að þú hafir í einni setningu í bréfi þínu komist næst kjarna málsins: „Áróður Halldórs fyrir hugsjón friðarins er ekki sérlega sannfærandi á þann hátt, að maður finni með hjartanu, að hann elski frið, heldur óttist ófrið.“ Er það ekki þetta, sem á skortir: Sjálft hugvitið, þekkingin hjaðn- ar sem blekking, sé hjarta ei með, sem undir slær. Hugvitið, artisteríið, er sannar- lega í lagi. Þekkingin líka. En hjartað? Julius Lange hélt því fram í dásamlegri bók, að gildi lista- verka væri undir því komið, hvers virði efnið væri fyrir listamanninn. Auðvitað er þetta einhliða, mörgu sleppt. En er ekki raunasaga Hall- dórs í því fólgin, að hann á minna og minna af tilfinningum afgangs til þess að gefa persónum sínum? Það blóð, sem þær eru gæddar, þegar þú lest Gerplu, hefur þú sjálfur lagt til. Nú skal ég játa, að ég hef aðeins lesið bókina einu sinni, af því að hún hefur ekki kall- að á mig til annars lestrar (At- ómstöðina þurfti ég undir eins að lesa aftur), svo að ef til vill er von til þess, að ég finni meira blóð í henni síðar. Og þó – „Dökkur“ og „bjartur“ togast á Strax og Ragnar fékk þetta bréf svaraði hann með langri hugleið- ingu um Laxness og skáldskap hans. Hann tók undir gagnrýni Sigurðar um það, að skáldinu þætti ekki nógu vænt um mennina, en sagði síðan: Hvað er list og sérstaklega hvað er mikil list? Er listin mannbæt- andi eða jafnvel hið gagnstæða? Þá verður mér á að fara í gegnum verk ýmissa góðra manna og kemst jafnvel að þeirri niðurstöðu, að það, sem einkenni þroskaða list, ég á við list mikilla snillinga, fullþroskaðra, sé, að þar skýtur djöfullinn upp kollinum, fremur en í verkum ungra manna. Til þess að koma hnappheldu á myrkrahöfðingjann verður maður að gefa honum kost á að bregða hring í nef okkur. Eftir það sleppir hann aldrei taki á manni að fullu, og eins og H.K.L. segir, að þó sá, sem aldrei hefur of- urselt sig honum, sé í sínum heimi sinnar eigin gæfu smiður, núítarn- ir, þá fær sá, sem á annað borð hefur séð ríki útvaldra Satans og þeirra dýrð alla, aldrei framar tak á neinu áhaldi þeirra. Þó hin þrosk- aða kona falli betur, jafnt að lífi og limum sem hjarta okkar, fær hún ekki kveikt þá tilfinningu, sem ein ósnortin jómfrú má. H.K.L. hefur traðkað í svaðið mörg lífsblóm. Sú tilfinning, sem grípur ungan mann, sem í fyrsta sinn leggur hönd á kné konu, er honum (H.K.L.) þekking, en ekki sársaukafull tilfinning. Ragnar hélt áfram: Um hjarta Halldórs hafa frá barnæsku togast á tvö öfl, „dökk- ur“ og „bjartur“ – og tapaði bjart- ur, og missti um leið þá tungu, sem hjartað skilur. Þetta skilur Einar Ben[ediktsson], af því, eins og þú sagðir einu sinni, að hann hafði sjálfur beðið sams konar skipbrot, þó hann fengi á síðari árum mikla lækningu fyrir trú sína, en hún næði sér aldrei til fulls. Orð Hall- dórs eiga ekki þann eld og straum- þunga, „sem eilíft varir í gildi“. Þungi hans er í ætt við afl vél- arinnar og eldur hans hita járn- bræðsluofnsins. List hans á ekki hin græðandi smyrsl Hallgríms, barnslega hrifningu Matthíasar né eldmóð hans og ekki hina mildu blómaangan Jónasar, en hann á samt „bjartari sólskin“, þó þau séu framleidd með rafmagni, og meiri þunga, þó hann sé skyldari drek- anum, sem klýfur öldurnar, en haf- inu, sem hann þrengir sér