Morgunblaðið - 04.12.2005, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 04.12.2005, Blaðsíða 46
Fréttir í tölvupósti 46 SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÉG VAR að keyra suður Hafn- arfjarðarveginn eftir enn eina heim- sóknina til móður minnar á sjúkra- hús þegar hugmyndin fæddist; það verður að stofna félög aðstandenda aldraðra til að reyna að breyta þessu skeflilega ástandi í húsnæðis- og hjúkrunarmálum okk- ar elstu þegna. Og ein- hver verður að brjóta ísinn og sjá hvort sam- takamátturinn getur ekki reynst það hreyfi- afl sem dugar best. Mér varð hugsað til liðinna ára – ætlar þessi þrautaganga engan endi að taka og hvaða lærdóm má af henni draga? Ég á móður sem verður 85 ára 10. desember nk. Hún hefur enga heyrn lengur, hætt að geta lesið og hefur glímt við afleiðingar bílslyss í 15 ár með óteljandi ferðum á bráða- móttöku og sjúkrahús. Enn er hún í sinni íbúð og nýtur aðstoðar góðra granna, sem alltaf eiga nógu stórt hjarta til að gefa. Hún er stolt og vill bjarga sér sjálf og eiga sitt heimili eins lengi og kostur er. Fyr- ir þremur mánuðum var hún að hlynna að blómapotti, féll og bæði mjaðmar- og handleggsbraut sig. Síðan hefur hún verið á ferðalagi milli spítalans í Fossvogi og Rauða- krosshótelsins. Undir lok þess ferðalags fórum við að skoða her- bergi á einu af elliheimilum borg- arinnar. Það var svipað að stærð og baðherbergið í íbúðinni hennar. Mér féllust hendur, en gamla konan sagði: „Við skulum ekki sleppa þessu herbergi strax.“ Nú er hún komin heim og það losnaði eftirsótt rúm í Fossvoginum. Eftir þessa ferð var mér skapi næst að gleyma hugmyndinni um stofnun félags aðstandenda aldr- aðra. Ég, óbreyttur þegn með rýran sjóð og takmarkaðan tíma, hefði nóg með mig og mína. En svo fékk ég hvatningu úr öllum áttum. Þú hefur reynsluna, einhver verður að byrja, marg- ir á sama báti og svo styður hver annan. Hvatningin kom ekki síst frá fólki sem alla daga tekst á við þetta ástand, gerir sitt besta og vinnur lítið krafta- verk á hverjum degi. Ég hætti við að hætta. Nú hefur lítill en traustur und- irbúningshópur ákveðið að boða til undirbúningsfundar hinn 15. des- ember nk. Fundurinn verður í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði og á að hefjast klukkan átta um kvöldið. Við sem stöndum að undirbúningi erum Hafnfirð- ingar og á okkur brennur ástandið á Sólvangi, sem landsmenn hafa kynnst á undanförnum vikum. Í Hafnarfirði hefur einnig verið gerð húsnæðiskönnun meðal eldri borg- ara, þar sem niðurstöður eru um margt mjög athyglisverðar. Ein- hvers staðar verður að byrja og við höfum fengið loforð hjá virtu bar- áttufólki að tala á þessum fundi og leggja málinu lið. En hvaða fólk erum við að tala um og fyrir hverju viljum við berj- ast? Við skulum gera okkur ljóst að fólk sem komið er á áttræðisaldur og eldra hefur hvorki kraft né að- stöðu til að takast á við þetta ástand sem með réttu má kallast þjóðarskömm. En flestir eiga að- standendur sem reyna eftir mætti að létta ævikvöldið hjá sínum nán- ustu. Þessir aðstandendur eru flest- ir milli fimmtugs og sjötugs – fólk á góðum aldri, enn fullt af starfsorku og getur lyft grettistaki, stilli það saman strengi sína. Þetta er líka fólkið sem með hverju árinu færist nær þessum þröskuldi, þar sem ald- urinn setur mörkin hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Ég las fyrir nokkru viðtal við danskan ráðherra um málefni hinna eldri í Danmörku. Hann sagði: „Þegar ’68- kynslóðin verður komin á þennan aldur verða gerðar aðrar og meiri kröfur en gamla fólkið gerir nú.“ Barátta til að breyta þessu ástandi er því ekki aðeins fyrir okkar nán- ustu, heldur líka fyrir okkur sjálf. En verkefnið er risavaxið. Verst eru húsnæðismálin. Allir eiga að eiga rétt á sérhúsnæði við hæfi út ævikvöldið, hvort sem um er að ræða venjulegar íbúðir eða sér- hannaðar, herbergi í sambýlum og á öldrunarheimilum eða þar sem hjúkrun er. Fólk yfir áttrætt hefur ekki lengur tíma til að bíða – það verður að eiga valkosti í stað bið- lista. Hver og einn á sitt einkalíf og á rétt á að hafa í kringum sig sína persónulegu muni og geta umgeng- ist sína nánustu án ásýndar og áheyrnar allra í kring. Taka þarf höndum saman við fé- lög eldri borgara í allri þeirra rétt- indabaráttu. Flest hugtök eru úrelt og snúast um bætur, styrki, fram- færslu, elli, umönnun og stofnanir. Það má ekki svipta fólk fjárræði sínu og sjálfstæði nema brýna nauðsyn beri til. Við eigum að forðast misskipt- ingu gæða eins og kostur er gagn- vart þessum aldurshópi. Í Hafn- arfirði