gegnum. Ragnar sagði, að Laxness elskaði umfram allt sjálfan sig eins og margir aðrir listamenn: Ég sagði, að Halldór hefði fallið fyrir sjálfselsku sinni; er hið illa og góða háði stríð í blóði hans, hafi hið góða tapað. En hversvegna; þá vegna þess að hið dökka í fari hans lagði til beittari vopn. Er það ekki með innræti, ást, fórnfýsi eins og aðra hæfileika, til dæmis list- hæfileika? Ræður ekki upplagið í þessu efni mestu? Hreinum er allt hreint og óhreinum allt óhreint. H.K.L. er ekki góður maður, hann bindur ekki vináttu við neitt. Ragnar þakkaði Sigurði fyrir orð hans um Gerplu: Ég tel mig þekkja H.K.L. ákaf- lega vel. Í viðskiptum er hann eins og amerískur stórkaupm[aður], kurteis, áreiðanlegur og ötull. Hann vill hafa allt í lagi og hefur það sjálfur. Hins vegar eru hér fyrst og fremst á ferðinni viðskipti. Eins eru á margan hátt hans einkamál. Hann mundi ekki fresta för til útlanda, þó konan hans eða dóttir veiktist. Hann mundi leggja fyrir reglur um læknisheimsóknir. Skyndilegur dauði vinar hans, eins og Erlendar í Unuhúsi, mundi ekki breyta hans ferðaáætlunum. Og mér rennur til rifja, er ég hugsa um allt, sem Jón Helgas[on] hefur unnið fyrir hann, án þess að hann virðist sjá það. Menn, sem hafa mikla framgirni, eru oft dálítið kaldrifjaðir. Góðir menn kunna sér meira hóf í kröfum fyrir sjálfa sig. Það er ekki sterka hliðin á H.K.L., hve hann er mildur í kröfum um viðurkenningu, og eins og einn aðdáandi hans sagði nýlega, þá er hann talsvert áberandi á gangi í Gerplu, en svo ég ljúki skrafi mínu um þá miklu bók: Hún er samfelld- ari mynd af höfundi sínum en fyrri bækur hans. Hún á eftir að afla honum frægðar hjá þeim fjöl- mörgu, sem „byggja undirdjúpin“, sem rammlega gert skáldverk, upplýst með himinskærum atóm- ljósum, en ástin á höfundi þess mun verða í öfugu hlutfalli við þann orðafjölda, sem helgaður er hjali um frið og rétt lítilmagnans. Þetta er gerviskáldskapur á ákaf- lega háu plani, eins og margir stærstu listamenn heimsins fram- leiða. Bókin Laxness, 1948-1998, eftir Hann- es Hólmstein Gissurarson kemur út hjá Bókafélaginu og er 600 blaðsíður. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 25 Jólasöfnun Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur er hafin Þeir sem vilja leggja nefndinni lið vinsamlega hafið samband á skrifstofutíma í síma 551 4349 eða á netfangið maedur@simnet.is. Einnig er hægt að leggja framlög inn á reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119. Dagana 5. og 6. des. er tekið á móti umsóknum vegna jólaúthlutunar. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Sólvallagötu 48. h ö n n u n : w w w . p i x i l l . i s -20% ROCCO sófasett 3+1+1 Verð áður: 232.000.- Verð nú: 185.600.- -20% CAPRI leðurtungusófi Fáanlegur bæði í hvítu og dökkbrúnu leðri Verð áður: 212.000.- Verð nú: 169.600.- BÆJARL IND 12 - S : 544 4420 201 KÓPAVOGUR Opið um helgina: lau 10:00-17:00 - sun 13:00-17:00 -10% Borð (180x100) og sex stólar 126.000.- Verð áður: 140.000.- Verð nú: Sjónvarpsskenkur Fáanlegur í tveimur stærðum 240cm Verð: 29.500.- 69.000.- 183cm Verð: 65.000.- Hilla með ljósi Verð: Sjónvarpsskenkur 200cm Verð: 67.000.- FOCUS sófasett 3+1+1 199.800.- 3+2 188.000.-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.