einum eru nú í byggingu hundruð íbúða á vegum fjárfesta og verktaka á bestu stöðum í bænum, sem ætlaðar eru eldra fólki með fullar hendur fjár. Á sama tíma eru allt að fjórir eða fleiri saman í einu herbergi á þeim annars góða stað – Sólvangi. Það á að fara að reisa há- tæknisjúkrahús fyrir milljarða af Símapeningunum okkar á sama tíma og sjúkrahús og heimili fyrir aldraða eru yfirfull af rúmliggjandi eldra fólki. Aðbúnaður foreldra okkar í dag er prófsteinn á þetta þjóðfélag – samkenndina og sam- hjálpina. Við megum ekki láta sér- gæskuna ráða hér ferð. Aðstandendur aldraðra: verjum okkar fólk Reynir Ingibjartsson fjallar um stofnun félags aðstandenda aldraðra ’… fólk sem komið er ááttræðisaldur og eldra hefur hvorki kraft né aðstöðu til að takast á við þetta ástand sem með réttu má kallast þjóðarskömm.‘ Reynir Ingibjartsson Höfundur er kortaútgefandi og aðstandandi aldraðrar móður. RAFLAGNA ÞJÓNUSTA RAFSÓL Skipholti 33 • 105 Reykjavík Sími: 553 5600 E i n n t v e i r o g þ r í r 2 6 6 .0 0 2 lögg i l tu r ra fverk tak i Atvinnuhúsnæði til leigu Réttarholtsvegur Glæsilegt 206 fm atvinnuhúsnæði við fjölfarin gatnamót. Húsnæðið var allt endurnýjað fyrir 3 árum. Góð bílastæði og gott aðgengi. Laust strax. Hægt er að skoða myndir á www.rettarholtsvegur.com eða fá upplýsingar í síma 898 3677. Elísabet og Þorfinnur taka á móti áhugasömun frá kl. 12-14 í dag. Sími 530 6500 Finnbogi Hilmarsson, Einar Guðmundsson og Bogi Pétursson löggiltir fasteignasalar Opið mán.- fös. frá kl. 9-17 Ný uppgerð 3ja herbergja 90 fm íbúð á 2. hæð með sérinngangi af svölum. Nýtt parket á allri íbúðinni og hún nýmáluð. Suðursvalir frá stofu, sameign- legur garður, sameiginlegur afgirtur stór sólpallur. Sérbílastæði fyrir fram- an húsið. Laus til afhendingar við kaupsamning. V. 17,9 m. Myndir og nánari lýsing eignar á www.heimili.is OPIÐ HÚS Í DAG KLUKKURIMI 59 – SÉRINNGANGUR FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár Árni Stefánsson, viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali Sérlega vel skipulagt 161,3 fm einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr og glæsi- legu útsýni til fjalla. Húsið er staðsett á eftir- sóttum og rólegum stað í lokaðri götu. Stór sólrík 660 fm lóð með skjólgirðingu og afgirtum 25 fm sólpalli. Stutt í skóla, útivistarsvæði og alla þjónustu. Innan hússins eru þrjú svefnher- bergi, auk þess sem hægt er að bæta við fjórða svefnherberginu, þar sem nú er sjón- varpsrými. Stofan er mjög björt og rúmgóð með mikilli lofthæð og þaðan er gengið út á sólpallinn. Ágætir fataskápar eru í öllum svefnherbergjum, auk þess sem hægt er að ganga úr hjónaherbergi út í garð. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, baðkar, inn- rétting og sturtuklefi. Parket er á öllum gólfum nema á baði og í eldhúsi. Bílskúrinn er fullbúinn með geymslulofti. Að auki er rúmgott 40 fm geymslurými sem er fyrir utan heildarfermetrafjölda. Upphitað hellulagt bílastæði. Verð 41,0 millj. Verið velkomin í dag frá kl. 13.00-15.00 SVEIGHÚS 5 - ÚTSÝNI www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli OPIÐ HÚSOPIÐ HÚS OPIÐ HÚS Í DAG - STRANDGATA 32, HAFNARFIRÐI. - LAUS STRAX - 202 FM GLÆSILEG HÆÐ Björt og sérlega falleg 95,7 fm 4ra herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi í nýlegu Perma- formhúsi. Verð 22,9 m. EIGNIN ER LAUS OG TIL AFHENDING- AR STRAX. Glæsileg 202 fm hæð í steinhúsi sem hefur verið tekin algjörlega í gegn og endurnýjuð á glæsilegan og vandaðan hátt. Eignin skiptist í ca 172 fm hæð með þremur svefnherbergjum og aukaíbúð með eldhúsi og baði ca 30 fm. Allt parket á íbúðinni er nýlegt, gegn- heilt eikarparket. Verð 34,9 m. Þorgrímur tekur á móti gestum kl. 16:00-17:00 Hannes og Íris taka á móti gestum í dag kl. 13:00-15:00 OPIÐ HÚS Í DAG - LAUFRIMI 6 *** LAUS STRAX *** Glæsileg 98 fm 3ja herb. íbúð á 2. hæð, íbúð merkt 0203, í nýju og vönduðu fjölbýli ásamt stæði í bíla- geymslu. Íbúðin skiptist í forstofu, tvö herbergi, opið eldhús, stofu og flísa- lagt baðherbergi auk geymslu og þvottaherbergis. Sérgeymsla í kj. Íbúðin er búin vönduðum innrétting- um. Parket og flísar á gólfum. Góðir skápar í herbergjum og í forstofu. Rúmgóðar svalir til suðurs. Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning. Verð 22,9 millj. FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali. Sóleyjarimi 1 Vönduð 3ja herb. fyrir 50 ára og eldri Opið hús í dag frá kl. 14-15 Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-15 Verið velkomin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.